Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 46
46
MOftGUKBLAÐIP, FIMMTUDAGUR 18. APRlL 1985
Bridge__________
Arnór Ragnarsson
Undankeppni íslands-
móts í tvímenningi
öll sterkustu pör landsins til-
kynntu þátttöku í undankeppni
fslandsmótsins. í tvímenpingi
sem spiluð verður í Tónabáe
(Gamla Lídó) um næstu helgi.
Þegar síðast fréttist höfðu um
105 pör skráð sig til keppninnar
sem verður spiluð í 7 riðlum
15—16 para.
Keppnin hefst á laugardaginn
kemur kl. 13 og verða spilaðar 3
lotur, önnur lota á laugar-
dagskvöld og þriðja lota kl. 13 á
sunnudag. 24 efstu pörin spila
svo til úrslita á Hótel Loftleiðum
4.-5. maí.
Núverandi íslandsmeistarar
eru Jón Baldursson og Hörður
Blöndal. Þeir spila ekki saman í
úrslitakeppninni. Hörður spilar
við Guðmund Pétursson en Jón
við Sigurð Sverrisson.
Bridgefélag kvenna
Eftir þrjú kvöld í parakeppn-
inni er staðan þessi:
Stig
Sigrún Pétursdóttir —
Sveinn Sigurgeirsson 568
Véný Viðarsdóttir —
Guðlaugur Níelssen 559
Sigríður Pálsdóttir —
Guðjón Kristinsson 555
ólafía Jónsdóttir —
Baldur Ásgeirsson 554
Kristjana Steingrímsdóttir —
Þórarinn Sigþórsson 551
Halla Bergþórsdóttir —
Jóhann Jónsson 539
Lilja Pedersen —
Jón Sigurðsson . 504
Steinunn Snorradóttir —
Bragi Kristjánssön 503
Kristín Karlsdóttir —
Magnús Oddsson 503
Una Thorarensen — Kristinn500
Sigrún Straumland —
Þorsteinn Erlingsson 500
Meðalskor 468. Keppninni
verður haldið áfram næstkom-
andi mánudag.
Sigurður Sverrisson og Jón Baldursson spila saman í fslandsmótinu í
tvímenningi að þessu sinni. Þeir hafa báðir orðið fslandsmeistarar í
tvímenningi, Jón reyndar fjórum sinnum. Sigurður varð íslandsmeistari
með Skúla Einarssyni 1978.
Ert þú
umsjónarmaður sparibauksins á vinnustaðnum,
fjárhaldsmaður, fjármálastjóri, sparifjáreigandi,
eða þarft þú að varðveita fé á góðan og öruggan hátt?
VH6 gerum þér sérstakt tíboó
Reynist meðalinnstæða á Bónusreikningi, á árinu 1985, 500.000 kr. eða hærri
verður 2% Vaxtabónus lagður við þann Bónusreikning.
Vaxtabónus reiknast af samanlögðum áunnum verðbótum og vöxtum á árinu 1985
og verður lagður við þá Bónusreikninga, sem uppfylla ofangreind skilyrði,
þann 20. jan. 1986.
Tilboðið gildir fyrir alla þá sem eiga nú fé á Bónusreikningi eða stofna Bónusreikning
fyrir 15. maí nk.
Ársávöxtun á Bónusreikningi
jan. - mars 1985 var =
Með Vaxtabónus
hefði hún orðið =
lónaöarbankinn