Morgunblaðið - 16.04.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985
Framtíð mannkyns í skugga
atómvopna og eiturneyslu
Aldrei hefur mannkyn jarðar
getað lifað ljúfari daga og átt
greiðari brautir til heilla, hjálp-
ar og samstarfs en einmitt nú á
líðandi stund, og skapað sér með
samstarfi sanna hamingju.
Sé vel athugað mætti jafnvel
fullyrða að aldrei hafi mannkyn-
ið staðið nær þvi að geta skapað
guðsriki friðar, frelsis, fagnaðar
og mannréttinda á jörðu en á
siðari hluta þessarar aldar.
Samt eru fréttir af svartasta
hryllingi, sulti, þjáningum,
hungurdauða og hermdarverk-
um meginefni frétta á hverju
kvöldi. Fyrir sjónir svífa á
skjánum endalausar fylkingar
skjögrandi fórnardýra i
mannsmynd, sem ættu þó ekki
að geta orðið til, ef þess væri
gætt i framkvæmd og af fyrir-
hyggju, sem ætti að vera innan
handar að skapa og veita af gæð-
um jarðar, ef valdhafar þjóð-
anna kynnu að leika sitt hlut-
verk i leik lifsins af drengskap,
manngildi og miskunnsemi, að
ekki sé nefnt bróðurhug og heil-
indum.
Með sameiginlegu átaki af
tækni og kærleika beitt, má á
ótrúlega stuttum tíma breyta
eyðimörk í aldingarða og akra
eða flytja fæðu og nauðsynjar
frá allsnægtarsvæðum til hung-
urlanda á nokkrum klukku-
stundum.
Samhliða hungurfréttunum
heyrum við svo um, sjáum, og
eigum sjálf hér á Vesturlöndum
heil smjörfjöll, fleskhallir og
fiskgeymslur, sem valda bæði
vanda og deilum.
Alls staðar að heita má er
svonefnd offramleiðsla hinna
hollustu og beztu matvæla, sem
heimurinn hefur nokkurn tíma
kynnzt.
Sagt er, að aldrei hafi orðið
meiri offramleiðsla af dýrindis
vínum margra milljarða dollara
virði en einmitt síðastliðið ár.
Gæti það verið rétt og drengilegt
að framleiða heil stöðuvötn áf
áfengi, þegar milljónir manna,
kvenna og barna deyja daglega
úr hungri og þorsta, án þess að
þeim sé veitt svo mikið sem
vatnsdropi að drekka. Væri ekki
réttara, viturlegra og mannlegra
að notfæra sér tækni vísinda og
flutningstækja til að framleiða
það, sem gæti veitt líf og heilsu,
vonir og gleði slíkum hópum, og
flytja þeim fæðu og drykk?
Enginn í víðri veröld þyrfti að
svelta, ef af viti og mannúð væri
unnið af þeim, sem völd hafa og
auðlegð allsnægta og úrkosta til
flutninga og framleiðslu. Var
ekki í þess stað, stórt skip hlaðið
af dýrasta wiský — sýnt í höfn
hungurlandsins Eþíópíu
snemma í vetur? Og í mestu
kornræktarlöndum frjósömustu
akurlenda heims, er ræktað
korn, og auk þess flutt inn korn
alla leið frá Ameríku fyrir millj-
ónir dala og níblna til að fram-
leiða vodka og brennivín. Og ein-
mitt þaðan berast nú fréttir,
sem lýsa ótrúlegustu undrum
miðað við andstæðurnar hungur
annars vegar og ofneyzlu hins
vegar.
Vísindalegar athuganir gerðar
í sjálfri Vísinda-akademíu
Sovétríkjanna, hafa nú nýlega
skilað skýrslu um slíka ofneyzlu,
sem birt er eftir franskri frétta-
stofu í sjálfri Moskvuborg og
birt í sænsku blaði, sem ég fæ
hingað.
Þar er brennivínið talin meiri
ógnun við framtíð Sovétríkjanna
en kjarnorkuvopn erlendra stór-
velda. Er þá mikið sagt. Ein enn
af þessum fjarstæðum. Meðan
milljónaþjóðir svelta, eru auðæfi
ríkustu þjóða heims notuð til að
framleiða allar ægilegustu teg-
undir eldflauga og atomvopna,
svo ekki þyrfti nema eina af
milljón slikra flauga til að skapa
heimsendi. Til þess er hægt að
verja milljónum milljarða af
dollurum og rúblum árlega eða
daglega ef svo mætti segja.
En á hinn bóginn er framleitt
áfengi, sem ógnar annarri teg-
und bölvunar og heimsendis,
sem lýst er nú þegar í Rússlandi
með orðum skýrslunnar og
ályktunum Akademíunnar
rússnesku og miklu með eftirfar-
andi orðum:
„Drykkjuskapur siðustu ára er
mesta hörmung rússneskrar
sögu í þúsund ár.“
„Sjötta hvert barn fæðist með
meiri eða minni skemmdir í líf-
færum sínum af völdum áfeng-
is.“
„Fjörutíu milljónir Sovétborg-
ara eru opinberlega skráðir
ofdrykkjumenn og þar af 17
milljónir blátt áfram sjúkl-
ingar.“
„Vodka drepur milljón Sovét-
manna árlega."
„Ríkið aflar mikils fjár í ríkis-
kassann með sölu vodka. Samt er
sá gróði ekki nema fjórði hluti
þeirra útgjalda, sem ríkið verður
að greiða gegn afleiðingum
ofdrykkjunnar á ýmsan hátt.“
„Ríki, þar sem annar hver full-
orðinn maður er alkóhólisti, sem
ekki getur unnið fyrir sér, getur
ekki staðizt, né átt mikla fram-
tíð.“
„Dánarhlutfall fer hækkandi i
Sovétríkjunum.
Árið 1960 var dánartala ung-
barna af hverju þúsund 7,1. Nú
er sú tala 10,4 og hefur hækkað
um 47% prósent á nokkrum ár-
um.“
Samt hafa Sovétríkin sexfald-
an læknafjölda miðað við mann-
fjölda, t.d. i samanburði við Kín-
verja.
Þessi dánartala er þó 50%
hærri í Sovétríkjunum, segja
þessir vísindamenn — Þetta eru
í sannleika umhugsunarverðar
upplýsingar fyrir allar þjóðir
heims.
Eru hvarvetna brjálaðir menn
við stýri á lífsfleytum þjóðanna?
Hér ætti að spyrna fótum við
tvenns konar kjarnorku: Atoms
og alkóhóls, að ógleymdum öllum
fíknilyfjum, sem ríku þjóðirnar
gleypa nú stöðugt úr stærri gám-
um.
Hvernig er það annars vestan
Atlantsála með vínneyzlu og
framleiðslu þess?
Sagt er síðast að Sovétspek-
ingar hafi fyrir einum áratug
ætlað að bæta úr böli sterkra
vína með % 6.áfengum bjór!!
Þó geta vísindin lýst þessu
svona eftir áratugs reynslu.
Sannarlega ættu því allar
þjóðir heims, að gæta vöku sinn-
ar gagnvart voða og dauða-
skuggum atomvopna og eitur-
neyzlu.
Við þráum öll þrátt fyrir allt
ljóma mannréttinda, friðar og
gleði, Guðs í góðum heimi.
Reykjavík, 21. febr. 1985.
+ Elsku litla dóttir okkar og systir, SIGURRÓS ÞORSTEINSOÓTTIR, lést 28. mars í sjúkrahúsi i London. Jaröarförin hefur fariö fram i kyrrþey. Þökkum auösýnda samúö og hlýhug. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks barnaspitala Hringsins fyrir ómetanlega að- stoö i veikindum hennar. + MARGRÉT SVEINSDÓTTIR lést i Hátúni 10B 7. april. Jaröarförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug. Ragnar Finnsson, dætur, makar og barnabörn.
Kolbrún Héöinsdóttir, Þorsteinn Sigurösson, Signý Rós Þorsteinsdóttir.
4-
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, TRYGGVI ÓLAFSSON málarameistari fró Garóshúsum, Vestmannaeyjum, Reynigrund 73, Kópavogi, Jaröarför ELÍSABETAR JÓNSDÓTTUR, Miöbraut 30, Seltjarnarnesi, fer fram miövikudaginn 17. aprll kl. 15.00. Systkini og aörir vandamenn.
13.30. Þórhildur Stefánsdóttir, Ólafur, Stafán og Sævar Tryggvasynir. +
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi.
+ Móöir okkar, MAGNEA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Marargötu 6, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. april kl. 13.30. Helga Hafsteinsdóttir, Jón B. Hafsteinsson, Gunnar 1. Hafsteinsson, SIGURGEIR SIGFÚSSON, fyrrverandi leigubílstjóri, Langholtsvegí 58, veröur jarösunginn frá Áskirkju miövikudaginn 17. apríl kl. 13.30. Þeir sem vildu mínnast hans vinsamlega láti Styrktarfélag vangefinna njóta þess. Hlff Gestsdóttfr, Gestur Sigurgeírsson, Svala Ingimundardóttir, Gunnar Sigurgeirsson, Sigrún Jónsdóttir, Vilhjálmur Sigurgeirsson, Sigrún Guömundsdóttir, Raymond La Croix, og barnabörn.
naii iieinn naisveinsson.
-1 Lokað
Eiginmaöur minn og faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON frá Snsebjarnarstöóum I Fnjóskadal, Dalbraut 27, Reykjavfk, Lokaö veröur i dag, þriðjudaginn 16. april, frá kl. 14.30—16.30 vegna jaröarfarar. Verslunin Yrsa, Skólavöröustlg 13.
sem lést i Landspitalanum laugardaginn 6. april sl. veröur jarö- sunginn frá Dómkirkjunni 1 Reykjavík fimmtudaginn 18. april kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Landspitalann og Krabbameinsfélag islands.
Lokað í dag
Magnúsfna Kristinsdóttir, Hólmfrföur G. Jónsdóttir, Ingvi S. Ingvarsson, Brynleifur Jónsson, Sigurbjörg Guömundsdóttir, Síguröur K. Jónsson, Selma Jóhannesdóttir, Helgi Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. frá kl. 14.00—17.00 vegna jaröarfarar HILMARS G. HILMARSSONAR. Videóturninn, Melhaga 2.
Bandalag jafnaðarmanna
bflafríðindi bankaxtjóra:
Verknaður
sem kerfið
samþykkti
EFTIRFARANDI fréttatilkynning hef-
ur borist Mbl.:
Af gefnu tilefni vill þingflokkur
Bandalags jafnaðarmanna taka
fram eftirfarandi.
1. Staðreynd er að bílafriðindum
bankastjóra var á sínuin tíma komið
á að frumkvæði Alþýðuflokksins
með stuðningi hinna gömlu flokk-
anna.
2. Staðreynd er að núverandi breyt-
ing á kjörum bankastjóra er ekki
launahækkun heldur formbreyting
á greiðslum sem lengi hafa tíðkast
ómótmælt af þeim flokkum og full-
trúum sem sæti eiga í bankaráðum
ríkisbankanna.
3. Staðreynd er að þeir menn sem
fjórflokkarnir treystu best til að
gæta hagsmuna alþjóðar í bönkun-
um hlýddu ekki samþykkt Alþingis
um afnám bílafríðinda bankastjóra.
Fjórflokkarnir bera ábyrgð á þess-
um mönnum og gerðum þeirra.
Ennfremur má benda á eftirfar-
andi:
1. Gömlu flokkarnir gerðu engar at-
hugasemdir við þessi fríðindi
bankastjóranna fyrr en fjölmiðlar
uppljóstruðu um málið.
2. Tillögur um að ákveða laun
bankastjóra í kjaradómi eru tillögur
aðila, sem eru hræddir við ábyrgð.
3. Það er ódrengilegt að benda á þá
menn sem í bankaráðunum sitja
sem sökudólga fyrir verknað sem
kerfið samþykkti þar til almenning-
ur fordæmdi verknaðinn.
Hér nægir ekki að skipta um
menn heldur þarf að afnema sam-
tryggingu og spillta bitlingastjórn
fjórflokkanna.
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiöill!