Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 2
MORGUNBLAEHÐ, FIMMTUDAGUS18. APRÍL1985
Útgerdarfélag Hafnfirðinga hf.:
Almenn
hlutafjár-
söfnun að
hefjast
ALMENN hlutafjársöfnun er nú að
hefjast til hins nýja almennings-
hlutafélags, „Útgerdarfélags Hafn-
firðinga hf.“, sem áformað er að taki
við rekstri Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar. Áætlað er að hlutafé verði 70
milljónir króna og er það, ásamt
skuldbreytingum lána og viðgerðum
á skipum útgerðarinnar talin for-
senda þess, að útgerðin geti hafið
starfsemi að nýju.
Að sögn Einars Inga Halldórs-
sonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði,
hefur að undanförnu verið unnið
að því að fá lánum hjá opinberum
sjóðum, verkalýðsfélögum og öðr-
um kröfuhöfum skuldbreytt til
lengri tíma og að semja um
greiðslur á viðskiptaskuldum Bæj-
arútgerðarinnar. Einar Ingi sagði
ennfremur, að kostnaður við við-
gerðir á skipum útgerðarinnar
væri áætlaður um 30 milljónir
króna og í ráði væri að selja eitt
þeirra, b/v Júní, og stæðu nú yfir
viðræður við þá aðila sem sýnt
hefðu áhuga á að kaupa skipið.
„Þessar aðgerðir eru forsenda
þess, að hægt verði að hefja útgerð
og fiskvinnslu hjá fyrirtækinu á
ný,“ sagði Einar Ingi Halldórsson
í samtali við blaðamann Mbl.
„Vandamál bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar leysast ekki með þvi að
hefja rekstur nú við óbreyttar að-
stæður. Aðalatriðið er að tryggja
rekstrargrundvöll útgerðarinnar
þannig, að fyrirtækið geti veitt
þeim, sem hjá þvi starfa, örugga
atvinnu."
Sjá viótal við Einar Inga Hall-
dórsson á mióopnu.
Mál Hjartar Pálssonan
íí
„Geri ráð
fyrir skýrslu
— segir mennta-
málaráðherra
„ÉG GERI ráó fyrir aó skýrsla
um málið liggi fyrir á fundinum,**
sagði Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráóherra, er hún var
spuró, hvort hún myndi taka mál
Hjartar Pálssonar og uppsögn
hans sem forstjóra við Norræna
húsið í Færeyjum til meðferðar á
fundi menntamálaráðherra
Norðurlanda.
Fundur menntamálaráð-
herranna verður haldinn i lok
maimánaðar að sögn Ragn-
hildar. Aðspurð um hennar
skoðun á málinu sagði hún:
„Ráðning forstjóra er alfarið í
höndum stjórnar hússins."
Morgunbladid/Bjarni
Hluti barnanna sem sendu borgarstjóra mótmælabréf gegn því að byggt verði einbýlishús á leiksvæðinu við Heiðargerði.
Börnin mótmæltu
skerðingu leiksvæðisins
BORGARSTJÓRI, Davfð Oddsson, fékk óvenjulega heimsókn á skrif-
stofu sína í gærmorgun. Þar voru á ferðinni fimm stúlkur úr Hvassaleit-
isskóla sem vildu mótmæla fyrirhugaðri byggingu einbýlishúss á leik-
svæðinu við Heiðargerði. Afhentu stúlkurnar borgarstjóra mótmælabréf,
undirritað af 52 börnum sem öll eru búsett í Heiðargerði.
Blaðamaður spjallaði litillega því skiljanlegt að við viljum ekki
við börnin síðla dags í gær þar
sem þau voru að leik á leikvellin-
um. Kváðust þau hafa frétt af
fyrirhuguðum framkvæmdum
fyrir stuttu og ákveðið að við svo
yrði ekki búið. „Þetta er eini
leikvöllurinn í okkar hverfi og
missa hann,“ sögðu þau. „Borg-
arstjóri sagði að ætlunin væri að
halda eftir skika af leikvellinum
fyrir aftan íbúðarhúsið sem þar
á að byggja. Við höldum þó að
það verði of lítið svæði til þess
að hægt verði að leika sér þar.
Því viljum við halda leikvellin-
um og ekki sakaði ef leikað-
staðan yrði bætt. Tækin hér eru
örfá og annað hvort biluð eða
ónýt.“
Sögðu börnin jafnframt að
borgarstjóri hefði í hyggju að
heimsækja þau á leikvöllinn og
kanna aðstæður. Kváðust þau
vongóð um að borgaryfirvöld
myndu taka mótmæli þeirra til
greina og ennfremur að komið
yrði upp nýjum leiktækjum
handa þeim.
Davíð Oddsson sagði í samtali
við blm. að fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á leiksvæðinu væru í
tengslum við úthlutun á því
vegna erfðafestuuppgjörs gam-
als máls. Tók hann það skýrt
fram að stærsti hluti lóðarinnar
yrði áfram leikvöllur. Málið
verður til athugunar hjá borgar-
stjórn í dag og sagði Davíð að þá
yrði kannað hvort ábendingar
barnanna væru réttmætar.
Framleiðsluráðsfrumvarpið:
Búist við samþykkt
Stéttarsambandsins
í GÆR var haldinn aukafulltrúa-
fundur Stéttarsambands bænda í
Bændahöllinni í Reykjavík. Aðal-
Samningaviðræðumar á ísafirði:
„Ljón í veginum“
— sagði Pétur Sigurðsson seint í gærkvöldi
SAMNINGAFIJNDUR ríkissáttasemjara með Alþýðusambandi Vestljarða,
Sjómannafélagi ísafjarðar og viðsemjendum stóð yfir í allan gærdag og stóð
enn yfir seint í gærkvöldi. Var þá reiknað með að fundi yrði fram haidið fram
eftir nóttu.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
formanns Alþýðusambands Vest-
fjarða, voru skiptar skoðanir
framan af kvöldi í gær, hvort
halda ætti samningaviðræðum
áfram fram eftir nóttu, en hann
reiknaði með að reynt yrði að
halda áfram. Aðspurður um stöðu
mála sagði hann: „Þaö er ljón i
veginum og við skulum segja að
við séum að reyna að milda það.“
mál fundarins voru fjárhagsstaða
bænda og ný lagafrumvörp um
framleiðsluráð og búnaðarsjóð
sem samin hafa verið á vegum
stjórnvalda. Fundinum var ekki
lokið þegar Mbl. fór í prentun í
gærkvöldi, en búist var við að
fundurinn samþykkti framleiðslu-
ráðslagafrumvarpið með ákveðn-
um athugasemdum við það í heild
og einstakar greinar þess.
Samkomulag var í laganefnd-
inni sem fjallaði um málið í gær
um þessa afgreiðslu og að kjósa
nefnd til að fylgja breytingar-
tillögunum eftir við þá sem
sömdu frumvarpið og Alþingi.
Fundurinn hófst í gærmorgun
með ítarlegri skýrslu formanns
Stéttarsambandsins, Inga
Tryggvasonar. Fjallaði hann um
framleiðslu- og sölumál. sagði
frá erfiðri stöðu bænda og sagði
frá helstu breytingum við laga-
frumvörpin. Má segja að Ingi
hafi gefið þingfulltrúum tóninn
í gagnrýni á frumvarpið. Jón
Helgason, landbúnaðarráð-
herra, ávarpaði fundinn. Hann
gerði fjárhagsstöðu bænda að
umræðuefni og skýrði frá því
sem unnið hefði verið að á því
sviði í ráðuneytinu. Gaf hann í
skyn að til greina gæti komið í
einsaka tilvikum að ríkið keypti
jarðir bænda til að tryggja
byggð á jaðarsvæðum. Hann
fjallaði einnig um frumvörpin
um framleiðsluráð og búnað-
arsjóð.
i almennum umræðunum eft-
ir ræður Inga og Jóns gafst
þingfulltrúum kostur á að koma
með stutt álit og athugasemdir
við ræður þeirra. Einkum var
gagnrýnt hvað þingfulltrúum
gæfist lítill tími til að fjalla um
frumvarpið, hversu mikil völd
væru flutt frá Framleiðsluráði
til landbúnaðarráðuneytis og að
frumvarpið væri „laust í reipun-
um .
Sjá nánar frétt á miðsíðu.
•0
INNLENT