Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.03.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 Þjóðarslys 90-1 80- 70 60- 50 40 30 20 10 -rlOJ * Hækkun 82,1 Hækkun greiðslna umfram hækkun/ launa vegna lánskjaravísitölu / og breyttra raunvaxta. > 55,0 í i t I i / 27,9 / / 41,6 / 34,9 .// // // i/ t • 4-0,7 4-0,4 /'4-0,6 ----------------1--- Hækkun greióslna umfram hækkun launa / vegna lánskjaravísitölunnar einnar. 20,4 -I- -I- 1981 1982 1983 1984 1985 Hækkun greiðslubyrði miðað við laun vegna hækkunar á lánskjaravísitölu og vaxtabreytinga. — eftir Björn Ólafsson í byrjun þessa mánaðar fóru að heyrast auglýsingar í fjölmiðlum frá hóp sem kallar sig „Áhuga- menn um úrbætur i húsnæðismál- um“ þar sem samtök þessi hvöttu fólk til að skrá sig ef það vildi gerast félagar að slíkum samtök- um. { fyrstu var erfitt að átta sig á hvaða samtök væru hér á ferðinni, en málin skýrðust þó fljótlega. Viðbrögðin urðu snögg og ofsa- fengin. Þegar vikan var liðin höfðu á sjötta þúsund manns látið skrá sig og enn er skráning í full- um gangi. Hvað gerðist, hvers vegna urðu viðbrögðin jafn hörð og raun bar vitni. Hvers vegna hringdi allt þetta fólk og lét skrá sig með þeim orðum „mikið var“, „loksins gerð- ist eitthvað", „þetta var svo sann- arlega tímabært“ o.s.frv. Hvernig stendur á því, að stjórnmálamenn og aðrir, er láta málefni þjóðfélagsins til sín taka, létu sem allt væri f stakasta lagi? Var ekki búið að sigrast á verð- bólgunni og nú væru bjartir tímar framundan? Getur það verið að fólk hafi byrgt vandamál sín svo inni eða vissu þessir menn ekki hvað var að gerast í röðum fólks- ins í landinu? Ef til vill skila þessar upplýs- ingar sér ekki vegna hinna skörpu aldursskila sem nú eru með ráða- mönnum þjóðarinnar og þeirri ungu kynslóð sem nú heyr grimmilega baráttu fyrir tilveru sinni og réttindum. Ég held að ungu fólki sé að verða ljóst að hér hefur myndast tvöfalt þjóðfélag, og að okkar kynslóð sé orðin óvirk í þátttöku mannlífsins, vegna þess að við er- um orðnir þrælar hagkerfis, sem gerir öllu venjulegu fólki ókleift að eignast íbúðarhúsnæði fyrir fjölskylduna. Við gerum okkur grein fyrir og teljum að fjölskyldan sé horn- steinn þjóðfélagsins og að henni þurfi að hlúa á allan hátt. Þess vegna yrði það mikið þjóðarslys ef þeir atburðir sem nú eru að gerast fengju að þróast áfram. Unga fólkið horfir upp á upp- töku heimila sinna og um leið ævistarfs sins. Við þetta getum við ekki lengur unað. Þess vegna rísum við upp í heilagri reiði okkar og setjum fram okkar kröfur. Kröfurnar ger- um við til samfélagsins, kröfur sem við ætlum að ná fram, eftir öllum tiltækum leiðum, vegna þess að hér er þetta spurning um réttlæti eða ekki. Og hverjar eru svo kröfurnar? Á fundi með fréttamönnum fyrir rúmri viku gerðu forsvars- menn samtakanna grein fyrir kröfum þessa hóps sem eru í meg- inatriðum þessar: Björn Ólafsson „Árleg greiðslubyröi stefnir í að verða tvö- föld sú upphæð sem ráðgjafinn gaf upp á sín- um tíma, og er helming- ur af þessari aukningu vegna hækkunar á vöxt- unum einum. Hafi ein- hverjir verið hafðir að ginningarfíflum þá er það þetta fólk.“ A: Sambandið milli launa og greiðslubyrði af lánum hefur verið rofið. Þetta verði lagfært þegar í stað og taki lagfæringin til opinberra lána, bankalána og annarra fasteignalána. Þessi leiðrétting verði tryggð til frambúðar og reiknist frá þeim tíma er misræmis fór að gæta að marki milli lánskjara- vísitölu og launa. B: Háir vextir á lánum til hús- næðiskaupa eru óviðunandi og ber að lækka þá þegar í stað. í greinargerð með tillögum komu eftirfarandi atriði fram: Misgengi lánskjaravísitölu og launa, háir raunvextir og skortur á langtíma lánsfé ásamt slæmum greiðslukjörum á fasteignamarkaði hefur rofið eðlilegt samhengi í húsnæð- ismálum. — Ungu fólki sem kaupir hús- næði í fyrsta sinn fækkar stöð- ugt. — Húsbyggjendur og kaup- endur eiga í sífellt meiri erfið- leikum með að standa í skilum af afborgunum, verðbótum og vöxtum af lánum. — Fólk, sem fyrir nokkrum ár- um fór út í húsnæðiskaup og gætti þess vel að reisa sér ekki hurðarás um öxl, verður nú vegna gerbreyttra forsendna að horfast í augu við afborgan- ir, sem eru að vaxa því yfir höf- uð. — Eigendur lítilla íbúða geta ekki lengur skipt um íbúðir í samræmi við fjölskyldustærð eins og tíðkast hefur. Unga fólkið er því fast í litlu íbúðun- um og eldra fólkið horfir upp á verðfall húseigna sinna og sér ekki hag í þvi aö minnka við sig húsnæði. Á blaðamannafundinum greind- um við einnig frá viðbrögðum fólks sem hafði skráð sig í sam- tökin og viðhorfum þeirra til þess- ara mála. Að sjálfsögðu geta ást- æður fyrir vandræðum sumra ver- ið aðrar en að ofan greinir, en þau dæmi breyta í engu þeirri stað- reynd er við blasir, þ.e.a.s. fjár- hagslegu gjaldþroti þúsunda heimila. I upphafi er vert að skoða hverj- ar þær forsendur voru sem lánast- ofnanir gáfu upp þegar verðtryggð lán voru tekin upp. Ráðgjafar lán- astofnana sýndu okkur töflur og línurit hvernig afborganir héldust jafnar og færu lækkandi með ár- unum. Með 2— 2,5% vöxtum var sýnt hvernig greiðslubyrðin yrði yfir allt greiðslutímabilið og til hliðar var sýnd áætluð þróun launa á sama tímabili. Fólk var jafnframt hvatt til að breyta eldri lánum yfir í þetta nýja fyrirkom- ulag þar sem greiðslubyrðin ætti að vera jöfn og fara minnkandi og að fólk gæti gert sínar áætlanir samkvæmt þessu. Vegna þess ástands sem nú ríkir er þess vegna rétt hjá okkur að staldra við og skoða hvernig þessi ráðgjöf hefur reynst okkur. Dæm- in hér á eftir eru unnin af Stefáni Ingólfssyni hjá Fasteignamati ríkisins og eru hirt hér með hans leyfi. 1. Dæmi af verðtryggðu láni að upphæð 1.000.000 m.kr. (á föstu verðlagi dagsins I dag) sem tekið er til 20 ára. Lánið er tekið 1980 og ber þá 2,5% vexti. Samanburður á greiðslum: dálkur a. Lánið greiðist miðað við kaupgjaldsvísitölu og fasta 2,5% vexti (upprunalegar forsendur við lántöku). dálkur b. Lánið greiðist miðað við lánskjaravísitölu og fasta vexti. dálkur c. Lánið greiðist við láns- kjaravísitölu og breytilega vexti (greiðslubyrðin eins og hún hefur orðið í reynd). Tafla 1. I 1 (upohieðir f þús.kr.) Ár a b c 1981 75.000 74.475 74.475 1982 73.750 73.455 73.455 1983 72^00 87.290 92.708 1984 71.250 96.116 110.449 1985* 70.000 99.120 127.440 •ietU4»r lölnr Tölur þessar tala sínu máli og þarf varla að ræða. Árleg greiðslubyrði stefnir í að verða tvöföld sú upphæð sem ráðgjafinn gaf upp á sínum tíma, og er helm- ingur af þessari aukningu vegna hækkunar á vöxtunum einum. Hafi einhverjir verið hafðir að ginningarfíflum þá er það þetta fólk. Ef til vill er þetta allt saman löglegt, en siðlaust hlýtur þetta að teljast. Fyrir lögfróða menn gæti verið íhugunarefni hvort þetta brjóti ekki í bága við einhverja grein okurlaga, sem sett eru m.a. til að verja einstaklinga fyrir áföllum sem þessum. Og enn á ný eru ráðgjafarnir komnir fram á sjónarsviðið. Ég vona að þeir, samfara ráð- gjöfinni, geri sér ljóst í hverju vandamáliö liggur að stórum hluta og komi þeim upplýsingum áfram til réttra aðila. í frumvarpi félagsmálaráðherra sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir, að greiðslubyrði sé jafn- að á milli tímabila með notkun á svokölluðum mismunarreikningi. Þannig skal við útreikninga á greiðslubyrði taka tillit til hlut- falls launa og lánskjaravísitölu og sé lokastaðan neikvæð á þessum reikningi komi eftirstöðvar til greiðslu í lok lánstíma. Gagnvart sveiflum milli launa og lánskjaravísitölu er þessi hugmynd áhugaverð og hefðu þessar reglur raunar átt að taka gildi um leið og verðtryggðu lán- unum var komið á. Ef svo hefði verið ættu lántakendur nú inni verulegar upphæðir á mismunarr- eikningum, þ.e.a.s. greiðslur und- anfarin tvö ár hafa verið mun þyngri en þær hefðu orðið sam- kvæmt frumvarpinu. Til að ná fram leiðréttingu aftur í tímann á vísitöluþætti lánsins væri þannig eðlilegt að gera hlé á afborgunum lána þar til jöfnuði væri náð á mismunarreikningum og vinnuregla þessi síðan látin gilda eftir það. Með þessu móti gæfist fólki kostur á að greiða úr vísitölu- bundna hluta vanskilaskuldanna. Um aukna greiðslubyrði vegna vaxtabreytinga gildir allt öðru máli, hér hefur lánskostnaði verið breytt stórkostlega og í engu sam- ræmi við það sem um var talað er lánin voru tekin. Við munum ekki sætta okkur við slíka eignaupptöku sem byggð er á jafn vafasömum forsendum og áður er getið. Til að skýra nánar um hvaða upphæðir er hér að ræða hefur Stefán Ingólfsson áætlað, að mið- að við veltu fasteignamarkaðarins sl. 5 ár og það lánsfé sem þar er bundinn hafa íbúðarkaupendur og byggjendur þessara ára greitt aukalega, miðað við upphaflegar forsendur, um 840 millj.kr. vegna misgengis launa og lánskjaravísi- tölu og um 330 millj. kr. vegna hækkaðra vaxta. Á þessu ári má áætla að þessar upphæðir aukist um 810 millj.kr. vegna misgengisins og um 580 millj.kr. vegna vaxtabreyt- inganna. Lokaorð Sá vandi sem nú er hjá fólki vegna öflunar húsnæðis er fyrst og fremst vegna aðgerða stjórn- valda og ráðamanna lánastofnana. Þessar aðgerðir, eða aðgerðaleysi, eru að grafa undan velferð heillar kynslóðar og við það verður ekki unað. Við skorum á stjórnvöld og alla þá ráðamenn er málið varðar að bregðast skjótt við og leiðrétta þær misgjörðir er við höfum þurft að þola og tryggja að slíkir at- burðir endurtaki sig ekki í fram- tíðinni. Við skulum alltaf hafa í huga að það sem er dýrmætast með þjóð- inni er fólkið sjálft. Björo Ólafsson er deildaryerkfræó- r bjá Vegagerö ríkisins. % Hækkun Hækkun greiðslubyrði vegna breytinga á vöxtum, miðað við óbreytt verðlag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.