Morgunblaðið - 16.04.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985
49
Nokkur atriði um samskipti
íslands við Bandaríkin
- eftir Einar Örn
Björnsson
Ríkisstjórnin hefur setið í tæp tvö
ár, átt í erfiðleikum vegna óró-
leika á vinnumarkaðinum. Vísital-
an var tekin úr sambandi, sem var
til að stuðla að því að atvinnulífið
rambaði áfram. Hættuástand er í
atvinnulífinu sem vandséð er
hvernig leysist. Ríkisstjórninni
hefur ekki tekist að lyfta þjóðinni
úr þeim öldudal sem við blasir.
Sjávarútvegurinn á í miklum erf-
iðleikum, svo er einnig um land-
búnaðinn og að honum vegið af
skammsýnum öflum í Reykjavík,
sem stunda þá iðju í hasarblöðum
að villa um fyrir þjóðinni um þýð-
ingu hans.
Erfiðleikar nefndra atvinnu-
vega eru með þeim hætti að ekki
er annað sýnna en grípa verði til
skuldaskila er tryggi að atvinnu-
vegirnir rétti við svo rekstur
þeirra verði tryggður í landinu.
Ríkisstjórnin og stuðningsflokk-
ar hennar ættu að taka sig á og
reyna að sjá björtu hliðarnar og
þá möguleika sem við blasa ef rétt
er að farið. Launþegasamtökin
ættu að beita afli sínu í sömu átt.
Á því veltur framtíð þjóðarinnar.
Rétt er að hugleiða nokkur at-
riði sem stuðluðu að nýrri fram-
farasókn ef vel væri að unnið.
1. Endurskoðun fari fram um
nýja samningagerð við Banda-
ríkin þar sem samgöngur í
landinu yrðu meginverkefni.
Vegakerfi landsins verði byggt
upp frá Faxaflóasvæðinu út á
landsbyggðina úr varanlegu
efni með nútíma öryggisbúnaði.
Jarðgöng verði gerð á Vest-
fjörðum og Austfjörðum þar
sem henta þykir og einnig á
Norðurlandi. Fyrsta fram-
kvæmd á Austurlandi í jarð-
gangnagerð ætti að vera jarð-
göng í gegnum Fjarðarheiði
sem gætu orðið ca. 12—15 km
löng.
2. Flugvellir úr varanlegu efni
verði byggðir á Vesturlandi,
Vestfjörðum, Austurlandi og
Norðurlandi
3. Almannavarnir verði skipu-
lagðar og framkvæmdar um
allt land í samvinnu við Banda-
ríkin sem liður í varðstöðunni.
Þær eru nær engar í landinu ef
náttúruhamfarir og önnur vá
væri yfirvofandi.
Öruggt vegakerfi og flugvellir
eru liður í slíku. Vegakerfið út
um landsbyggðina er víða eins
og í vanþróuðum löndum, snjó-
ar hamla að hausti og vetri og
aurbleyta að vori. Þannig er
einnig um flesta flugvelli úti á
landi. Það sem mætir fólki á
ferð um landið er grjóthríð og
moldrok um sumartímann og
eyðilegging á farartækjum.
Þetta er árangur af samskipt-
um við stórríkið í vestri og aðr-
ar Atlanshafsþjóðir sem ekki
var viðvarandi í samningunum
við þær.
Radarstöðvar á Vestfjörðum og
Norðurlandi eystra eða á Aust-
urlandi sem fyrirhugað er að
reisa eru liður í því sem um er
fjallað í þessari grein til að
stuðla að öryggi þjóðarinnar og
betri varðstöðu.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins
er þátt tóku í prófkjöri Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík fyrir alþing-
iskosningarnar 1974 samþykktu
svipaðar breytingar á samskiptum
íslendinga við Bandaríkin og lýst
er hér að framan. Ragnhildur
Helgadóttir núverandi mennta-
málaráðherra lýsti yfir í grein í
Morgunblaðinu að prófkjöri loknu
að þó yfir áttatíu prósent kjós-
enda hefðu samþykkt breytinguna
væru þeir varla marktækir. Ekki
var það henni til framdráttar.
í kjölfar þessarar samþykktar
lýsti dr. Gunnar Thoroddsen iðn-
aðarráðherra því yfir í ræðu er
hann flutti í Valaskjálf á Egils-
stöðum sumarið 1977 að rétt væri
að vinna að því að varanleg vega-
gerð um landið, flugvellir úr var-
anlegu efni og almannavarnir
yrðu viðvarandi í nýrri samninga-
gerð við Bandaríkin og margt
fleira sem íhugað væri um leið.
Forsætisráðherra, Geir Ha-
llgrímsson, tók dauflega undir
þessar hugmyndir, en dr. Gunnar
Thoroddsen flutti þær á ríkis-
stjórnarfundi. Forsætisráðherr-
ann vildi ekki vinna að slíkri
lausn. Það var ekki að fullu ljóst
um afstöðu annarra ráðherra í
ríkisstjórninni, nema Halldórs E.
Sigurðssonar, þáverandi sam-
gönguráðherra, er vildi athuga
þessi mál. Síðar taldi Geir Hall-
grímsson að þeir sem væru með
slíkar hugmyndir gengju við
„betlistaf". Þessu stórmáli var
þannig drepið á dreif af flokks-
valdi Sjálfstæðisflokksins og for-
manni hans, er ekki greiddi götu
hans síðar.
Ólafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra í ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen, vann ötullega að því,
að byggð yrði ný flugstöð við
Keflavíkurflugvöll og olíustöð í
Helguvík og undirbjó þau mál vel
en náði ekki að láta hefja fram-
kvæmdir vegna neitunarvalds Al-
þýðubandalagsins sem þeir fengu í
ríkisstjórninni, er var furðulegt.
Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra tók ákvörðun um að
framkvæmdir hæfust.
Á aðalfundi Eimskipafélags ls-
lands á síðasta ári kom fram að
íslensk skipafélög höfðu misst
flutninga er þau höfðu á varningi
til varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli en bandarískt skipafélag tek-
ið við flutningunum. Rætt var um
það á aðalfundinum að vinna að
því að skipafélögin fengju þessa
flutninga aftur. Utanríkisráð-
herra hefur skýrt frá því að þær
viðræður séu í gangi, en nefndi
ekki að það væri að ganga við
„betlistaf". Þetta sýnir hve losara-
leg samskiptin eru og styður þá
nauðsyn að endurskoða þau í
heild.
Sú firra að varnarliðið sé fyrir
íslendinga eins og stjórnmálaöfl
hafa lýst ef minnst er á breytingar
á samskiptum er aðeins til að
breiða yfir staðreyndir. Vera fs-
lands í Átlantshafsbandalaginu er
sterkur hlekkur hér á Norður-
Atlantshafi. Það skilja bandalags-
þjóðirnar í NATO. Þess vegna eiga
allar samgöngur að vera greiðar í
vel uppbyggðu samgöngukerfi en
ekki í lágmarki eins og nú er. Þess
vegna er nauðsyn að fella inn í
nýjan samning að samgöngumálin
verði látin sitja fyrir vegna sam-
vinnu Islands og Bandaríkjanna.
Samninga um varðstöðu hér á
landi gerum við ekki fyrir Banda-
ríkin, heldur við þau, til að tryggja
samheldni -og öryggi norðlægra
þjóða í heild.
Umsvif í sambandi við alla upp-
byggingu á Keflavíkurflugvelli og
í Hvalfirði eru mikil. Þar hafa
verktakafélög á Faxaflóasvæðinu
haft tögl og hagldir og stjórn-
málaöfl lagt blessun sína á, en
sumt af því sem þar hefur farið
fram verður að teljast til einokun-
ar er jaðrar við gróðabrall, sem
varnarmálanefnd og utanríkis-
ráðuneytið hafa lagt blessun sína
yfir, og það síðan kallað viðbúnað-
ur til varna. Þau öfl sem þarna eru
að verki eru sannkallað „þöglafé-
lag“ sem hefur ráðið því að þannig
skyldu fslendingar verða með-
höndlaðir í samstarfi við stórríkið
í vestri, en vegir og flugvellir úr
varanlegu efni í landinu öllu væru
ekkert atriði í samningum.
Þannig fara skammsýnir stjórn-
mála- og gróðahyggjumenn að og
varðar ekkert um þjóðarhag, en
halda að íslenska þjóðin sé þeir.
Fulltrúar landsbyggðarinnar á Al-
þingi láta sér þetta lynda eins og
þeim komi þetta ekkert við. Er
ekki kominn tími til að grisja
þennan frumskóg. Betra seint en
aldrei að snúa við af óheillabraut.
Vera íslendinga í Atlantshafs-
bandalaginu og varnarsamningur-
inn við Bandaríkin hefur mikla
þýðingu í friðarátt vegna þess að
fslendingar vilja engar styrjaldir,
kúgun eða ofbeldi, en munu beita
áhrifum til að bera klæði á vopn-
in, en þeir vilja vera í samtökum
vestrænna þjóða til að tryggja
frelsi þeirra og að það breiðist út
um veröld alla. fslendingar stofn-
uðu fyrsta þjóðþing veraldar sem
síðar breiddist út og er raunar
fyrirmynd þess sem nú viðgengst
á Vesturlöndum. Þess vegna eiga
íslendingar að vera virkir og
standa fast á þeim málstað og
bera höfuðið hátt í samstarfinu
við vestrænar þjóðir.
Lokaorð
íslendingar verða að rífa sig
upp úr þeirri lognmollu sem verið
hefur í stjórnmálaumræðúnni og
beina sjónum sínum að þeirri
stöðu er þeir hafa í samfélagi
þjóðanna. Deilur sem staðið hafa
um þau mál hafa lamað allar
framfarir og orðið til þess að sigið
hefur á ógæfuhlið. Því verður að-
eins snúið við með þjóðarsam-
stöðu, sem stuðlar að framförum
sem tengdar eru þeim miklu
möguleikum er við blasa og getið
er hér að framan. Fleira mætti
tilfæra um þau mál. íslendingar
reka mikil fyrirtæki í Bandaríkj-
unum sem tilreiða fiskafurðir og
dreifa til sölu þar, enda stærsti
markaður þeirra. Þau viðskipti
þarf að efla. Iðnaðarvörur eru
Einar Ö. Björnsson.
„íslendingar verða að
rífa sig upp úr þeirri
lognmollu, sem verið
hefur í stjórnmálaum-
ræðunni, og beina sjón-
um sínum að þeirri
stöðu, er þeir hafa í
samfélagi þjóðanna.“
einnig á markaði í Bandaríkjunum
í vaxandi mæli.
Huga þarf að fleiri þáttum, svo
sem rafeinda-, rafmagns- og
tölvuiðnaði og fleiru sem tengist
slíku, sem íslendingar eru þegar
farnir að stunda. Þess vegna er
nauðsynlegt að ná góðum sam-
böndum, virkja atgervi og hugvit
með frjálsum hætti. Þar eiga ís-
lendingar mikið óunnið. Tækni-
aðstoð, fjárhagslegur grunnur og
samvinna ættu að vera auðfengin
hjá stórríkinu í vestri ef rétt er að
farið. Þetta á einnig við um lönd
Vestur-Evrópu og Japan og fleiri
svið viðskipta.
íslendingar eiga mikla orku í
fallvötnum og jarðhita, þess vegna
er nauðsynlegt að vinna með festu
að því einmitt nú, að ná samvinnu
við samstarfsþjóðir íslendinga,
með Bandaríkin í fararbroddi, um
að koma hér upp stóriðnaði er
styrkir annan iðnað. Það er leiðin
til að forða þjóðinni frá því að
lenda niðri á örbirgðarstiginu.
Einar Öra Björnsson er fyrrum
bándi í Mýnesi.
ÖRYGGI
Höfum fyrirliggjandi
á mjög góðu verði
flestar gerðir af
öryggjum frá Sipe,
Portúgal.
nÖTlJIMIMr
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SÍMI. 685656 og 84530
^Apglýsinga-
siminn er 2 24 80