Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 37
300 manns sóttu stofn- fund Stoðar FIMMTUDAGINN 11. aprfl 1985 var félagið STOÐ stofnað á Hótel Borg. Tilgangur félagsins er m.a. eins og segir í lögum þess: að styðja við bakið á fólki scm vill lifa vímu- cfnalausu lífi, sinna félagsþörf þess og hjálpa til við að byggja upp heil- brigð áhugamál og jákvætt líferni. Undirbúningshópur fyrir stofn- un félagsins lagði fyrir fundinn drög að lögum og tillögu um fyrstu stjórn félagsins, skipuð þannig: Kristinn T. Haraldsson formaður, Stella Sigurðardóttir ritari, Sævar Pálsson gjaldkeri og tveir með- stjórnendur, þau Elín Garðars- dóttir og Sigurgeir Baldursson. Voru tillögur, lög og stjórn sam- þykkt einróma á þessum fjöl- menna stofnfundi sem taldi yfir 300 fundargesti. Fundinum bárust stuðningsyfirlýsingar og heilla- óskaskeyti frá öðrum félögum og hópum ásamt blómasendingum. I fundarlok tók hið nýstofnaða félag við frjálsum fjárframlögum af örlátum fundargestum. Fyrsti almenni félagsfundurinn verður haldinn 2. maí. Á hann eru hinir rúmlega 200 stofnfélagar, og að sjálfsögðu allir aðrir, hvattir til að mæta. Stjórnin er nú þegar tekin til starfa og vinnur m.a. að hús- næðis- og fjáröflunarmálum. (FrétUtilkynning) V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18 APRÍL1986 Í%7 Morgunbl»öiö/Árni S«berg Bæklingur Húsnæðisstofnunar ríkis- ins. Frá blaðamannafundinum: Frá vinstri Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur, Ingi Valur Jóhannsson félagsfræðingur, Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Sigurjón Þorbergsson órmaður Leigjendasamtakanna og Sigurður Helgi Guðjónsson framkvæmdastjóri Húseigendafélags Reykjavíkur. Húsnæðisstofnun ríkisins Gefur út upplýsingabækling um húsaleigusamninga HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur samningar. Bæklingurinn er gefin út til að skýra með aðgengilegum hætti meginatriði laga nr. 44/1979 um húsaleigusamninga. Lögin tóku endanlega gildi hinn 1. janúar 1980. Lög um breytingar á þeim, nr. 70/1984, tóku gildi í júní 1984. Á fundi, þar sem bæklingurinn var kynntur fréttamönnum, sagði Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, að í þessum lögum hafi verið sett skylduákvæði um að þau yrðu kynnt almenningi. Það hefur síðan verið gert með auglýsingum, yfirleitt í kringum fardaga, þ.e. 1. júní og 1. október, og nú með út- gáfu þessa bæklings. ífið út bækling er nefnist llúsaleigu- Bæklingurinn hefur verið unnin í samráði við Húseigendafélag Reykjavíkur, Leigjendasamtökin og húsaleigunefnd Reykjavíkur- borgar og er útgáfan þáttur í þeirri viðleitni að stuðla að auknu öryggi í viðskiptum leigusala og leigjenda, samkvæmt yfirlýstu markmiði löggjafans. Sigurjón Þorbergsson, formaður Leigjendasamtakanna, sagði að þessi bæklingur myndi svara þeim spurningum sem samtökin þurfa að svara oft á dag í gegnum síma. Hann sagðist fagna þessari útgáfu og að samtökin myndu leggja áherslu á dreifingu bæklingsins, því þar koma flest vafamál í sam- bandi við leigu á húsnæði fram. Að sögn Sigurðar Helga Guð- jónssonar, framkvæmdastjóra Húseigendafélags Reykjavíkur, lítur félagið svo á að lögin um húsaleigusamninga séu nokkuð hörð gagnvart félaginu, en hann taldi að kynning á þeim kæmi öll- um til góða. Hann sagði að framboð á leigu- húsnæði hafi minnkað, m.a. vegna þess að fólk væri hrætt við lögin, þess vegna þyrfti að kynna þau. Raunverulega ástæðu skorts á leiguhúsnæði taldi Sigurður frek- ar vera þá, að breytingar á pen- inga- og skattamálum gerðu það að verkum að óhagstætt væri að leigja út húsnæði. Hann sagði að húseigendafélagið vildi að fé sem fengist með húsaleigu fengi sömu meðferð og annað sparifé. Sigurður E. Guðmundsson sagði að samstarf við undirbúning út- gáfu bæklingsins hefði gengið mjög vel og sýndi það mikinn áhuga á að bæta úr bví ástandi sem ríkt hefur í húsaleigumálum hér á landi. Á fundinum kom fram að iík- lega búa um 10.000 fjölskyldur á íslandi í leiguhúsnæði, eða um 40.000 einstaklingar. Bæklingurinn mun iiggja frammi hjá Húsnæðisstofnun, öll- um sveitarstjórnum, Húseigenda- félagi Reykjavíkur og Leigjenda- samtökunum. Auk þess mun hann fylgja löggiltu eyðublaði fyrir húsaleigusamninga. HÖFUÐBORGIR NORÐURLANDA VERÐ FRÁ KR. 27.200 BROTTFÖR 11/6. 25/6, 16/7, 6/8. Úrvalshringferð um Norðurlönd með viðdvöl í 4 höfuðborgum. Ferðirnar 11/6 og 16/7 eru 12 daga langar, en 25/6 og 6/8 eru með 4ra daga aukalykkju til Leningrad. Farnar eru skoðunarferði'' um allar borgirnar, en milli þeirra er ferðast með lestum og ferjum. Innifalin et gisting á góðum hótelum, ferjuferðir með gistingu, lestarferðir, skoðunarferðir um allar borgirnar, morgunverður, akstur milli flugvalla og hótela og fslensk fararstjórn. PARÍSARBORG VERÐ FRÁ KR. 20.700.- BROTTFÖR 18/8, 25/8, 11/9, 16/10. Sannkallaðir lystitúrar til Parísar með 7 nátta gistingu og morgunverði á lúxushótelinu Montparnasse Park. Innifaldar eru skoðunarferðir um París og Versali. Pað borgar sig að hafa samband strax. FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL Borgir eru skáldlegt viðfangsefni og heillandi. Sumar eru viðkvæmar og tilfinningaríkar, aðrar stórar og sterkar, sumar yfirþyrmandi, aðrar lokkandi, sumar glæsilegar, aðrar hrörlegar, sumar hlýlegar, aðrarframandi, sumar háværar, aðrar leyndardóms- fullar. Borgir eru eins og . . . borgir. VÍNARBORG OG AÐRAR BORGIR VERÐ KR. 38.900.- BROTTFÖR 24/5. Fleillandi 14 daga rútuferð undiröruggri fararstjórn Friðriks Friðrikssonar um Austurríki, Ítalíu, Júgóslavíu, Ungverjaland og Tékkóslóvakíu með sérstakri áherslu á menningar- og listaborgina Vfn. M.a. er farið í skoðunarferð um Vín, siglt á Dóná, höfð viðdvöl í Budapest, Feneyjum, Zagreb og Bratislava. Gist er á mjög góðum hótelum, morgunverður er innifalinn allan tímann og að auki hálft fæði utan Vínarborgar. Flug, allur akstur, skoðunarferðir og fararstjórn er einnig innifalin. Á heimleið er möguleiki á nokkurra daga dvöl í London. ÚRVAL VIÐ AUSTURVÖLL, SÍMI 26900 QOTT FOLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.