Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBIAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
39
Hafnarskemmdir við Hellnar
Langabrekkn, Breióavíkurhreppi.
MIKLAR skemmdir urðu á hafn-
armannvirkjum við Arnarstapa og
Hellnar í hafrótinu, sem gerði að-
faranótt 7. marz, en slíkt flóð hafði
ekki gert hér síðan 1925. Á með-
fylgjandi mynd sjást skemmdirn-
ar, sem urðu á hafnargarðinum við
Hellnar, en elzti hluti hans brotn-
aði; skjólgarðurinn fór af um 45
metra löngum kafla og platan fór
alveg að hluta. Fimm trillur voru í
brekkunni fyrir ofan og gekk sjór-
inn upp fyrir þær, en á þeim urðu
engar skemmdir.
FrélUriUri.
Mokafli:
Vantar fólk til
starfa í Eyjum
VeMtmannaeyjum, 19. mare. v
„I*AÐ ER NÆGA atvinnu aö hafa í Vestmannaeyjum núna
og vantar fólk til starfa. Hér er unniö í frystihúsunum frá
morgni til kvölds alla daga og um allar helgar eins og lög
leyfa. Þetta hangir í því að viö höfum undan að vinna þann
mikla afla, sem borist hefur að landi upp á síðkastið,“ sagði
Hjörtur Hermannsson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar í Eyj-
um, í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins.
Mjög góður afli hefur verið hjá
netabátum frá því verkfalli lauk
en ógæftir nokkuð hamlað veiðum.
f gær var afli bátanna frá 15 og
upp í 35 tonn. Suðurey og Gjafar
voru með mestan afla, 35 tonn
hvor bátur. Hjá trollbátum hefur
verið meiri tröppugangur í veið-
inni — afli mjög misjafn en
nokkrir bátar ná mjög góðum túr-
um. Til dæmis landaði Frár fimm-
tiu tonnum fyrir helgina. Þá hafa
togarar landað góðum afla síðustu
daga.
Hinn 15. mars sl. var vertíðar-
aflinn 7.153,6 tonn. Skiptist hann
þannig, að í net höfðu aflast
3.299,3 tonn, í botnvörpu 837 tonn,
Lífeyrissjóðsgreiðslur þyrftu að tvö-
faldast til að standa undir réttindum
MIKIÐ vantar á að greiðslur landsmanna í lífeyrissjóði standi undir þeim
lífeyrisréttindum, sem sjóðunum er ætlað að tryggja félögum sínum og þyrftu
lífeyrisgreiðslur að tvöfaldast tæplega, hækka úr 10% í 18,9% til þess að svo
væri. Er þá miðað við að 2% raunvextir umfram hækkun kaupgjalds fáist af fé
sjóðanna og gert ráð fyrir að kostnaði vegna skuldbindinga sem búið er að
stofna til sé dreift á núverandi sjóðfélaga, en komi ekki á nýja.
Iðgjald á sömu forsendum fyrir
þá íslendinga sem fæddir eru á ár-
inu 1974 yrði 11,97%, en yrði ávöxt-
un fjárins 1%, yrði iðgjaldið 16,6%.
Ef raunvextir yrðu engir yrði ið-
gjaldið 23,02%. Er miðað við rétt-
indareglur Sambands almennra líf-
eyrissjóða (SAL), en meiri réttindi
mundu eðlilega leiða til aukins
kostnaðar og því hærra iðgjalds.
Þessar niðurstöður koma fram i
greinargerð sem lífeyrisnefnd skip-
uð fulltrúum hagsmunasamtaka á
vinnumarkaði og embættis-
mönnum hefur látið frá sér fara, en
nefndin hefur starfað frá árinu
1976. Greinargerðin var kynnt á
lífeyrisráðstefnu Vinnuveitenda-
sambands íslands I gær, en sams
konar ráðstefna verður á vegum
Alþyðusambandsins á mánudaginn
kemur.
Nefndin telur að setja beri sam-
ræmda löggjöf um alla lífeyris-
sjóði, en ekki beri að stefna að ein-
um lífeyrissjóði fyrir alla lands-
Herlögreglubfll:
„Svínaði" und-
ir þrýstingi
yfirmanna
\ nfum, 19. mire.
ÁRKKSTIIR tveggja bifreiða varð á
Flugvallarbraut á KeflavfkurMugvelli
við gatnamót Vesturbrautar eftir há-
degi sl. föstudag.
Aðdragandi atburðarins var sá
að bifreið frá bandarísku herlög-
reglunni, USNS Security, með öku-
manni og farþega var skyndilega
ekið frá Vesturbraut yfir Flug-
vallarbraut í veg fyrir Fiat-bifreið.
Ökumaður Fiat-bifreiðarinnar
snögghemlaði með þeim afleiðing-
um, að bifreiðin snerist til og lenti á
Volvo-bifreið er kom úr gagnstæðri
átt. Báðar bifreiðirnar skemmdust
talsvert. Bifreiðin frá USNS hélt
áfram eftir Vesturbraut.
Síðar kom í ljós, að í bifreiðinni
frá USNS Security voru tveir hei
lögreglumenn og kvaðst ökumaður-
inn hafa verið undir þrýstingi yfir-
manns síns, sem var farþegi, að þvi
er segir í lögregluskýrslu um at-
burðinn. Flugvallarbraut hefur að-
albrautarrétt. — EG.
menn. Telur nefndin að sennilega
verði ekki komist hjá einhverri
hækkun iðgjalda, en til þess að
draga úr þeirri hækkun eins og
kostur sé leggur hún til nokkrar
breytingar á lífeyrisréttindum,
sem leiði til sparnaðar. Gert er ráð
fyrir að iðgjald greiðist af heildar-
launum, en ekki dagvinnulaunum
eins og nú er í flestum tilvikum.
Þá telur nefndin að núverandi
lífeyriskerfi, að safna fé í sjóði, sé
það rétta, fremur en svonefnt gegn-
umstreymiskerfi, en það myndi
þegar fram liðu stundir leiða til
stórhækkaðs iðgjalds vegna breyt-
inga í aldursgerð þjóðfélagsins, þ.e.
fjölgunar lífeyrisþega í hlutfalli við
fólk á vinnumarkaði. Þá er einhug-
ur um það i nefndinni að það eigi
að vera meginregla að iðgjaldstekj-
ur standi undir þeim réttindum
sem lofað sé.
Þjóðskjalasafn:
Sýning í tilefni 20 ára af-
mælis viðgerðarstofu safnsins
í ÞJÓÐSKJALASAFNI stendur nú
yfir sýning í tilefni 20 ára afmælis
viðgeróarstofu safnsins.
Viðgerðarstofa Þjóðskjalasafns
tók til starfa í febrúarmánuði árið
1965. Hlutverk hennar er að ann-
ast viðgerðir handrita, bréfa og
prentmáls.
Fyrsti forstöðumaður stofunnar
var Vigdís Björnsdóttir, en hún
hafði lært til starfans á Englandi
hjá Roger Powell. Fyrstu tvö árin
var Vigdís eini starfsmaðurinn en
i aprílmánuði 1%7 var öðrum
starfsmanni í fullu starfi bætt við
og þeim þriðja haustið 1972.
Vigdís Björnsdóttir lét af störf-
um í árslok 1978, en þá tók Hilmar
Einarsson við forstöðu viðgerð-
arstofu og gegndi starfinu til síð-
ustu áramóta. Núverandi for-
stöðumaður er Áslaug Jónsdóttir.
Á stofunni er unnið að viðgerð-
um fyrir Þjóðskjalasafn, Lands-
bókasafn og Árnastofnun. Verk-
efni eru afar fjölþætt. Frá Þjóð-
skjalasafni koma til viðgerðar
m.a. kirkjubækur, bréfabækur og
skjöl embætta, hreppabækur, kort
o.fl., frá Landsbókasafni handrit,
bréfasöfn, gamalt prent, dagblöð
o.fl. Allt er þetta í misjöfnu
ástandi, en talsvert er fúið og
myglað sem rekja má til rakra
húsa og slæmrar umhirðu.
Þessari sýningu er ætlað að
sýna ástand bóka og skjala sem til
stofunnar koma og mismunandi
aðferðir við viðgerðir. Allt sem er
fúið er styrkt (með Calaton 5%),
síðan þvegið ef blekið þolir þvott.
Viðgerðir fara einkum fram á
tvennan hátt. í fyrsta lagi þurr
aðferð, þá er gert við með hand-
unnum pappir eða japanpappír og
límt með linsupappír, að lokum
pressað í heitri pressu. í öðru lagi
blaut aðferð, þá er notuð ífyll-
ingarvél. í hana er notaður papp-
írsmassi, hann er rifinn í kvörn,
og honum síðan hellt í vatnshólf í
vélinni, stærð blaðsins eða blað-
anna er afmörkuð með plastrenn-
ingum, þá er vatninu með massan-
um dælt yfir. Þegar vatnið sígur
niður verður pappírsmassinn eftir
þar sem eyður voru í blaðinu, sið-
an eru blöðin pressuð i þykkum
filtstykkjum. Þess má geta að
handunninn pappír er gerður á
sama hátt.
FrétUtilkynning.
Skákkeppni:
A-sveit MH
sigurvegari
A-SVEIT Menntaskólans viö
Hamrahlíö sigraði í íslandsmóti
framhaldsskóla um helgina. Alls
tóku 22 fjögurra manna sveitir
þátt í mótinu frá 10 framhalds-
skólum. A-sveit MH hlaut 22
vinninga af 28 mögulegum, en
tefldar voru sjö umferöir eftir
Monrad-kerfi.
A-sveit MH skipuðu Halldór
Grétar Einarsson, Lárus Jó-
hannesson, Hrafn Loftsson og
Snorri Bergsson. Sveit Verzlun-
arskóla Islands hafnaði í öðru
sæti, hlaut 20 vinninga. Þeir
Andri Áss Grétarsson og Davíð
Ólafsson, sem tefldu á 1. og 2.
borði fyrir Vl, sigruðu í öllum
skákum sínum á mótinu, en það
dugði ekki til sigurs vegna
slaklegs árangurs á 4. borði. I
þriðja sæti varð B-sveit MH
með 19'A vinning, C-sveit MH
varð í fjórða sæti með 17 Vfe
vinning og A-sveit Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ hafnaði í 5.
sæti með 16 V4 vinning. Mennta-
skólinn í Hamrahlíð sendi sjö
sveitir til keppni.
á línu 281,9 tonn, á handfæri 68
tonn, í dragnót 15,1 tonn og togar-
ar höfðu landað 2.652,3 tonnum.
Aflahæsti netabáturinn 15. mars
var Suðurey með 419 tonn og
Ófeigur var með 324 tonn. Helga
Jóh. var aflahæst trollbáta með
128 tonn. Breki var með mestan
afla togaranna, 763 tonn í fimm
veiðiferðum.
Eins og fram kom hjá Hirti
Hermannssyni hér að framan er
nú skortur á vinnuafli í fiskvinnsl-
unni í Eyjum. Hjörtur sagði að
auglýst hefði verið eftir verkafólki
til starfa í frystihúsunum en þær
auglýsingar lítinn árangur borið
þrátt fyrir fréttaflutning af at-
vinnuleysi á ýmsum stöðum á
landinu. „Mér vitanlega hefur eng-
inn kennari sótt um vinnu í frysti-
húsunum hér enda fást víst ekki
mannsæmandi laun fyrir fisk-
vinnu að mati þeirra hópa í þjóð-
félaginu, sem hæst hafa í kjara-
baráttunni," sagði Hjörtur.
Hann sagði að hráefnið, sem
borist hefur að landi undanfarna
daga, væri frekar slakt — fiskur-
inn væri í lélegu ástandi vegna
ofáts á loðnu. „Frá þjóðhagslegu
sjónarmiði hefði að mínu áliti ver-
ið eðlilegra að stöðva netaveiðar í
eina viku meðan fiskurinn væri að
jafna sig eftir loðnuátið en að
stöðva um páskana þegar líkur eru
á að fiskurinn sé kominn $ gott
ástand," sagði Hjörtur Her-
mannsson. — hkj.
Enginn fundur
verið boðaður
ENGINN fundur hefur veriö boöaö-
ur í kjaradeilu ísfirskra sjómanna og
útvegsmanna. Verkfalliö kemur til
framkvæmda á miðnætti hafi samn-
ingar ekki tekist, en ekkert útlit er
fyrir aö svo veröi. Ekki er búist við,
aö áhrifa verkfallsins gæti fyrr en
undir mánaöamót; togarar stöövist
þegar þeir koma úr veiöiferö í næstu
viku. Verkfall sjómanna á landróör-
arbátum er boðaö frá mánaöamót-
um.
0
INNLENT
Borgarfógeti:
Kröfu um Lögbann við
gerð forrita hafnað
En lögbann lagt við því, að Islensk tölvuforritaþróun einkenni hugbúnað
EMBÆTO borgarfógeta hafnaði í Hins vegar féllst borgarfógeti
gær kröfu Tölvubúöarinnar um aö á, að lögbann verði lagt við því.
lagt verði lögbann viö gerö, dreif- að Islensk tölvuforritaþróun ein-
ingu og notkun allra þeirra forrita,
sem íslensk forritaþróun sf. hefur
gert og selt. Þá var varakröfu
Tölvubúðarinnar um lögbann viö
gerð, dreifingu og notkun forrita
fyrir fjárhagsbókhald, sem Islensk
forritaþróun geröi og seldi, einnig
hafnað.
kenni verk sín og þjónustu á
sviði hugbúnaðar með orðinu
plús í samsettum orðum eða eitt
sér og var sett 80 þúsund króna
trygging fyrir banninu.
Forsaga málsins er, að eigend-
ur Islenskrar tölvuforritaþróun-
plús“
ar störfuðu hjá Tölvubúðinni til
skamms tíma. Þeir stofnuðu eig-
ið hugbúnaðarfyrirtæki, Islensk
tölvuforritaþróun sf., og telur
forráðamaður Tölvubúðarinnar
að þeir hafi notað sér vinnu og
gögn Tölvubúðarinnar við hönn-
un forrita. Forráðamenn ís-
lenskrar tölvuforritaþróunar
mótmæla þessari staðhæfingu.