Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 25 Mennt er máttur Að vera sannur er ekki að vera það sem þú ert Að vera sannur er að verða það sem þú getur orðið Gunnar Dal Bokmenntir i grunnskóla Jenna Jensdóttir og Sigríöur Ragna Sigurðardóttir Eitt af því sem best hefur ver- ið gert í fræðslumálum þjóðar- innar var þegar námsflokkar voru stofnaðir og öldungadeild- um komið á fót við mennta- og fjölbrautaskóla. Fullorðnu fólki var gefinn kostur á að læra undir stúdentspróf til háskólanáms ef hugur þess stefndi að því. Fólki, sem á æskuárum sínum hafði þráð lengra nám en barna- og gagnfræðapróf, en átti þess ekki kost af ýmsum ástæðum. Aukin menntun þessa fólks hefur þegar skilað sér út í þjóð- félagið á ómetanlega jákvæðan hátt. Það hljota að vera misjöfn viðhorf til náms hjá þeim sem setið hafa á skólabekk frá 6 ára aldri og hinum sem full- orðnir setjast á skólabekk með það í huga að taka samræmt próf er veitir rétt til frekara náms. Okkur lék nokkur forvitni á því að vita hvort viðhorfin væru í rauninni ólík til skóla og náms við áðurgreindar að- stæður. Við ræddum við Gunnþór- unni Arnarsdóttur, 15 ára nemanda i 9. bekk grunnskóla, og Minny Bóasdóttur, sem nú hefur alið upp þrjá syni sína, sem allir eru komnir í fram- haldsnám, og settist i fornám til grunnskólaprófs í Náms- flokkum Reykjavíkur í haust. Spurning: Nú eru ærið mis- jafnar forsendur fyrir að þið sitj- ið í 9. bekk og trúlega er afstaða ykkar til námsins ólík. Því er best að spyrja: Hvernig líkar ykkur námið? Gunnþórunn: Alveg ágætt að vera í 9. bekk. Námið er að vísu misskemmtilegt og fer það eft- ir fögum. Félagarnir hafa mik- ið að segja í skóla. En stundum finnst manni erfitt og þá skýt- ur upp þeirri hugsun hvort maður sé ekki að læra fyrir kennarann og foreldrana en ekki sjálfan sig. Minný: Það er mjög gaman að fá að læra á mínum aldri. Börnin eru uppkomin. Og fátt er að mínu mati eftirsóknar- verðara en afla sér menntunar, sem maður átti ekki kost á í æsku. Raungreinar þykja mér erf- iðar, en allar námsgreinar skemmtilegar. Ég nýt þess að læra. Spurning: Hver er afstaða ykkar gagnvart ólíkum aldri nemenda í sömu deildum? Gunnþórunn: Ég ber mikla virðingu fyrir fullorðnu fólki sem sest á skólabekk. Og finnst slíkt í rauninni eðlilegt og sjálfsagt. Minný: Ég hefi ánægju af því að vera í námi með yngra fólki. Viðhorf hafa breyst gagnvart fullorðinsfræðslu á síðustu árum og vafalaust er hún talin mjög jákvæð og skiptir þá ekki máli aldur nemenda. Spurning: Lítið þið á nám eins og vinnu? Gunnþórunn: Ekki alltaf. Ég held það fari eftir fögum. Sum fög eru leiðinleg. Þá vinn ég að þeim fyrst, en geymi mér skemmtilegu fögin þar til síð- ast. Sem sagt vinna og skemmtun. Minný: Ég lít eingöngu á námið sem skemmtileg for- réttindi. Það hefur opnað mér Minný Bóasdóttir nýjan heim með auknum tæki- færum. Spurning: Hver eru kynni ykk- ar af bókmenntum, íslenskum og erlendum, í 9. bekk? Gunnþórunn: Mér þykja ís- lensku bókmenntirnar í vetur ekki sérlega áhugaverðar. Nema ljóðakennslan. Við erum nýbyrjuð með ljóð og mér finnst mjög gaman að þeim. Hvað snertir erlendar bók- menntir kynntumst við þeim aðeins. Það er ekki mikið og fer eftir því hvað kennarar leggja áherslu á. Minný: mér þykir gaman að íslenskum bókmenntum og einnig þeim sem ég hefi kynnst i kennslu erlendra mála. Gunnþórunn Arnarsdóttir Spurning: Nú standið þið á tímamótum í vor, hver eru fram- tíðaráform ykkar? Gunnþórunn: Auðvitað fer ég í lengra nám, en hvað það verður veit ég ekki enn. Núna hugsa ég um framhaldsnám í þeim fögum sem mér þykir skemmtilegust. Lífið yrði fljótt tilgangslaust án góðrar menntunar. Minný: Ef ég næ prófi fer ég örugglega í lengra nám. Það eru forréttindi hverrar mann- eskju að hafa tækifæri til menntunar. Þetta er í senn stórkostlegt og viss mannrétt- indi sem fólk ætti að notfæra sér. UTTLE TRAMP CHARACTER LICENSED BY BUBBLES INC S A GGK <0 Matvörukaupmaðurinn notar hana til þess að fylgjast með vörubirgðum. Foretjórinn notar hana til að leita i upplýHÍngabankanum. Tannlæknirinn geymir í henni Auglýsingamaðurinn sögu allra sjúklinganna notar hana til vinnslu- og tölvan sér um að gefa þeim skráningar. tíma þegar við á. Skókaupmaðurinn notar hana Einkaritarinn notar hana til að fylgjast með sölunni. til skýrelugerðar og bréf&8krifta. Nemandinn notar hana til að ná betri árangri. Matsveinninn notar hana til að setja saman matseðil dagsins, reikna hita- einingar o.fl. Ferðaskrifstofan notar hana til að gera ferðaáætlanir um allan heim. Bilaleigan notar hana til að reikna leigugjöld. Bankinn notar hana til að veita greiðari upplýsingar og betri þjónustu. Skrifstofustjórinn notar hana til að geyma og senda skilaboð. Hótelstjórinn notar hana til að skrifa reikninga. Bóndinn notar hana til að fylgjast með fóðurgjöf og bæta hana. Visindamaðurinn notar hana til að leita i gagnaskrám. Rithöfundurinn notar hana til að skrifa handrit Arkitektinn notar hana til að spara sér undirbúningsvinnu. Verktakinn notar hana til að gera hagkvæm tilboð. Opinberar stofnanir nota hana til þess að draga úr álagi á stóru tölvunum. Tivggingamaðurinn notar nana til að flýta fyrir útreikningi á iðgjöldum. Lyfjafræðingurinn notar hana til að muna 45000 lyfjaheiti. Fólk á borð við þig, hundruð þúsunda sem sinntu kalli tölvu- væðingarinnar. Fólk sem hafði ekki litið á sig sem tölvusérfræð- inga. (Sumir voru meira að segja lélegir í stærðfræði í skóla). Þá kom IBM PC einkatölvan til sögunnar með fiölda forrita oer allt varð svo einfalt. Fólk komst að raun um að hæfni tölvunnar var slík að notandinn þurfti ekki að vera tölvusérfræðingur. Það þurfti heldur ekki forritunar- nám - þægileg forrit voru til í miklu úrvali og ný bætast við daeleera. Allt sem til burfti var ákveðin peningaupphæð og einlægur vilji til þess að standa sig í samkeppnisþjóðfélagi nú- tímans. Ertu með? Hafðu sam- band við einhvern söluaðila IBM PC, hann kemur þér á sporið. Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvur : Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8, Kópavogi, simi 73111 Skrif8tofuvélar hf. Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33, Reykjavík sími 20560 Örtölvutækni hf., Ármúla 38 Reykjavík, sími 687220 ==^=
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.