Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 57
MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGUR 16. APRÍL 1985
57
einum of mikiö að segja að Cass
hafi ekki þolað frægð Johan, vel-
gengnin virðist jafnframt hafa
breytt henni til hins verra, að
minnsta kosti hvað hjónabandið
snerti.
Linda Gray (Sue Ellen í Dallas)
hafði verið gift í 22 ár og hjóna-
band hennar og Ed Thrasher var
talið í hópi gæfuríkustu og ham-
ingjusömustu í allri Hollywood.
Ónafngreindur einkavinur þeirra
hjóna hefur orðið: „Gallinn var, að
þegar Linda fór að gera það gott i
Dallas, fékk hún meiri tekjur á
mánuði en Ed fékk yfir árið. Þegar
Linda fór í kynningarferðir var Ed
skiiinn eftir heima með börnin,
þegar þau fóru í veislur átti Linda
athygli allra, en Ed komst ekki að.
Þegar Linda fór að reyna að
hjálpa til með því að útvega Ed
eitt og annað að gera í tengslum
við þættina fór endanlega að sjóða
upp úr, hann þoldi þetta ekki og
loks sprakk allt í loft upp.
Goldie Hawn er tvígift og tví-
skilin og í báðum tilvikum var það
frægð og frami Goldie sem olli
misklíðinni. „Eg óttaðist sýknt og
heilagt að þéna meira en makinn,
að vekja meiri athygli, óttaðist að
verða enn frægari, því það gerðist.
alltaf það sama, karlmenn telja að
þeir eigi að vera fyrirvinnan og ef
það snýst við, finnst þeim að þeir
séu áhrifalausir og tilgangslausir.
Þá verða þeir svívirðilegir og gera
lítið úr því sem maður hefur áunn-
ið, gera í því að brjóta mann
niður. Ef til vill var ég svona
óheppin, en þetta var mín
reynsla," segir Goldie. Á þessum
línum mætti eflaust endalaust
halda áfram ...
Rómaði greinarhöfundur ferðina til íslands og hældi hér flestum á hvert
reipi.
ÍSLAND
„Hvílík ferð —
hvílíkt leyfi —
hvílík reynslau
Hvílík ferð — hvílíkt leyfi — hvílík reynsla. Þannig upprópanir í
góðri merkingu getur að finna í grein um dvöl á íslandi í
tímaritinu „Dance News“ fyrir skömmu.
Höfundur greinarinnar, Freddie Bouldwood, kom hingað í tilefni
af alþjóðadanskeppninni í samkvæmisdönsum, er haldin var hér á
landi fyrr á þessu ári.
Hann fer fögrum orðum um land og þjóð og þjónustu alla og
viðurgjörning. Sitthvað hefur verið ferðast, svo sem farið „hring-
inn“ og til Gullfoss, Geysis og Þingvalla og er rómuð fegurð á
„Thingvelli og Oxar Falls“!!
Greinin er annars öll af hlýleika skrifuð og með þakklæti fyrir að
hafa fengið að dvelja hér á gamla Fróni um stund.
King sýnir á sér
fleiri hliðar en eina
Nýr poppari hefur ruðst
fram á sjónarsviðið með
hamagangi og látum, Paul King
heitir hann og er forsprakki
hljómsveitarinnar King sem hef-
ur náð miklum vinsældum bæði I
Bretlandi, á íslandi og víðar með
laginu „Love and Pride“. Nýlega
var viðtal við King í bresku viku-
riti og þar kom á daginn, að per-
sónan Paul King er vart fullmót-
uð sem skemmtikraftur, King fór
öfganna á milli í tilsvörum, var
allt frá því að vera hrokafullur
og sjálfumglaður til þess að vera
hlédrægur og óöruggur, allt eftir
því um hvað var rætt hverju
sinni. Við skulum drepa ofan í
viðtalið hér og þar:
King segir: „Eg veit ég get
vaxið sem söngvari og skemmti-
kraftur. Ég stefni að því að
skrifa betri texta, semja betri
lög, gefa út sterkari hljómplötur
og vera æsilegri á sviði. „Love
and pride“ er aðeins fyrsti kapí-
tulinn í bók sem verður æði löng
og spennandi."
Um einkalíf sitt segir kappinn:
„Ég er löngu hættur að hægsa
um að binda mig niður, eignast
börn og buru. Eflaust kemur að
því, en það er langt í það. Ástæð-
an er sú að ég hef einfaldlega
ekki tíma til að gefa mig í slíkt,
nú hugsa ég aðeins um frama. Ég
dýrka kvenfólk og vil ekki láta
mér nægja eina konu, það eldist
kannski af mér, ég veit ekki
hvort ég vil það, mér þykir svo
gaman að daðra við fallegar
stúlkur. Á hinn bóginn á ég ekki
marga vini og ég stofna ekki
skjótt til vináttu, því miður, ég
hef lært það af reynslunni að
treysta sem fæstum.“
En svo lumar hann á öryggis-
leysinu: „Ég hef aldrei verið fyrir
að sitja á knæpum með „strákun-
um“, súpandi bjór og ræðandi
málin, ég er fremur á heimavelli
með vel völdum vini, helst kven-
kyns, út af fyrir mig. Þá á ég ekki
við úti að borða tvö ein, eða í
samræðum úti á götu, ég kýs
heldur þægilegan sófa heima hjá
mér, fyrir framan myndsegul-
band með bjórkassa við aðra
höndina og nokkra skrúfupoka
við hina. Eg fer sjaldan út að
skemmta mér, ég hata diskótek
og næturklúbba vegna þess að
þar er ekkert að finna nema klík-
ur sem telja sig eiga heiminn, ég
hata klíkur, kýs heldur að vera
einfari og eiga fáa og þeim mun
tryggari vini.“
Þýzk borö fyrir:
★ Tölvuskjáog
lyklaborö.
★ Tölvuprentara
Vönduð
Ódýr
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐl — SINII 51888
LÆST DRIF f
LADA
Eigum fyrirliggjandi læst mismuna-
drif í allar tegundir LADA bifreiöa.
40% og 75% læsing.
Hagstætt verö.
Skiftiborð Verslun Verkstæði Soludeild
38600 39230 39760 31236
Bif reiöar & Landbúnaöarvélar hf
Suðurlandsbraut 14
Sálfræðistöðin
Námskeið
BÖRN OG SJÁLFSTRAUST
Lærðu að þekkja persónuleg viðbrögð þín og kynntu
þér árangursríkar aðferðir sem auka sjálfsöryggi þarna.
--------- Efni námskeiös: -------
• Samskipti fullorðinna — áhrif á þörn
• Hver eru æskileg/óæskileg viðbrögð fullorðinna
• Staða barns í fjölskyldu — samband systkina
• Nýjar leiðir: — að minnka árekstra
— að auka samvinnu
— að styrkja sjálfstraust
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma Sálfræðistöðvarinnar:
_________687075 milli kl. 10 og 12 fh.