Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 Heimild Islandslax til vatnstöku: Gengur gegn reglu- gerð Grindavíkur — segir bæjarstjórinn, Jón Gunnar Stefánsson Forsetinn kynnti sér stnrfsemina í öllum deUdum Póstmiðstödvarinnar við Ármúla og lét vel af heimsókninni. F.v. Kristján Helgason, umdæmisstjóri umdæmis nr. 1, Halldór Reynisson, forsetaritari, Bragi Kristjánsson, forstjóri viðskiptadeildar Pósts og síma, Björn Björnsson, póstmeistari Reykjavíkur, frú Vigdís Finnbogadóttir, Kristján Hafliðason, yfírdeildarstjórí bréfadeildar og Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri. Forsetinn heimsækir nýju Póstmiðstöðina í Reykjavík SAMNINGUR fyrirtækisins fs- landslax hf. við landbúnaðarráðu- neytið um vatnstöku í landi Staðar við Grindavík gengur gegn reglugerð bæjarfélagsins um vatnsveitu, að sögn bæjarstjórans, Jóns Gunnars Stefánssonar, sem átt hefur viðræð- ur við forráðamenn landbúnaðar- Hitaveita Akureyrar. 25 % hækkun Akareyri, 19. mars. BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam- I þykkti á fundi sínum í kvöld að hækka hitaveitugjöld á Akureyri um 25%. Þar af eru nálega 14% vegna hækkunar byggingarvísi- tölu og um 11% grunnhækkun. Hinir nýju taxtar taka gildi frá og með morgundeginum, 20. mars. Þá kostar mínútulítrinn 1.480 krónur á mánuði og einn rúm- metri vatns 74 krónur. Hækkun þessi var samþykkt með 11 sam- hljóða atkvæðum. _ Sv.P. Hótelþjófur gómaður á Loftleiðum ráðuneytisins um málið. Samningur landbúnaðarráöuneytisins og ís- landslax tekur ekki gildi fyrr en bæjarstjórn Grindavíkur hefur gefíð heimild sína og verður málið tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í næstu viku, að sögn Jóns Gunnars. Jón Gunnar sagði, að Grinda- víkurbær ætti lítið landrými og samþykkt hefði verið sl. haust að stefna að því að kaupa jörðina Stað af ríkinu. Hann sagði, að ennfremur væri á döfinni að auka samvinnu sveitarfélaga á Suður- nesjum um vatnsnýtingu og skipu- lag þeirra mála. Viðræður þær sem hann ætti við ráðuneytis- menn vegna samningsins gengju því í þá átt, að hann yrði miðaður við hagsmuni bæjarfélagsins þannig að það fengi að bera ábyrgð á kjörum íslandslax hf. eins og annarra, sem njóta vildu slíkrar vatnstöku. Þá væri vilji sveitarfélagsins sá, að þannig yrði haldið á málum að ekki yrði brotið í bága við sameiginlega hagsmuni sveitarfélaga á Suðurnesjum. Bæjarstjórinn sagöi í lokin, að samningaviðræður við ráðuneyt- ismenn gengju vel, en ekki vildi hann spá fyrir um, hver afgreiðsla bæjarstjórnarinnar yrði, þó svo breytingar næðust ekki fram á samningum. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, heimsótti í gær nýju Póstmiðstöðin við Armúla í Reykja- vík. Fór forsetinn úm húsakynnin f fylgd með forráðamönnum stofnun- arinnar og kynnti sér starfsemina í öllum deildum. Póstmiðstöðin við Ármúla var formlega opnuð í maí í fyrra og sameinast þar undir einu þaki þeir meginþættir starfseminnar, sem á undanförnum árum höfðu tvístr- ast víðs vegar um borgina vegna þrengsla og skorts á hentugu hús- næði. Hið nýja húsnæði hafði ýmsar skipulagsbreytingar í för með sér. Póstmiðstöðin var gerð að sér- stakri rekstrareiningu innan Póststofunnar í Reykjavík, Póst- rekstrardeild 11, sem síðan skipt- ist í þrjár megindeildir; bréfa- deild, böggladeild og flutninga- deild. Þá er einnig staðsett í hús- inu nýtt póstútibú, Reykjavík-8. Alla þessa þætti starfseminnar kynnti forsetinn sér í heimsókn- inni, sem lauk með því að forset- inn drakk síðdegiskaffi með starfsmönnum Póstmiðstöðvar- innar. 22 ARA maður var handtekinn á Hótel Loftleiðum á mánudag eftir að uppvíst var, að fjármunir höfðu horf- ið úr herbergjum hótelsins. Rann- sóknarlögreglan náöi manninum á hótelinu og þykir Ijóst, að hann hafi haft í hyggju að fara inn í fleiri her- bergi, en honum hafði tekist að komast yfír svokallaðan höfuðlykil, það er lykil sem gengur að öllum dyrum hússins og hafði hann lykil- inn undir höndum. Við húsleit á heimili mannsins fannst þýfi, um 40 þúsund krónur í peningum, 14 þúsund krónur í íslenzkum peningum, á þriðja þús- und norskar krónur, á þriðja þús- und sænskar krónur auk belgískra og franskra franka og danskra króna. Manninum tókst að stela lyklinum í afgreiðslu hótelsins á föstudag. Hann fór tvær ferðir á föstudag og laugardag og var í sinni þriðju ferð á mánudag. Rfldsstjómin um afurðagreiðslur til bænda: Mjólk greidd innan mánaðar og sláturafurðir um áramót Nefnd skipuð og breytingar taki gildi 1. maí RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum í gær að fela viðskiptaráð- herra að skipa nefnd til að gera tillögur um hvernig standa skuli að greiðslum afurðaverðs til bænda, þannig að þeir geti fengið innlagða mjólk greidda að fullu innan mánaðar frá 1. maí nk. og sláturafurðir um nk. áramót Samþykkt þessi er í sam- ræmi við ákvörðun stjórnar- flokkanna frá 6. september sl. og gerir ráð fyrir að bændur fái innlagða mjólk greidda að fullu innan mánaðar, í fyrsta sinn 1. júní nk., og sláturafurð- ir um áramót. Samþykkt ríkis- stjórnarinnar er í tengslum við ákvörðunina um að lánastofn- anir fjármagni sjálfar afurða- lán til innlendra framleiðslu- atvinnuvega og lækkun bind- iskyldu innlánsstofnana við Seðlabanka íslands. Viðskiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, sagði í samtali við Mbl., að hann myndi skipa nefndina á næstu dögum, en „Stjórnvöld vilja þó greiða fyrir at- vinnuuppbyggingu á Suðurnesjuma segir Þorsteinn Ólafsson, stjórnarformaður íslandslax hf. „MÉR SÝNIST að fólk almennt hafí ekki kynnt sér málið efnislega. Öll okkar áform styðjast við mjög rækilegar vísindalegar rannsóknir á svæðinu og er engin hætta á ferðum fyrir einn eða neinn,“ sagði Þorsteinn Ólafsson, stjórnarformaður íslandslax hf. og framkvæmda- stjóri þróunardeildar Sambandsins, í samtali við Mbl. í gær. Eins og kunnugt er af frétt- merkilegur að því leyti að um, heimilaði landbúnaðar- ráðherra íslandslaxi hf. vatns- töku í landi jarðarinnar Staðar við Grindavík og að nýta allt að 20 sekúndulítra af 100 gráðu heitu vatni, auk þess sem því er heimilað að nýta allt að 350 sekúndulítra af fersku vatni. Stjórn Kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi hefur mótmælt þess- ari ákvörðun landbúnaðarráð- herra vegna þess að stjórnin telur endurgjaldið ekki í sam- ræmi við það sem eðlilégt mætti teljast og einnig telur stjórnin að áhrif slíkrar vatnstöku á byggðarlögin á Reykjanesi liggi ekki fyrir. „Ég tel að þessi samningur landbúnaðarráðherra sé mjög stjórnvöld leggja sig þó fram við að greiða fyrir atvinnu- uppbyggingu á Suðurnesjum. Við höfum haft góða samvinnu við Grindvíkinga og eru þeir mjög jákvæðir. Ég er viss um að þeir séu fullhuga um að fyrirtækið geti orðið að veru- leika,“ sagði Þorsteinn. BVið styðjumst í öllu við álit sérfræðinga okkar varðandi vatnstöku á svæðinu og er eng- in hætta á að þetta hafi áhrif á aðra vatnstöku annarra aðila. Varðandi gagnrýni á verð heitavatnsréttindanna, sem eru mjög takmörkuð, eru rétt- indin seld á mjög hliðstæðu verði og samið var um milli ríkisins sem eiganda Lauga- lands í Eyjafirði annars vegar og Hitaveitu Akureyrar hins vegar. í samningi þeim sem nú er talað um, eru mjög hliðstæð ákvæði og giltu þá. Okkar framkvæmdir miða að öflugri atvinnuuppbyggingu í nágrenni Grindavíkur og ég trúi ekki öðru en að þeir sem láta sig varða framgang þess styðji þetta mál heilshugar en hengi sig ekki í deilur sem eru smáatriði," sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagði ennfremur að Ilitaveita Suðurnesja hefði ekki getað boðið upp á betra tilboð en svo að Islandslax myndi sjálft þurfa að borga 15,5 milljónir króna í tengi- gjald fyrir heitavatnslögn frá Grindavík til Staðar, sem fyrirtækið myndi þó ekkert eiga í. í öðru lagi myndi ís- landslax þurfa að greiða 26 krónur fyrir tonnið, sem er nær helmingi dýrara en heita vatnið er t.d. í Reykjavík. „Verð á orku til fiskeldis á þessum kjörum er ekki sam- keppnishæft og þar með er heita vatnið ekki sú auðlind í þessu sambandi eins og allir hafa verið að tala um,“ sagði Þorsteinn. „Við hljótum því að leita leiða í heitavatnsöflun sem eru ódýrari og sem gera heita vatnið samkeppnisfært. Við höfum möguleika á því að fá takmarkaða heimild til þess að leita sjálfir að heitu vatni. í landi Staðar þurfum við að taka þá áhættu að þær boranir sem við munum sjálfir kosta, skili ekki árangri. Ef, hinsveg- ar, við verðum heppnir, teljum við okkur geta með þessu móti fengið mun ódýrara heitt vatn en tilboð Hitaveitu Suðurnesja hljóðar upp á. Við vitum líka að hugur allra aðila sem standa að fiskeldisstöðvum á Suðurnesjum stendur til þess að fá mun ódýrari orku en þeim hefur tekist að ná í samn- ingum við hitaveituna," sagði Þorsteinn að lokum. hann hefði ekki tekið ákvörðun um hverja hann myndi skipa í hana. Hann sagði þessa ákvörð- un í tengslum við breytingarn- ar á bindiskyldu og afurðalán- um og sagði síðan: „Það verður að sjálfsögðu að endurskoða reglurnar um veitingu afurða- lána og niðurgreiðslurnar, tímasetningu á greiðslum úr ríkissjóði, svo og hver lág- marksfjármögnun birgða verð- ur að vera hjá vinnslustöðvun- um sjálfum. Það verður hlut- verk nefndarinnar, að gera til- lögur þar að lútandi." Ríkisstjórnar- samþykkt í gæn Bindiskylda innláns- stofnana úr 28% í 18% RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær, að afurðalán Seðlabankans vegna innlendra framleiðsluatvinnuvega verði færð yfír í viðskiptabankana og bindi- skylda innlánsstofnana af innlánsfé því lækkuð úr 28% í 18%. Viðskipta- ráðherra hefur falið Seðlabanka ís- lands nánari útfærslu á atriðum sem tengjast málinu. Viðskiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, sagði í viðtali við Mbl. eftir fundinn í gær, að hann hefði falið Seðlabanka íslands að sjá um nánari útfærslu á þeim atrið- um sem væru máli þessu viðkom- andi, en þar væri um margþætta liði að ræða sem snertu lánastofn- anir í landinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.