Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 59 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Mjuyirnívr um -v LI Gengið á rétt leigubflstjóra S.Sv. leigubílstjóri hjá BSR skrif- ar: 1 öllum lýðræðislöndum kýs fólkið sér fulltrúa til að setja lög og síðan setja ráðherrar reglu- gerðir. Sjálfsagt eru skiptar skoð- anir um gildi og réttmæti margra þessara laga sem hinir réttkjörnu fulltrúar setja. Sem betur fer virða þegnarnir yfirleitt þessi lög og reglur þó alltaf séu nokkrar undantekningar á því að svo sé gjört. Til að settum lögum og regl- um sé framfylgt höfum við lög- reglu sem verndar þegnana fyrir lögbrotum auk þess að veita þjón- ustu og aðstoð á ýmsum sviðum. Maður sefur betur vitandi af þeim. Tilefni þessara skrifa er það að nýlega var endurvakin gömul sendibilastöð á rústum gömlu Steindórsstöðvarinnar og nefnd Sendibílar sf. Eftir að Stein- dórsmenn höfðu tapað máli fyrir hæstarétti sem snerist um það hvort atvinnuleyfi sem þeir höfðu keypt væru gild, flugu nær því all- ir gömlu Steindórsmennirnir úr hreiðrinu og þeir sem fengu at- vinnuleyfi fóru á aðrar stöðvar. Þeir herskáustu, sem eftir sátu, voru ekki af baki dottnir, hafa sjálfsagt talið sig eiga harma að hefna. Með því að kaupa Sendibíla hf. og fá stimpil lögreglu- stjóraembættisins og Davíðs borg- arstjóra voru þeir komnir með leyfi fyrir svokallaða sendibíla- greiðaþjónustu til reynslu í eitt ár. Sá grunur vaknaði fljótt hjá leigubílstjórum í Reykjavík, að sendiferðabílstjórarnir ætluðu líka að aka fólki gegn gjaldi, ekki síst eftir að farið var að setja sæti og bekki í bílana. Það kom líka á daginn að þarna voru úlfar í sauö- argæru. Sem sagt: margir bílstjór- anna hundsuðu lög og reglur með því að fara út fyrir sitt leyfilega verksvið. Leigubílstjórar stóðu þá hvað eftir annað að verki við að aka fólki fyrir gjald og kölluðu á lögreglu sem tók af þeim skýrslur. En óðara voru þeir komnir á göt- urnar á ný, bjóðandi þjónustu sína. Allir starfandi leigubílstjórar hafa þurft að eyða fyrstu og bestu árum sínum sem launþegar við akstur til að öðlast atvinnuleyfi. Einnig eru tugir eða jafnvel hundruð karla og kvenna sem vilja gera akstur leigubifreiða að at- vinnu sinni en engum þeirra dett- ur í hug að harka ólöglega, þau bíða eftir að röðin komi að sér að öðlast atvinnuleyfi eins og aðrir hafa orðið að gera. Það sem gerðist í málinu sem eitt dagblaðanna kallaði „borgara- styrjöld bílstjóra" var það að réttlætiskennd leigubílstjóra i Reykjavík var misboðið, þar sem svo gróflega var gengið á rétt þeirra og ekki virtist hægt að stöðva þessa sjóræningjastarf- semi. Það má segja að bæði leigu- bílstjórum og lögreglu hafi verið storkað hvað eftir annað. Það sem kannski er alvarlegast þegar upp koma mál eins og þetta, er þegar lögreglan er hikandi og virðist ekki vita hvað hún á að gera, þó svo að um augljóst lögbrot sé að ræða, enda hitnaði í kolunum þeg- ar spurðist að yfirlögregluþjónn- inn hefði sagt sínum mönnum að skipta sér ekki af þessu máli! Þeg- ar slík staða kemur upp, skapast sú hætta að borgararnir sem á er brotið, taki til sinna ráða. Má þar búast við að tilfinningar og reiði, frekar en skynsemi, stjórni gerð- um manna. Samt er aldrei hægt að rétttlæta ofbeldisaðgerðir. Það, sem hellti olíu á þann eld sem kviknað hafði, var að atvinnu- leyfislaus bílstjóri var að aka fólki fyrir gjald á einkabíl sínum, sem merktur var bæði í bak og fyrir Steindórsstöðinni og hafði sá margsinnis verið staðinn að verki. Það er vítavert ábyrgðarleysi hjá ráðamönnum Sendibíla hf. að ota hinum misvitru starfsmönnum sínum fram líkt og leiksoppum til lögbrota í stað þess að sjá til þess að þeir fari ekki út fyrir sitt verk- svið. Að lokum þetta: Það gefur auga- leið að ekki er hægt að plata heila stétt manna (570 manns) sem vinnur við að aka fólki um borg- ina. Þeir vita hvað er að gerast í kringum sig og vilja skiljanlega ekki horfa upp á það að gengið sé gróflega á rétt þeirra. Enginn stéttarsamtök myndu líða það að farið væri inn á verksvið þeirra eins og raun ber vitni í þessu leið- indamáli. Söluturn Til sölu er einn af betri söluturnum í Reykjavik. Staðsett- ur i austurhluta borgarinnar. Mikil velta. Langur leigu- samningur. Góð aðstaða fyrir videóleigu i húsnæðinu. Aöeins fjársterkir kaupendur koma til greina. Tilboð leggist inn á afgreiöslu Mbl. fyrir 26. mars merkt: „Söluturn 3246“. Garðbæingar athugið Leitið ekki langt yfir skammt, vorum að opna nýja glæsilega og fullkomna sólbaðstofu aö lönbúö 8. Bjóðum aðeins það sem er á toppnum í dag, hina margþekktu og viðurkenndu MA-atvinnubekki, einnig eingöngu MA-andlitsljós. Opiö alla daga frá kl. 8.00 —23.30, nema sunnu- daga frá kl. 14.00—20.00. Hittumst hress í Garðasól — Sjón er sögu ríkari. Verið ávallt velkomin. Sími 641260. Heildsölubirgðir: Agnar Ludvigsaon hl. Nýlendugötu 21, simi 12134. Þessir hringdu . . . Svar til beitn- ingamanns Bárður Jensson, formaður verkalýðsfélagsins Jökuls á Ólafsvík hringdi: I sambandi við fyrirspurn frá Konráði Björgúlfssyni um rétt beitningamanna vil ég koma eft- irfarandi á framfæri. Verka- lýðsfélögin fjögur á Snæfellsnesi undirrituðu samning við Ot- vegsmannafélag Snæfellsness 21. marz 1981 og er hann nú bú- inn að vera laus í tvö ár. Þaraf- leiðandi höfum við frestað verk- falli þar til að búið er að endur- skoða þennan samning við út- vegsmenn. Ég vil vitna í 3. grein þessa samnings: „Kauptaxtar fyrir veiðarfæravinnu skulu vera skv. kaupskrá frá 1. marz 1981 og taka þeim breytingum sem á kaupgjaldsvísitölu verða. Greiðslur til lífeyrissjóðs skulu miðast við 8. taxta verkalýðsfé- laganna (sem er sennilega 15. taxti í dag, innsk. Bárðar) og orlofsfé, 8,33%, sem greiðist á alla kauptaxta (eru 10,17% í dag, innsk. Bárðar). Launagreiðendur skuldbinda sig til að halda eftir af kaupi, félags- og atvinnuréttindagjöld- um launþega viðkomandi verka- lýðsfélags. Kaup f veikinda- og slysatilfellum skal vera eins og á er kveðið um í almennum kjara- samningum verkafólks. Allt fólk er vinnur við veiðarfæravinnu skal vera slysatryggt. Beitn- ingamenn skulu eiga kost á vinnuvettlingum á heildsölu- verði.“ 4. gr. „Menn sem vinna við við- gerð og uppsetningu á netum í tímavinnu skulu fá greitt fyrir þá vinnu skv. 13. taxta hinna al- mennu verkalýðsfélaga (senni- lega 17. taxti í dag, innsk. Bárð- ar).“ Tókum húsið strax úr sölu S.A. hringdi: Það er skrýtið með fasteigna- sala hér í borg, þeir virðast lækka verðið á fasteignum niður úr öllu valdi til þess eins að losna við þær í stað þess að telja upp kosti þeirra og selja þær á réttu verði. Við settum húsið okkar á sölu um daginn, það er ekki alveg fullbúið, en pláss er fyrir gufu- bað o.fl. og pott í garðinum. Fasteignasaíinn telur ekkert af þessu upp í auglýsingu sinni heldur segir hann að í húsinu sé mikið geymslurými! Af auglýs- ingunni að dæma er húsið okkar í hans augum vöruskemma. Við vorum skiljanlega óhress með þetta og tókum húsið strax úr sölu. Bladburöarfólk óskast! Austurbær Lindargata 6—39 jMttgmiÞIfifeife
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.