Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985 35 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Skýr vilji landsfundar Isetningarræðu landsfund- ar sjálfstæðismanna sagði Þorsteinn Pálsson, flokksfor- maður, að stjórnarsamstarfið við Framsóknarflokkinn myndi ráðast af því, hvort verkin verði látin tala á þeim málefnagrundvelli sem lagður yrði í stjórnmálayfirlýsingu landsfundarins. Nú að fundin- um loknum er ljóst, að í yfir- lýsingunni er ýmislegt það að finna sem framsóknar- mönnum á eftir að þykja erf- itt að samþykkja, ef að líkum lætur. í stjórnmálaályktun fundarins segir, að Sjálfstæð- isflokkurinn vilji halda áfram endurreisnarstarfi sem ríkis- stjórnin hafi unnið að enda náist sá árangur sem að er stefnt. Það ráðist ekki síst af framgangi þeirra málefna sem sjálfstæðismönnum sé efst í huga, hvort þess verður þörf í bráð að leggja mál í dóm kjósenda. Því verður ekki á móti mælt, að í mörgum greinum eru ályktanir landsfundar sjálfstæðismanna róttækari en fyrri yfirlýsingar flokksins um sama eða svipað efni. Vilji manna stendur til þess að brjóta upp kerfið hvar sem þeim finnst það setja athafna- semi einstaklinga of þröngar skorður. „Það er stefna Sjálfstæðisflokksins," segir í stjórnmálaályktuninni, „að skapa efnahagsumgjörð, sem veitir einstaklingum, fyrir- tækjum þeirra og samtökum svigrúm til að spreyta sig og vera sinnar eigin gæfu smiðir. Þannig verður jafnframt mest til ráðstöfunar fyrir þá sem minna mega sín, eða standa af einhverjum ástæðum höllum fæti í lífinu, en umhyggja fyrir þeim einkennir þau manngildissjónarmið, sem sjálfstæðisstefnan byggir á.“ Á landsfundinum vísuðu sjálfstæðismenn þeirri skoðun vinstri manna á bug, að efna- hagsmál ein ráði framvindu sögunnar og lögðu áherslu á að treysta þá máttarstólpa sjálfstæðs þjóðfélags á Is- landi, sem birtist í menningu þjóðarinnar og sögu, tungu hennar, listalífi og hinni kristnu trú. Sjálfstæðismenn margítrekuðu stuðning sinn við samstarf lýðræðisþjóð- anna í varnar- og öryggismál- um og hvöttu til gagnkvæmr- ar afvopnunar undir alþjóð- legu eftirliti. Hér hefur verið drepið á þau meginmál sem setja svip sinn á stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Þessi stefnuatriði eru lykilþættir sjálfstæðis- stefnunnar og ekki verður um þau samið við aðra. Það eru þau mál, sem lúta að fram- kvæmd stjórnarstefnu á hverjum tíma, er ráða því, hvort sjálfstæðismenn verða lengur eða skemur í stjórn með framsóknarmönnum. í því efni hafa þingmenn flokksins ekki aðeins fengið i veganesti frá landsfundinum ályktanir í hefbundnum stíl heldur einnig sérstaka verk- efnaskrá, sem samin var að tilhlutan ungra sjálfstæð- ismanna og flutt af 140 þeirra á landsfundinum. Þar er í stuttu máli mælt fyrir um róttækar breytingar á helstu sviðum þjóðmálanna. Er ekki að efa, að eftir því verður gengið af tillögumönnum að eftir þessari verkefnaskrá verði farið ekki síður en öðr- um ályktunum landsfundar- ins. Morgunblaðið birtir í í dag stjórnmálaályktun lands- fundarins og verkefnaskrána og síðar verður skýrt frá öðr- um ályktunum fundarins. Hér verður efni þessara skjala því ekki rakið frekar að sinni. Vilji landsfundarmanna var ekki aðeins skýr þegar þeir tóku ákvarðanir um málefni heldur einnig þegar þeir gengu til atkvæða og kusu sér forystu, formann, varafor- mann og miðstjórn. Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, getur mjög vel unað við þá ein- dregnu traustsyfirlýsingu sem hann hlaut á landsfundinum með stuðningi tæplega 94% fundarmanna í óbundinni kosningu. Sömu sögu er að segja um Friðrik Sophusson, varaformann, er hlaut 78% atkvæða. Davíð Oddsson, borgarstjóri, hlaut mikið traust í miðstjórnarkjöri og var þar efstur með rúmlega 90% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn kem- ur öflugur frá þessum lands- fundi. Áuðvitað tókst ekki á fundinum að eyða ágreiningi um öll viðkvæm mál eins og til dæmis jafnan atkvæðisrétt manna án tillits til búsetu. Nauðsyn ber til þess, að þing- flokkur og miðstjórn takist áfram á við kjördæmamálið. Þéttbýlisbúar eiga sífellt verr með að una misréttinu. En það er aðeins til marks um breidd Sjálfstæðisflokksins, að náist ekki samkomulag innan hans um breytingar í réttlætisátt í þessu máli er borin von að slíkt samkomu- lag náist annars staðar. Þorsteinn Pálsson að loknum landsfundi: Fundurinn styrkti mjög pólitíska stöðu flokksins ÞORSTEINN Pálsson var endurkjörinn formaður Sjálf- stæðisflokksins við formanns- kjör á sunnudaginn og hlaut hann 892 atkvæði af 955, sem er 93,4 % atkvæða. Friðrik Sóphus- son var endurkjörinn varafor- maður flokksins með 746 at- kvæðum af 955, sem jafngildir 78% atkvæða. Davíð Oddsson fékk 20 atkvæði í formannskjörinu, Friðrik Sóph- usson 9, Geir Hallgrímsson 3, Jón Magnússon 2 og Birgir ísleifur Gunnarsson 1. Davíð Oddsson fékk 93 atkvæði í varafor- mannskjörinu og Sverrir Her- mannsson 45, Birgir ísleifur 7, Helena Albertsdóttir 6, en nokkr- ir aðrir fulltrúar fengu færri at- kvæði. Málefnalega var þetta mjög sterkur landsfundur," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið að loknum lands- fundi. Þorsteinn sagði jafnframt: „Það sem ber hæst er það að í umræðum og samþykktum fund- arins kemur fram mikill vilji til átaka í atvinnumálum og það má líta á það sem meginniðurstöðu að menn telja að nú sé tími til þess að hefja nýtt framfaraátak til uppbyggingar í atvinnulífi og til þess að auka hagvöxt og þjóð- artekjur. Það fer ekkert á milli mála að landsfundurinn styrkti mjög pólitíska stöðu flokksins bæði inn á við og eins út á við. Stjórnmálaályktunin felur í sér Morgunblaðift/ Ól.K.M. Að loknum kosningum. Þorsteinn Pálsson, formaður, og Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðsflokksins, eftir endurkjörið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. að það eru lagðar áherslur á ýmis mál sem við munum taka upp við samstarfsflokkinn. Það er ljóst að verkin verða að tala í fram- haldi af þessum fundi, eigi árang- ur að verða af stjornarsamstarf- inu, þannig að við teljum ásætt- anlegt að halda því áfram." Mér finnst það vera ánægju- legt, hve glæsilega kosningu formaðurinn fékk og það sýnir að flokkurinn er einhuga og sam- stæður að baki hans,“ sagði Frið- rik Sóphusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við blm. Mbl. að landsfundi loknum. „í öðru lagi þá gladdi það mig á fundinum, hve ungu mennirnir náðu miklum árangri. Þeir lögðu fram forgangslista sem lands- fundurinn gerði að sínum og ég tel að slíkt hafi verið til gagns og góðs,“ sagði Friðrik jafnframt. Friðrik sagðist telja að mikil- vægustu málin sem um var fjall- að á fundinum hafa verið efna- hagsmálin, og þá sérstaklega sú ákvörðun að hætta erlendu skuldasöfnuninni og hinsvegar nefndi hann húsnæðismálin, sem hann sagði landsfund hafa álykt- að mjög ítarlega um. „Almennt séð held ég að ályktanir þessa landsfundar séu mun skýrari heldur en oft hefur verið áður, enda gafst tækifæri nú til að ræða málin mjög itarlega í nefndum. Á landsfundum síðustu ára þá hefur mikill tími farið í kosningar og kosningabaráttu bæði til formanns og varafor- manns. Persónulega get ég sagt það að ég var mjög ánægður með að landsfundurinn skyldi lýsa svo afdráttarlausri samstöðu með til- lögu þeirri sem ég hef flutt varð- andi útvarpslagafrumvarpið, og gerir ráð fyrir að það sé jafnræði á milli útvarpsstöðva til tekjuöfl- unar,“ sagði Friðrik Sóphusson. Sjálfstæöisflokkurinn hefur frá öndverðu verið burðarás í íslensku stjórnmálalífi og þjóðinni hefur farn- ast best þegar sótt hefur verið fram á grundvelli stefnu hans og hugsjóna. Kjarninn í stefnu Sjálfstæðisflokks- ins er aö hver einstaklingur hafi frelsi og skilyrði til að njóta hæfileika sinna og atorku. Flokkurinn leggur áherslu á, að stéttir og starfshópar, karlar og konur, dreifbýli og þéttbýli vinni sam- an að því marki að tryggja þjóðinni bestu lífskjör sem kostur er á. Sjálf- stæðisflokkurinn hafnar kenningum um óhjákvæmileg stéttaátök og vill sameina þjóðina í stað þess að sundra henni. Hann vísar á bug hugmyndum vinstri manna um að efnahagsmál ein ráði framvindu sögunnar en leggur áherzlu á að treysta þá máttarstólpa sjálfstæðs þjóðfélags á Islandi, sem birtast í menningu þjóðarinnar og sögu, tungu hennar, listalífi og hinni kristnu trú. Sjálfstæðisflokkurinn vill efla tengsl skóla og heimila, atvinnu- lífs og skóla. Flokkurinn vill styrkja samstöðu vestrænna lýðræöisþjóða og hvetur til gagnkvæmrar afvopnunar undir alþjóðlegu eftirliti. Sjálfstæðisfíokkurinn vill að ein- staklingarnir hafi svigrúm til að þroska eigin hæfileika fyrir sjálfa sig Rætt um stjórnmálaályktun landsfundarins. Matthías Bjarnason, samgöngu- ráðherra, Egill Jónsson, alþingismaður, Geir H,. Haarde, formaður stjórnmála- nefndar, Valdimar Indriðason, alþingismaður og Sverrir Hermannsson, iðn- aðarráðherra. Morgunblaðift/Ól.K.M. Frelsi einstaklingsins til þroska og athafna og samfélagið. Allir eiga að hafa möguleika á að leita lífshamingjunnar með þeim hætti sem þeir telja sér fyrir beztu, innan ramma viðtekinna samfélagsreglna. Með þeim hætti dafnar fjölbreytileiki mannlífsins og einstaklingar verða ekki allir steyptir f sama mót, eins og í þjóðfélögum, þar sem hóphyggja er ríkjandi en um- burðarlyndi víkjandi. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að skapa efnahagsumgjörð, sem veitir einstaklingum, fyrirtækjum þeirra og samtökum, svigrúm til að spreyta sig og vera sinnar eigin gæfu smiðir. Þannig verður jafnframt mest til ráðstöfunar fyrir þá sem minna mega Samþykkt landsfundar: Verkefnaskrá Sjálfstæðisflokks XXVI. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins beinir því til þingflokks Sjálfstæðisflokksins að vinna sér- staklega að framgangi eftirfarandi stefnumála. 1. Höfuðmarkmið efnahags- stjórnarinnar verði lækkun verðbólgu, jafnvægi á vinnu- markaði og stöðvun skulda- söfnunar erlendis. Ekki verði fallið frá áformum um 1000 milljón kr. lækkun á opinber- um lántökum erlendis á þessu ári. Stjórn peninga- og láns- fjármála og gengisskráning ís- lensku krónunnar miðist við að ná hallalausum utanrík- isviðskiptum þegar á árinu 1986. Frjálsræðisþróun á fjár- magnsmarkaði verði haldið áfram. 2. Áhersla verði lögð á frjáls utanríkisviðskipti. Útflytjend- um verði gefinn kostur á að leggja andvirði útflutnings á gjaldeyrisreikninga í innlend- um bönkum með frjálsum ráðstöfunarrétti. Byggða- stefna felist fyrst og fremst í uppbyggingu arðbærrar at- vinnustarfsemi. Tekjuöflun- armöguleikar atvinnulífsins á landsbyggðinni verði treystir með réttri gengisskráningu og skynsamlegri peningastjórn fremur en að byggðastefnan felist í styrkjakerfi á kostnað skattgreiðenda, neytenda eða opinberra sjóða. 3. Dregið verði úr umsvifum hins opinbera með lækkun ríkis- útgjalda og sölu ríkisfyrir- tækja. Ríkisbönkum verði breytt í hlutafélög. Tekju- skattur verði lækkaður. Skatt- byrði heimila verði óháð verkaskiptingu fyrirvinna þeirra við tekjuöflun. Hluti tekjuskattslækkunar verði að- gerðir til eflingar sparnaði. Ríkisbúskapurinn verði jafnan hallalaus og aukafjárveitingar hljóti meðferð Alþingis eða fjárveitinganefndar áður en þær eru veittar. 4. Húsnæðislánum verði einkum beint til þeirra sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið í fyrsta sinn. Lán til kaupa á eldra húsnæði verði a.m.k. 70% af nýbyggingalánum. Leitað verði leiða til þess að lækka útborgunarhlutfall í fasteignaviðskiptum. 5. Búvöruframleiðslan verði að- löguð markaðsaðstæðum á næstu árum. Bændum verði auðvelduð sú aðlögun með uppbyggingu nýrra arðsamra atvinnutækifæra. Til þess verði varið hluta þess fjár sem nú rennur til útflutningsupp- bóta enda verði þeirra ekki þörf í framtíðinni. Innflutn- ingur á grænmeti og garð- ávöxtum verði frjáls þegar innlend framleiðsla fullnægir ekki eftirspurn. 6. Einkarekstri í heilbrigðisþjón- ustu verði veitt aukið svigrúm. 7. Varnir landsins verði efldar m.a. með byggingu ratsjár- stöðva á Vestfjörðum og Norð-Austurlandi og öðrum nauðsynlegum ráðstöfunum í samvinnu við NATO og Bandaríkin. Verktakafyrir- tæki sitji við sama borð með varnarliðsframkvæmdir. 8. Fjárhagslegt og stjórnunar- legt sjálfstæði skólastofnana verði aukið. Áfram verði hald- ið tilraunum með að greiða skólakostnað með föstu fram- lagi á hvern nemanda. Skóla- kerfi og námsaðstoð verði að- löguð markvisst að þörfum at- vinnulífsins, m.a. með sér- stakri áherslu á rannsóknir, tækniþekkingu og þróunar- starfsemi. Einkarekstri í skólakerfinu verði veitt aukið svigrúm. 9. Áhersla verði lögð á frelsi til útvarpsrekstrar án íhlutun- arréttar hins opinbera um dagskrárgerð eða fjárhags- málefni. Prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar verði breytt þannig að það feli ótví- rætt í sér frelsi til tjáningar án tillits til tjáningarforms. Einkarekstur Pósts og síma á breiðbandskerfum verði af- numinn. 10. Stuðlað verði að frjálsri verð- myndun með lögbundnu banni við hvers kyns hringamyndun- um, einokun eða samkeppnis- hömlum. Stjórnarskrárvernd- að atvinnufrelsi verði tryggt. Réttur manna til að vinna til- tekin störf eða sinna atvinnu- rekstri á tilteknum sviðum takmarkist einungis af nauð- synlegum þekkingar- og ör- yggiskröfum. Atkvæði talin. Morgunblaðið/ Ól.K.M. Miðstjómarkjör á landsfundi Sjálfstæðisflokksins: Davíð Oddsson hlaut flest atkvæði DAVÍÐ ODDSSON borgarstjóri fékk flest atkvsði landsfundarfulltrúa í mið- stjórnarkjöri Sjálfstæðisflokksins á sunnudag. Fékk hann 868 atkvæði, sem er 90,25% atkvæðanna, en alls greiddu 962 landsfundarfulltrúar atkvæði. Jón Magnússon féll úr miðstjórn og Jónína Mikhaelsdóttir og Óðinn Sigþórsson gáfu ekki kost á sér, þannig að þrír miðstjórnarmenn komu nýir inn. Landsfundur kaus 11 miðstjórn- armenn og eru þeir sem kosnir voru auk Davíðs eftirfarandi: Ein- ar K. Guðfinnsson útgerðarstjóri, Bolungarvík, 788 atkvæði, 81,91%, Björn Þórhallsson viðskiptafræð- ingur, Reykjavík, 773 atkvæði, 80,35%, Geir Hallgrímsson utan- ríkisráðherra, Reykjavík, 747 at- kvæði, 77,65%, Davíð Scheving Thorsteinsson framkvæmdastjóri, Garðabæ, 681 atkvæði, Jónas H. Haralz bankastjóri, Kópavogi, 662 atkvæði, 68,81%, Gunnar Ragnars forstjóri, Akureyri (kemur nýr inn), 633 atkvæði, 65,80%, Katrín Fjeldsted læknir, Reykjavík, 522 atkvæði, 56,26%, Sigurður Einars- son útgerðarmaður, Vestmanna- eyjum, (kemur nýr inn), 507 at- kvæði, 52,70%, Erlendur G. Ey- steinsson bóndi, Stóru-Giljá (kem- ur nýr inn), 455 atkvæði, 47,50% og Björg Einarsdóttir rithöfundur, Reykjavík, 413 atkvæði, 42,93%. Áðrir sem gáfu kost á sér, en náðu ekki kjöri, voru Auðunn Svav- ar Sigurðsson, Bessí Jóhannsdóttir, Davíð Pétursson, Guðmundur Hansson, Jón Magnússon, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Jónas Bjarna- son, Kári Jónsson, Kristinn Pét- ursson og ólína Ragnarsdóttir. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kaus svo á fundi sínum í gær þá 5 fulltrúa sem hann á í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Voru allir miðstjórnarmenn þingflokksins endurkjörnir, en þeir eru Matthías Á. Mathiesen, Matthías Bjarnason, Albert Guðmundsson, Pétur Sig- urðsson og Salóme Þorkelsdóttir. Formaður flokksins, varaformaður og formaður þingflokks eru allir sjálfkjörnir í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins. Auk ofangreindra eiga formenn kjördæmisráðanna sæti í mið- stjórn, formenn framkvæmda- stjórnar, útbreiðslunefndar, fjár- málaráðs, fræðslunefndar og landssamtakanna. sin, eða standa af einhverjum ástæð- um höllum fæti i lifinu, en umhyggja fyrir þeim einkennir þau manngild- issjónarmið, sem sjálfstæðisstefnan byggir á. ★ ★ ★ Fyrir tæpum tveimur árum tók Sjálfstæðisflokkurinn við stjórn landsins ásamt Framsóknarflokknum. Aðkoman var erfið og ytri aðstæður hafa um margt verið landsmönnum óhagstæðar á þessum tíma. Þrátt fyrir þetta hefur verulegur árangur náðst á ýmsum sviðum. Verðbólga hefur stórlega minnkað og staða rikissjóðs batnað, þrátt fyrir verulegar skattalækkanir. Þjóðar- framleiðsla er á uppleið á ný enda sjávarafli vaxandi. Breytt skattalög og aukið frjálsræði hafa örvað nýtt framtak i atvinnumálum. Tekið hefur verið til hendi við und- irbúning almenns nýiðnaðar og stór- iðju, frelsi f gjaldeyrismálum aukið og frumkvæði tekið varðandi aðild ís- lendinga sjálfra að málum er snerta varnir og öryggi landsins. Þrátt fyrir takmarkað efnahagslegt svigrúm, hef- ur verið unnið að því að auka og bæta menntakerfi og heilsugæslu þjóðar- innar, átak hefur verið gert í varan- legri vegagerð og nú hillir undir að einokun Rikisútvarpsins á útvarps- sendingum verði aflétt. Aðstæður eru því um margt mjög breyttar til hins betra frá því sem var þegar stjórnarskipti urðu í maí 1983 og þrátt fyrir mótbyr undir lok síð- asta árs, er verðbólgan á ný að komast niður á svipað stig og var á síðasta hausti. Enn skortir þó á að viðunandi jafn- vægi hafi náðst i efnahagsmálum. Viðskiptahalli er mikill og ekki hefur tekist að draga úr erlendum skuldum þjóðarinnar. Staðan í verðlagsmálum er ótrygg og blikur á lofti á vinnu- markaði. Erfiðleikar eru miklir í sjáv- arútvegi og landbúnaði og valda óvissu um byggðaþróun. • Sjálfstæðisflokkurinn leggur höf- uðáherslu á, að á næstunni verði reynt til þrautar í samstarfi við samtök launafólks og vinnuveitenda að koma i veg fyrir átök á vinnumarkaði næsta haust og tryggja þann stöðugleika í efnahagslífi, sem er nauðsynleg for- senda heilbrigðrar atvinnustarfsemi og bættra lífskjara. I þvi sambandi er meðal annars óhjákvæmilegt að festu verði haldið i gengismálum að þvi marki sem sam- rýmist stöðu þjóðarbúsins út á við. Stjórn peninga- og lánsfjármála mið- ist einnig við jafnvægi út á við f þjóð- arbúskapnum. Markmiðið er að stöðva erlenda skuldasöfnun og ná halla- lausum utanrikisviðskiptum sem fyrst. • Vaxtastefnan verður að tryggja sparendum raunverulega ávöxtun. Því er mikilvægt að ekki verði hvikað frá þvi takmarkaða frelsi á fjármagns- markaði sem þegar er fengið og tryggt hefur almenningi fjölbreyttari sparn- aðarform en áður hafa þekkst hér á landi. Með þvi móti verða undirstöður innlends sparnaðar tryggðar og dregið úr þörf fyrir erlent lánsfé. • Afram verði dregið úr umsvifum hins opinbera og stefnt að halla- lausum ríkisbúskap. Ríkisfyrirtæki verði seld og ríkisbönkum breytt í hlutafélög. Aðflutningsgjöld verði lækkuð og haldið fast við fyrirliggj- andi áform um að fella niður tekju- skatt af almennum launatekjum. • Verðmyndunarkerfi landbúnaðar- ins verði endurskoðað frá grunni með hagsmuni bæði neytenda og bænda fyrir augum. Búvöruframleiðslan verði löguð að markaðsaðstæðum á næstu árum. Bændum verði auðvelduð sú aðlögun með uppbyggingu nýrrar arðsamrar atvinnu. Til þess verði var- ið hluta þess fjár sem nú rennur til útflutningsbóta enda verði þeirra ekki þörf í framtíðinni. Innflutningur á grænmeti og garðávöxtum verði frjáls þegar innlend framleiðsla fullnægir ekki eftirspurn. Afnumdar verði hömlur í útflutningi landbúnaðar- vara. • Búið verði þannig að útgerð og fisk- vinnslu að þessar greinar geti haldið áfram að vera undirstöður velmegun- ar í landinu. Eiginfjárstaða fyrir- tækja í sjávarútvegi verði treyst m.a. með skattalegum aðgerðum til sveiflu- jöfnunar milli ára og verðjöfnunar- sjóðum gert betur kleift að rækja hlutverk sitt. Fjölbreytni verði aukin við veiðar og vinnslu og markaðsleit efld. • Áfram verði unnið að uppbyggingu stóriðju og leitað samstarfs við erlend fyrirtæki í því efni, eftir því sem að- stæður leyfa og þörf krefur. • Haldið verði áfram öflugri upp- byggingu almenns iðnaðar og þjón- ustu og íslenskum fyrirtækjum auð- velduð starfsemi erlendis. Sett verði almenn lagafyrirmæli um erlenda fjárfestingu hér á landi. • Staöið verði fast gegn hvers kyns tilraunum til að draga úr vörnum og örygRÍ landsins. í engu verði hvikað frá áformum um uppsetningu nýrra ratsjárstöðva hérlendis. • Þegar á þessu þingi verði sam- komulagi stjórnarflokkanna um endurskipulagningu sjóðakerfisins komið í framkvæmd, svo og fyrirætl- unum um að leggja niður Fram- kvæmdastofnun. í stað hennar komi byggðastofnun með þrengra starfssvið og meira sjálfstæði. • Áfram verði unnið að úrbótum í samgöngumálum og eftir föngum reynt að ná markmiðum langtíma- áætlunar um vegamál. • Til að tryggja að séreignarstefna Sjálfstæðisflokksins í húsnæðismál- um nái fram að ganga þarf að koma til róttæk uppstokkun f húsnæðislána- kerfinu. Byggingarsjóður rikisins láni fyrst og fremst þeim sem eru að eign- ast húsnæði i fyrsta sinn. Jafnaður verði sá munur sem nú er á fyrir- greiðslu við þá sem festa kaup á not- uðu húsnæði og þá sem byggja nýtt. Komið verði til móts við þá húsbyggj- endur og íbúðarkaupendur sem nú eru í brýnustum vanda vegna aukinnar greiðslubyrði lána. Húsnæðiskerfið verði nægjanlega sveigjanlegt til að geta sinnt þörfum aldraðra fyrir breytt húsnæði. • Einokun í útvarpsrekstri verði af- nurnin þegar í vor og útvarpsstöðvum tryggt jafnræði til tekjuöflunar, með- al annars með auglýsingum, jafn- framt því sem rekstur Ríkisútvarpsins verði tryggður. • Orbætur í dómsmálum eru brýnar. Styttur verði tími sem meðferð'1'' dómsmála tekur, Hæstarétti Islands gert betur kleift að gegna hlutverki sinu sem æðsti dómstól landsins og unnið að lagasetningu sem tryggi raungildi fjárkrafna fyrir dómstólum. • Lög verði sett gegn einokun og hringamyndun. Hamlað verði gegn vaxandi tilhneigingu til leyfis- eða lögbindingar starfsréttinda, sem get- ur útilokað samkeppni og hækkað verð. Samkeppni verði tryggð sem víð- ast og fleiri verkefni sem nú eru í höndum hins opinbera flutt til einka- aðila. ★ ★ ★ Sjálfstæðisflokkurinn telur að stór- átak i atvinnumálum og ný sókn til aukinnar velmegunar sé næsta stór- verkefni í íslenskum efnahagsmálum. Forsendur þess eru að komið verði í veg fyrir nýtt verðbólguáhlaup og var- anlegum stöðugleika náð í verðlags- málum. Að því vill flokkurinn stuðla í samvinnu við samtök vinnumarkaðar- ins og telur rétt, eins og nú standa sakir, að stjórnvöld gangi fram fyrir skjöldu um að ná þjóðfélagslegum sáttum á þessum grunni. Markmiðið er að atvinnuvegirnir geti hagnast og greitt sambærileg laun við það sem bezt gerist með öðr- um þjóðum, þannig að dagvinnulaun nægi til framfærslu meðalfjölskyldu. I þessu sambandi varðar miklu að þjóðin tileinki sér nýjustu tækniþekk- ingu og að öflug rannsóknar- og þróunarstarfsemi fari fram, bæði á vegum menntakerfisins og atvinnu- lífsins. Öflug sókn verði gerð á erlenda markaði, bæði til útflutnings vöru og þjónustu. ★ ★ ★ Landsfundur Sjálfstæðisflokksins vill halda áfram því endurreisnar- starfi sem ríkisstjórnin hefur unnið að, á þeim málefnagrundvelli sem hér hefur verið rakinn, en landsfundur leggur jafnframt áherslu á að sá ár- angur náist sem að er stefnt. Sjálfstæðismenn eru nú sem ætíð reiðubúnir til þess að leggja störf sin og stefnu i dóm kjósenda. Hvort þess verður þörf í bráð mun ekki síst ráð- ast af framgangi þessara málefna og því hvort um þau næst nauðsynleg samstaða. 1 Árið 1985 er aiþjóðlegt ár æskunn- ar. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á þá ábyrgð sem hinir eldri bera gagnvart æsku landsins. Fram- vinda í þeim málaflokkum sem hér hafa verið raktir getur ráðið úrslitum um það hvort hinum yngri kynslóðum verður skilað betra búi og bjartari framtíð. Sjálfstæðisflokkurinn mun, fortíð sinni trúr, gera sitt til að svo verði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.