Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985
21
Steindur gluggi í
Hveragerðiskirkju
HvwiivorAi 7 vnríl
HTeragerði 7. aprfl.
FÁNAR blöktu vió hún í Hverageröi sunnudaginn 24. mars sl. í því tilefni að
vígóur var steindur gluggi í Hveragerðiskirkju. Glugginn, sem er hið fegursta
listaverk, er 1,6 m á breidd og 13 metrar á hæð, var unninn í Þýskalandi, úr
orgenal antik opak gleri. Gerður eftir teikningum frú Höllu Haraldsdóttur
myndlistarmanns.
Athöfnin í kirkjunni var mjög
hátíðleg og hvert sæti setið. Guðs-
þjónustuna annaðist sóknarprest-
urinn, séra Tómas Guðmundsson,
kirkjukór Hveragerðis og Kot-
strandarsókna söng og organleik-
ari var Róbert Darling. Böm lásu
ritningargreinar með mikilli
prýði.
Að lokinni messugjörð tók for-
maður sóknarnefndar, Guðmund-
ur Ingvarsson, til máls og fer ræða
hans hér á eftir:
Um áramótin 1983—1984 var
samþykkt — í sóknarnefnd Hvera-
gerðiskirkju að stofna gluggasjóð,
þ.e. sjóð sem kostaði gerð steindra
glugga í kór kirkjunnar.
Jafnframt var ákveðið að fjár-
mögnun glugganna yrði með gjöf-
um, áheitum og fjáröflun, en sókn-
argjöld rynnu ekki í sjóðinn.
Sem vísir að stofni gluggasjóðs
var gjöf sem Heilsuhæli NLFI gaf
um það leyti sem kirkjan var vígð,
árið 1972, að upphæð kr. 500.000,00
gamlar krónur, er þetta fé var
ávaxtað í rikisskuldabréfum.
Á miðjum vetri 1984 lágu fyrir
fjórar tillögur að gerð glugga, að
undangenginni skoðanakönnun
innan safnaðararins var mynd sú
sem hér blasir við valin.
Tillöguna átti listakonan Halla
Haraldsdóttir, en hún hafði um
nokkurt skeið starfað á hinu
þekkta glergerðarverkstæði Oidt-
mann-bræðra i Þýskalandi og
tryggði að myndin yrði unnin þar.
Eftir að teikningarnar og aðrar
upplýsingar höfðu verið sendar til
Oidtmann-bræðra, þá gáfu þeir
upp ákveðið kostnaðarverð, 22.000
þýsk mörk. Halla fór síðan til
Þýskalands í sept. sl og dvaldi þar
nær 5 vikna tíma við gerð mynd-
arinnar.
Árangurinn af starfi hennar og
Oidtmann-bræðra sjáum við í dag.
Sóknarnefnd gerði kostnaðar-
áætlun um gerð myndarinnar og
var reiknað með að kostnaður yrði
um 600.000,00 krónur en þá var
vitað um fasta kostnaðarliði sem
fylgja gerð slíkrar myndar, sem
við þyrftum ekki að greiða, þessi
áætlun okkar virðist ætla að
standast, jafnvel að kostnaður
verði eitthvað undir áætlun.
Eins og áður var sagt var stofn-
inn að gluggasjóð gjöf frá Heilsu-
hæli NLFI. þegar ríkisskuldabréf-
in, sem gjöfin var ávöxtuð í, voru
leyst út, þá var sú upphæð 60—
70.000,00 kr.
Þá hafa runnið í gluggasjóð
tekjur af spilakvöldum, bingói,
hlutaveltu og jólakortasölu o.fl.
Þess ber að geta að við höfum
fengið góðan stuðning frá ýmsum
aðilum við framkvæmd og fjáröfl-
un vegna þessa verks.
Ég nefni Kvenfélag Hveragerð-
is, sem um árabil hefur staðið
fyrir jólakertasölu og aðstoð við
fjáröflun!
Ég nefni listamanninn Einar
Markússon píanóleikara, sem hélt
frábæra hljómleika hér og gaf all-
an inngangseyrinn í gluggasjóð.
Ég nefni Gísla Sigurbjörnsson
forstjóra sem alla tíð hefur stutt
þessa kirkju með fjárframlögum
og öðrum gjöfum, nú síðast fyrir
nokkrum dögum afhenti Gísli
okkur ávísun að upphæð kr.
50.000,00 í gluggasjóð.
Þá hefur Hafsteinn Kristinsson
framkvæmdastjóri Kjöríss veitt
okkur mikla og ómetanlega að-
stoð, nú síðast þegar bílar Kjöríss
fluttu alla vinnupalla vegna upp-
setningarinnar og gluggana sjálfa
hingað austur, þá önnuðust starfs-
menn á skrifstofu Kjöríss í
Reykjavík útfyllingu á tollskjölum
og sáu um alla vinnu við að fá
glerið afhent.
Eimskipafélag íslands gaf
kirkjunni flutningsgjöld frá Ham-
borg til Reykjavíkur.
Eins og áður er sagt voru glugg-
arnir settir saman á glergerðar-
verkstæði Oidmann-bræðra í
Þýskalandi (Linnich).
Annar Oidtmann-bræðra kom
hingað til lands um síðustu helgi,
uppsetning hófst sl. mánudag og
var lokið á þrem dögum. Tveir
trésmiðir, Ásgeir Jónsson og Sig-
urgeir Bóasson, voru dr. Oidtmann
til aðstoðar við uppsetningu.
Fyrir hönd safnaðar Hveragerð-
iskirkju vil ég flytja öllum þeim
sem veitt hafa okkur aðstoð á einn
eða annan hátt bestu þakkir.
Þess bar að geta, að það hefur
verið sama hvert við höfum leitað,
innan plássins eða utan, allir hafa
verið boðnir og búnir til að að-
stoða við að leysa okkar vanda-
mál.
Eins og áður sagði kom dr. Frits
Oidtmann hingað tii að sjá um
uppsetningu glugganna.
Glergerðarverkstæði Oidtmann-
bræðra er elsta verkstæði sinnar
tegundar í Þýskalandi, það er virt
og þekkt um allan heim fyrir sína
vinnu, þeir hafa m.a séð um gerð
glugga í 20 kirkjur og aðrar stofn-
anir á íslandi, þess má geta að
verkstæðið sá um stækkun og upp-
setningu á stóru mósaíkmyndinni
sem Gerður Helgadóttir gerði og
prýðir vegg Tollstöðvarhússins í
Reykjavík.
Állir samningar sem við höfum
gert við þetta fyrirtæki voru
munnlegir, öll þeirra loforð hafa
staðið eins og stafur á bók.
Til minningar um dvölina hér
viljum við færa dr. Oidtmann gjöf,
er það bók um einn mesta lista-
mann sem Ísland hefur átt, Einar
Jónsson.
Kærar þakkir fyrir vel unnið
verk og góða samvinnu, ég vona að
dvölin hér í Hveragerði hafi verið
ánægjuleg.
Áður sagði að höfundur þessa
listaverks sem kirkjunni var helg-
að hér í dag er listakonan Halla
Haraldsdóttir.
Samvinna sóknarnefndar við
Höllu hefur verið mjög ánægjuleg.
Einn er sá þáttur í sambandi við
gerð og vinnu við þessa glugga
sem enn er ógetið og hann er sá,
að Halla Haraldsdóttir gefur söfn-
uði Hveragerðiskirkju hugmynd-
ina og alla sína vinnu við þetta
stóra verk.
Að svo miklu leyti sem hægt er
að þakka svo stóra gjöf með orð-
um þá geri ég það, en mest metum
við Hvergerðingar þann vinarhug
sem okkur er sýndur og við biðjum
þess að Halla megi, þó síðar verði,
á einhvern hátt njóta þessarar
gjafar sinnar.
Sem litinn þakklætisvott vill
söfnuður Hveragerðiskirkju færa
Höllu gjöf, þetta er fagur blóma-
vasi, ég vona að í hvert skipti sem
hún lítur á vasann minnist hún
þess að hann er lítill þakklætis-
vottur fyrir stóra gjöf.
Við Hvergerðingar erum stoltir
yfir því að svo fagurt listaverk
skuli prýða kirkjuna okkar á
ókomnum árum.
Að lokinni ræðu Guðmundar
tók dr. Oidtmann til máls og
mælti á þýsku, en Bergur Jónsson
rafmagnseftirlitsmaður ríkisins
túlkaði.
Þakkaði hann gjöfina og sam-
veruna hér og fór lofsamlegum
orðum um land og þjóð, sem hann
hefur oft áður gist. Hylltu kirkju-
gestir hann og vottuðu honum
þakklæti.
Listakonan Halla flutti ávarp
það sem hér fer á eftir.
„Kæru Hvergerðingar og aðrir
kirkjugestir. Þegar ég kom fyrst
inn í þessa kirkju fannst mér hún
mjög nýtískuleg og skemmtilega
hönnuð, ég sá fyrir mér steint gler
í þessum stóra glugga, enda var
hann strax i upphafi smíðaður
þannig að hægt væri að setja í
hann steint gler.
Það mun hafa verið seinnipart
sumars 1982 að samtöl min við
konur i sóknarnefnd urðu til þess
að ég fór alvarlega að hugsa um
þennan glugga og haustið 1983
hafði ég fullskapað þessa hug-
mynd, hún var svo valin úr nokkr-
um öðrum hugmyndum, sem sýnd-
ar höfðu veriu sóknarbörnum og
nú er gluggi þessi orðinn að veru-
leika.
Nokkur vandamál voru við gerð
gluggans, sem varð að leysa. I
fyrsta lagi varð hann að virka sem
altaristafla og steinkrossinn fal-
legi sem er að utanverðu varð allt
í einu að stóru vandamáli, þvi með
venjulegu steindu gleri hefði
krossinn alltaf sést innan frá. Því
tók ég það ráð að nota gler sem
hleypir aðeins birtu í gegnum sig,
en ekki mynd. Þetta heitir „orgin-
al antik opak gler". Það hefur að-
eins verið á markaðnum í 10—15
ár og er nokkuð dýrara en annað
steint gler, enda munnblásið og
handunnið. Þetta mun vera eini
glugginn úr þessi efni á íslandi.
Haustið 1984 var hafist handa
við gerð gluggans á verkstæði dr.
H. Oidtmann í bænum Linnic í
Þýskalandi, en það er mjög þekkt í
verkum sem þessu og elsta og virt-
asta fyrirtæki sinnar tegundar í
Þýskalandi. Það hélt nýlega upp á
125 ára afmæli sitt og starfsmenn
þar eru milli 40 og 50.
Smíði gluggans tók um 6—8 vik-
ur, breidd gluggans er um 1,60 m,
hæð 13 m, hann er því rúmir 20
fermetrar að stærð. Best er að
átta sig á hæð gluggans með því
að hugsa sér að hann stæði við
eitthvert háhýsið, þá mundi hann
ná upp á 5. hæð.
Myndin er uppbyggð á táknræn-
an hátt, neðsti hluti myndarinnar,
sem að vísu lendir bak við altarið,
á að sýna jarðhita og gufu sem
Hveargerði er þekkt fyrir, þar inn
í eru tilhöggnir og greyptir rauðir
glersteinar sem tákn elds í iðrum
jarðar. Síðan kemur stílfærð
Kristmynd og efri hluti myndar-
innar sýnir blóm og gróanda stað-
arins og allra efst er stjarna sem
tákn birtu og vonar og kross sem
bæði merkir hinn helga kross og
svo að Hveragerði er hér í þjóð-
braut. Myndin er víða handmáluð
skyggð og brennd við 700° hita.
Góðir kirkjugestir, ég hef nú
sagt í nokkrum orðum frá aðdrag-
anda, gerð og táknum gluggans, en
mín síðustu orð verða þau að Guð
megi blessa og vernda þetta hús
og söfnuðinn allan.“
Kirkjugestir þökkuðu Höllu með
lófataki og mátti sá að margir
voru djúpt snortnir á þessari há-
tíðlegu stundu.
í sóknarnefnd Hveragerðis-
kirkju eru: Formaður Guðmundur
Ingvarsson, ritari Anna G. ólafs-
dóttir gjaldkeri Laufey Valdi-
marsdóttir, Sævar Berg Guð-
bergsson og Gunnar Davíðsson.
Og varamenn: Margrét Jónsdóttir
og Ragnheiður Busk.
— Sigrún
Handhafar öryrkjaleyfa athugið:
Þegar þið kaupið
POLONE
fáið þið stóran og sterkan bíl við ykkar hæfi en á smábílaverði:
155.800,- kr. kominn á götuna.
★ Þjónustan hjá okkur er rómuð.
★ Við bjóðum ykkur góðan reynsluakstur
og aðstoð við lausn einstakra vanda-
mála.
Komið og kaupið stóran og sterkan bfl
sem er þægilegur í akstri, hagnýtur, end-
ingargóður og fallegur.
Polonez-umboðið Ármúla 23, s. 685870 - 81733.