Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.04.1985, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1985 Reykdælir sýna Blómarósir K leppjárn.sreykjum í aprfl. EITT AF umfangsmestu verkefnum Umf. Reykdsela er leikstarfsemi. Óhætt er að fullyrða að þar hafi flestir félagar lagt félaginu lið og fengið trúlega skemmtun við að spreyta sig á hinum ýmsu verkefnum, hvort það er að leika á sviði eða stjóma að tjaldabaki. í fundargerð frá 8. marz 1914 segir svo: „Til þess að gera félagslífið sem fjölbreyttast og skemmtileg- ast væri tilvalið að brydda upp á þeirri nýjung að sýna sjónleik." Ekki varð þetta þó að veruleika fyrr en 1915 eða 1916, en þá var sjónleikurinn „Sýslu- fundurinn" settur upp. Gunnlaugur Briem lék sýslu- manninn en aðrir leikarar voru m.a. Guðmundur Bjarnason, Guðmundur Illugason, Helgi Sigurðsson, Kristófer Guðbrandsson og Þorsteinn Kristleifsson. Á tíu ára afmæli félagsins árið 1918 var sýndur þáttur úr Skugga-Sveini. Þá var leikið úti, uppi við kletta fyrir ofan félagsheimilið. Eftir þetta eru sjón- leikir nokkuð reglulegir í starfsemi félagsins og alls Málin rædd í matartímanum. hafa líklega verið sýnd 45—50 leikrit og leikþættir. Flestar hafa sýningar orðið á Skugga-Sveini árið 1966 eða 14 talsins, en flestir gestir komu á Gullna hliðið árið 1971, tæplega 2 þúsund manns. Nú um páskana var leikritið „Blómarósir" eftir ólaf Hauk Símonarson frumsýnt. Leikstjóri er Bjarni Steingrímsson, sem hefur þrívegis áður leikstýrt hjá Umf. Reykdæla. Ekki er að efa að Blómarósir verða enn eitt „meistarastykkið" hjá fé- laginu. Gömlu kempurnar, sem eiga einna lengstan leikferil með félaginu, t.d. Andrés í Deildartungu, Halldóra í Reykholti, Hrafnhildur á Bergi, Steinunn á Grímsstöðum, Ármann á Kjalvarsstöðum og Þorsteinn á Hömrum eru öll enn á ný mætt til leiks ásamt átta öðrum leikurum. Sigurður á Kirkjubóli annast undirleik eins og hann hefur áður gert. — Bernhard Frá sýningu Umf. Keykdæla á Blómarósum. Vorhugur í Reykholtsdal Kleppjárnsreykjum, 7. aprfl. ER VORIÐ að koma? Þessi spurn- ing vaknar hjá okkur þegar hitastig- ið mælist í tveggja stafa tölu. En það er fleira sem minnir á vorkomuna. Að undanförnu hefur rnikið ver- ið brennt af sinu hér um slóðir og lyktin og reykurinn minna á vorið. Álftir hafa sést á flugi með mikl- um lúðraþyt á leið til sumarheim- kynna sinna á Arnarvatnsheiði. Fyrr á öldinni hefur sennilega verið enn þá meira álftavarp á heiðinni því að álftafjaðratínsla þótti töluverð hlunnindi fyrir Reykholtskirkju, en hún átti ein rétt á fjaðratínslunni á Arnar- vatnsheiði. Hestamennska hefur alltaf ver- ið í hávegum höfð í Reykholtsdal og er algengt að menn séu með 5—10 hesta á húsi. Þegar veðrið sýnir sínar beztu hliðar er ekki legið á liði sínu að bregða sér á bak og sýna gæðinga sína og sjá aðra. Um langa helgi eins og páskahelgina koma brottfluttir í sveitina og fá að sjálfsögðu að fara á bak. Lítill klaki er í jörðu hér og geta vorverkin byrjað fyrr en venju- lega. Þá er það von allra að sum- arið verði ekki eins votviðrasamt eins og í fyrra. — Bernhard. Gestum er gjarnan boðið á bak á gæðingum. Skemmdir á veginum til Flatevrar Flateyri, 2. aprfl. NÝ AÐKEYRSLA var lögð til Flateyrar síðla sumars 1984 og liggur að nokkru leyti í sjávar- kantinum. Ekki hafði verið gengið frá grjótvörn á þeirri hlið, sem snýr að firðinum og hefur því vindbára brotið úr veginum. Mest- ar urðu skemmdirnar í miklu roki er geysaði nú fyrir nokkru og hef- ur vegurinn mjókkað verulega á kafla. Þá urðu einnig skemmdir á varnargarði þeim sem gerður -hafði verið fyrir smábátahöfn. — BIH. Homíirskir hestamenn í hópreið á Fomustekkum Langþráð mótaskrá hestamanna tilbúin Hestar Valdimar Kristinsson Eftir langa bið hefur nú litið dagsins Ijós mótaskrá Landssambands hestamannafélaga og virðist sem sífellt erfiðara sé að koma þessari skrá saman vegna sífelldrar fjölgunar hestamóta. Erfiðlega gekk að finna íslandsmótinu stað og virðist sem það sé oft á tíðum hornreka við gerð mótaskránna. Hápunktur í mótahaldi sumarsins er án efa Fjórðungsmótið sem haldið verður í Reykjavík og svo Evrópumótið sem haldið verður í Alingsás í Svíþjóð dagana 16.—18. ágúst. En mótaskráin er sem hér segir: APRÍU 6.- 8. Léttir íþróttamót Akureyri 20. Hörður íþróttamót v/Varmá 25. Fákur Firmakeppni Víðivöllum 25. Geysir Firmakeppni Hellu 25. Kópur Firmakeppni Kirkjubcjarklaustri 26.-28. Fákur íþróttamót Víðivöllum 27. Faxi Firmakeppni Borgarnesi MAÍ: 1. Smári Firmakeppni Flúðum 4. Fákur Hlégarðsreið Mosfellssveit 4.— 5. Gustur íþróttamót v/Arnarneslck 4. Geysir íþróttamót Rangárbökkum 4. Sleipnir Firmakeppni Selfossi 11. Geysir Firmakeppni Hvolsvelli 11. Sleipnir íþróttakeppni Selfossi 11.—12. Gustur Gcðingakeppni og kappr. v/Arnarneslck 12. Smári íþrótlakeppni Kálfárbökkum, Gnúpv.h. 16. Hörður Firmakeppni v/Leirvog 16.—18. Léttir íþróttamót Akureyri 18. Andvari Gcðingakeppni v/Kjóavelli 19. Ljúfur Firmakeppni Keykjakoti 19. Máni íþróttamót Mánagrund 18.—19. Gu.stur Gcðingakeppni og kappr. v/Arnarneslck 24.-27. Fákur Hvítasunnukappreiðar V íðivöllum 25. Dreyri íþróttamót Æðarodda, Akranesi 26. Blcr Firmakeppni Norðflrði 27. Léttir Gcðingakeppni og kappreiðar Akureyri JÚNÍ: 1. Sýning stóðhestastöðvar BI Gunnarsholti 1. Funi Afmclishátið Hrafnagili 1.— 2. Sörli Gcðingakeppni, kappr. v/Káldársel 2. Hörður íþróttamót v/Leirvog 7.— 8. Héraðssýning Eyfirðinga o.fl., Melgerðwmelum 8. Goði Gcðingakeppni og kappr. Fáskrúðsfirði 8. Hringur íþróttamót Dalvík 8.— 9. Suðurlandsmót í hestaíþróttum, Selfossi 8.— 9. Svaði Gcðingakeppni og kappr. llvannkotseyri, Hofsósi 8.- 9. Máni Hestaþing Mánagrund 14.—15. Héraðssýning Skagfirðinga Vindheimamelum 15.-16. Geysir Gcðingakeppni og kappr. (iaddstaðaflöt 15.—16. íslandsmót í hestaíþróttum (>addstaðaf1öt 15.-16. Hornf. Gcðingakeppni og kappr. Fornustekkum 21.-22. Héraðssýning Húnvetninga Húnavatnssýslu 21.—22. hjálfí og Grani (■cðingakeppni og kappr. v/Einarsstaði 22. Sindri (■cðingakeppni og kappr. v/Pétureey 22. Hörður Gcðingakeppni og kappr. Arnarhamri 22.-23. Háfeti og Ljúfur Gcðingakeppni og kappr. Faxaholti Þorlákshöfn 22.-23. Dreyri Gcðingakeppni og kappr. ölveri 22.-23. Freyfaxi Gcðingakeppni og kappr. Iðavöllum 27.-30. Fjórðungsmót sunnlendinga Víðivöllum, Kvk. JÚLÍ: 5.- 6. Kvrópumótsúrtaka Víðivöllum 6. Kópur Gcðingakeppni og kappr. Sólvöllum 6. Glaður Gcðingakeppni og kappr. Nesodda 6.- 7. Neisti, Óðinn Gcðingkeppni og kappr. 12.-13. Stormur Gcðingakeppni og kappr. Söndum, Dýrafirði 13. Blakkur/ Kinnskcr Gcðingakeppni og kappr. Heiðabcjarmelum 13.-14. (■nýfari o.fl. Vináttumót Ólafsfirði 13.—14. Faxi Gcðingakeppni og kappr. Faxaborg JÚLÍ: 13.-14. Íslandsmót í hestaíþróttum Hellu 13.-14. llringur Gcðingakeppni og kappr. Flötutungum 13.—14. l»ytur Gcðingakeppni og kappr. Króksstaðamelum 20.-21. Sleipnir/ Smári Gcðingakeppni og kappr. Murneyri 20.-21. Glcsir Gcðingakeppni og kappr. Siglufirði 20.—21. Fákur íþróttamót Víðivöllum 20.-21. Deildarmót norðlenskra íþr.deilda Dalvík 27. Sncfellingur Gcðingakeppni og kappr. Kaldármelum 27.-28. Funi, Léttir, l>ráinn Stórmót Melgerðismelum ÁGÚST: 3.- 4. Hestamót Skagfirðinga V indheimamelum 4. Lo((i Gcðingakeppni og kappr. v/Hrísholt 17. Bber Gcðingakeppni og kappr. Kirkjubólseyrum 17.-18. Gnýfari Gcðingakeppni og kappr. ólafsfirði 18. Trausti Gcðingakeppni og kappr. Laugardalsvöllum 24. hráinn Gcðingakeppni og kappr. Grenivík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.