Morgunblaðið - 16.04.1985, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985
ffclk í
fréttum
Þegar konunum
vegnar betur ...
að er alkunna, að ef konu vegn-
ar betur á framabrautinni en
eiginmanninum, getur það haft
slæmar afleiðingar fyrir hjónaband-
ið, eða sambandið ef um óvígða sam-
búð er að ræða. Það er auðvitað all-
ur gangur á þessu, en mörgum þykir
sem það sé algengara en hitt, að
vandamál komi í kjölfarið á betri
frammistöðu eiginkonunnar, eða að
hún hafi meiri tekjur. Lítum á nokk-
ur dæmi úr heimi kvikmynda- og
sjónvarpsleikara.
Sarah Douglas, sem hefur gert
garðinn frægan í Falcon Crest er
ein af þessum konum sem við ger-
um hér að umræðuefni. Meðan
hún býr í lúxusvillu í Hollywood
með roktekjur, býr eiginmaður
hennar Richard Parmentier hinu
megin Atlantsála í Stratford up
on Avon, heimabæ þeirra beggja í
Englandi. Stoltið hamlar því að
hann flytji vestur um haf og deili
lífi sínu með Söru meðan hún ger-
ir það gott, en hann hamist áfram
í meðalmennskunni. Richard er
bæði leikari og rithöfundur. En
þau eru ekki í skinaðarhugleiðing-
um þótt vandamálið sé erfitt við-
ureignar og raunar óleysanlegt
meðan karlmannsstolt Richards
þolir ekki velgengni Söru. Þau
heimsækja hvort annað eins
reglulega og frekast er kostur og
tala saman i sima daglega. Þetta
ástand hefur varað í tvö ár og það
sér ekki fyrir endann. Sara var
gestur í sjónvarpsþætti kjafta-
kvendisins Joan Rivers fyrir
nokkru og gerði mikla lukku þar
sem hún stakk laglega upp í orð-
hákinn Joan. Joan spurði og gaf
ótvírætt nokkuð í skyn, hvort það
hefði einhverja kosti að hafa eig-
inmanninn í Englandi. Sara var
fljót ,að stinga snuði upp í Joan og
svaraði: „Það er ódýrasta getnað-
• • •
Goldie með fyrri manni sínum.
Sarah Douglas og Richard
arvörn sem ég þekki.“ Allir skelli-
hlógu. Nema Joan. Án gríns, þá
segjast þau elska hvort annað afar
heitt og Sara fullyrðir að hún
myndi með gleði afhenda Richard
alla frægð sína og frama, láta
sviðsljósið eftir eiginmanni sínum
ef það gæti orðið til þess að þau
gætu verið saman á ný. „Mér
gengur vel í starfi og er auðvitað
hamingjusöm með það. En í einka-
lífinu er ég óhamingjusöm, það
gerir frægðin," segir Sara.
Vinkona okkar Joan Collins var
gift Ron Cass er leikferi 11 hennar
náði uppsveiflu með þátttöku í
Dynasty eftir nokkur mögur ár.
Cass var og er velmegandi
hljómplötu- og kvikmyndafram-
leiðandi, en þau giftust 1972. Er
Joan náði smám saman sinni
mestu frægð, nálgaðist toppinn á
ferli sínum, fór frægðarinnar
mjög að gæta í einkalífinu, það
var sagt að Alexis Carrington
Colby boraði sér eins og ánamaðk-
ur inn í hjónabandið og það vita
þeir sem til þekkja, að Alexis þessi
er allt annað en geðþekk og ljúf
eins og hugur manns, því fór
hjónabandið í vaskinn. Kannski er
STEINAR BERG ÍSLEIFSSON
„Alþjóðleg verðlaun fyrir
góðan árangur með Mezzoforte“
Steinar Berg ísleifsson tók í
mars sl. við alþjóðlegum
verðlaunum „International
Trophy for Quality" á Melia
Castilla-hótelinu í Madrid á
Spáni.
Þessi verðlaun hlaut fyrirtækið
Steinar hf. fyrir árangur þann
sem fyrirtækið hefur náð í að
koma íslenskri tónlist á framfæri
erlendis og er þar átt sérstaklega
við árangurinn með hljómsveitina
Mezzoforte.
Er þetta í 13. skipti sem verð-
launin eru veitt og voru það
„Trade Leaders Club“ sem eru al-
þjóðleg samtök manna og fyrir-
tækja úr viðskiptaheiminum er
veittu þau.
Þess má þá geta að um þessar
mundir eru þeir félagar í Mezzo-
forte í hljómleikaferðalagi um
Þýskaland, Austurríki, Holland,
Belgíu og Frakkland og eftir því
sem blm. veit best, léku þeir í gær
í Hannover.
Þegar þessari hljómleikaferð
lýkur mun Mezzoforte hljóðrita
nýja tveggja laga plötu. A forhlið
hennar verður lagið hans Friðriks
Karlssonar „This Is the Night“ og
mun Weston Foster sem leggur nú
hljómsveitinni lið, syngja í því
lagi.
Þetta var 113. skipti sem verðlaunin voru veitt.
COSPER
— Við erum sýnilega umkringdir.