Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAtilP, FIMMTÚDAGUR18. APRlL 1985 \ mnm b/Ko C> 1984 Universal Press Syndicate /(t?OjU v'ilja öLL fá k&P-Pf." lcve 25... ... að halda skrá yfir punkta hans í mini-golfinu. 'TM Hn. U.S. Pat on.-n rtghtt reMrvad • W f Los Angdn Tkms Syndkate 3±r." HÖGNI HREKKVÍSI ,é<5 H6LP éG H/6-TTI AP ÖEFA ÞÉR STIhCKPILLURMAR Hestamenn hlífi gróðri á útreiðum Hestamenn í Reykjavík og ná- grenni. Umhverfis Reykjavík eru marg- ar góðar og fallegar reiðleiðir eins og við vitum. Þ6 vill það brenna við að við höldum okkur ekki á þessum leiðum og skemmum þá oft gróður, sérstaklega nú undir vorið þegar frost er að fara úr jörðu og gróður er viðkvæmastur. Vil ég nefna um þetta fáein dæmi. Niður með Bústaðaveginum er grasspilda á milli götu og hita- veitustokks sem ber veruleg merki þess að hún hefur orðið fyrir átroðningi hesta. Ef það er nauð- synlegt að ríða þarna niður með verða menn að halda sig á malbiki eða gangbrautum, nú þegar jörðin er það blaut að fætur hestanna sökkva í. Þetta ætti ekki að reyna svo mikið á fætur hestanna ef far- ið er rólega. Ég á ekki við að menn riði Bústaðaveginn sjálfan, heldur t.d. í efstu götunum í Fossvogin- um, þar sem umferð er lítil. Raun- ar ætti að vera óþarfi að ríða þarna niður því að prýðis reiðleið- ir eru upp með Elliðaánum. Það má til gamans geta þess að til stendur að gera reiðleið alla leið vestur á Seltjarnarnes og er von- andi að úr því verði sem fyrst. Hestaumferð á til þess gerðum vegum lífgar auðvitað upp á bæj- arbraginn. Annar staður sem ég vil nefna er leiðin sem hestamenn fara oft, úr Víðidalnum og upp að Korp- úlfsstöðum, með því að riða gegn- um Árbæinn. Þar hafa orðið veru- legar skemmdir á grasflötum sem riðið hefur verið yfír í hugsunar- leysi. Þarna er um mjög stutta leið eftir malbiki að fara til þess að þurfa ekki að fara inn á grasið. Sérstaklega vil ég nefna leiðina meðfram Árbæjarskólanum, þar sem er reiðvegur meðfram gras- brekku en þó hefur verið riðið upp ( hana og hún stórskemmd. Áð lokum er vert að minnast á Heiðmörkina sem er mjög vinsæl til útreiða, en hún er mjög við- kvæm á vorin. Forðast verður að fara út á grasfleti eða aðra gróð- urfleti með hestana, ekki heldur þegar áð er, því ótrúlega miklar skemmdir verða þarna við minnsta átroðning. Borgaryfir- völd eða hestamannafélögin gætu í sameiningu komið upp grindum til að binda hestana við á helstu áningarstöðum. Þessar grindur gætu t.d. verið við kanta á hinum fjölmörgu bílastæðum sem þarna eru. Ég vil einnig brýna fyrir bæði hestamönnum og ökumönnum að sýna hvorir öðrum gagnkvæma tillitssemi, þar sem umferð þeirra fer saman. Hestamenn eiga að víkja eins vel fyrir bflum og kost- ur er og reyna að tefja ekki um- ferðina óþarfíega mikið. ökumenn verða að hægja mjög ferðina og aka aðeins löturhægt framhjá hestunum þvi þeir geta alltaf fælst, með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum fyrir bæði knapa, hest og bil. Þetta síðastnefnda er al- gjört lifsspursmál en á þvi er verulegur misbrestur. Að endingu þetta: Hestamenn, hlifum gróðri við hestatraðki og sýnum tillitssemi í umferðinni. Ökumenn, akið með ýtrustu gætni framhjá hestum. Virðingarfyllst: Hestamaður. Bréfritari brýnir fyrir hestamönnum að halda sig á reiðleiðunum umhverfis Reykjavík þar sem gróður sé afar viðkvæmur á vorin. Myndir með fréttum fyrir heymarskerta Mig hefur lengi langað til þess að þú, Velvakandi, kæmir fyrir mig spurningu á framfæri, sem snertir sjónvarpsfréttir fyrir fólkið með skertu heyrnina. Hefur fram farið nokkur könn- un á því hvort hinir heyrnar- skertu séu ánægðir með fréttir sjónvarpsins, hvernig þær eru framreiddar handa þessu fólki? — Er t.d. ánægja með að frétt- irnar séu myndalausar? Er ánægja með að fréttalestur fari fram fyrir aðalfréttatímann eins og nú er. Eða væri betra fyrir- komulag að fréttalesturinn færi fram að loknum aðalfréttatiman- um, þegar búið er að renna í gegn öllum fréttamyndum tilheyrandi fréttatímanum. Svo gæti verið fróðlegt að heyra hvort veður- fréttir eru sagðar á táknmáli? Þessari fyrirspurn er ekki að- eins beint til útvarpsins heldur og til félagssamtaka sem gæta hagsmuna heyrnaskertra. Gamall vesturbæingur, þó með fulla heyrn. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.