Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLADIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 21 „Fjárhagsstaðan er í réttu hlutfalli við framkvæmdirnar" — segir Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri í Kópavogi „ÞAÐ ER lítill vandi að sýna góða fjárhagsstöðu, ef haldið er aftur af framkvæmdum, því fjárhagsstaða stendur í flestum tilvikum f réttu hlutfalli við framkvæmdir og rekst- ur. Við höfum staðið í miklum fram- kvæmdum á þessu kjörtímabili," sagði Kristján Guðmundsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, í samtali við Morg- unblaðið, en slæm fjárhagsstaða Kópavogs barst í tal í sjónvarps- þætti, þar sem Davíð Oddsson sat fyrir svörum fulltrúa minnihluta- flokkanna um borgarmálefni. „Því er ekki að neita að fjár- hagsstaðan er slæm um stundar- sakir, en það segir ekki alla sög- una því hún getur verið breytileg á hverjum tíma. Fjárhagsstaðan var mjög slæm 1978, en var síðan í mjög góðu lagi allt fram á síðari hluta árs 1983, en þá fór að síga á ógæfuhliðina, einkum síðari hluta árs 1984. Það eru ýmsar samverkandi ástæður sem því valda. Við höfum verið mjög duglegir við fram- kvæmdir á þessu kjörtímabili eins og ég sagði. Til dæmis höfum við hyggt tvö stór dagheimili, sem jafngildir því miðað við stærð bæjarfélagsins að 12—14 dag- heimili hefðu verið byggð í Reykjavík. Við rekum mjög full- komna félagslega þjónustu hér í Kópavogi og erum með öfluga heilsugæslu og án þess að ég vilji gera lítið úr því sem gert er í Reykjavík, þá skilst mér að 20 þúsund manns séu þar heimilis- læknalausir. Vanskilaskuldir bæjarins nema nú um 40 milljónum króna, en til samanburðar nemur fjárhags- áætlun bæjarins fyrir árið 1985 um 500 milljónum króna. Auk mikilla framkvæmda má rekja hluta skýringarinnar á þessari slæmu lausafjárstöðu, til lélegri innheimtu en áætlað var, en hún var tæp 84% á árinu 1984, á móti 86% 1983. Fyrirfram var engin leið að sjá þetta og það munar talsvert um hvert prósent. Þessi upphæð sem þarna vantar er um 10 milljónir. Þessu til viðbótar hafa ýmsir þættir farið fram úr áætlun, rekstrarþættir samtals um u.þ.b. 12 milljónir króna. Þá fórum við í breytingar á leiðakerfi SVK sem áttu að leiða til sparnað- ar, en varð í staðinn til þess að kostnaðurinn við leiðarkerfið jókst um 3 milljónir króna, svo eitthvað sé nefnt," sagði Kristján. „Til þess að kippa þessu í liðinn höfum við nú ákveðið frestun á framkvæmdum og það fer enginn nýr rekstur í gang á þessu ári. Með samstilltu átaki vinnum við þetta upp. Vanskil fyrirtækja og einstaklinga á útsvörum, fast- eignagjöldum og aðstöðugjöldum eru um 62 milljónir króna. Fjár- hagsvandi okkar er þvi um 60% af gjaldföllnum en ógreiddum fyrr- nefndum gjöldum," sagði Kristján að lokum. Sig. Ágústsson hf. og Royal Iceland hljóta al- þjóðlega viðurkenningu Ellert Kristinsson veitir verðlaununum viðtöku. Hraðfrystihús Sig. Ágústs- sonar hf. í Stykkishólmi og dótturfyrirtæki þess í Banda- ríkjunum, Royai Iceland, hafa hlotið verðlaunin „Internation- al Trophy for Quality“ fyrir framleiðslu á skelfiski. Leiðrétting RANGLEGA var sagt frá nafni búðar þeirrar á Hótel Sögu, sem George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna heimsótti er hann var hér á ferð í fyrri viku og frá var sagt í Morgunblaðinu á föstu- dag. Rétt nafn búðarinnar er Ull og gjafarvörur. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. Verðlaunin voru fyrir nokkru afhent í 13. sinn í Madrid á Spáni, en þar eru öflug alþjóðleg samtök, „Trade Leaders Club“, sem árlega útnefna nokkur fyrirtæki til verðlauna, sem þykja skara framúr á sínu sviði. Ellert Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Sig. Ágústsson, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. Sagði hann í samtali við Morgunblað- ið, að þessi viðurkenning væri fyrirtækinu mjög mikils virði sem hvatning og opnaði því möguleika á ýmsum nýjum viðskiptasamböndum. Ellert sagði ennfremur, að í Madrid hefðu verið saman komnir forráðamenn fyrirtækja úr öllum heimsálfum, en afhend- ing þessara verðlauna vekti jafn- an mikla athygli og væri gerð góð skil í fjölmiðlum á Spáni og fagtímaritum samtakanna, sem gefin væru út um allan heim. vERZLANIR-VERKTAKAR-STOFNANIR-EINSTAKLINGAR Einstakt vöruúrval á einum staö. ÆýátA HNÍFAR ^LATNINGSHNÍFAR BEITUHNÍFAR ÁjT ABA jj HAUSINGASVEDJUR FLÖKUNARHNÍFAR KÚLUHNÍFAR — STÁLBRÝNI SLÖNGUKLEMMUR ÍUSAG VÍRAR — TÓG LANDFESTAR VÉLATVISTUR BÓMULLARGARN HVERFISTEINAR í KASSA OG LAUSIR RAFMAGNS- HVERFISTEINAR STJÖRNULYKLAR TOPPLYKLAR LYKLASETT TENGUR SKRÚFSTYKKI ALLAR STÆRDIR MJÖG GOTT VERÐ ST1LLOIMGS ullar-nærfötin halda á þér hita. ST1L-LONGS ullarnærfötin eru hlý og þægileg. Sterk, dökkblá aö lit og fást á alla fjöl- skylduna. SOKKAR — meö tvöföldum botni. HLÍFÐARFATNAÐUR ÖRYGGISSKÓR GÚMMÍSTÍGVÉL MURVERKFÆRI VERKFÆRI TIL PÍPULAGNA FISKSTINGIR — GOGGAR SALTSKÓFLUR ÍSSKÓFLUR KLAKASKÖFUR ÚTIDYRAMOTTUR kókós — gúmmí POLYFILLA — FYLLINGAREFNI PdmS UIESSEX ^ SCHERfTIULY LÍNUBYSSUR NEYÐARMERKI SKOÐUNARBÚNAÐUR BLÝ-TEINATÓG FLOTTEINN Þetta er aöeins lítiö sýnishorn. Viö bjóöum einnig í ótrúlegu úrvali VEIÐARFÆRI - ÚTGERDARVÖRUR - VÉLAÞÉTTINGAR - VERKFÆRI - MÁLNINGARVÖRUR - TJÖRUR BYGGINGAVÖRUR - SJ0FATNAÐ - VINNUFATNAÐ og ótalmargt fleira. 8000 vörutegundir S ILilLID ÍHIK iii HF. á lager. Ánanaustum, Grandagaröi. Sími 28855. Heildsala — smásala. Þrýstimælar Allar stæröir og geröir \ SdMir(lðiiii®(U)(r Vesturgötu 16, sími 132^ Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Dísarfell 25/3 Dísarfell 8/4 Disarfell 22/4 Dísarfell 6/5 ROTTERDAM: Dísarfell 26/3 Dísarfell 9/4 Dísarfell 23/4 Dísarfell 7/5 ANTWERPEN: Dísarfell 27/3 Dísarfell 10/4 Dísarfell 24/4 Dísarfell 8/5 HAMBORG: Dísarfell 29/3 Dísarfell 12/4 Disarfell 26/4 Dísarfell 10/5 HELSINKI/TURKU: Arnarfell 9/4 OSLO: Hvassafell 29/3 LARVÍK: Jan 22/3 Jan 4/4 Jan 15/4 Jan 29/4 GAUTABORG: Jan 21/3 Jan 3/4 Jan 16/4 Jan 30/4 KAUPMANNAHÖFN: Jan .. 2/4 Jan .. 17/4 Jan .. 1/5 SVENDBORG: Jan .. 1/4 Jan .. 18/4 Jan .. 2/5 ÁRHUS: Jan ... 1/4 Jan ... 18/4 Jan ... 2/5 GLOUCESTER, MASS.: Jökulfell ... 13/4 HALIFAX, KANADA: Jökulfell ........ 14/4 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.