Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.03.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 43 Elín Sigurðar- dóttir — Minning Fædd 24. júní 1891 Dáin 4. mars 1985 Er við nú kveðjum okkar ást- kaeru ömmu, Elínu Sigurðardótt- ur, Mávahlíð 33, er lést 4. mars sl., er okkur bæði ljúft og skylt að minnast hennar litillega hér. Amma okkar var einstaklega hreinlynd og heiðarleg mann- eskja, sagði meiningu sína hreint út sama hver í hlut átti. Hún var stolt og stórlynd kona hún amma okkar, af gamla skól- anum. Skuldaði aldrei neinum neitt, en með eindæmum hlédræg manneskja. Hún lifði og starfaði fyrir barnahópinn sinn og síðan þeirra fjölskyldur, en afa okkar, Þorleif Þorleifsson, ljósmyndara, missti hún hún var rétt fimmtug. Það er auðséð hvílík umskipti það hafa verið með 8 börn og yngsta 5 ára. En elstu bræðurnir, Oddur og Þorleifur, ljósmyndarar, tóku við rekstri ljósmyndastofunnar og gengu, ef svo má að orði komast, öllum systkinunum í föðurstað þá aðeins tvítugir að aldri, þeir reyndust öllum systkinunum ein- staklega vel og er amma gerðist aldin að árum bjó hún að síðustu ein hjá Oddi eftir að Lilli frændi féll frá aðeins 57 ára. Eftir það fór ömmu að hnigna mjög en Oddur var henni einstaklega góður sonur. Sérstaklega er okkur systkinun- um minnisstætt hversu gott var að koma til ömmu á Rauðarárstíg- inn og fá heitt kakó og rúgbrauð með púðursykri. Þetta þótti sæl- gæti í þá daga, en þætti ekki mikið í dag, en þannig var nú amma, hún hafði gaman af að gleðja okkur barnabörnin og þá gaf hún okkur það sem hún átti best, þó það þætti ekki mikið í dag. Við minnumst líka með gleði jólanna heima hjá ömmu og bræðrunum, þá kom allur hópur- inn á aðfangadagskvöld og var safnast saman við píanóið, Oddur lék undir og stjórnaði fjölda- söngnum, misjafnar voru nú radd- irnar að styrk og gæðum og vakti það mikla kátínu gestanna. Við gætum talið svo margt upp af öllu því góða er amma gaf okkur, en ætlum ekki að tíunda það hér, það hefði síst verið henni að skapi, gömlu konunni. En von okkar og vissa er sú að allt verði reiknað henni til góðs veganestis til nýrra og æðri heimkynna. Við söknum elskulegrar ömmu mikið, en gleðjumst hennar vegna að hafa nú fengið langþráða hvíld og i þeirri trúarvissu að þar sé hún nú alsæl meðal ástvina er á undan hafa kvatt þessa jörð. Biðj- um við góðan Guð að blessa minn- ingu hennar. Auðunn, Elísabet og Guðlaug. í gær var kvödd hinstu kveðju frá Dómkirkjunni í Reykjavík El- in Sigurðardóttir. Hún andaðist 4. mars sl. í Hafnarbúðum í Reykja- vík, en þar hafði hún dvalið síð- ustu æviárin. Elín fæddist 24. júní 1891 á Innra-Hólmi í nágrenni Akraneskaupstaðar. Hún var elst af 12 börnum þeirra hjóna Þuríðar Árnadóttur og Sigurðar Jónsson- ar, þeirra sem á legg komust, en þau voru alls 15 að tölu. Elín var því orðin háöldruð, eða tæplega 94 ára, er hún fékk hvíld- ina. Ég held að lausnin úr viðjum þessa heims hafi verið orðin þess- ari starfsömu, grandvöru og góðu konu kærkomin. Hún var búin að hafa alllanga og erfiða sjúkdóms- legu, meira eða minna ófær um að tjá sig með orðum, lá ýmist fyrir eða sat í stól, en virtist þó skilja það sem fram fór í kringum hana. Við slíkar aðstæður má segja að engill umbreytingarinnar hafi verið henni kærkominn gestur. Nú þegar hún er horfin sjónum okkar yfir móðuna miklu vakna margar ánægjulegar minningar um þessa konu og móður, sem á fagran og ósérhlífinn hátt helgaði líf sitt velferð fjölskyldu sinnar og lagði öllum gott til, er henni kynntust. Ég, er þessar línur rita, átti því láni að fagna að kynnast Elínu strax í barnæsku, þar sem Þorleifur sonur hennar, látinn fyrir nokkrum árum, var æskuvin- ur minn. Við bjuggum lengi í sama húsi, Kirkjutorgi 6, rétt við Dóm- kirkjuna, og var ég því svo til heimagangur á heimili Elínar og manns hennar, Þorleifs Þorleifs- sonar ljósmyndara og kaupmanns, en hann er látinn fyrir mörgum árum. Hinar mörgu og skemmtilegu endurminningar frá mannmörgu og glaðlegu heimili þessarar fjöl- skyldu geymi ég af þakklátum huga, ekki síst minninguna um konu sem af gnægð hjartahlýju og umhyggju sinnar ætíð gat gefið öðrum meira en hún kannski að- njótandi varð sjálf. í mörg ár starfaði Elín í kvenfé- laginu Hvítabandinu og hafði ver- ið gerð að heiðursfélaga í því fé- lagi. Ekki er hægt annað en dást að hugprýði og ósérhlífni Elínar er hún skyndilega stóð ein uppi eftir lát manns síns með 8 börn sem hún þurfti að sjá farborða. En allt blessaðist þetta og þau geta nú horft yfir farinn veg með virðingu og þakklæti til góðrar móður. Við útför Elínar Sigurðardóttur lúta ættingjar og vinir höfði í þög- ulli virðingu og með þakklátum huga til þessarar mætu konu sem hér er kvödd að sinni og biðja henni fararheilla. f því sambandi kemur mér í hug sálmur Herdísar Andrésdóttur: Lækkar lifdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. Með þessum fátæklegu minn- ingarbrotum langar mig fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar að votta eftirlifandi dætrum, son- um og öðrum aðstandendum Elín- ar okkar innilegustu samúð. Hvíli hún í friði, friður Guðs blessi hana. Geir R. Tómasson Kveðja frá syni Það kom mér ekki svo mjög á óvart þegar síðdegis þann 4. þessa mánaðar kom tilkynning frá sjúkrahúsi aldraðra Hafnarbúð- um, að móðir mín væri látin. Flensan hafði lagst þungt á gaml- an líkamann. — Ég hafði kvöldið áður heimsótt móður mína og þeg- ar ég sá hversu henni hafði hrakað grunaði mig að hverju stefndi. Eigi að síður var ég harmi sleg- inn, blessuð gamla mamma mín var dáiri. — Því þótt þetta væri besta lausnin og að þessu hlyti að koma fyrr eða síðar leyndist ein- hver dulin ósk um frestun á því óhjákvæmilega. Það eru fá orðatiltæki sem segja jafnmikið í fáum orðum og mál- tækið „tvisvar verður gamall mað- ur barn“. Það var sorglegt að sjá hversu ellin lék móður mína grátt. Hún sem áður var hugrökk og sterk og gat miðlað öðrum var orðin sem ósjálfbjarga barn. En hún var í góðum höndum. Það var okkur, börnum hennar, mikil huggun. Starfsfólki Hafnarbúða flyt ég þakkir fyrir auðsýnda um- hyggju og ástúð, þau ár er móðir mín dvaldi þar. Blessað sé það líknarstarf, sem þar er unnið. Nú kveð ég og þakka móður minni fórnfýsi hennar og ást. Fari hún í friði. Oddur H. Þorleifsson + Móðir min, UNNUR CARLSON l»dd GUNNARSDÓTTIR, andaöist i Bandarikjunum 8. mars sl. Ronald Carlson, 3920 NW 106 Drivo, Coral Springs, Florida. t Móöir min, amma og langamma, HERTHA LÁRINA HELENA JENSEN. Brávallagötu 42, er lóst 10. mars sl., verður jarösungin miövikudaginn 20. mars frá Fossvogskapellu kl. 15.00. Jons Friörik Jóhannesson, Jóhannes Ragnar Jensson, Hulda Jensdóttír, Helena Jensdóttir, og barnabörn. + Ástkær eiginkona mln, móöir og dóttir, ÞÓRHILDUR BRYNJÓLFSDÓTTIR, Breiövangi 14, veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni I Hafnarfiröi fimmtudaginn 21 mars kl. 13.30. Jón Guómundsson, Valgeröur Steinarsdóttir, Salbjörg Jónsdóttir, Valgeröur Þórarinsdóttir. + Móöir okkar, ELÍN SIGURÐARDÓTTIR, Mávahliö 33, andaöist 4. mars i Hafnarbúöum. Útför hennar hefur fariö fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd okkar systkinanna, Oddur Þorleifsson. + Maöurinn minn, faöir okkar og bróðir, HALLDÓR GUÐBJARTSSON, lést i Kristiansand, Noregi, mánudaginn 18. mars. Sigriöur Hansdóttir Guöbjartsson, Halldóra Halldórsdóttir, Ólafur Halldórsson, Guöbjörg Guöbjartsdóttir. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, lést aöfaranótt 19. þ.m. i Landspitalanum. Jaröarförin veröur auglýst siöar. Fyrir hönd aöstandenda. Óskar Hallgrfmsson, Rakel Snmundsdóttir, Kristin Hallgrimsdóttir, Hilmar Vilhjálmsson. + Faöir okkar, KARL BJÖRGÚLFUR BJÖRNSSON, frá Reyöarfiröi, andaölst i Hrafnistu 17. þ.m. Björg Karlsdóttir, Hjalti Karlsson, Ingunn Karlsdóttir, Björn Karlsson, Marta Cahalan, Einar Karlsson, + Sambýlismaöurinn minn, faöir, tengdafaöir, afi og langafi, KOLBEINN STEINGRÍMSSON, fyrrverandi vörubilstjóri, Þrótti, frá Gljúfrá I Borgarfirói, Reykási 43, Reykjavík, lést 7. mars. Útförin hefur fariö fram. Þórhildur Árnadóttir, Hulda B. Kolbeinsdóttir, Gunnar Bjartmarsson, Steingrfmur Kolbeinsson, Hjördfs Arnfinnsdóttir, Sigurborg Kolbeinsdóttir, Svavar Á Sigurösson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, EDVALD B. MALMOUIST, yfírmatsmaóur garöávaxta, veröur jarösunginn fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 15.00 frá Dómkirkjunni i Reykjavik. Jarösett verður i Gufuneskirkjugaröi. Asta Th. Malmquist, Guömundur Malmquist, Jóhann Pátur Malmquiat, Þórdfs Ragnheiöur Malmquist. + Sonur okkar, JÓSEF LILJENDAL SIGURÐSSON frá Torfufelli, sem lóst 14. mars, veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju iaugar- daginn 23. mars kl. 10.30 f.h. Þeim sem vildu minnast hans er vin- samlegast bent á liknarstofnanir. Fyrir hönd sona hans og annarra vandamanna, Svava Fríöjónsdóttir, Siguröur Jósefsson. + Útför ÓLAFÍU PÁLSDÓTTUR, Hverfisgötu 102A, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. mars kl. 10.30. Vandamenn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.