Morgunblaðið - 18.04.1985, Blaðsíða 18
18
. MORGUNBijAPID/FUftmJPAGUft 18. APRtL 1»85
Ný þjónusta sem tryggir skjótan flutningá mikilvægum
póstsendingum
milli landa.
Með forgangspósti
og síma sendir þú skjöl, varahluti, lyf,
mikilvæg gögn og vaming á stysta mögulega tíma mil!
landa. Við tökum við forgangspósti í póstmiðstöðinni í
Múlastöð við Suðurlandsbraut. Þar er hann sérstaklega
merktur og aðgreindur frá öðrum pósti, sendingin er skráð
og kvittað fyrir móttöku. Því næst er forgangspóstínum
komið beint á næsta flug til viðkomandi áfangastaðar.
Erlendis taka sérstakir sendimenn póstþjónustunnar við
ogflytja forgangspóstinn rakleiðis stystu leið til viðtakanda.
Fyrst um sinn getur þú sent forgangspóst til Stóra-Bretlands,
Frakklands, Hollands, Luxemborgar, Svíþjóðarog Finnlands
en fljótlega bætast fleiri lönd í hópinn.
Til þess að þessi nýja þjónusta
nýtist sem best tökum við
á móti forgangspósti alla daga
vikunnar:
Mánud. - föstud. 07:30-20:00
Laugard. 07:30-13:00
Sunnud. 13:30-17:00
FORGflNBS
- PuSTUR
TIL ÚTLANDA
POST-OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN
„Mitt höfuðvið-
fangsefni er maður-
inn, andlitin
sem eru næst mér/4
— Rætt við Pál á Húsafelli
HANN er tuttugu og fimm ára
gamall listamaður, náttúrubarn,
sem fsst jöfnum höndum við mál-
verkið, teikningu og höggmynda-
gerð og fyrir skömmu sýndi hann á
Kjarvalsstöðum 24 höggmyndir úr
íslensku grjóti, nánar tiltekið úr
Bæjargilinu heima hjá honum I
Húsafelli. Páll Guðmundsson heit-
ir listamaðurinn, sækir myndefnið
í kjölfar stemmningarinnar og læt-
ur sig ekkert muna um að sofa úti
á heiðum eða mála í 15 stiga gaddi,
allt fyrir stemmninguna og leitina
eftir aðalatriðum sviðsins.
— Ýmsir kunnir málarar
sóttu efnivið í myndir sínar í
Húsafell og ég varð spenntur
fyrir þessu strax sem strákur.
Umhverfið í kring um mig var
svo fallegt og það hefur hjálpað
til að ég leitaði inn á listabraut-
ina. Ég ætti þó miklu fremur að
kalla hana holt og hæðir, þvi það
er landið og fólkið sem hefur
orðið mér að yrkisefni, kynni
mín af persónuríku fólki og lit-
ríku óspilltu landi. Ég byrjaði að
ráði að mála þegar ég var 12 eða
13 ára, en að loknum grunnskóla
fór ég í Myndlista- og handíða-
skólann. Ég gerði að vísu elstu
höggmyndina á sýningunni áður
en ég fór í skólann, hrútinn, en
sl. tvö ár hef ég aðallega fengist
við grjótið úr Bæjargilinu
heima. Það hefur lítið verið not-
að í höggmyndagerð, líklega að-
eins einu sinni í mynd eftir
Magnús Á. Árnason.
Jú, ég er alinn upp við þetta
grjót og svo er maður allt í einu
farinn að smíða úr því. Það er
ágætt, maður heldur sér í þjálf-
un, þetta eru góðar þrekæfingar.
Mesta vinnan er að ná grjótinu,
því það er svo innarlega í gilinu
og það er erfitt að komast að því,
ekki hægt að koma neinum tækj-
um við og bestu steinarnir eru
mjög innarlega í þessu um það
bil kílómetra langa gili. Ég var
til dæmis heilan dag að velta
Freymóði út gilið og var þá allur
orðinn blóðugur eftir glímuna
við grjótið.
Ég mála, teikna og móta jöfn-
um höndum. Mitt höfuðviðfangs-
efni er maðurinn, andlit, það
sem er næst mér, allt í kringum
mig, fólk, landslag, veðurfarið,
stemmningarnar. Þetta eru allt
hlutir sem hrífa mig, ég er mikið
innstilltur á stemmninguna og
geng ekki til verks eins og í
tímavinnu. Ég er að fást við
stemmninguna og ríma við hana
og stemmningin er tímalaus.
Steinarnir, til dæmis, þeir móta
oftast hugmyndina á móti mér,
þetta náttúrulega sem er í stein-
inum. Ég geng alltaf með skissu-
bók á mér og teikna menn,
landslag, dýr, svona það sem
maður grípur á röltinu.
Tónleikar
skólaæskunn-
ar í Kópavogi
SKÓLANEFND Kópavogs mun
standa fyrir tónleikum í samvinnu
við Tónlistarskóla Kópavogs, Skóla-
hljómsveit Kópavogs og fleiri aðila
dagna 18., 21. og 23. aprfl. Nokkrir
ncmendur skólanna í Kópavogi
munu koma fram, syngja og leika á
hljóðfæri.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
Fimmtudagur 18. apríl. Kvöldtón-
leikar í Kópavogskirkju kl. 20.30:
1. Nemendur Tónlistarskóla
Kópavogs
2. Kór Kársnes- og Þinghólsskóla
3. Kór Menntaskólans í Kópavogi
Sunnudagur 21. aprfl. íþróttahús-
ið Digranes kl. 15.00:
1. Hljómsveit Tónlistarskólans
i Kópavogi
2. Kór Kársnes- og Þinghólsskóla
3. MK-kvartett
4. Skólahljómsveit Kópavogs
Þriðjudagur 23. aprfl. Popptónleikar
í íþróttahúsi Kársnesskóla kl. 20.00:
1. Jassband Hornaflokks Kópa-
vogs
2. Band Nútímans
3. Voice
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamióill!
JHsrjyimHafoift