Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985
7
Margir vilja byggja einkarafstöðvar:
Þróunin hefur snúist
— segir Sveinn Þórðarson deildarstjóri hjá Rafmagnseftirliti ríkisins
MIKILL áhugi er nú í sveitum
landsins fyrir byggingu einka-
rafstöðva. Aö sögn Sveins
Þóröarsonar, deildarstjóra í
Rafmagnseftirliti ríkisins, eru
20—25 aöilar að virkja bæjar-
lækina hjá sér til raforkufram-
leiðslu eða eru með slíkt í und-
irbúningi. Virkjanirnar eru
flestar á bilinu 15—200 kfló-
wött. Stærstu stöðvarnar sem í
undirbúningu eru eru á Sleitu-
bjarnarstöðum í Skagafirði
(200 kW) og Húsafelli í Borg-
arfirði (400 kW).
Sveinn sagði að einkarafstöðv-
um hefði farið fækkandi undan-
farna áratugi en þessi mikli
áhugi nú benti til að þróunin
væri að snúast við. Hann sagði
að gömlu stöðvarnar væru litlar
og með lítið rekstraröryggi en
stöðvarnar sem nú væru byggðar
væru stærri. í dag eru í landinu
178 rafstöðvar á sveitabýlum,
með 2.709 kW afl í allt, og eru 72
þeirra á býlum sem ekki eru
tengd við héraðsveitur. Sagði
Sveinn að flestar stöðvarnar sem
nú væri verið að undirbúa og
byggja væru til upphitunar og
súgþurrkunar en bændurnir
keyptu áfram rafmagn af RA-
RIK til heimilisnota.
Sveinn Þórðarson sagði að að-
stæður til virkjana bæjarlækja
væru afar misjafnar. Kostnaður
væri eftir því misjafn, hundruðir
þúsunda og allt að milljón.
Sumsstaðar þyrfti mikið af
leiðslum til að ná góðri fallhæð
og sumsstaðar þyrfti rafmagns-
línur heim á bæina. Hann sagði
að rekstraröryggi væri afar mis-
jafnt. Mest væri um rennslis-
virkjanir, það er án uppistöðu-
lóna, sem væru algerlega háðar
tíðarfari.
„Orkukostnaöurinn
allt of mikiir
„Við erum mjög jákvæðir
gagnvart þessum virkjunum þó
bæirnir hafi þegar rafmagn frá
okkur og þær dragi úr okkar
orkusölu," sagði Kristján Jóns-
son, rafmagnsveitustjóri, í sam-
tali við Mbl. þegar hann var
spurður að því hver væri afstaða
RARIK til fjölgunar einkavirkj-
ana. „Þetta er þjóðhagslega hag-
kvæmt auk þess sem þessi
sveitabýli fá þriggja fasa rafm-
agn sem við getum í fæstum til-
vikum boðið upp á í sveitunum. í
sumum tilfellum geta þessar
stöðvar líka sparað okkur dýrar
línulagnir.
Við erum að athuga möguleik-
ana á að þessir menn geti fengið
rafmagn frá okkur þegar þeirra
stöðvar bregðast en ýmis tækni-
leg vandamál, sem við erum að
athuga með lausn á, standa í
veginum fyrir því. Sumir þeirra
eru jafnvel með umframrafmagn
sem þeir vilja selja með sam-
tengingu en mestar líkur eru á
að það sé aðallega á þeim tímum
sem við höfum fyrir nóg raf-
magn og því lítill akkur fyrir
okkur.“
Kristján var spurður hvort
þessi mikli áhugi nú fyrir einka-
virkjunum benti ekki til að orku-
verðið í landinu væri orðið óeðli-
lega hátt.
„Jú, það háa orkuverð sem við
búum við er auðvitað hvatinn að
þessum stöðvum. Menn komast
að raun um að virkjanirnar
borga sig. Orkuverðið er allt of
hátt og meðal annars þessvegna
höfum við ekki getað lagst gegn
þessum virkjunum. Það er hins-
vegar ekki dreifingarkostnaður-
inn sem gerir það hátt, við fáum
ekki of mikið í okkar hlut, heldur
tel ég að þetta felist í virkjun-
arkostnaðinum."
Hefur smíðað 60
túrbínur
Vélbúnaðurinn í flestar einka-
rafstöðvarnar er smíðaður hér
innanlands. Jón Sigurgeirsson í
Árteigi í Köldukinn hefur til
dæmis smíðað 60 túrbínur á
rúmum þrem áratugum. I sam-
tali við Mbl. sagðist hann vera
að smíða fjórar túrbínur núna af
mismunandi gerðum og margir
væru á lista. Hann sagði að
stofnkostnaðurinn væri mjög
mismunandi, ekki væri óalgengt
að hann færi upp undir milljón
kr. Hann sagðist smíða gang-
stillitæki við túrbínurnar og oft
á tíðum gera upp gamla rafala
fyrir þessar virkjanir. Auk þessa
þyrfti rör, sem væru nokkuð dýr,
og jarðstreng eða línu. Hann
sagðist hafa hannað flestar
virkjanirnar sjálfur.
Ég held að þessar virkjanir
borgi sig. Þegar ég segi þetta lít
ég til þeirra manna sem fara út í
þessar framkvæmdir. Þeir eru
oft á tíðum framúrskarandi fjár-
málamenn sem fara ekki út í
þetta til að tapa. Þegar menn
taka saman rafmagnsreikn-
ingana sína eftir árið fer þetta
yfirleitt ekkert á milli mála,
rafmagnið er orðið svo gífurlega
dýrt,“ sagði Jón. Hann sagði að
rekstrarkostnaður væri sáralítill
við þessar virkjanir og þyrfti því
fyrst og fremst að meta hag-
kvæmnina út frá stofnkostnað-
inum. Stofnkostnaðurinn væri
töluverður og eins og fjárhags-
staðan væri hjá bændum í dag,
væru sumir hikandi þrátt fyrir
augljósa hagkvæmni til lengri
tíma litið.
Vill selja RARIK
rafmagn
„Hún hefur reynst mér mjög
vel,“ sagði Kristleifur Þor-
steinsson á Húsafelli í Borgar-
firði en hann hefur verið með
140 kílówatta vatnsaflsstöð í
mörg ár fyrir rekstur sinn þar og
selt rafmagn i sumarbústaði.
Hann sagðist upphaflega hafa
virkjað vegna þess að RARIK
hefði ekki getað látið sig fá nóg
rafmagn til að halda áfram upp-
byggingunni á staðnum. •
Stöðin er orðin of lítil og hefur
hann verið með aðra virkjun í
undirbúningi en sagðist vera bú-
inn að leggja þau áform á hill-
una, í bili amk. Hann sagðist
hafa ágæta virkjunarkosti en
sæi ekki að virkjun borgaði sig
með þeim vöxtum sem banka-
stjórarnir heimtuðu í dag.
Kristleifur bjóst við að RARIK
færi með 3 fasa línu upp Hvít-
ársíðu og að hann gæti þá fengið
að tengjast þar við til að fá
rafmagn þegar honum vantaði.
Hann sagði það skynsamlegt að
tengja veiturnar saman vegna
öryggisins og hann gæti þá e.t.v.
selt RARIK rafmagn þegar hann
hefði of mikið og gæti það verið
beggja hagur.
„Þjóðhagslega séð eru þessar
einkarafstöðvar vitlausar á með-
an RARIK hefur nóg rafmagn,“
sagði Kristleifur þegar leitað var
álits hans á litlu einkarafstöðv-
unum sem eru að spretta upp úti
um allt land. „Þetta eru yfirleitt
litlar virkjanir og stofn-
kostnaðurinn nokkuð mikill.
Stöðvarnar geta þó verið hag-
kvæmar fyrir einstaklingana,
ekki síst ef þeir geta byggt þær
sjálfir, vegna þess hvað raf-
magnið er orðið dýrt."
Vöruflutningar
Arnarflugs
jukust um 93 %
FLUTNINGAR Arnarflugs
hafa aukist verulega það sem
af er árinu borið saman við
sama tímabil í fyrra. Þetta á
bæði við farþegaflutninga og
flutninga á vörum.
í frétt frá Arnarflugi segir að
ef litið er á tímabilið janúar til
mars sl. kemur í ljós að heild-
arfjöldi farþega Arnarflugs í
millilandaflugi var 4.371 en til
samanburðar voru þeir 3.307 á
sama tímabili í fyrra. Aukningin
milli ára er því um 32% sem er
talsvert meiri aukning en nemur
heildaraukningu farþega í flugi
milli íslands og Evrópu.
Vöruflutningar félagsins juk-
ust um nálægt 93%. Fyrstu þrjá
mánuði ársins flutti það um 193
tonn milli landa, en um 100 tonn
á sama tíma í fyrra.
Farþegar Arnarflugs í milli-
landaflugi eru liðlega 16% fleiri
en gert var ráð fyrir í rekstrar-
áætlun félagsins frá því í árslok
1984 og vöruflutningar 28%
meiri.
Tæplega 28 þúsund farþegar
fóru með Arnarflugi milli landa
á síöasta ári og er gert ráð fyrir
talsverðri aukningu á þessu ári.
Flogið hefur verið þrisvar í
viku milli íslands og Hollands í
vetur og með sama áframhaldi á
aukningu í farþegaflutningum
má búast við að tíðni ferða milli
landanna verði aukin enn og þá
flogið fjórum sinnum i viku á
komandi vetri.
í sumar er gert ráð fyrir fimm
ferðum í viku auk flugs milli ís-
lands og Zúrich annars vegar og
íslands og Dússeldorf hins vegar.
APRÍL-TILBOÐ EV
Allir notaðir bílar seldir ÁN ÚTBORGUNAR
EV kjör
Við lánum í 3, 6, 9
eða jafnvel 12 mán.
EV kjör
M. Benz 280 S '74 Volvo 245 '78
Við bjóðum 20% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT
Á ÖLLUM NOTUDUM BÍLUM
Datsun Cherry ’82 AMC Concord ’79 i_atja Sport ’81
Örlítiö brot af þeim bílum er viö höfum á boðstólum.
Athugið að STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTURINN gildir einnig fyrir greiðslur
er greiðast upp á 1MÁNUÐI.
Tökum einnig 3—5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf á Stór
Reykjavíkursvæðinu fyrir öllu andvirðinu.
1929
fEGILL
I VILHJÁLMSSON HF.
EV-salurinn
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 79944 — 79775
1985