Morgunblaðið - 27.03.1985, Side 43

Morgunblaðið - 27.03.1985, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985 43 Opið bréf til Jóns Skúlason- ar póst- og símamálastjóra — frá nokkrum bréf- berum í Reykjavík Opið bréf til Jóns Skúlasonar, póst- og símamálastjóra, frá nokkrum bréfberum á R-l. Liðið er hátt á aðra öld síðan hinn mæti maður Ari landpóstur Guðmundsson, fyrirrennari okkar bréfbera, lagði upp frá Reykjar- firði við ísafjarðardjúp í sína fyrstu póstferð og jafnframt þá fyrstu hér á landi. Téður merkis- atburður átti sér stað hinn 10. febrúar 1782 og má telja hann fyrsta vísi að póstþjónustu hér- lendis. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og mörg bréf verið borin út. Umsvif póstþjónustunnar hafa stóraukist og miklar endurbætur verið gerðar á henni til að mæta kröfum viðskiptavina hverju sinni. Gn sjaldan er það að einskis sé áfátt. Einn þáttur hinnar ágætu þjónustu hefur að okkar mati verið látinn sitja á hakanum, þ.e.a.s. bréfaútburðurinn; sá þátt- ur er rekur endahnútinn á alla al- menna bréfadreifingu. Okkur bréfberum leikur hugur á að vita eftir hvaða reglum hafi verið farið er útburðarhverfin voru mæld út og ákvörðuð á sínum tíma og ekki hvað síst hve sú skipting sé gömul. Bersýnilegt er að skiptingin er komin allmikið til ára sinna, vægast sagt. Hún er orðin það úrelt og úr sér gengin að okkur bréfbera undrar að hún skuli enn vera við lýði. Við skorum á yður, háttvirtur póst- og símamálastjóri, að sjá til þess að gerð verði gangskör að því, að útburðarhverfi bréfbera verði mæld út á ný og ákvörðuð í sam- ræmi við breyttan póstþunga hverfanna og jöfnuð þannig inn- byrðis, eins og frekast verði unnt. Oft er þörf, en nú er nauðsyn. Fleira er það sem okkur bréf- berum þykir vera ábótavant í okkar starfi. Til að mynda er það áberandi hve hús eru illa merkt hér í bæ. Það virðist sem fólki veitist það erfitt að setja nöfn sín á bréfarifur (ef þær eru til staðar á annað borð) eða á hurðir íbúð- arhúsa sinna, eins og það ætti nú að vera og er í augum okkar bréf- bera auðvelt verk í framkvæmd. Eins og málum er háttað í dag má telja þau hús til undantekninga sem vel eru merkt. Ríkjandi ástand hefur valdið og veldur okkur bréfberum stöðugum og miklum óþægindum, þar sem okkur er ómögulegt að vita það með vissu hverjir búa í þeim hús- um, sem við berum út í. Þetta býð- ur einnig hættunni heim; bréf geta hafnað á röngum áfangastað, t.d. vegna rangrar utanáskriftar eða flutninga, og legið þar tímunum saman í vanskilum og jafnvel á þann hátt glatast í pósti. 1 reglugerð um póstþjónustu sem sett var samkvæmt 26. grein póstlaga nr. 31/1940 er að finna reglur sem lúta að framangreind- um atriðum. Okkur bréfberum „Kíkjandi ástand hefur valdiö og veldur okkur bréfberum stöðugum og miklum óþægindum, þar sem okkur er ómögulegt að vita með vissu hverjir búa í þeim húsum, sem við berum út í.“ þykir fara vel á því að birta hér nokkrar greinar úr hinni mætu reglugerð: 10.2.2. Almennar bréfapóstsend- ingar teljast löglega afhentar, er bréfberi hefur fengið þær í hendur viðtakanda sjálfum eða einhverj- um á heimili hans, eða látið þær í gegnum bréfarifu á íbúðarhurð viðtakanda eða í bréfakassa ... 10.4.1. f þéttbýli og annars stað- ar sem bréfaútburður fer fram, er sett það skilyrði fyrir útburði, að kassar eða bréfarifur séu á eða við útidyrahurðir ein-, tví- og þríbýl- ishúsa, en þar sem fleiri eða 3 íbúðir hafa sameiginlegan inn- gang, skulu húseigendur setja upp póstkassasamstæður. 10.4.4. Við hverja bréfarifu og/eða á hverjum kassa skal vera skilti eða gluggi fyrir nöfn, minnst 26 mmxlOO mm, þar sem tilgreint er með stóru og skýru prentletri fullt nafn húsráðanda og annarra sem hjá honum búa ... Húsverðir eða húsfélög í fjölbýlishúsum sjá um, að kassarnir séu rétt merktir á hverjum tíma og ber þeim einnig að útvega íbúalista fyrir viðkom- andi hús ... 10.4.7. Láti húseigendur undir höfuð leggjast að setja upp bréfa- rifu eða póstkassa skal póstmeist- ari eða stöðvarstjóri tilkynna í ábyrgðarbréfi tiltekinn frest til uppsetningar. 10.4.8. Hlýði húseigendur ekki fyrirmælum þessum innan hins tiltekna frests og færi hann ekki fram gildar ástæður fyrir því, tek- ur póst- og símamálastofnunin ákvörðun um hvort útburði til hússins skuli hætt eða hvort ákvæðum skv. 22. gr. póstlaga skuli beitt, þ.e. viðtakandi tekinn úr póstsambandi. Þér getið nú rétt ímyndað yður, háttvirtur póst- og símamála- stjóri, að ef téðum reglum væri framfylgt, hve öll almenn bréfa- dreifing yrði okkur bréfberum þægilep-i, jafnframt því sem hún yrði viðskiptavinum öruggari og skjótari en hún er þann dag í dag. Yður hlýtur að vera ljóst og hafa verið það fullljóst lengi að al- Sjávarútvegsráðuneytið: Reglugerð um stöðvun veiða Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um stöðvun veiða smá- báta, bann við þorsknetaveiðum um páska og um sérstaka línu- og neta- veiði. Samkvæmt reglugerðinni eru allar veiðar báta minni en 10 brl. aðrar en grásleppuveiðar bannaðar frá og með 27. mars til klukkan 12.00 á hádegi 9. apríl næstkom- andi. Þá eru allar þorsknetaveiðar bannaðar frá klukkan 22.00 2. apríl til klukkan 12.00 á hádegi 9. apríl. Einnig eru togveiðar bannaðar frá og með sama degi til og með 15. mennar bréfapóstssendingar eru í flestum tilfellum afhentar ólög- lega; afhentar án þess að tryggt hafi verið að þær lendi í höndum þess viðtakanda, er utanáskriftin segir til um. Póst- og símamála- stjóri, yður sem ber að stjórna stofnuninni í „samræmi við þá stefnumörkun, sem felst í lögum, reglum og fyrirmælum æðri stjórnvalda", hví látið þér slík brot gegn póstlögum viðgangast? Hví hafið þér eigi tekið í taum- ana? Okkur er spurn. Til þess eru lög að boðorð séu haldin. Við hvetjum yður því til að aðhafast eitthvað í málinu og það skjótt. Ef óbreytt ástand helst öllu lengur og ekkert verður aðhafst til að færa það til betri vegar, þá neyðumst við bréfberar til þess, samvisku okkar vegna, að grípa til örþrifaráða: Almennar póstsend- ingar til þeirra sem eigi hafa séð sóma sinn í að setja upp vel merkta bréfarifu eða bréfakassa og eigi er unnt að ná til er afhend- ing er reynd verður litið á sem óskilasendingar, því okkur er eigi unnt að afhenda þær löglega nema að framangreindu sé fullnægt. Svo einfalt er það nú. Við hljótum að hafa fullan rétt til þessa, því vart hvetur háttvirtur póst- og síma- málastjóri okkur bréfbera til að brjóta póstlög. Litlir púkar luma á hljóðum. Virðingarfyllst, fyrir hönd „Bréfberaleikhússins dúfunnar", Daníel Ingi Pétursson „Bréfberaleikhúsið dúhn“ er sam- tök nokkurra bréfbera í Reykjavík, útibúi R-l. ffl m m m m m m m m m m m m m m mm rn CATERPILLAR SALA S tUÚÍSJUSTA CaMrptllw. Cal ogCBaru MtráaMt oðrumartil Til sölu notaðar Caterpillar vinnuvélar JARÐYTUR Árg. Verö ca. D7G 1981 vökvaskipt 5.500.000 D6D 1978 vökvaskipt 3.000.000 D6D 1974 vökvaskipt 1.8—2.00.000 D6C 1971 vökvaskipt 1.500.000 D6C 1967 vökvaskipt 950.000 D4D 1971 vökvaskipt 1.500.000 HJOLASKOFLUR: 996C 1981 vökvaskipt 4.500.000 966C 1978 vökvaskipt 3.500.000 980B 1975 vökvaskipt 4.0—4.500.000 HEKUVHF i T70-172 SJmi 21240 mimimimimimimim SIG maí á eftirgreindum svæðum: A. Norðan línu sem dregin er réttvisandi 270 frá Stafnesvita í punkt 63°58’3 N, 23°40’5 V og það- an í eftirgreinda punkta: 1. 64°04’9 N 23°45’0 2. 64°04’9 N 23°42’0 3. 64°20’0 N 23°42’0 og þaðan í 90° réttvísandi. B. Á svæði sem markast af linum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta: 1. 63°10’0 N 22°10’0 V 2. 63°25’3 N 22°00’0 V 3. 63°33’7 N 23°03’0 V e. °° em-M >Bltgöab°K 1 Gagnagt^nnUl flar SÍQ ■ Wsmgat ,ató og bny--_ # skY«lua • OMnM,u BOS UPPW"**' T..1 AdðiAn E3QE3QQQQQE3QE3E3QBE3E3E3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.