Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 47 Sveinn Helgason fulltrúi - Minning Fæddur 14. nóvember 1924 Dáinn 11. mars 1985 I dag fer fram frá Fossvogs- kirkju jarðarför Sveins Helgason - ar, sem lést á heimili sínu 11. þ.m. Það var nokkru fyrir hádegi þann dag að bróðir okkar hringdi til að tilkynna mér þá sorgar- fregn, að Sveinn bróðir okkar væri dáinn. Þeir höfðu mælt sér mót á tilgreindum stað og tíma þá um morguninn, og það eitt, að Sveinn kom ekki til stefnumóts þess sem ráðgert hafði verið vakti hjá hon- um þann beyg um það, að eitthvað óyfirstíganlegt kynni að hafa komið fyrir hann. Þessi maður stóð jafnan við orð sín og gefin fyrirheit. Við eftirgrennslan kom í ljós, að Sveinn lá örendur í rúmi sínu. Stefnumót það sem enginn fær við ráðið nema sjálft almættið hafði gengið fyrir, og dauðinn hafði sigrað þennan góða dreng. Það má með sanni segja, að með Sveini sé fallinn frá hinn sterki meiður alls nánasta fjölskyldu- hóps okkar. Hann var sá, sem við gátum öll leitað til — og borið undir hvað eina sem okkur lá á hjarta, og vænst aðstoðar ef henn- ar var þörf á einhverju sviði. Hann var okkar stóri bróðir í einu og öllu. Þannig var hann okkur systkinunum þegar á unga aldri sannfærandi fyrirmynd mann- kosta og dyggðar, sem honum voru sjálfum svo töm. Sveinn Helgason fæddist hér i Reykjavik 14. nóvember 1924, og var næst elstur sex barna þeirra hjónanna Magneu G. Magnúsdótt- ur og Helga Kr. Helgasonar, vél- stjóra, sem látinn er fyrir réttum tíu árum. Elsta barn þeirra, Magnús, iést 1978. Að loknu Verslunarskólanámi réðst hann fljótlega til bókara- starfa í Steindórsprenti þar sem hann vann í áratugi, en síðustu árin hefur hann verið starfsmaður Brunabótafélags íslands. Hugur Sveins hneigðist snemma að íþróttum. Ungur gekk hann í Knattspyrnufélagið Val, og með þvi félagi átti hann eftir að leika hundruð kappleikja, allt frá yngstu flokkum til meistara- flokks, auk þess sem hann var í fjölda ára fastamaður í landslið- inu. Einnig lék hann handknatt- leik með félagi sínu, og á sama hátt var hann landsliðsmaður i þeirri iþróttagrein í mörg ár. Sveinn var afar fjölhæfur íþrótta- maður og stundaði á sínum yngri árum æfingar — og tók þátt í keppni í allflestum íþróttum. Fjölmörg fleiri áhugamál átti Sveinn, einkum eftir að íþrótta- ferli hans lauk. T.d. gerði hann talsvert að því að tefla manntafl, og fylgdist alltaf vel með þegar eitthvað sérstakt var að gerast á þeim vettvangi. Bridge-spila- mennska hefur um mörg ár átt drjúgan skerf af frítímum hans, og mun hann hafa verið talinn góður spilamaður. Af músík hafði hann alltaf mikið yndi, og hafði unun af því að hlusta á góða tón- list, og átti mikið og vandað hljómplötusafn, sem hann notaði óspart, og hafði nýlega við orð, að hann legðist aldrei svo til svefns að hann hlustaði ekki á a.m.k. eina plötu áður. Sveinn kvæntist 14. ágúst 1954 Guðríði Guðmundsdóttur, píanó- kennara, og bjuggu þau fyrst í stað i húsi foreldra hennar á Hverfisgötu 41, en fluttu síðan í eigið húsnæði, fallega íbúð á Háa- leitisbraut 107. Þau slitu samvistir fyrir nokkru. Saman áttu þau ekki börn, en ungan son átti Guðríður fyrir þegar þau giftust, og gekk Sveinn honum í föðurstað og hefur annast hann eins og best má verða, enda var með þeim mjög kært samband allt til hinstu stundar. Börn voru Sveini alltaf mjög kær og þau hændust að hon- um, hvort heldur það voru afa- börnin eða systkinabörn hans. Öll- um þótti þeim sérstaklega vænt um Svein frænda, og var jafnan mikill fengur í því að fá hann í heimsókn. Með sínu rólega yfir- bragði og framkomu vann hann sér vinsældir og traust, bæði barna og þeirra sem eldri voru. Sveinn Helgason var í hvívetna mikill mannkostamaður sem ekki mátti vamm sitt vita í einu eða neinu. Hans verður sárt saknað af öllum þeim sem best þekktu hann. Harmi slegin drúpum við höfði í minningu þessa öðlings, sem okk- ur var svo kær. Blessuð veri minningin um góð- an dreng. Helgi Helgason og fjölskylda. f dag fer fram útför Sveins Helgasonar, fulltrúa hjá Bruna- bótafélagi íslands, en hann varð bráðkvaddur 11. marz. Fyrir rúm- um áratug fann Sveinn fyrst fyrir sínum sjúkdómi. AUan þann tíma vissi hann, að kallið gæti komið óvænt og skyndilega. Aldrei lét hann neinn sinna samstarfs- manna merkja, að hann bæri kvíð- boga fyrir komandi degi. Sveinn var fæddur í Reykjavík 14. nóvember 1924. Hann var son- ur hjónanna Magneu G. Magnús- dóttur frá Hraunkoti i Grimsnesi og Helga Kr. Helgasonar, en hann var fæddur á Vífilsstöðum í Garðabæ. Magnea var fædd 1. ág- úst 1901, en Helgi 9. apríl 1899. Helgi lézt árið 1975, en Magnea lifir son sinn. Börn þeirra Magneu og Helga voru sex. Magnús, fæddur 1923, hann lézt árið 1978, Sveinn, Helgi, fæddur 1926, Halldór, fæddur 1927, Elísabet, fædd 1929 og Sveina, fædd 1931. Sveinn stundaði nám við Verzl- unarskóla íslands og lauk þaðan prófi 17 ára gamall vorið 1942. Hann hóf þá störf á skrifstofu öl- gerðar Egils Skallagrímssonar. Þar starfaði hann aðeins skamm- an tíma. Fyrir áeggjan Andresar Bergmann, sem nú er háaldraður, réðst Sveinn til bókarastarfa hjá Steindórsprenti. Þar var starfs- vettvangur hans í nær þrjá ára- tugi. Þá lá leið Sveins til Steiniðju S. Helgasonar. Um það leiti fór Sveinn að kenna þess sjúkdóms, sem varð honum að aldurtila. Hann kaus að skipta um vinnu- stað. 1. marz 1974 réðst hann til Brunabótafélags íslands sem full- trúi í bókhaldsdeild og þar starf- aði hann allt til hinztu stundar. Sveinn bjó í foreldrahúsum til þess tíma að hann kvæntist. 14. ágúst 1954 gekk hann að eiga Guð- ríði Guðmundsdóttur, píanókenn- ara. Þau stofnuðu heimili að Hverfisgötu 41, en fluttu síðar í eigin íbúð að Háaleitisbraut 107. Þeim varð ekki barna auðið, en Guðríður átti ungan son fyrir þeg- ar þau Sveinn giftust, Einar Kára- son. Þessum fóstursyni sínum reyndist Sveinn sem bezti faður og var ákaflega kært með þeim allt til hinztu stundar. Fyrir nokkru slitu þau Guðriður og Sveinn sam- vistum. Sveinn Helgason var framúr- skarandi íþróttamaður. Ungur gekk hann í Knattspyrnufélagið Val, og var árum saman meðal beztu leikmanna Vals. Hann átti margar fallegar spyrnur að marki mótherjans, og ófáa boltana frá Sveini mátti markmaður andstæð- inga Vals sækja úr netinu. Mér er það minnisstætt, að þeg- ar Valur fékk dæmda aukaspyrnu i knattspyrnuleik, þá var það Sveinn Helgason sem fram- kvæmdi aukaspyrnurnar. Það voru langar og hnitmiðaðar spyrn- ur. Sveinn var mjög fær knatt- spyrnumaður, og hann var um leið ákaflega prúður leikmaður, sem allir hrifust af að sjá til á knatt- spyrnuvellinum. Sveinn var ekki síðri hand- knattleiksmaður. Með meistara- flokki Vals varð hann margfaldur íslandsmeistari og Reykjavíkur- meistari i knattspyrnu og hand- knattleik. Hann var fastur lands- liðsmaður í þessum íþróttagrein- um um margra ára skeið. Þekktastur var Sveinn fyrir þátttöku sína í þessum tveimur íþróttagreinum, en auk þess var hann vel liðtækur í öllum tug- þrautargreinunum. Hann keppti á skíðum og skautamaður var hann ágætur. Hann æfði um tíma is- lenzka glímu. Á yngri árum áttu íþróttirnar hug hans allan og auk keppni í þessum íþróttagreinum, átti hann sæti í stjórnum, ráðum og nefndum. Sveinn átti fleiri áhugamál. Meðal þeirra var skák og bridge. Þegar árin fóru að færast yfir hann hóf hann þátttöku í bridge- keppnum og var meðal okkar betri bridgespilara. Þótt leikvöllurinn væri nú spilaborðið, þá var Sveinn alltaf sama prúðmennið. Hann átti sæti í sveit íslands, sem keppti i Osló á Norðurlandamóti í bridge fyrir rúmum tveimur ára- tugum. Það heyrir til undantekn- inga, að Islendingur hafi skipað landsliðssæti í þremur íþrótta- greinum. Og sjálfsagt einsdæmi, þegar um er að ræða svo óskyldar íþróttagreinar sem knattleikur og bridge. Hljómlist var mikið áhugamál Sveins Helgasonar. Hann átti mikið og gott safn hljómplatna. Oft ræddi hann við mig um þetta áhugamál sitt. Þegar hann kom þreyttur heim að kvöldi, þá hlýddi hann á tónlist og þreytan leið hjá. Hann var mikill unnandi gömlu meistaranna. Við hjá Brunabótafélagi Islands söknum góðs samstarsmanns. Sveini fylgdi aldrei neinn hávaði. Hann gekk alltaf rakleitt að sínu skrifborði, og var þar við vinnu sína. Þegar hlé var gert á vinnu í matmáls- og kaffitímum, þá var tekið upp léttara hjál og oft varð þá Sveinn með kímni sinni að verjast glósum Víkinga, Akurnes- inga og annarra minniháttar fé- lagsliða, ef Valsmönnum hafði gengið ver f baráttu sinni þá stundina. I dag kveðjum við Svein Helga- son. Brunabótafélagi Islands var Sveinn trúr og tryggur starfsmað- ur. Við, sem störfum hjá Bruna- bótafélagi Islands, flytjum fóstur- syni Sveins, móður hans, systkin- um og öðru venzlafólki samúð- arkveðjur. Öll söknum við góðs fé- laga, sem var sama prúðmennið á vinnustað og hann hafði verið á leikvellinum ungur maður. Bless- uð sé minning Sveins Helgasonar. Þórður H. Jónsson. Hið íslenska náttúrufræðifélag: Skorar á þing og þjóð að efla náttúruvísindi í landinu AÐALFUNDUR Hins íslenzka náttúru- fræðifélags var haldinn hinn 16. febrú- ar sl. og var þar meöal annars sam- þykkt ályktun þar sem skorað er á þing og þjóð að efla náttúruvísindi í land- inu. Á aðalfundinum var samþykkt einum rómi að kjósa dr. Sigurð Pét- ursson, gerlafræðing, heiðursfélaga fyrir langt og óeigingjarnt starf I þágu félagsins. Hann sat i stjórn þess í tíu ár, þar af fimm sem for- maður og ritstýrði Náttúrufræð- ingnum í önnur tfu. Einnig voru Guðbrandur Magnússon á Siglufirði og Sigurður Björnsson á Kvískerjum kjörnir kjörfélagar. Þeir eru báðir einlægir áhugamenn um náttúru- fræði og hafa stundað eigin rann- sóknir i fjölda ára og lagt drjúgan skerf til aukinnar þekkingar á nátt- úru landsins. Ályktunin sem samþykkt var á fundinum er svohljóðandi: „Aðalfundur Hins islenzka nátt- úrufræðifélags haldinn 16. febrúar 1985 skorar á þing og þjóð að efla náttúruvfsindi í landinu. Það verður bezt gert með því að reisa veglegt náttúrufræðisafn hið fyrsta. Öld er liðin síðan framfaramenn töldu slíkt safn timabært. íslend- ingar eru eftirbátar annarra þjóða i þessum efnum og eiga stjórnvöld mikla sök á því, hvernig til hefur tekizt til þessa. Árið 1947 gerði hið opinbera samning við Hið íslenzka náttúru- fræðifélag, þar sem það skuldbatt sig til þess að reisa safnbyggingu. Félagið verður 100 ára 1989. Væri ánægjulegt, ef náttúrufræðisafn yrði þá vel á veg komið.“ Hið íslenzka náttúrufræðifélag hefur haldið uppi öflugri starfsemi i formi fræðsluferða, fyrirlestra og námskeiða í fjölda ára og gefur auk þess út Náttúrufræðinginn, sem er eitt vandaðasta tímarit sinnar teg- undar. Oft gætir þess misskilnings, að félagið sé aðeins fyrir lærða nátt- úrufræðinga. Það er opið öllum, sem unna islenzkri náttúru og er öll starfsemi félagsins miðuð við áhuga- mál almennings. (l'rétUtilkynníng.) Vestur-þýskar loftræstiviftur frá Maico í böð, eldhús o. GERO ECA - 11 - K Afköst 95 m*/15W Afköst 80 mV15W Fyrir 100 mm rör fyrir 100 mm rör Heildsala — Smásala H.G. Guöjónsson, Stigahlíö 45—47. símar 82088 og 37637. GERÐ ECA - 11 fl. GERÐ ECA - 9 - 7 RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA VEITA YLINN. OFNASMÐJA NORÐURLANDS FUNAHÖFÐA 17-v/ÁRTÚNSHÖFÐA SfMI 82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.