Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 53

Morgunblaðið - 27.03.1985, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1985 53 Systurnar leikkonan og rithöfundurinn Rithöfundurinn Jackie er ekki síö- ur þekkt en leík- konan Joan. að er svipur með þeim og er það engin tilviljun, þetta eru systurnar Joan og Jackie Collins. Það þarf ekki að tíunda afrek Joan á hvíta tjaldinu eða skjánum, svo fræg er hún. Jackie, sem er 43 ára, er einnig fræg, þó kannski sé sú frægð ekki eins viðamikil og frægð stóru systur. Jackie er nefnilega rithöfundur og hefur slegið í gegn með bókum á borð við „The World Is Full Of Married Men“, sem var fyrsta bók hennar og „Hollywood Wives", sem er sú síðasta sem hún sendi frá sér. Kvikmyndir hafa verið gerðar eftir báðum og margt frægra leikara lagt þar hönd á plóginn. Umgjörð allra bóka Jackie hef- ur verið hin sama, taumlaust gleðilíf í Hollywood með tilheyr- andi kynlífi, framhjáhaldi, ágirnd, losta, græðgi og svo framvegis. Einhver söguþráður rennur í gegnum ritin í fyrrgreindum ramma. En lífið í Hollywood ber marga ofurliði og fyrir ekki svo mörgum árum munaði minnstu að Jackie yrði ein af hinum gæfu- snauðu. Hún neytti áfengis og lyfja í ríkum mæli og ægði öllu saman. Sökk hún æ dýpra eins og steinn og eftir því sem á leið, þeim mun ólíklegra virtist það að hún gæti tekið sig saman í andlitinu. Hún gerði það þó að lokum, fór í meðferð og allt sem því fylgir. Það er erfitt svo sem alkunna er, en ein var sú manneskja sem stóð með henni í gegnum súrt og sætt, vék aldrei frá henni og veitti henni þann stuðning sem hún þurfti. Það var engin önnur en systir hennar Joan Collins, en manngæska fólks hverfur oft í líki þeirra persóna sem það túlkar hverja vikuna af annarri. Hver hefði til dæmis trúað því að Alexis Carrington myndi nenna að standa í því að hjálpa ánetjuðum drykkju- og lyfjasjúklingi nema að hún sæi sér hag í því? Þess vegna kemur það mörgum á óvart, að Joan eigi til góða punkta og geti gert góðverk eins og gengur og gerist... COSPER — Ég sagði þér að bíða við klukkuna á járnbrautarstöðinni. Dóttirin, hin tvítuga Joely. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni Ung leikkona hefur vakið at- hygli fyrir skil sín á hlut- verki í kvikmyndinni „Weth- erby“ undir leikstjórn Davids Hare. Hún heitir Joely Rich- ardson og hún leikur á móti hinni margreyndu og frábæru leikkonu Vanessu Redgrave. Redgrave leikur skólastýru á fertugsaldri, en í myndinni er ávallt verið að sýna brot úr æsku hennar til að skerpa samhengið. Skólastýruna á unga aldri leikur Joely Richardson og gerir það að margra mati eftirminnilega. Og það sem mest um vert; Joely er sláandi lik Vanessu Redgrave, sama Ijósa hárið, sömu fölbláu augun og líkir andlitsdrættir. Þeir sem þekkja til kemur þetta auðvitað ekkert á óvart, því Joely er önnur dóttir Van- essu frá hjónabandi hennar og Tony Richardson, og þetta er hennar frumraun i kvikmynda- „bransanum“. „Auðvitað skiptir máli að við mamma erum líkar, en það var sko ekki eina ástæðan fyrir því að ég var valin í hlut- verkið,“ segir hin tvítuga Joely i varnartón. „Leikstjórinn talaði við mjög marga leikara áður en hann valdi mig, þvf hlutverkið er mikilvægt. Fyrst var ég óð og uppvæg, en þegar upptökur áttu að hefjast, gat ég ekki hugsað annað en: „Guð minn góður, hvað er ég að gera, ég ræð ekki við þetta. En svo beit ég á jaxl- inn og þetta hefur verið mikil og góð lífsreynsla,“ bætir hún við. Joely segir jafnframt, að lengst af hafi hún ekki ætlað sér í leiklistina. „Það fer enginn í skóna hennar mömmu, sist af öllum dóttirin, þvi nafnið hvílir á henni eins og kross. Eg ætlaði að verða tennisleikari eða fim- leikakona og æfði mikið. En með tímanum fann ég að ég varð að reyna leiklistina þótt það yrði ef til vill eins og að lemja höfðinu við stein. Nafn mitt og sambönd hafa hjálpað mér að komast „inn“, en héðan í frá fer fram- haldið eftir því hvernig ég stend mig,“ segir Joely ... Módirin, Vanessa Redgrave. TILBOÐ BÓKAMARKAÐUR FÉL. ÍSL. BÓKAÚTGEFENDA í VÖRUMARKAÐNUM EIÐISTORGI Ge'u°^'aCo^°:'>V s't0— r--------------:--------------------------1 ■ | PONTUNARSEMLL I Vinsamlegast sendið mér f póstkröfu . pakka I I af Tl HU ó kr. 990,- hvern pakka. I P J Nafn: ................................ j | Heimilisfang: ........................ | j Póststöð: ............................ j Póstval, pósthólf 9133,129 Reykjavík. Hrikaleg trásögn frá Austur-Evrópu um vitfirringu síöari heimsstyrjaldarinnar og mannlíf þar. OPIÐ KL. 9—19. Einstakt tilboð kr. 198.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.