Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 27 Sigþór Magnússon þeir hafa notað okkur sem vopn með því að segja upp á versta tírna," sagði Aðalheiður að lokum. Slepp tiltölulega vel Bryndís Hafsteinsdóttir er einnig nemandi í Fjölbrautaskól- anum við Ármúla. „Ég slepp til- tölulega vel, þar sem aðeins tveir af þeim sjö kennurum sem kenna mér hafa sagt upp störfum. Annað fagið get ég lesið sjálf, en því mið- ur er ekki sömu sögu að segja um hitt fagið. Ef ég fæ ekki kennslu i því, er ég hrædd um að ég þurfi að koma aftur hingað í haust. En ég er ákveðin í að reyna við prófin í vor, ef okkur verður gefinn kostur á að taka þau.“ — Hafðir þú gert áætlanir fyrir næsta vetur? „Ég hafði ákveðið að fara að vinna fyrir skuldum. En ég hef heyrt um nemendur sem höfðu ákveðið að sækja um skóla erlend- is. Það fer auðvitað allt út um þúf- ur hjá þeim.“ — Hvernig leist þér á uppsagnirn- ar í byrjun? „Mér fannst allt í lagi að fá frí í viku. Það bjóst nefnilega enginn við að þetta yrði svona langt. En ég hef að vissu leyti samúð með kennurunum i þessari baráttu þeirra. En uppsagnirnar komu á versta tíma fyrir okkur, sérstak- lega þar sem skólastarf lá niðri um tíma sl. haust vegna verkfalla. Það hefði verið betra ef þeir hefðu beðið með uppsagnirnar þar til næsta haust. Þá hefðu nemendur t.d. getað haldið áfram að vinna. Framkoma stjórnvalda finnst mér alveg út í hött i þessum máli. Það er eins og þeim sé alveg sama um okkur." „Heilt ár í húfí“ Þau Ragnhildur Rúríksdóttir og Jón Þór ólafsson eru bæði í 6. bekk Menntaskólans i Reykjavík, hún i nýmáladeild og hann í eðlis- fræðideild, og voru að koma úr fri- mínútum þegar blm. tók þau tali. „Að sjálfsögðu erum við mjög áhyggjufull," sögðu þau. „Það er allt svo óráðið og nýjar fréttir, sem við vitum ekki hvað er mikið að marka, berast á hverjum degi. Það hefur heyrst að próf, a.m.k. í vissum fögum, verði felld niður, að kennt verði á laugardögum og um páskana til þess að ná upp kennslumissinum, o.s.frv. Það er misjafnt hvernig fólk fer út úr þessu,“ sögðu þau Ragnhild- ur og Jón Þór og kváðust sjálf njóta kennslu i um 20 af 35 kennslustundum. „Sumir nemend- ur hafa bara misst einn kennara, aðrir geta ekki mætt nema einu sinni i viku og þá i leikfimi. Þó koma verkföllin náttúrufræði- deildinni sennilega hvað verst. Við styðjum kennarana full- komlega, en erum uggandi um eig- in hag,“ bættu þau við. „Ef MR væri fjölbrautarskóli væri þó ekki verið að strika yfir nema eina önn. En hjá okkur er heilt ár i húfi og tilhugsunin um að þurfa að vera hér heilt ár i viðbót er alveg ægi- leg.“ „Rammgötótt of vægt orð yfír stundaskrána“ 1 Menntaskólanum við Hamra- hlíð voru nokkrir nemendur, sem ættu að ljúka námi í vor, staddir í skólasjoppunni Sómalíu, en ann- ars var heldur tómlegt um að lit- ast i skólanum. Sómaíío CSHm Þeir Benjamín Sigursteinsson og Þorsteinn Kristmannsson í skólasjoppu Menntaskólans við Hamrahlíð, en þeir eru báðir á síðustu önn. Þorsteinn Kristmannsson er nemandi á félagsfræðisviði og sagðist ennþá gera sér vonir um að útskrifast í vor, jafnvel þó að hann fái ekki nema 10% af venju- legri kennslu þessa dagana. „Ég er með 25 einingar til prófs á þessari önn,“ sagði Þorsteinn. „En sem betur fer eru valgreinar stór hluti af því námsefni. Ég stunda nú ekki mikið sjálfsnám enn sem komið er, en mun sjálf- sagt gera það ef þetta dregst á langinn. Hins vegar mæti ég í þá tíma sem völ er á,“ bætti hann við. „Þó að það sé hálfskrítið að vera að koma í skólann til þess að mæta í einn til tvo tíma á dag og ramm- götótt sé allt of vægt orð yfir stundaskrána þessa dagana.“ „Hér er varla hræða“ „Mætingin er svona eins og þú sérð, hér er varla hræða,“ nokkrir strákar í Sómalíu og bættu því við að sjálfsnám væru þeir ekki farnir að stunda að neinu ráði, „enda engan veginn hæfir til þess.“ „Ég tel mig a.m.k. ekki hæfan til þess að stunda sjálfsnám í síðasta áfanga í efnafræði,” bætti Benja- mín Sigursteinsson við. En hann nemur á náttúrusviði og á að ljúka síðustu önninni við skólann i vor. Benjamín sagðist hafa komið i skólann þennan dag til þess að skila söguritgerð, annars hefði hann haldið sig heima i Mos- fellssveitinni þar sem hann býr. „Ég fæ kennslu i sem nemur 10 einingum af 23, sem ég er með til prófs i vor,“ sagði Benjamín. „Það gerir fjögur fög og af þeim mæti ég í tvö. Mánudaga og fimmtudaga er ég t.d. bara í ítölsku og það segir sig sjálft, að ég er ekki að fara ofan úr Mosfellssveit til þess að mæta í einn tima. Aðra daga er um að ræða einn tima klukkan 8 á morgnana og svo annan eftir há- degið og þá sleppi ég morguntim- unum.“ Aðspurður hvort mikið væri um úrsagnir úr skóla af völdum þessa ástands, sagði Benjamin að þeir sem væru að útskrifast héldu enn- þá í vonina og þó að nokkrir hefðu skráð sig úr skóla, þætti fæstum taka þvi, þar eð mætingarskylda félli hvort eð er úr gildi við þessar aðstæður. Einn félagi Benjamins, sem stundar nám í öldungadeild skól- ans, sagði svipaða sögu þaðan, enda um sömu kennara að ræða. „Ætli það séu ekki svona 20% nemenda sem mæta í skólann," sögðu Sómalíumenn að lokum. „Svo það liggur við, að þessir fáu kennarar, sem mæta, nenni ekki að kenna." „Kominn alveg á síö- asta snúning“ I Fjölbrautaskólanum í Breið- holti stóð yfir almennur nemenda- fundur þar sem verið var að ræða stöðuna þegar blm. Mbl. bar að garði. Þeir Sveinn Dal Sigmarsson og Adolph Bergsson gáfu sér þó tíma til að bregða sér inn á bóka- safn skólans i stutt spjall. „Fólk er að verða vonlitið, bæði hér og annars staðar,“ sögðu þeir. „Verst er að vita ekkert hvað ger- ist. Okkur er ekki sagt neitt. Við, sem ætluðum áð útskrifast i vor, vorum búin að fyrirhuga Aðalheidur Kristjánsdóttir ferð til Rhodos í vor. En aðal fjár- öflunarleiðin er skólasjoppan og það gefur augaleið að hún gengur ekki vel þegar enginn er í skóian- um. Það litur þvi helst út fyrir að enginn komist nema þeir allra efnuðustu og jafnvel ekki þeir ef ferðin dregst á langinn. Svo eru margir búnir að sækja um háskóla í útlöndum, sem er mikil vinna, eins og allir vita. Það þarf oft að skrifa tugum skóla til þess að fá vist i einum og þetta gæti seinkað því fólki um a.m.k. eitt ár, ef það verður þá ekki búið að missa plássin, hver veit hvað gerist?" sögðu þeir og Sveinn bætti því við, að hann hefði sjálfur ætlað til náms i Þýskalandi, en vissi nú ekki hvað yrði. Sveinn stundar nám á bók- námsbraut en Adolph á viðskipta- sviði og báðir taka þeir híuta ein- inganna i kvöldskólanum. Sveinn er að ljúka einni og hálfri önn á einni, en fær aðeins kennslu i sem svarar fjórum af þrjátíu eining- um, auk þess sem hann fær Bryndís Hafsteinsdóttir blokkflautunám metið til fjögurra eininga. „Þetta kemur afar illa út fyrir mig, maður er kominn alveg á síð- asta snúning," sagði hann. „Ég þarf mjög nauðsynlega á kennslu að halda með allt þetta námsefni. Ef einingarnar væru færri gæti ég ef til vill stundað sjálfsnám, en ekki þegar námið er svona viða- mikið." Þeir Adolph og Benjamín sögð- ust mæta vel í þá fáu tíma, sem í boði væru, en Adolph fær kennslu í 8 einingum af 26, 5 í dagskólan- um og 3 í kvöldskólanum. í hans tilviki þýðir það, að hann getur sótt tíma í tveimur fögum í dag- skólanum. „Svo er ég I nemenda- ráði og það vill nú stundum toga mann út úr tímunum," sagði hann. „Við erum bæði reiðir og sárir út af þessu ástandi,“ sögðu þeir. „En við vitum varla hvern við eig- um að vera reiðir út í. Við skiljum þó kennarana og þeirra kjarabar- áttu, hvort sem hún er lögleg eða ólögleg, þannig að reiðin hlýtur að beinast frekar að ríkisvaldinu.“ Klassískt kvöld í Arnarhóli í kvöld Marakvartettinn leikur kammertónlist undir borðhaldi. NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL í KONÍAKSSTOFUNNI eftir ljúffengan kvöldverð er notalegt að setjast í Koníaksstofuna og hlusta á fallegan söng sópransöngkonunnar Höllu S. Jónas- dóttur. Halla S. Jónasdóttir stundaði söng- nám hjá Sigurði Demetz Franzsyni undan- farin ár og tekur lokapróf frá Nýja tónlistar- skólanum í vor. Undirleikari er Vilhelmína Ólafsdóttir. Vinsamlegast pantið borð tímanlega. Vinsamlegast pantið borð tímanlega. Með ósk uni cn) þið eigið ánægjulega kvöldstund. ARTiARHÓLL Áhorni Hveifisgötu og Ingólfsstnvtis. Bordapantanir í shna 18833.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.