Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985
Vorið kemur
Skjótt skipast veður í lofti, vér
dekurbðrn veðurguðanna
orðin svo góðu vön að síðbúið
páskahretið verður nánast einsog
smá skemtiatriði sett á svið af
náttúrunni svo okkur leiðist ekki
hið eilífa blíðviðri. Náttúran er
vafalaust minnug þeirra orða að á
misjöfnu þrífast börnin best og
þótt snjóbylur byrgi andartak sýn
þá kitlar nú vitin þessi undarlegi
ilmur, er ber með sér undrið
mikla, sjálft vorið. Ekkert jafnast
á við þetta undur náttúrunnar, er
lyftir blómunum uppúr moldinni
og fyllir loftið af fuglasöng. Og
ekki nóg með að náttúran skríði úr
híði og brosi framan í ljósgjafann
mikla, heldur skiptir mannlífið
um ham. Þannig sjáum við unga
fólkið svífa um götur og torg, eins-
og marglit fiðrildi á vængjum ást-
arinnar, og í hugann smýgur
hending úr Ijóði Axel Juel, Gleðin,
hryggðin og hamingjan, endur-
sköpuð af snillingnum Magnúsi
Ásgeirssyni: Ljúfasta gleði allrar
gleði / er gleði yfir því, sem er alls
ekki neitt, / engu, sem manni er á
valdi eða í vil, / gleði yfir engu og
gleði yfir öllu, / gleðin: að vera til.
Hvurskonar vor?
Slík gleði fylgir vorinu, gleðin
yfir því að finna lífið springa út
hávaðalaust. En það er svo auðvelt
að spilla gleðinni yfir því undri
sem skapar okkur og hefur okkur
uppúr moldinni til samfagnaðar
með öllu er lífsanda dregur. Ný-
lega las ég í bók er fjallar um
sjónvarpsgláp barna í Bandaríkj-
unum: Children and Television,
eftir Gerard S. Lessing (Vintage
Books, 1975) um rannsókn er
leiddi í ljós þá athyglisverðu
niðurstöðu að reyndar sveiflaðist
sjónvarpsgláp barna nokkuð eftir
árstíðum. Þannig var opið fyrir
sjónvarp á heimilum forskóla-
barna í að meðaltali 55 stundir á
viku á haustin og í að meðaltali 46
stundir á vorin. Þessar niðurstöð-
ur voru birtar í Neilsen Television
Index 1967, og hef ég reyndar séð
svipaðar tölur víðar. Það er nátt-
úrulega mjög svo erfitt að mæla
nákvæmlega sjónvarpsgláp yngri
barna, en þó hlýtur það að fylgja
nokkuð eftir þeim stundafjölda er
sjónvarps nýtur við á heimili. Og
raunar er í fyrrgreindri bók á
blaðsíðu 19 að finna eftirfarandi
tölfræðilega lýsingu á sjónvarps-
glápi bandarískra barna: Við lok
grunnskóla hefur venjulegur ein-
staklingurinn horft á sjónvarp í
15.000 klukkustundir en á sama
tíma hefir hann eytt 12.000 stund-
um á skólabekk. Þetta þýðir að
grunnskólanemar eyða meiri tíma
fyrir framan sjónvarpið en nokk-
ursstaðar annarsstaðar nema í
rúminu, sofandi.
Vorleysingar
Það er næsta barnalegt að ætla
sér að hefta fjölmiðlabyltinguna,
hún mun steypast yfir oss rétt
einsog árstíðasveiflur náttúrunn-
ar. En við erum nú einu sinni
manneskjur með sjálfstæðan vilja
og verðum við ekki að ganga af
dálítilli varfærni inní hið nýja vor
er bíður barna okkar, til móts við
þá nýju veröld er senn mætir þeim
á skerminum? Síst af öllu viljum
við að fjölmiðlabyltingin éti börn-
in okkar, ekki satt?
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP / S JON VARP
Heilsað
upp á
fólk
■■■■ Tólfti þáttur-
90 40 inn í þáttaröð-
inni „Heilsað
upp á fólk“ er á dagskrá
sjónvarps í kvöld í umsjá
Ingva Hrafns Jónssonar.
I þessum þætti sækjr
Ingvi Hrafn Stefán Á.
Jónsson bónda og hrepp-
stjóra á Kagaðarhóli í
Torfulækjarhreppi í
Austur-Húnavatnssýslu,
heim.
Þegar sjónvarpsmenn
Stefán Á. Jónsson, bóndi
og hreppstjóri.
bar að garði í septem-
bermánuði sl. voru þau
hjónin við morgunmjalt-
irnar. Ræðir Ingvi Hrafn
við Stefán um búskapinn
og stöðu bænda á íslandi.
Stefán var einn af
Ingvi Hrafn Jónsson,
umsjónarmaður þáttarins
„Heilsað upp á fólk“.
helstu baráttumönnum
fyrir Blönduvirkjun en
sem kunnugt er voru á
sínum tíma mikil átök í
héraði varðandi hana.
Berst talið lítillega að því
í þættinum.
Þjóðlagaþáttur:
Irska hljómsveitin
„Moving Hearts" kynnt
■■■■ Þjóðlagaþátt-
1 a oo urinn er á
lU- dagskrá rásar 2
í dag kl. 16, stjórnandi er
Kristján Sigurjónsson.
I þessum þætti verður
írska hljómsveitin „Mov-
ing Hearts“ kynnt en hún
leikur svokallað þjóðlaga-
rokk.
Kristján sagði í samtali
við Morgunblaðið að
hljómsveit þessi ætti
miklum vinsældum að
fagna í heimalandi sínu
og kæmi næst á eftir
írsku rokkhljómsveitinni
kunnu U2, sem leikur af
svo miklum krafti að tón-
listin hefur jafnvel komið
fram á jarðskjálftamæl-
um!
Forsprakki „Moving
Hearts“ er Christy Moore
Kristján Sigurjónsson
og verður hann að teljast
fremstur í flokki þeirra
sem flytja irska þjóðlaga-
tónlist. Hljómplötur
hljómsveitarinnar, sem
nú eru orðnar þrjár tals-
ins, hafa allar átt miklum
vinsældum að fagna í
heimalandi hennar og víð-
ar.
„Moving Hearts" leika
með hinum gamalreynda
tónlistarmanni Van
Morrison á nýjustu plötu
hans og verður sú kynnt í
þættinum. Morrison hefur
staðið í eldlínunni í
Bandarikjunum í 20 ár og
er hann oft nefndur „besti
hvíti soul-söngvarinn“. Á
hljómplötu sinni sem
kynnt verður í þættinum í
dag, blandar hann með
hjálp „Moving Hearts",
þjóðlagatónlist saman við
soul-tónlist sína. Spenn-
andi verður að heyra hver
útkoman er.
Frístund
■■■■ Unglingaþátt-
1 H 00 urinn „Frí-
1 • “* stund" er á
dagskrá rásar 2 í dag kl.
17. Stjórnandi er Eðvarð
Ingólfsson en aðstoðar-
þula Bryndís Jóhannes-
dóttir.
Sigtryggur Jónsson sál-
fræðingur hjá Unglinga-
ráðgjöf ríkisins hefur
tvisvar verið gestur þátt-
arins, nú síðast fyrir hálf-
um mánuði. Svaraði hann
þá ýmsum fyrirspurnum
sem hlustendur víðsvegar
af landinu höfðu sent hon-
um. f þeim þætti var
ákveðið að gefa hlustend-
um enn kost á að senda
inn fyrirspurnir og í þætt-
inum í dag verður Sig-
tryggur aftur gestur þátt-
arins þar sem hann mun
leitast við að svara sem
flestu. Sagði Eðvarð í
samtali við Morgunblaðið
að mikill fjöldi fyrir-
spurna hefði borist þætt-
inum og því væri af nógu
að taka.
Undanfarna þrjá þætti
hefur starfskynning verið
fastur liður og í þættinum
í dag verður fjallað um
starf sjúkraþjálfara. í því
sambandi verður starf-
andi sjúkraliði fenginn í
þáttinn þar sem hann seg-
ir frá náminu og starfinu í
stórum dráttum.
Brekkubæjarskóli á
Akranesi velur þrjú vin-
sælustu lög vikunnar.
Hringt verður í Jósep
Grímsson, fulltrúa skól-
ans sem fylgir lögunum úr
hlaði með dálítilli um-
fjöllun um lífið á Skagan-
um.
Tónlistarkynningin er
ekki af verri endanum þar
sem kynntur verður hinn
kunni söngvari og laga-
smiður David Bowie, sem
gert hefur garðinn frægan
í rúm 15 ár. Aðstoðarþul-
an, Bryndís Jóhannesdótt-
ir 15 ára, les kynninguna.
Ekki má gleyma föstum
liðum þáttarins, s.s. lestri
bréfa sem hafa borist. Þá
verður getraunin á sínum
stað og leikin létt lög úr
ýmsum áttum.
Söngvarinn og lagasmiðurinn kunni, David Bowie, verður
kvnntur í þættinum í dag.
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
16. apn'l
7Ö0 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnars-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréftir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Ingimar Ey-
dal talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„ Hollenski Jónas" eftir
Gabriel Scott. Gyða Ragn-
arsdóttir les þýðingu Sigrún-
ar Guðjónsdóttur (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Man ég það sem löngu
leið". Ragnheiður Viggós-
dóttir sér um þáttinn.
11.15 Viö Pollinn. Umsjón: Ingi-
mar Eydal (ROVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
1330 Barnagaman. Umsjón:
Sólveig Pálsdóttir.
13.30 Jon Anderson, Vangelis
og Pat Metheny Group
syngja og leika.
14.00 „Eldraunin" eftir Jón
Böðvarsson. Helgi Þoriaks-
son les (16).
14.30 Miðdegistónleikar. Þættir
úr „Images" eftir Claude De-
bussy. Claude Savard leikur
á plartó.
14.45 Upptaktur — Guðmund-
ur Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
a. „Tékknesk svita" eftir
Antonln Dvorák. Sinfónlu-
hljómsveitin I Detroit leikur:
Antal Dorati stjórnar.
b. „Taras Ðulba", hljóm-
sveitarrapsódla eftir Leos
Janácek. Filharmonlusveitin I
Vinarborg leikur: Sir Charles
McKerras stjórnar.
17.10 Slðdegisútvarp
— 18.00 Fréttir á ensku.
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
21.05 Islensk tónlist
a. Tilbrigði eftir Pál Isólfsson
um stef eftir Isólf Pálsson.
Rögnvaldur Sigurðsson leik-
ur á pianó.
b. Hinsta kveðja", hljóm-
sveitarverk op. 53 eftir Jón
Leifs. Sinfónluhljómsveit Is-
lands leikur; Karsten And-
ersen stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Folda"
eftir Thor Vilhjálmsson. Höf-
undur les (15).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22J5 Kvöldtónleikar. Leikin
verður tónlist eftir Karl
SJÓNVARP
19.25 Hugi frændi á ferð
Breskur teiknimyndaflokkur.
Þýöandi Guðni Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Heilsað upp á fólk
12. Stefán A. Jónsson á
Kagaðarhóli. Ingvi Hrafn
ÞRIÐJUDAGUR
16. apríl
Jónsson spjallar við Stefán
A. Jónsson, bónda og
hreppstjóra á Kagaöarhóli I
Torfulækjarhreppi i Austur-
Húnavatnssýslu.
21.25 Derrick
Fjórtándi þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur I
sextán þáttum. Aöalhlut-
verk: Horst Tappert og Fritz
Wepper. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
22.25 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður Ögmundur
Jónasson.
23.00 Fréttir i dagskrárlok.
Goldmark. Kynnir: Knútur R.
Magnússon.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
16. apríl
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáftur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.