Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 t Móðir min, tengdamóöir og amma, HALLBJÖRG INGVARSDÓTTIR, Nönnugötu 16, er lóst 2. þ.m. veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. þ.m. kl. 13.30. Árni í. Magnússon, Guðfinna Gissurardóttir, Jón A. Árnason, Sigurveig Björgólfsdóttir, Halla Margrét Árnadóttir. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, JAKOBÍNA EBBA GUDMUNDSDÓTTIR fró Lœk (Flóa, lést á heimili sinu, Dalbraut 27, 2. mars sl. Sigrfóur Siguröardóttir, Guójón Jónason, Svanhildur Siguröardóttir, Jón S. Hallgrfmsaon, Sverrir Guöjónsson, Elin Edda Arnadóttir og barnabörn. Faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURDUR BREIDFJÖRÐ ÓLAFSSON, Grettisgötu 19b, lést 23. febrúar. Útförin hefur fa Jóhann Edvin Weihe, Eggert H. Sigurðsson, Pétur Sigurösson, Elísabet Siguröardóttir, Ólafur Sigurósson, Gróa Siguröardóttir, Ingvald Sigurðsson, Siguröur Agúat Sigurösson, og b fram. Gunnhildur Hrólfadóttir, Hólmfrföur K. Zophanfasdóttir, Guörún Magnúsdóttir, Guöm. Birgir Ragnarsson, Geröur Sveinsdóttir, Eygló Breiófjörö, Anne Marie Sigurðsson, Ragnheióur Árnadóttir t Eiginmaöur minn, faöir, afi, tengdafaöir og bróöir, BRAGI HINRIKSSON, er lést þann 25. febrúar sl. aö heimili sinu i Noregi veröur jarö sunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 7. mars kl. 13.30. Ingibjörg V. Jóhannsson, Elísabet Bragadóttir, Heiga María Bragadóttir, Ingibjörg Bragadóttir, Bragi Þór Bragason, barnabörn og aörir aöstandendur. t Fóstursonur minn og bróöir, STURLA STEINDÓR STEINSSON, andaöist föstudaginn 1. mars. Britt Steindórsson, Steinn Eínar Steinsson. t Sonur minn, JÓHANN BJÖRGVIN JÓNSSON, Melabraut 39, Seltjarnarnesi, lést i Landspitalanum mánudaginn 4. mars. Ólfna Jóhannsdóttir. Kveðjuorð: Gunnar Halldór Sigurjónsson Fæddur 29. nóvember 1909 Dáinn 29. febrúar 1985 Mig langar með nokkrum orðum að minnast míns kæra vinar og mágs Gunnars H. Sigurjónssonar. Gunnar fæddist 29. nóvember 1909. Hann varð því 75 ára þ. 29. nóv. síðastl. Foreldrar hans voru þau heið- urshjón Jónfríður Halldórsdóttir frá Kollsvík og Sigurjón Gunn- arsson, sem kenndur var við Gunnarsbæ hér í Hafnarfirði. Þau hjón, Jónfríður og Sigurjón, eignuðust níu börn, sem talin eru í aldursröð: Margrét, Stefanía (dáin 1940), Halldóra, Gunnar (sem hér er minnst), Helgi, ólafur, Guðrún og Haraldur. Unga dóttur misstu þau óskírða. Þetta var og er samstilltur systkinahópur. Hefir þetta fólk notið hylli og vináttu allra þeirra, sem þeim hafa kynnst að nokkru. Gunnar varð skyndilega veikur um borð í es. Hvalvík, þar sem hann var loftskeytamaður í þess- ari ferð skipsins og var fluttur í sjúkrahús í borginni New Orleans. Þar lá hann þungt haldinn í 9 daga og andaðist laugardaginn 23. febrúar. Hann var jarðsettur föstudaginn 1. mars frá Hafnar- fjarðarkirkju að viðstöddu fjöl- menni. Gunnar fór í Flensborgarskól- ann skömmu eftir fermingu og seinna fór hann í loftskeytaskól- ann. Hann lauk prófi frá báðum þessum skólum með góðum ár- angri. Að þessu loknu fór hann til sjóðs. Var hann loftskeytamaður á bv. Garðari, eign Einars Þorgilss- onar. Þetta skip var þá stærsta og einna fullkomnasta skip togarafl- otans. Þá var skipstjóri Sigurjón Einarsson, 1. vélstjóri Jón Sig- urðsson og matsveinn Guðbjartur Ásgeirsson. Ég minnist þessara manna sem allir eldri Hafnfirð- ingar þekkja, vegna þess að allir þessir menn urðu einlægir vinir Gunnars, og heimilisvinir fjöl- skyldunnar. Þeir kunnu að meta kunnáttu, hæfni og hugarfar hans. Enda má segja sama um alla þá sem með honum hafa starfað og lifað á umliðnum árum. Gunnar fór í land eftir 9 ára starf á sjónum og gerðist loftsk- eytamaður í Gufunesi. Þar starfaði hann í 33 ár, lengst sem varðstjóri. Mér er kunnugt um að allir, sem þarna störfuðu með honum mátu hann mikils og virtu í starfi. Hann hætti störfum í Gufunesi fyrir aldurssakir 70 ára gamall. Ég geri ráð fyrir að mörg- um, sem þá unnu með Gunnari ha- fi þótt hann full „ungur" til að hætta störfum. Þó geri ég ráð fyrir að hann hafi ekki kunnað því neitt illa, vegna þess að hann átti sér ávallt næg hugðarefni til að starfa að. Hann var aldrei iðjulaus þótt hann ætti frí. Ýmist fór hann að mála húsið eða ditta að heimilinu, eða þá að hann tók fram pensla og léreft og fór að mála myndir. Hann var mjög listrænn og laginn við það, eins og allt sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði á yngri árum farið í myndlistanám um tíma. Það var hans yndi að grípa hvert tækifæri sem gafst til þessa verks. Einnig átti hann mjög gott með að skrautrita. Þetta get ég allt borið vitni um, af 50—60 ára kynnum okkar. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Gertrud K. Sigurjónsson (fædd Abelmann) frá Bremerhaven (Wesemunde). Þau giftu sig 20. janúar 1940. Gertrud er mjög vel gefin, menntuð og elskuleg kona. Þetta hefir Gunnar mágur minn fundið og hefir hjónaband þeirra og allt samlíf verið þar eftir. Þau hafa eignast þrjá myndarl- ega og vel gefna syni og þeir eru Þór Gunnarsson, sparisjóðsstjóri, kvæntur Ásdísi Valdimarsdóttur, Sigurjón Gunnarsson matreiðsl- um., kvæntur Þorbjörgu Bernhard og Ludvig H. Gunnarsson, trésm- iður, kvæntur Guðrúnu Jónsdótt- ur. Barnabörnin eru orðin 7. Þarna var mjög elskulegt og skemmtilegt samband milli afa og bamabarn- anna. Heimili þeirra hjóna hefir ávallt verið til fyrirmyndar og hafa þau bæði átti þar híut að. Hefir vina- og kunningjahópur- inn verið stór, og þangað hefir verið ánægjulegt og gott að koma og dvelja. Þegar fjölskyldan og vinir fréttu að Gunnar væri dáinn, varð söknuðurinn sár. Maður bjóst ekki við þessu svona fljótt. Þó vissum við, að hann gekk ekki alveg heill til skógar. Hann var svo hress og glaður að fara þessa ferð. í þessari síðustu ferð mættust þau hjónin í Englandi til þess að njóta samver- ustundanna og um leið sjá ný lönd og nýjar slóðir. Þótt þessir síðustu dagar hafi verið sárir og erfiðir fyrir Ger- trud, þá veit ég samt, að hún hefir verið ánægð að geta verið með honum síðustu stundirnar. Megi Guð blessa okkur öll, Ger- trud, fjölskylduna og ástvini alla. Við þökkum honum samfylgdina og minningarnar sem við eigum. Guð fylgi vini mínum á vegum hans. Við sendum öll Gertrud, sonun- um og konum þeirra, barnabörn- um og ástvinum öllum innilegustu samúðarkveðjur. HMS. t ÞöKkum innilega hlýhug og vináttu við andlát og útför MARlU m. GUÐMUNDSDÓTTUR. Fyrir hönd ættingja og vina hinnar látnu. Guðmundur Loftsson, Marfa Loftsdóttir, Óskar Loftsson. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu við andlát og jaröarför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, VALDIMARS EINARSSONAR, Blikabraut 9, Keflavfk. Ragnheiöur Valdimarsdóttir, Guömundur Valdimarsson, Valgeröur Þorgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, GUÐMUNDURJÓNASSON, Miklubraut 5, lést i Landspitalanum aö morgni 5. mars. Stefanfa Eövarösdóttír. Utför t JÓNS HERMANNS INDRIDASONAR, Álfaskeiói 121, Hafnarfirói, fer fram frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn 7. mars kl. 13.30. Ágúst Indrióason, Guöbjörg Ágústsdóttir, Ólafur Ingimundarson. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa. FINNBOGA EINARSSONAR, Neöri-Presthúsum, Mýrdal. Kristfn Einarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokaö í dag frá kl. 13-16 vegna jarðarfarar BJARGAR GUMUNDSDÓTTUR. Valdimar Gíslason hf. Skeífan 3. Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin Gróörarstöö viö Hagkaup, sími 82895.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.