Morgunblaðið - 20.03.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
49
iðnaðarráðherra, og stöðvun
framkvæmda við Sjóefnavinnsl-
una á Reykjanesi vakna vonir um
að komið sé að tímamótum á þess-
um vettvangi og hætt verði að slá
stórlán erlendis í hæpna fjárfest-
ingu. Athygli manns hlýtur að
beinast að Austfjarðakjördæmi,
þar sem ráðgert er að setja niður
næsta stóriðjufyrirtæki byggt á
hæpnum, bjartsýnum hagsmuna-
útreikningum. Ég á auðvitað við
kísilmálmvinnsluna á Reyðarfirði.
Hvað verður um
áhættufyrirtækið
á Austfjörðum?
Það sérfræðingaálit, sem veldur
mestu um að kísilmálmvinnsla er
enn á dagskrá, nefnist „Kísil-
málmverksmiðja á Reyðarfirði —
Niðurstöður hagkvæmniathugun-
ar — Lokaskýrsla verkefnisstjórn-
ar iðnaðarráðuneytisins". Þessi
skýrsla var lögð fram í mars 1982
og olli miklu um að Alþingi sam-
þykkti að halda verkefninu áfram
um sinn. Ég hef lengi litið á hana
sem eins konar skólabókardæmi
um álitsgerðir af þvf tagi sem lýst
er hér á undan; hæpna röksemda-
færslu og vafasamar ályktanir.
Verksmiðjan er talin verða sam-
keppnishæf á tíma sem eldri verk-
smiðjur notuðu 70% af afkasta-
getu sinni þrátt fyrir hlutfallslega
hærri fjármagns- og flutnings-
kostnað en hjá þeim. Gert er ráð
fyrir vissri stöðnun í efnaiðnaði:
„Ekkert bendir til að önnur efni
leysi kísilmálm af hólmi á þeim
sviðum sem hann er notaður f
dag.“ Gæði vinnuafls á Islandi eru
talin til tekna þótt megnið af kís-
ilmálmi heimsins séu framleitt í
grónum iðnrfkjum og torskilið
hvaða sérgáfur við kunnum að
hafa til að vinna í stóriðjuverum.
Augum er lokað fyrir meginein-
kennum hagrænnar og tæknilegr-
ar þróunar í heiminum og mark-
aðsaðstæður afgreiddar með hefð-
bundnum hætti stóriðjupostula:
„Sem stendur er verð á kísilmálmi
í lægð ...“ en „... viss batamerki
á lofti.“ (Bls. 59.) Batamerkin
reyndust þau að lægðarverðið,
1.250 dalir fyrir tonnið, fór á
næstu misserum niður f 850 dali.
Það er meira að segja beitt setn-
ingarfræðilegum brögðum til að
láta líta svo út að hér sé um álit-
legt fyrirtæki að ræða: „Fyrirtæki
í silikon-framleiðslu fá en stór og
nokkurn tíma tekur að öðlast við-
urkenningu þeirra. En að fengnu
viðskiptasambandi er salan auð-
veld.“ Berið síðustu tvö orðin sam-
an við raunveruleikann sem lýst
er í fyrri málsgreininni og hinu
skilyrta upphafi hinnar sfðari!
Alvarlegast fyrir almenning í
landinu er þó það að hvorki í þess-
ari skýrslu né á seinni stigum hef-
ur verið gert ráð fyrir því að verk-
smiðjan greiddi rafmagnið á
kostnaðarverði frá nýjum virkjun-
um. Síðast var þetta staðfest í við-
tali við Geir Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, í við-
tali í NT 20. febrúar sl. Um það
atriði er m.a. eftir honum haft:
„Það er ljóst, að það orkuverð, sem
rætt hefur verið um hér, 18—20
mill, er ekki samkeppnisfært f
dag.“ Þetta þýðir einfaldlega að
ekki verður fram haldið nema
bjóða væntanlegu hlutafélagi um
verksmiðjureksturinn raforkuna
undir kostnaðarverði.
Og nú er bara að biða og sjá
hvað setur. I ljósi sfðustu atburða
hlýtur maður að mega binda vonir
við Sverri iðnaðarráðherra.
Vænta þess að hætt verði að slá
lán í erlendum bönkum i plön und-
ir draumafabrikku á Reyðarfirði.
Þau hafa þegar kostað rúmar 40
milljónir. Það er betra að nema
staðar við það mark en 350 millj-
óna markið eins og gert var á
Reykjanesi.
Að vísu vekur það með mér
nokkurn ugg að Sverrir skuli
þurfa að ná endurkjöri í Aust-
fjarðakjördæmi. Hins vegar höf-
um við fengið það bitra og dýr-
keypta reynslu af samtvinnuðum
sérfræðingaráðum og kjördæma-
poti að nú hlýtur að vera komið að
tímamótum. Hver kærir sig um að
halda því fjárhættuspili áfram?
Er ekki orðið tímabært að hags-
munir heildarinnar ráði meira?
Hörður Bergmtnn er fræðslu-
fulltrúi hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Aðalfundur FVB:
Skorar á stjórnvöld
að draga ekki úr fram-
kvæmdum við byggingu
B-álmu Borgarspítala
AÐALFUNDUR Félags velunnara
Borgarspítalans var haldinn nýlega.
Félagsmenn eru um 350. Tilgangur
félagsins er m.a. að bæta aðstöóu
sjúklinga sem njóta þjónustu Borg-
arspítalans, bæta og efla alls kyns
þjónustu svo sem lækningu, endur-
hæfingu og vísindastarfsemi f Borg-
arspítalanum, efla og styrkja fyrir-
byggjandi starfsemi f heilbrigðismál-
um innan veggja spítalans, stuðla að
auknum skilningi almennings og
stjórnvalda á starfsemi Borgar-
spítalans í Reykjavík með málefna-
legri kynningu og umræðu og stuðla
að því að Borgarspítalinn sé aðlað-
andi og vinsæll vinnustaður og að
vinnuaðstaða sé þar jafnan sem
beat
Félagið selur minningarspjöld
til styrktar starfsemi sinni og eru
þau afgreidd f anddyri spftalans
og einnig er hægt að fá þau af-
greidd í sfma spftalans, 81200.
Meðal verkefna FVB má nefna
kaup á myndbandstæki og spólum,
sem félagið gaf spftalanum. Eru
myndbandasýningar dag hvern
fyrir sjúklinga. Þá hafa verið í at-
hugun kaup á smásjá til nota við
nákvæmar skurðaðgerðir. Skreyt-
ing á göngum spftalans og anddyri
er einnig í deiglunni. Loks má
nefna að nú á skirdag hefur félag-
ið forgöngu um að Lögreglukórinn
kemur f heimsókn og skemmtir
sjúklingum og starfsfólki með
söng sínum. Utvegun skemmti-
krafta til að koma fram í spítalan-
um er eitt af verkefnunum á
stefnuskrá félagsins.
Stjórn FVB skipa: Egill Skúli
Ingibergsson formaður, Brynjólf-
ur Jónsson, Anna Bjarnason,
Bjarki Elíasson, Björg Einarsdótt-
ir, Hafsteinn Guðmundsson og
Tómas Sveinsson. Tólf manna
trúnaðarráð skipa: Axel Jónsson,
Áslaug Boucher, Friðrik Einars-
son, Helga Gröndal, Kalla Malm-
quist, Otto Michelsen, ólafur Þ.
Jónsson, Reynir Ármannsson, Sig-
ríður Lister, Vfðir Þorgrfmsson
Sigurlfn Gunnarsdóttir og Þórir
Danielsson. Endurskoðendur eru
Gerður Hjörleifsdóttir og Gunn-
laugur Pétursson.
Eftirfarandi ályktun var gerð á
aðalfundinum:
„Áðalfundur Félags velunnara
Borgarspítalans skorar á viðkom-
andi stjórnvöld að draga ekki úr
framkvæmdahraða við byggingu
B-álmu Borgarspftalans.
Félag velunnara Borgarspítal-
ans bendir á brýna þörf fyrir þá
þjónustu sem ráðgert er að veita
með starfsemi B-álmunnar.“
(FréUatilkyuiaf)
Starfsaðferðir hringorma-
nefndar harðlega gagnrýndar
Þau Sigrún Helgadóttir, Ifffræðingur, og Ævar Peteraen, forstöðumaður Nátt-
úrufræðistofnunar fslands, með rítið Selir og hringormar. En samtökin Land-
vernd fólu þeim, ásamt þriðja líffræðingnum, Stefáni Begmann, að kanna tiltæk
gögn um seli, selveiðar, hringorma f fiski og tilurð og starfsaðferðir hringorma-
nefndar og leggja mat á röksemdir nefndarínnar fyrir fækkun í selastofninum
við landið. Morgunblaðið/Júllus
Starfsaðferðir hringormanefndar
eru harðlega gagnrýndar f riti, sem
Landvernd gaf nýlega út og nefnist
Selir og hringormar, eftir náttúru-
fræðingana Sigrúnu Helgadóttur,
Stefán Bergmann og Ævar Petersen.
Ritið fjallar um lifnaðarhætti
sela, selveiðar og áhrif þeirra á
selastofna hér við land, hringorma i
fiski og skipun og starfshætti
hringormanefndar.
Telja höfundar ritsins að enn
liggi ekki fyrir nægar rannsóknir
og niðurstöður þeirra, til þess að
hægt sé að taka einhliða ákvörðun
um fækkun sela. En eins og kunn-
ugt er, hóf hringormanefnd verð-
launagreiðslur fyrir seladráp vorið
1982 og hélt því áfram 1983 og 1984.
Á nýlegum fundi Landverndar
meö fréttamönnum sögðu þau Sig-
rún Helgadóttir og Ævar Petersen,
að meðal annars sem að þeirra mati
væri að finna hringormanefnd til
foráttu væri að engir líf- eða nátt-
úrufræðingar hefðu verið skipaðir i
hana í upphafi, en hagsmunaaðilar
hins vegar átt þar sæti.
Sérstakur kafli er í ritinu um
frumvarp til laga um selveiðar við
ísland, sem nú liggur fyrir alþingi.
Um það sögðu þau Sigrún og Ævar,
að með því væri verið að lögbinda
aðgerðir hringormanefndar, auk
þess sem landbúnaðarráðuneytið
væri að gefa upp forn réttindi til
þess að ráða þessum málum, fengist
frumvarpið samþykkt.
Höfundarnir sögðust ekki taka
afstöðu með eða móti fækkun sels-
ins í ritinu, heldur benda á ýmis-
legt, sem betur hefði mátt fara i
vinnubrögðum hringormanefndar
og einnig ýmsar staðreyndir og til-
gátur varðandi seli og hringorma.
T.d. kemur þar fram að fáir selir
geta staðið undir hárri hringorma-
tíðni, þannig að „fækkun sela gæti
leitt til aukinnar sýkingar þeirra
sela sem eftir eru og því orðið vita
gagnslaus".
Ritið Selir og hringormar er 101
bls. að stærð. Mikill fjöldi heimilda
var kannaður við samningu þess,
einkum íslenskar heimildir og
rannsóknaskýrslur, en einnig er-
lendar. Eysteinn G. Gíslason, bóndi
í Skáleyjum á Breiðafirði, skrifar
viðauka, Um sel og selveiðar á
Breiðafirði, og í heimildaskrá eru
ekki aðeins nefndar þær heimildir
sem notaðar voru við samningu
ritsins, heldur taldar upp ýmsar
aðrar heimildir um seli og hring-
orma, til fróðleiks og hagræðis fyrir
þá sem vilja kynna sér selamál nán-
ar. í sama tilgangi fylgir skrá yfir
blaðagreinar, sem birst hafa um
efnið undanfarin ár.
„Alþýöuleikhúsiö hefur meö þessari sýningu skoriö sig úr sem þaö leikhus sem sterkast
stendur í vetur ...” ,
E.E. (Utvarpið)
„Inga Bjarnason leikstjóri hefur skapaö skemmtilega sýningu. ... Gréta nýtur sterkrar
túlkunar Ásu Svavarsdóttur sem er allt aö því djöfulleg ...
Morgunblaöió
„... þessa stundina þaö sem frjóast er í islenskri leiklist. Allt frábærar persónulýsingar
sem mynda stórskemmtilegt samspil ... Þessi sýning rís víöa mjög hátt í leik og
uppsetningu, hún er spennandi, djörf og skemmtileg." bjóðvillinn
.... Þessi sýning er enn eitt dæmi um hve mikill þróttur er í starfi (Alþýöuleikhússins).“
NT
„... áhrifamikiö og failega leikiö leikverk. ... Alþyöuleikhúsinu til sóma.“
DV
„Sé þaö nú satt aö góö leikstjórn sé fyrst og fremst í því fólgin aö kalla fram — og jafnvel
knýja fram — góðan leik, sem ég trúi — þá er Inga Bjarnason ein af þessum stóru — því
stelpurnar leika hver annarri betur." _ _ ...
E.E. (Utvarpið)
Klassapíur
eftir Caryl Churchill
Sýnt í Nýlistasafninu Vatnsstíg.
Miöapantanir í síma 14350.
flL, ALÞÝÐU-
v-..... r) LEIKHÚSIÐ