Morgunblaðið - 16.04.1985, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 16.04.1985, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985 Minning: Geir Zoéga forstjóri Fæddur 27. júlí 1896 Dáinn 7. apríl 1985 Með andláti Geirs G. Zoega er höfftingsmaður genginn til feðra sinna. Geir hafði bæði mannafor- ráð ög mikið umleikis um dagana, en ekki kalla ég hann höfðingja af því heldur hinu, að hann var höfð- ingi í sér og það sem kallað hefði verið til forna kurteis maður, en sá maður var góðviljaður og til fyrirmyndar í háttum sínum og umgengni við annað fólk. Nú orðið notum við gjarnan orðið séntil- maður um menn þessarar gerðar og það orð heyrði ég fólk nota um Geir G. Zoega. Ég kynntist nokkuð Geir öldr- uðum, átti við hann spjall um liðna tíð og færðist með honum til þess tíma er uppi voru þeir menn, sem við köllum aldamótamenn, en þeirra kynslóð var sú þróttmesta sem ísland hefur átt. Allar þjóðir eiga sér kynslóðir í aldanna rás misgóðar og misþróttmiklar, einn tími kallar á manndóm umfram annan og skilyrðin til þroska eru einnig misjöfn hjá kynslóðunum, þær ýmist kikna í of mikilli eymd eða linast í velmegun. Aldamótakynslóðin var fyrsta kynslóðin á Islandi allt frá lokun Þjóðveldisaldar, sem hafði nóg að borða til þess að alþýða manna gæti tímgast til mikilla átaka. Tíminn færði aldamótakynslóð- inni gott árferði, frelsi og hug- sjónir án þess að hún tapaði átt- unum, aldamótamennirnir stóðu báðum fótum jafnt í fornum hefð- um og nýjum tíma, en þá vegnar þjóðum bezt, þegar jafnvægi ríkir milli íhaldssemi á fornar dyggðir og vilja til breyttra og betri þjóð- félagshátta. Geir G. Zoega mótaðist af þess- um aldamótahugsunarhætti. Æskuheimili hans var hefðbundið íslenzkt heimili, en þar var einnig ríkjandi mikill framfarahugur, þótt faðir hans væri tekinn að hægja á áer, og allt í kring, nær því í hverju húsi voru menn að reyna krafta sína á nýjum við- fangsefnum í verzlun og útgerð og menntun, en á þessu þrennu hlutu allar framfarir að byggjast. Geir var merkrar ættar og það þykir mér hlýða að tina til nokkra punkta um Zoéga-ættina, en hana má rekja langt aftur í aldir og um mörg lönd. Upphaflega ættarnafn- ið var Zoé, komið úr grísku og merkti fjárhirði. Fyrst fara spurnir af mönnum með þessu ættarnafni á Ítalíu snemma á 17. öld og er þar að finna mann, sem saga fór af og ekki lítil, því að hann rak sverð í gegnum hertog- ann í Genúa, þeir háðu einvígi um stúlku, og varð hann af því að flýja og settist að í Þýzkalandi og þar bættust tveir stafir í nafnið og það varð Zoéga. Margt kunnra manna er í Zoéga-ættinni víða um lönd, en næst okkur er að nefna danska fornleifafræðinginn og listunnandann Georg Jörgen Zoéga. Náfrændi þess merka manns var Zoéga héraðsdómari í Höer í Danmörku, en hans sonur var Jóhannes, sem kom til íslands 1780, sem verzlunarþjónn Kon- ungsverzlunar og var á hennar vegum í Vestmannaeyjum. Jó- hannes bessi kvæntist íslenzkri konu, Astríði Jónsdóttur frá Bakka í Austur-Landeyjum. Þegar komingsverzlun hætti varð Jó- hannes tugtmeistari í Reykjavík og gegndi því starfi til 1793 að hann gerðist verzlunarmaður og bakari og „borgari". Hann átti við konu sinni tvö börn sem komust til fullorðins ára: Magdalenu, sem giftist Hannesi Gissurarsyni Olsen og Jóhannes (f. 1796, d. 1852), sem var að aðalatvinnu sjó- maður en stundaði líka eitthvað verzlun og hefur líklega haft sem hjáverkastarf að skera gler, því að hann var nefndur Jóhannes glerskeri. Kona Jóhannesar glerskera var Ingigerður Ingimundardóttir frá Völlum á Kjalarnesi og voru þau Vallarsystkin mörg og út af þeim nafnkunnir menn. Jóhannes gler- skeri var ekki efnamaður en bjargaðist vel. Hann átti tvö börn framhjá konu sinni, sitt með hvorri stúlkunni, en með því að maðurinn var heiðarlegur gekkst hann við þessum börnum og gaf þeim sitt ættarnafn og var annað þessara barna Einar Zoéga, faðir Helga útgerðamanns og Valgerðar konu Einars Benediktssonar, en hitt barnið var Tómas, faðir Geirs rekstors, sem kunnastur er barna Tómasar en hann átti mörg börn og er margt góðra manna útaf Tómasi. Með konu sinni átti Jó- hannes glerskeri sjö börn, en þrjú þeirra dóu á barnsaldri og tvær dætur þeirra áttu enga afkomend- ur, þær Kristjana, sem giftist Jónasen verzlunarstjóra og Magdalena, sem giftist fyrst dönskum skipstjóra en síðar Helga Helgesen skólastjóra. Eitt barnið var Jóhannes Zoéga, sjó- maður og útvegsbóndi í Nýjabæ, en kona hans var Björg dóttir Þórðar „borgara" Guðmundssonar á Hóli, síðar kenndur við Glasgow, sem var nafnkunnur maður í Reykjavík og ekki síður synir hans, bræður Bjargar. Synir Jó- hannesar í Nýjabæ og Bjargar voru þeir Þórður kaupmaður og Jóhannes smiður í Nýjabæ. Þá er að nefna það barn Ingigerðar og Jóhannesar glerskera, sem fræg- ast varð. Af Geir Jóhannessyni Zoéga er mikil saga, sem flestum er kunn. Hann var brautryðjandi í skútuút- gerð í Reykjavík og þar stærstur skútuútgerðarmanna allt fram til 1908 að hann seldi skútuflota sinn, sjð skútur. Með skútuútgerðinni tók að lifna yfir Reykjavík og í hátíðarræðum var Geir oft nefnd- ur næstur Skúla fógeta sem sá maður, sem stuðlaði mest að vexti Reykjavíkur. Fyrri kona Geirs var Guðrún Sveinsdóttir bónda i Æg- issiðu í Vesturhópi og áttu þau hjón saman eina dóttur bama, Kristjönu, sem giftist Th. Thor- steinssyni, útgerðarmanni og kaupmanni. Geir missti Guðrúnu konu sína 1889 og seinni kona hans var Helga Jónsdóttir Ei- ríkssonar bónda á Stóra-Ármóti í Flóa og átti Geir fimm börn við þeirri konu. Var þeirra elst Hólmfríður, sem giftist frænda sínum Geir Zoéga vegamálastjóra, en hann var sonur Geirs rektors. Þá var Kristjana, sem giftist John Fenger stórkaupmanni og næstur í aldursröðinni var Geir, en yngst Guðrún, sem giftist Magnúsi Joch- umssyni póstmeistara. Eitt barna Geirs J. Zoéga dó í æsku. Geir Geirsson Zoéga fæddist 27. júlí 1896 í Sjóbúð, en svo hét hús Geirs föður hans (síðar Vestur- gata 7, þar sem nú er bílaplan). Svo langt mundi Geir aftur, að hann mundi aldamótakvöldið, að vísu sem stakan atburð af því að faðir hans hafði látið taka ljósker- in af skútunum og hengja á húsið og uppljóma það í tilefni aldamót- anna, en margt var Geir þó ljóst i minni af atburðum og umhverfi strax næstu ár við aldamótin. Reykjavík æsku hans var húsa- þyrpingin, mest verzlunarhús og embættismannasetur, í kvosinni milli Tjarnar og sjávar og Læks- ins og Grjótans og kotbýlin í holt- um í kring, skútur á höfninni, ára- bátar í vörum og fiskur á reitum. Geir átti góða æsku og hún var bundin höfninni og Geirsbryggju. Það var stutt úr Sjóbúð niður að sjó, því að sjór gekk þá hærra en nú er. Geir átti margar minningar frá æsku sinni á sjávarkambinum. Sjö ára gamall var hann nær drukknaður í sjónum við Geirs- bryggju, bjargaðist fyrir þá hend- ingu, að maður einn gekk út úr pakkhúsi ofan við bryggjuna til að kasta af sér vatni og sá þá húfu fljóta við jullu en engan í jullunni og stökk maðurinn i julluna og náði að seilast í strákinn þegar honum skaut upp. Þetta varð til þess, að faðir hans sendi hann inní Sundlaugar að læra þar sund hjá Páli Erlingssyni og það varð aftur til þess að Geir varð mikill sund- garpur og 13 ára gamall bjargaði hann fyrst manni frá drukknun í höfninni, en á sínum yngri árum bjargaði hann fimm sinnum mönnum frá drukknun í Reykja- víkurhöfn einn og þrisvar ásamt öðrum. Það taldi hann sig bezt hafa afrekað á því sviði, þegar hann bjargaði breska flugkappan- um John Grierson frá því að far- ast í höfninni 1933, þegar flugvél hans hvolfdi og var það sögulegur atburður, sem víða hefur verið getið. Geir lauk prófi úr Verzlunar- skólanum 1913 og ætlunin var að hann færi síðan út til Englands, að læra til útgerðar hjá þeim mikla togaraútgerðarmanni Alec Black, en fyrri heimsstyrjöldin skall á í þann mund, sem Geir kom til Englands og landið því lokað útlendingum og Geir varð að snúa heim. Hann vann næstu ár við Geirsverzlun en 1918 hóf hann út- gerð, keypti kútter Hafstein af Duus ásamt Sigurði, síðar kennd- ur við togarann Geir, og móður- bróður sínum Sigurjóni. Þessi út- gerð lukkaðist ágætlega, en henni varð ekki fram haldið nema tvö ár, því að togurum tók um þessar mundir mjög að fjölga og menn fengust ekki lengur á skútur. Þá var það næst að Geir hóf fiskverk- un í Hafnarfirði 1920 og þar var hann búsettur og þar gerðist at- hafnasaga hans næsta hálfan ann- an áratug. Hann keypti fiskverkunarstöð í Hafnarfirði, svonefnda Hadd- ensstöð, og tók að verka fisk af togurum. En þau reyndust mörg- um erfið, eftirstríðsárin, þegar allur kostnaður, sem hækkað hafði á styrjaldarárunum, hélzt áfram hár en verðlag á fiski lækk- aði. Geir tapaði eins og aðrir í út- gerð og fiskverkun á þessum árum og það olli honum einnig skaða, að hann var óvinnufær í heilt ár vegna liðagigtar, lá rúmfastur fyrst hér heima en síðan í sjúkra- húsi í Danmörku. Hann varð að hætta þessum rekstri, en tókst að halda stöðinni og gekk síðar í fé- lag við Loft Bjarnason, sem Geir sagði ágætastan manna, sem hann hefði þekkt og hefði hann þó þekkt margan góðan dreng. Þeim Lofti gekk vel fiskverkunin og útgerðin á línuveiðara, sem þeir keyptu ásamt Ólafi Gíslasyni, fram- kvæmdastjóra Kárafélagsins í Viðey, enda fengu þeir á línuveið- arann frægan fiskimann, Guð- mund Júní. En svo skemmdist þessi línuveiðari í ofsaveðri og þeir félagar leigðu lítinn togara, Sindra, til veiða, en hann var illa fallið skip til línuveiða og varð tap á þeirri útgerð, en allt bjargaðist þetta hjá þeim félögum. Geir tók um þessar mundir að sér fram- kvæmdastjórn og umboðsstarf fyrir Hellyers-útgerðina, sem rek- in var frá Hafnarfirði frá ársbyrj- un 1924 og var Loftur fram- kvæmdastjóri Haddensstöðvar- innar og rak hana með miklum dugnaði og þar voru stundum 100 manns í vinnu þegar mest var að gera á sumrum. Þeir félagar áttu Haddensstöðina til 1940 að þeir seldu hana. Þau sex ár, sem Hellyersbræður gerðu út frá Hafnarfirði, gerðu t Móöir okkar, VIGDÍS RUNÓLFSDÓTTIR, Vallarbraut 17, Akranaai, andaöist föstudaginn 12. april. Bðrnln. t Eiginmaöur minn, ÞORGRÍMUR G. GUOJÓNSSON, Rofabss 29, andaöist i Borgarspitalanum 14. april. Lílja Björnsdóttir. t Móöir min, tengdamóöir og amma, STEINUNN GUDMUNDSDÓTTIR Iré Norðfíröi, Hverfisgötu 35, Reykjsvfk, lést i Landspitalanum 14. april. Erel Stolcenvald. Rudolf Stoicenveld, og barnabörn. t Bróötr okkar, ERLINGUR GUÐMUNDSSON fré Melum, Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, andaöist 13. þ.m. Systkinin. t Útför KRISTJÖNU SIGURDARDÓTTUR, Skúlagötu 60, sem lést á Hrafnístu 9. april, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. april kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á liknarstofnanir. Vandamenn. t Dóttir min og systir, KRISTRÚN JÓHANNSDÓTTIR, Skeljagranda 6, Reykjavlk, lést 13. april. Gróa Þóröardóttir, Hulda Jóhannsdóttir. t Hjartkaer eiginkona min, móöir, tengdamóöir, amma og langamma, KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR, Hraunteig 14, sem lést i Landakotsspitala 12. april veröur jarösungin frá Dómkirkjunni I Reykjavik fimmtudaginn 18. aprll kl. 10.30. Ólafur Hjartarson, Hjördís Ólafsdóttir, Benedikt Ólafsson, Björg Ó. Berndsen, Ólafur H. Ólafsson, Elln Karlsdóttir, bðrn og barnabörn. t Eíginmaöur minn og faöir okkar, TYRFINGUR ÞÓRARINSSON, Ásvegi 10, er látlnn. Léra Þóróardóttir, Þóróur Tyrfingsson, Þórarinn Tyrfingsson, Pétur Tyrfingsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.