Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 61 Um ÍSÍ, lyfjanefnd þess og um krafHyftingar EKKI eru mörg ár síöan íþrótta- samband íslands setti sérstaka reglugerö um eftirlit meö notkun örvunarefna og skipaöi nefnd til að sjá um framkvæmd hennar. Störf þeirrar nefndar hafa frá upphafi veriö meö þeim eindæm- um, að lengi hefur veriö ástæöa til aö fjalla um þau á opinberum vettvangi. Nefndin hefur í marggang brugöist hlutverki sínu og sáö sundurþykkju og tortryggni í kring- um síg, sem ekki síst hefur bitnaö á íslenskri íþróttaæsku. Grun- semdir er þaö orð sem liggur fremst á tungu nefndarmanna, ef ekki er brugðist skjótt viö fyrir- mælum þeirra. Þaö þótti grun- samlegt 1982, er stjórn LSÍ mót- mælti fyrirvaralausu lyfjaprófi á fs- landsmeistaramóti í lyftingum þaö ár, reglugerðin mælti þó fyrir um samráö viö sérsambönd. Þaö þótti grunsamlegt í fyrra er 3 lyftinga- menn úr KR hættu viö þátttöku á Sweden Cup, sem átti aö lyfja- prófa, tveir voru þó hættir æfing- um og einn meiddur. í ár þykir grunsamlegt, aö sérsamband utan ISI vill ekki senda íþróttamann til lyfjaprófs. Sennilega er þó grun- samlegast af öllu, aö menn hér á landi skuli hafa vööva, þeir einir sér vekja grunsemdir. (Ostaöfest er aö Egill Skallagrímsson og Gunnar á Hlíöarenda hafi haft vöðva.) Skyldu nú vera ástæöur til allra þessara grunsemda? Aldrei hefur neinn íþróttamaöur, er æfir íþrótt sína hérlendis, veriö staöinn aö lyfjaneyslu, og ég og aörir þeir for- ustumenn ísienskra íþróttamála, sém eru í tengslum viö íþrótta- mennina sjálfa, vita mæta vel, aö • Ólafur Sigurgeirsson formaður Kraftlyftingasambands íslands. engin lyf eru notuö hérlendis í íþróttum. islenskir kraftlyftingamenn gáfu á síöasta ári þvagsýni á 4 alþjóö- legum mótum og hef ég skjöl, er sanna hreinleika þeirra. Kraftlyft- ingamaöurinn Hjalti Árnason baö lyfjanefndina sérstaklega um aö lyfjaprófa sig sumarið 1983 svo hann gæti sett heimsmet, nefndin brást. Alþjóða kraftlyftingasam- bandiö er meö eitt öflugasta lyfja- eftirlit sem þekkist og þess má geta, aö þeir viöurkenna ekki þá rannsóknastofu, sem fSi notar, vegna ónákvæmni hennar. Nei, íþróttasambönd eru ekki stofnuö til aö komast hjá lyfjaeftir- liti, þau eru stofnuö svo vinna megi íþróttum gagn. Vekti þaö eitt fyrir kraftlyftingamönnum aö komast hjá því hafa þeir næg ráð. T.d. eft- irfarandi: 1. Þaö á ekki stoö í reglugerö iSf um eftirlit meö notkun örvunar- efna, aö boöa iþróttamann til lyfja- Falcao aftur til Ítalíu BRASILÍSKI knattspyrnumaöur- inn Paulo Roberto Falcao sam leikur meö Roma í 1. deildinni á Ítalíu, sneri aftur til ftalfu á laug- ardag, eftir uppskurö á vinstra hnó. Falcao var spuröur um hvenær ÍBÍU úrvalsdeild KEFLVÍKINGAR tryggöu sór sæti f úrvalsdeildinni í körfuknattleik á næsta keppnistímabili, er þeir sigruöu Reyni, Sandgeröi, 103—70. Staðan í hálfleik var 47—37 fyrir ÍBK. Keflvíkingar voru mun betri í þessum leik og voru meö yfirhönd- ina frá upphafi til enda. Flest stig ÍBK geröu Jón Kr. Gíslason 38, Guöjón Skúlason 23 og Hrannar Hólm 16. Flest stig Reynis aeröu Slguröur Guömundsson 16, Arni Erlingsson 14 og Sturla örlygsson 13. Fyrirtækjakeppni í knattspyrnu 1985 Fyrirtækjakeppni Fram í innanhússknattspyrnu 1985 veröur haldin í íþróttahúsinu viö Safamýri laugardaginn 30. mars og sunnudaginn 31. mars. Úrslitakeppni efstu liöa fer svo fram á sama staö miövikudaginn 3. apríl. Þátttökutilkynningar þurfa aö berast fyrir 28. mars til Jóhanns í síma 34792 milli 13 og 14. prófs. 2. gr. reglugeröarinnar heimiiar nefndinni einungis aö taka lyfjapróf fyrirvaralaust á íþróttaæf- ingum og í keppni. Aö hundsa slíkt boð getur því ekki leitt til viöur- laga. 2. Allir kraftlyftingamenn á Reykja- víkursvæöinu æfa íþrótt sína í einkafyrirtækjum, sem oþin eru al- menningi, þar sem öll íþróttayfir- völd hafa brugöist þeim. Þaö hvarflar ekki aö mér eina sekúndu aö eigendur slíkra staöa leyfi lyfja- eftirlit á sínum kúnnum. Nefndin fengi einfaldlega ekki inngöngu. Ekki er þaö neitun íþróttamanns. 3. Þegar reglugerðinni um lyfjaeft- irlit var breytt á sambandsstjórn- arfundi 1984, var gefin út reglu- gerö, sem ekki á lagastoö. Um slíkar reglugeröir er sagt á 1. ári í lagadeild, aö þær standist ekki og veröi ekki beitt, nema aö þvi leyti sem þær eigi stoö í lögum. Iþróttasamband Islands er stjórnvald, er heyrir undir mennta- máiaráöuneyti og sem slíkt getur þaö sett reglur, sem iög heimila því. 2. mgr. 20. gr. íþróttalaga nr. 49/1956, veitir iSÍ vald til aö setia reglur um alla opinbera íþrótta- keppni, sem þýöir ekkert annaö en þaö, aö ÍSÍ getur ekki sett neinar reglur um æfingar eöa líferni meö- lima ÍSI milli móta. Veröi íþrótta- maöur settur í bann vegna lög- lausra ákvæöa í reglugerö, eöa rangra vinnubragöa lyfjanefndar, er réttasta leiöin aö áfrýja málinu til iþróttadómstóls ÍSÍ. Þar sitja í dómi lögfræöingar, sem kunna beitingu laga og er ég ekki í vafa um meöferö þeirra á slíku máli. Engin vegsemd væri þaö fyrir ÍSÍ, aö hafa staöiö aö slíkum málatil- búnaöi. Ég tel aö þaö sé kominn tími til aö gera úttekt á störfum íþrótta- sambandsins alls og því fjárbruöli, sem þar viögengst meðan allt íþróttastarf í landinu er í fjársvelti. Ef kraftlyftingamenn heföu ekki fengiö nema brot af því fé, sem variö hefur veriö til utanferöa Al- freös Þorsteinssonar á sl. 2 árum, heföu þeir getaö skilaö landinu 5 heimsmeistaratitlum. Ólafur Sigurgeirsson, formaöur Kraftlyftinga- sambanda islands. • Gunnar Ó. Kvaran, fyrirliöi. Myndabrengl leiörétt Myndabrengl varö í blaöinu í gær, meö frásögn af úrslitakeppni 2. flokks karla ( handknattleik. Róttu nöfnin meö myndum eru hór fyrir ofan. Beöist er velvirö- ingar á þessum mistökum. hann gæti byrjaö aö leika meö Roma. „Þetta tímabil er ónýtt fyrlr mig, ég get ekki byrjaö aö æfa fyrr en í fyrsta lagi eftir tvo mánuöi," sagöi Falcao. Falcao er miöjuleikmaöur og hefur hann stjórnaö Roma til sig- urs í ítölsku 1. deildinni í fyrsta sinn í 40 ár er þeir uröu deildar- meistarar á síöasta ári. Liöið komst einnig í úrslit í Evrópu- keppni bikarhafa á síöasta árl. 7 «t«» Meistaramót í kraftlyftingum MEISTARAMÓT íslands í kraft- lyftingum veröur haldiö laugar- daginn 30. mars nk. Mótiö fer fram (Garöaskóla, Garöabæ. Þátttökutilkynningar þurfa aö hafa borist til Óskars Sigurpáls- sonar ( Orkubót, Grensásvegi 7 eöa ( slma 91—39488 fyrir mánu- daginn 25. mars nk. (FrélUtilkynnnig.) FEMUND Hottofilfyttmg +25°C - + S°C Pyngd: 1.800 <jr. Verð: 3.330.- IGLOO HoCfoftí fyUing + 2S°C - -i- 15°C Þyngé 1.900 gr. Verð: 3.860.- ATLANTIS Quallofil fyíling + 25°C - 5- 5°C Þyngd: 1.350 gr. Verð: 4J70.- LYNX 3 62 Ktrur Þyngd: 1.210 gr Verð: 2.170.- JAGUAR 33 56 íítrar Þyngd: 1.550 gr. Verð: 2.830.- CONDOR 65 65 (ítror Þyngd: 2.200 gr. Verð: 3.740.- SKATABUCHN SERVERSLUN FYRIR FJALLA- OG FERÐAMENN. SNORRABRAUT 58 SÍMI 12045 Rekin af w) Hjálparsveit Skáta Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.