Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 30

Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985 Komu Rússar hler- unarbúnaði í ritvél- ar sendiráðsins? Washington, 26. mars. AP. BANDARÍSKA sjónvarpsstödin CBS greindi frá því í fréttaskýringaþætti í dag að sovéskir leyniþjónustumenn hefóu komið fyrir fullkomnum hlust- unarbúnaði í 12 ritvélum í banda- ríska sendiráðinu í Moskvu ein- hvern tímann á árinu 1982 og síðan hlerað allt mögulegt í rúmlega ár áður en sendiráðsmenn komust að bragðinu. Sögðu fréttamenn CBS að Sovétmenn hefðu náð ýmsum mik- ilvægum upplýsingum með þessum hætti. Var þetta haft eftir „ónafn- greindum en traustum" heimilda- Joseph Reap, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði um mál þetta, að það væri ekki vaninn að gefa út yfirlýs- ingar um málefni sem fjölluðu um öryggismál. Fréttamenn CBS sögðu, að hlustunartæki Sovétmanna hefðu numið það sem slegið var á ritvél- arnar og skilað því til hlustunar- stöðva fyrir utan sendiráðsvegg- ina um loftnet sem komið hafði verið fyrir inni í vegg sendiráðs- byggingarinnar. monnum. Geysileg sýrumeng- un í nágrenni Osló Methafi í megrun Maureen Stirling, sem býr í Dunferline í Skotlandi, veigrar sér ekki lengur við því að teygja úr löngum leggjunum á Piccadilly Circus í London enda ekkert að óttast nema aðdáun vegfarenda. Maureen er breskur meistari í megrun og losaöi sig við um 40 kíló á einu ári. Þá var hún um 100 kfló en vegur nú rétt rúmlega 60. Því til sönnunar heldur Maureen á mynd af sér, sem tekin var um þetta leyti í fyrra. Ronald Reagan: Líkir sandinista-stjórn við stjórnarháttu Stalíns Washington, 26. mars. AP. Onéé, 26. nun. AP. NORSK stofnun, sem hefur með Noregur: Ný lög um fiskeldið Ósló, 26. mars. Prá Ju Erík Laure, fréttaritara MbL SAMKVÆMT nýjum lögum um flskeldi, sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram, verður enn um sinn nauðsynlegt að fá leyfl tii að reka hvers kyns flskeldisstöövar. Er það hugmyndin, að ákveðinn verði viss kvóti árlega fyrir nýjar silungs- og laxeldisstöðvar. Ekki á að verða neinum erfið- leikum bundið að fá leyfi til að ala upp skelfisk en allmiklar kröfur eru hins vegar gerðar til þeirra, sem vilja koma á fót silungs- og laxeldisstöðvum. Er þá átt við, að stöðvarnar sjálfar verða að vera í samræmi við gildandi reglur og ennfremur, að eignaraðildin verði með ákveðnum hætti. Meirihluti eigendanna verður að vera úr því héraði, sem stöðin er, og er það liður í byggðastefnu stjórnarinn- höndum háloftarannsóknir, sendi frá sér skýrslu í vikunni þar sem fram kemur, að óvenjulega mikil mengun hafl verið í Noregi á þessu ári af völdum sýruregns. Það sem af er vetri, hefur oft fallið grár snjór, einkum í austurhluta Noregs. í skýrslunni kom fram, að verst sé sýrumengunin í Drammen og nágrenni, sem er aðeins 40 kíló- metra suðvestur af Osló. Segir að sýrumagnið sé 3,4 ph þar sem verst er. Sýrustigið mælist í 0 til 14 ph og þykja 3,4 vera mengun á háu stigi. Sven Stray, utanríkisráðherra Noregs, mun hitta Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, um helgina og það var í tilefni af því sem stofnunin greindi frá þessum mælinganiðurstöðum. Norðmenn og fleiri aðilar á Norðurlöndum telja mikið af mengaða regninu koma frá Bretlandseyjum. Er eigi talið útilokað að þeir Stray og Howe komi inn á sýruregnsmeng- un í viðræðunum. Bretar hafa ver- ið stífir í öllum viðræðum um sýruregn til þessa, m.a. neitað að reyna að draga úr útblæstri brennisteinsefna um 30 prósent fyrir árið 1993 eins og forsætis- ráðherrar Norðurlandanna höfðu lagt að þeim að gera. RONALD Reagan forseti Bandaríkj- anna sagði í ræðu, sem hann flutti fyrir um 160 manns frá Suður- og Mið-Amerfku í dag, að stjórn sand- inista í Nicaragua líktist I ýmsu stjórnarfari Stalins í Sovétríkjunum á sínum tíma. Tiltók hann „gúlag- stefnu" Stalíns, sem var fólgin í því að flytja stjórnarandstæðinga með valdi til einangraðra staða. Gúlögin voru keðja fangabúða um öll Sovétríkin sem Stalín not- aði ákaflega á stjórnarferli sínum á árunum 1941 til 1953. Reagan sagði í ræðunni, að sandinistar væru að flytja tugþúsundir manna frá bæjunum Jinotega og Murra, skammt frá landamærum Nicar- agua og Honduras, til þess að „geta skotið óhindrað,“ eins og hann komst að orði. „Og þessu fólki er holað niður á einangruð- um stöðum þar sem hægt er að fylgjast með því. Höfum við ekki séð slík vinnubrögð áður, í Úkra- inu, Víetnam, Kambódíu, Afgan- istan, Angólu, Eþíópíu, á Kúbu og víðar?, bætti Reagan við og lét þess getið að sandinistar væru „brúður Sovétríkjanna" og contra-skæruliðarnir væru „eina von þjóðarinnar um alvöru lýð- ræði“. Sandinistar segja ástæðuna fyrir fólksflutningunum vera þá, að þeir geti ekki varið umrædda bæi fyrir árásum contra-skæru- liða og að Bandaríkjamenn sjálfir hafi í samvinnu við Suður-Víet- nama á sínum tíma gripið til slíkra úrræða til þess að verja bæði sjálfa sig og saklausa þorpsbúa fyrir árásum Víetcong. Scargill til Moskvu LuBdnaom, 26. min. AP. ARTHUR Scargill, leiðtogi breskra námamanna, fór í dag í tveggja daga heimsókn til Sovétríkjanna. Mun hann ræða við ýmsa hátt setta embættismenn. Scargill sagði i samtali við fréttamenn við komuna til Moskvu að tilefni heimsóknar- innar væri að skipuleggja alþjóð- lega ráðstefnu námamanna sem haldin verður i Bretlandi á næsta ári. Neitaði Scargill að svara spurningum fréttamanna um hvort hann ætlaði að semja um styrki Sovétríkjanna til handa námumönnum sem fóru fjár- hagslega illa út úr verkfallinu mikla sem nýlega lauk eftir að hafa staðið yfir í 51 viku. Sovéska sjónvarpið greindi rækilega frá heimsókn Scargills og sýndi meðal annars 20 mín- útna langa fréttamynd um verk- fallið. Bar myndin heitið: „350 dagar við verkfallsvörslu". Byrj- aði myndin á mynd frá fjöl- mennri kröfugöngu þar sem Scargill sjálfur var í fararbroddi sveiflandi krepptum hnefa. RENAULT11 OST VID FYRSTU KYMHI Renautt 11 hefUr fengið margar vfðurVennlngar fyrlr frábæra hðnnun og flöðrunin er engu hk. Rými og Þægindi koma öilum I gott skap. Komdu og reyndu hann, það verður ást vlð fyrstu kynni. Pú getur rettt þig á Renault KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.