Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 Félag íslenzkra rithöfunda: Engar spurnir hafa borizt af tillögu- gerð launanefndar MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá stjórn Félags ís- lenzkra rithöfunda: „Stjórn Félags íslenskra rithöf- unda lýsir furðu sinni vegna þess, að enn hafa engar spurnir borist af tillögum þeirrar nefndar, sem menntamálaráðherra skipaði í hitteðfyrra til þess að fjalla um launamál rithöfunda og lista- manna, framtíðarskipan þeirra mála. Ár er liðið frá því búist var við fyrstu tillögum nefndarinnar. Vakin er athyugli á þessu nú, einkum með tilliti til síðustu út- hlutunar úr Launasjóði rithöf- unda, þar sem sömu pólitísku klíkusjónarmiðin ríkja og áður hafa valdið megnri óánægju, sundrungu og fjöldamótmælum i rithöfundastétt. Stjórn launasjóðs er tilnefnd einhliða af stjórn rithöfundasam- bandsins, sem er aðeins annað rit- höfundafélagið i landinu. Enginn úr Félagi íslenskra rithöfunda er í þremur efstu úthlutunarflokkun- um, sem þrjátíu og einn rithöf- undur fyllir, þar af fimm af sjö stjórnarmönnum Rithöfundasam- bandsins, svo aðeins sé bent á það talandi dæmi.“ Hilmar Jónsson skorar á Jón Baldvin í kappræð- ur um áfengismál HILMAR Jónsson, stórtemplar, hef- ur skorað á Jón Baldvin Hannibals- son, formann Alþýðuflokksins, í kappræður um „áfengisvandamálið og áfengan bjór.“ Bréf Hilmars fer hér á eftir: „Sem kunnugt er hafnaði út- varpsráð kröfu Stórstúku íslands um kappræður í sjónvarpssal um áfengisvandamálið og áfengan bjór milli fulltrúa Stórstúkunnar og bjórflutningsmanna á Alþingi. Neitunin staðfesti ennfrekar þá hlutdrægni, sem ríkisfjölmiðlarn- ir hafa iðkað í fréttaflutningi af áfengismálum. Einn útvarpsráðs- maður kórónaði kurteisa fram- komu þessarar stofnunar í garð viðskiptamanna hennar með því að viðhafa þau orð í dagblaöi að beiðni Stórstúkunnar um mál- frelsi fyrir báða deiluaðila væri dónaskapur. Hvað var dónaskap- ur? Að skora á færustu andstæð- inga sína í besta fjölmiðli þjóðar- innar og biðja jafnframt um al- mennt viðurkenndasta starfs- mann stofnunarinnar sem stjórn- anda? Hverjir eiga ríkisfjölmiðl- ana, Jón? INNLENT Eftir stendur hins vegar spurn- ingin: Þorir þú, Jón Baldvin Hannibalsson, ekki í kappræður um áfengisvandamálið og áfengan bjór? Úr því fæst skorið á næstu dögum. Ég skora á þig að mæta mér á opnum málfundi um fyrr- greint efni í einhverjum samkomusal Reykjavíkur. Sam- komulag verði um tilhögun, stað og tíma. Ég legg áherslu á að fundurinn fari sem fyrst fram. Svar berist mér fyrir 23. þ.m.“ Japönsk kvikmynda- vika í Regnboganum JAPÖNSK kvikmyndavika hefst í kvikmyndahúsinu Regnboganum í Reykjavík á morgun, fimmtudag. Á þessarí kvikmyndaviku verða sýndar tíu japanskar kvikmyndir jafnmargra leikstjóra og eru myndirnar aliar gerðar eftir 1980. Þessar kvikmyndir eru allar leikn- ar, nema ein, sem er heimilda- mynd, og þar á meðal eru fjórar verðlaunakvikmyndir, sem m.a. hafa hlotið verðlaun á kvikmynda- hátíðinni í Feneyjum. Kvikmyndavikan hefst klukkan 17 með sýningu myndarinnar Iæirá, sem Oguri Kohei leikstýrði. Frá vinstri: Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógrækterfélags íslands, Hallgrímur Indriðason. fulltrúi Skógrækt- arfélags Eyfirðinga, Haukur Hafstað, í ræðustól, fulltrúi Skógræktarfélags Skagfirðinga, ÓlaUa Jakobsdóttir, fulltrúi Skógræktarfélagsins Markar í A-SkafL, Kjartan Ólafsson, form. Skógrækterfélags Árnessýslu, og Jón Birgir Jónsson, form. Skógræktarfélags Reykjavíkur. Fulltrúafundur Skóg- ræktarfélags íslands Á FÖSfTUDAG og laugardag í síð- ustu viku gekkst Skógræktarfélag fslands fyrir fundi með fulltrúum frá héraðsskógræktarfélögunum í Borgartúni 6 í Reykjavík. Fundinn sátu fulltrúar frá flestum aðildarfélögunum auk stjórnar Skógræktarfélags ís- lands. Flutt voru fjögur framsöguer- indi þar sem aðallega voru tekin fyrir innri félagsmál og lagðar fram hugmyndir um hvernig efla mætti störf félaganna og laga þau að breyttum aðstæðum. Starfsmenn Skógræktar ríkis- ins sátu einnig árlegan fund sinn með skógræktarstjóra, Sigurði Blöndal, á sama stað. Síðdegis á föstudag hlýddu hvorir tveggja aðilar á erindi skógræktarstjóra um stöðu skógræktarmála á ís- landi í dag. Á laugardag var unnið í starfshópum en þeir skiluðu síð- an áliti. Að sögn Huldu Valtýsdóttur, formanns Skógræktarfélags fs- lands, er mikill hugur í íslensku skógræktarfólki, enda auðfundið að áhugi á trjám og skógrækt fer ört vaxandi með þjóðinni. „Verk- efnin blasa við hvert sem litið er og kalla á fólk til starfs, hvort heldur sem er á vegum hins opinbera aðila, sem er Skógrækt ríkisins, eða áhugamannafélaga, sem eiga aðild að Skógræktarfé- lagi fslands.“ Séð yfir hlute fulltrúanna á fundi Skógræktarfélags fslands. Lengst til vinstri: Aðalsteinn Símonarson, frá Skógræktarfélagi Borgfirðinga, Sigurgeir fsaksson, fulltrúi frá Skógræktarfélagi Þingeyinga, Jóhann Þorvalds- son, form. Skógræktarfél. Siglufjarðar, Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri, og Snorri Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags fslands. A sýslumaður einn orðið? athugasemd við ummæli sýslumanns i Barðastrandarsýslu AÐ BRJÓTA freklega reglur Ríkisútvarpsins um óhlutdrægni og að ala á úlfúð með fréttaflutn- ingi, eru þyngstu ásakanir, sem fréttamaður við ríkisfjölmiðil er borinn. Stefán Skarphéðinsson, sýslu- maður Barðstrendinga, ber undir- ritaðan fréttamann við Ríkisút- varpið þessum og reyndar fleiri sökum í Morgunblaðinu þriðju- daginn 19. mars (bls. 58). Ástæðan er fréttaflutningur af þeirri að- gerð sýslumanns að fá skyttur í þyrlu til að skjóta um 30 kindur á færi í Barðastrandarsýslu í síð- ustu viku. Sauðfjárveikivarnir höfðu falið sýslumanni að sjá um niðurskurð kindanna. Þar sem dómsvaldið í Barða- strandarsýslu ber mig þessum ásökunum skriflega í Morgunblað- inu, vil ég í sama blaði verja mig skriflega, þótt hart sé að þurfa að sanna sakleysi sitt fyrir áburði löglærðs manns í ábyrgðarstöðu. í kvöldfréttum föstudaginn 15. mars sagði ég frá aðgerðum sýslu- manns og hafði eftir honum að til þessarar aðferðar hafi verið gripið þar sem menn hefðu talið útilokað að ná til kindanna með öðrum hætti. Þá frétt las ég fyrir sýslu- mann áður en hún var birt og gerði hann engar athugasemdir. Á laugardaginn linnti ekki sím- hringingum til fréttastofunnar frá fólki á Barðaströnd, sem lýsti óhug sínum vegna aðfaranna. Þar á meðal hreppsnefnd Ketildala- hrepps, sem mótmælti harðlega óverjandi aðferð við lógun dýra: „nýafstöðnum fyrirvaralausum loftárásum á búsmala nokkurra bænda í Vestur-Barðastrandar- sýslu." Þetta kom fram í kvöld- fréttum á laugardagskvöld, einnig frásögn fulltrúa bænda, sem höfðu skoðað verksummerki í Tálkna, orðrétt og óstytt skýring sýslu- manns á atburðarásinni og að- draganda hennar og sjónarmið dýralæknis Barðstrendinga, sem á samstarf við Sauðfjárveikivarnir. Þá er enginn málsaðili eftir nema þolendur í málinu, kindurn- ar sjálfar, en þær voru þá dauðar. Þar varð mér ef til vill hált á regl- unni um óhlutdrægni. { hádegisfréttum á sunnudag kom fram það sjónarmið Jórunnar Sörensen, formanns Sambands dýraverndunarfélaga á íslandi, að ef dýralæknir og sýslumaður hafi ekki talið mögulegt að fella féð með öðrum hætti en gert var, væri aðferðin réttlætanleg. Mér er ekki fjarri lagi að halda að þessi tæmandi málsmeðferð hafi orðið sýslumanni hvati þess að grípa til nýrra röksemda til að styrkja ásakanir sínar í minn garð. Hann segir í áðurnefndu við- tali í Morgunblaðinu að frétta- maður (undirritaður) hafi bein- línis ýtt undir áhrifamikla frá- sögn talsmanns fjárbænda með því að spyrja hann hvort þarna hafi runnið mikið blóð. Þetta er alrangt. Sýslumanni, og hverjum sem er, stendur til boða hljóðritun af kvöldfréttatima útvarps á laug- ardagskvöld. Þar er þessarar spurningar aldrei spurt. Spurt er: „Sáuð þið einhver ummerki um það að kindur hafi háð þarna langt dauðastríð?" (skv. hljóðritun úr fréttatímanum.) Ég kæri mig ekki um þann al- genga ósið að gera blaða- og fréttamenn að blórabögglum þeg- ar aðrir hafa komið málum sínum í ógöngur, — ég er ekki hinn „blóð þyrsti" í þessu máli. Gissur Sigurðsson, fréttamaður á fréttestofu útvarps.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.