Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 7

Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985 7 Ný samtök á Norðausturlandi: Styðja eftirlitsratsjár í þágu friðar og öryggis Ágúst Gíslason trúboði látinn ÁGÚST Gíslason trúboði á Siglufírði er látinn, á 88. aldursári. Ágúst fæddist 29. ágúst 1897 í Dýrafírði. í viðtali í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum við Gústa guðs- mann, sagðist hann hafa hitt Guð á Akureyri árið 1948 og það hefði samist svo um með þeim, að þeir færu í kristniboðsútgerð saman. Gústi keypti trilluna Sigurvin á Akureyri og fluttist til Siglufjarð- ar þar sem hann hóf kristniboð víða um heim. f liðlega þrjá ára- tugi prédikaði Gústi guðsmaður reglulega á torginu í miðjum bæn- um og hann var sinn eigin kór í athöfninni. Hann sótti sjóinn til að afla fjár til kristniboðsins og í áratugi hefur hann kostað hundr- uð barna víða um heim til náms. Ræður og skrif Gústa og þakk- arbréf utan úr hinum stóra heimi fylla heilu koffortin. Lengst af bjó Bach-tón- leikar í Akur- eyrarkirkju „BACH-tónleikar“ verða haldnir á fímmtudagskvöld í Akureyrarkirkju kl. 20.30, en Johann Sebastian Bach fæddist einmitt á þeim degi fyrir 300 árum. Helga Ingólfsdóttir mun leika á sembal prelúdíu og fúgu, franska svítu nr. 5, ítalska konsertinn og ljúka tónleikunum með konsert i d-moll með aðstoð strengjakvart- etts, sem skipaður er kennurum við Tónlistarskólann á Akureyri. Kvartettinn skipa þau: Lilja Hjaltadóttir og Magna Guð- mundsdóttir á fiðlu, Michael Clarke á lágfiðlu og Oliver Kent- ish á selló. í fréttatilkynningu um tónleik- ana segir: „Á efnisskránni eru verk sem tvímælalaust flokkast meðal vin- sælustu tónverka meistarans, s.s. ítalski konsertinn. Það er at- hyglisvert að Bach notaði tvo þætti úr d-moll konsertinum í kantötu sinni „Vom Reiche Gott- es“, sem Passíukórinn á Akureyri flytur á tónleikum eftir páska. Helga Ingólfsdóttir hefur haldið fjölda tónleika hér heima og víðs- vegar um Evrópu. Einleikstónleikar hennar í Kristskirkju á Listahátíð i Reykjavík vorið 1984 vöktu feikna hrifningu áheyrenda og hlutu ein- róma lof tónlistargagnrýnenda. Helga hefur einkum sérhæft sig i flutningi á tónverkum eftir Bach og fyrir síðustu jól kom úr einleiksplata hennar með verkum hans. f tengslum við heimsókn Helgu Ingólfsdóttur gengst Tónlistar- skólinn á Akureyri fyrir nám- skeiði í túlkun á verkum eftir Bach og barokktónlist og mun Helga bæði halda fyrirlestra um þetta efni og leiðbeina nemendum á ýmsum stigum hljómborðsleiks og einnig í samleik." Tónleikarnir i Akureyrarkirkju verða á vegum Tónlistarskólans og Tónlistarfélags Akureyrar, og gilda áskriftarmiðar félagsins á þessa tónleika i stað tónleikanna þann 9. mars sl., sem féllu niður af ófyrirsjáanlegum ástæðum. Að- göngumiðar verða seldir við inn- ganginn. 35 ára maður í gæzluvarðhald 35 ÁRA gamall maður var úrskurð- aður í 10 daga gæzluvarðhald í saka- dómi í ávana- og fíknefnamálum um helgina. Maðurinn var handtekinn á föstudag og við húsleit fundust 60 grömm af hassi, nokkurt magn af amfetamíni og milli 20 og 30 skammtar af ofskynjunarlyfinu LSD. Maðurinn er grunaður um ólöglega sölu og innflutning fíkni- efna. Ágúst Gíslason Gústi í Antonsbragga i Siglufirði en síðustu árin hefur hann verið á sjúkrahúsinu. Síðasta árið sem Gústi reri á Sigurvin um áttrætt var trillan vélarvana en þá réri gamli maðurinn með árum, Guð sá um að þeirra útgerð gengi. Gústi guðsmaður átti það til, að blóta hressilega í prédikunum sínum, en það eitt vissi hann að var holdlegt vandamál en ekki andlegt. Útför Ágústs Gíslasonar verður gerð frá Siglufjarðarkirkju, fimmtudaginn 21. marz. Við jarð- arförina verður flutt efni, prédik- un sem hann talaði sjálfur inn á segulband áður en hann lézt. ÁHUGAFÓLK um vestrænt varnar- samstarf, sem búsett er í fjónim hreppum á Norðausturlandi, hefur stofnað með sér samtök. Er það stefna samtakanna að vinna að efí- ingu friðar og öryggis í heiminum, meðal annars með uppsetningu eftir- lits-ratsjárstöðva á Norðausturlandi, sem að mestu leyti yrðu kostaðar af Atlantshafsbandalaginu, reknar á kostnað Bandaríkjanna en undir stjórn íslendinga, eins og segir í fréttatilkynningu hinna nýju sam- taka. Morgunblaðið sneri sér til Björgvins Þóroddssonar, bónda á Garði í Svalbarðshreppi, sem er einn af niu stofnendum Samtaka áhugafólks um vestrænt varnar- samstarf og spurði hann um sam- tökin. „Hér er alls ekki um flokkspóli- tísk samtök að ræða,“ sagði Björgvin Þóroddsson. „Samtökin eru til komin vegna umræðna um byggingu væntanlegra ratsjár- stöðva. Ekki kemur neinum á óvart, að menn séu ekki á einu máli um stöðvarnar. En þeir sem Björgvin Þóroddsson eru á móti þeim hafa kallað þessi nýju samtök fram.“ Björgvin Þóroddsson sagðist þeirrar skoðunar, að við vaxandi umræður ættu andstæðingar ratsjárstöðvanna undir högg að sækja. Fundur Geirs Hallgríms- sonar, utanríkisráðherra, á Þórs- höfn hefði mælst mjög vel fyrir. „Þeim mun meira sem fólk hugsar um þessi mál,“ sagði Björgvin, „því viturlegri niður- stöðum hljóta menn að komast að. Umræðurnar hafa því síður en svo spillt málstað okkar, sem að hinu nýja félagi stöndum. Rök and- stæðinganna mega sín lítils, þegar málið er brotið til mergjar. Sam- tök okkar vilja stuðla að áfram- haldandi veru íslands í Atlants- hafsbandalaginu. Þau eru öllum opin sem áhuga hafa á þessu mál- efni.“ Auk Björgvins Þóroddssonar standa Eiríkur Kristjánsson, Svalbarðshreppi, Úlfar Þórðarson, Sauðaneshreppi, Kristbjörn Jó- hannsson, Sauðaneshreppi, Ægir Lúðvíksson, Þórshafnarhreppi, Jón Aðalbjörnsson, Þórshafnar- hreppi, Jón Gunnþórsson, Þórs- hafnarhreppi, Sigurbjörn Þor- steinsson, Skeggjastaðahreppi, og Kristinn Pétursson, Skeggja- staðahreppi, að stofnun Samtaka áhugafólks um vestrænt varnar- samstarf á Norðausturlandi. Nú -verður m Árni Tryggvason i Austurbæjarbioi *ea- Ur^tfð Afmælishátíö Árna endurtekin vegna gífurlegrar aö- sóknar Hvernig væri að árna Árna heilla meö léttu brosi á vör? Föstudagskvöld 22. mars kl. 23.30. Stórkostlegur skemmtikraftur í 30 ár Frænka Charleys mætir auövitað í afmæliö Allir helstu gleðigjafar þjóö- arinnar fara kátir á kostum meö ykkur og Árna Tryggva ÁRNITRYGGVASON Örn Árnason Róbert Arnfinnsson Jörundur Guömundsson Elín Sigurvinsdóttir Pálmi Gestsson Einar G. Sveinbjörnsson Seodo<9<e^eS,eöa verö'aa"- Allir fara í hláturshlutverkin. Já, það er vel þegið að geta hlegið. I '•'iL' - u* 1*. Ef þú hlærö ekki núna, þá bara á föstudagskvöldiö Randver Þorláksson Siguröur Sigurjónsson Jón Sigurbjörnsson Rurik Haraldsson Halli og Laddi Stjupsystur Jonas Þ. Dagbjartsson Ellert Ingimundarson og fleiri. Kynnir: Gunnar Eyjólfsson. Fyrr má nú brosa en sprengja varirnar. Hljómsveit: Jónas Þórir, Ólafur Gaukur, Stef- án Jökulsson og Þorvaldur Steingrímsson. Stjórnandi: Sigríöur Þorvaldsdóttir. Engin læti, sýnið kæti, pantió sæti í tíma í síma 11384. Forsala aðgöngumiða í Austur- bæjarbíói frá kl. 16 í dagl alveg þangaö til uppselt [ verður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.