Morgunblaðið - 18.04.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 18.04.1985, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR18. APRÍL1986 Fri fundi viðrædunefndanna í Borgartúni 6. Morgunblaðift/Júlliu Viðræðunefndir íslands og Sovét VIÐSKIPTAVIÐRÆÐUM fslands og Sovétríkjanna lauk í Reykjavík síðastliðinn miðvikudag með undir- rítun formanna viðræðunefndanna. í viðræðum þessum tóku þátt 13 ís- lendingar og 7 Sovétmenn. Fara nöfn nefndarmanna hér á eftir: íslenska viðræðunefndin Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytis- stjóri i viðskiptaráðuneytinu, formaður, Páll Ásgeir Tryggva- son, sendiherra íslands í Mosvku, Björn Tryggvason, aðstoðar- bankastjóri Seðlabanka íslands, Jón Ögmundur Þormóðsson, deild- arstjóri í viðskiptaráðuneytinu, Helgi Gíslason, sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu, Árni K. Þorsteinsson, deildarstjóri, fyrir oliufélögin, Gunnar Flóvenz, framkvæmdastjóri Síldarútvegs- nefndar, Hjörtur Eiríksson, fram- kvæmdastjóri iðnaðardeildar SÍS, Magnús Helgason, forstjóri, fyrir Félag islenskra iðnrekenda, ólaf- Viðskiptasamningur fslands og Sovétríkjanna: ur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri SH, Pétur Eirfksson, for- stjóri Álafoss, fyrir Verslunarráð íslands, Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurða- deildar SÍS, Theódór S. Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Sölu- stofnunar lagmetis. Sovéska viðræðunefndin V.I. Simakov, yfirmaður Vestur- landadeildar utanrikisviðskipta- ráðuneytisins, formaður, B.L. Radivilov, viðskiptafulltrúi Sovét- ríkjanna á íslandi, B.A. Umansky, aðstoðarviðskiptafulltrúi Sovét- rikjanna á íslandi, M.V. Medved- ev, deildarstjóri Norðurlanda- deildar Vesturlandadeildar utan- ríkisviðskiptaráðuneytisins, K.B. Lavrova, aðalsérfræðingur, Vest- urlandadeild utanrikisviðskipta- ráðuneytisins, L.G. Zarudnaja, að- alsérfræðingur, rikisáætlana- nefnd Sovétríkjanna, V.P. Andriy- ashin, fulltrúi á skrifstofu við- skiptafulltrúa Sovétríkjanna. Söluaukning á freð- fiskflökum og saltsíld Gert er ráð fyrir minnkandi viðskiptahalla við Sovétrfldn, þegar samingurinn kemur til framkvæmda I STAÐFESTUM viðskiptasamningi Islands og Sovétríkjanna fyrír næstu fimm ár, hækka viðmiðunarmörk á sölu saltsíldar um 50.000 tunnur og á sölu frystra fiskflaka hækka þau um 8.000 lestir. Viðmiðunarmörk vegna kaupa okkar á olíuvörum frá Sovétríkjunum lækka í beildina og má þvf gera ráð fyrir minnkandi viðskiptahalla við Sovétríkin á næstu árum. Viðskiptasamningurinn gildir um verzlun milli þjóðanna árin 1986 til 1990 að báðum árunum meðtöldum, en árlegir sölusamn- ingar verða síðan gerðir innan við- miðunarmarkanna fyrir hverja vðru. Viðmiðunarmörk frystra fiskflaka hafa hækkað úr 12.000 til 17.000 lestum árlega í 20.000 til 25.000 lestir, mðrk fyrir heilfryst- an fisk eru óbreytt, 4.000 til 7.000 lestir. Saltsíldarmörkin hækka úr 150.000 til 200.000 tunnum i 200.000 til 250.000 tunnur. Sama lágmark verður á lagmeti, 4 millj- ónir dollara, en efri mörk lækka í 5,5 milljónir, þó með mögulegri aukningu. Mörkin fyrir ullarvörur verða 5 til 6,5 milljónir dollara i stað 4 til 4,9 milljóna áður. Mörkin fyrir málningarvörur verða 1.500 til 2.000 lestir eða hin sömu og áður og ýmsar vörur 1,5 milljónir. Hvað innkaup varðar er talað um allt að 100.000 lestir af bensíni, eða sama og áður var, en kaupin hafa þó ekki náð nema um 70.000 lestum árlega til þessa. Af gasolíu 110.000 til 150.000 lestir, en efri mörk voru áður 190.000 lestir. Af svartolíu allt að 180.000 lestir. Sigvaldi Hjálmarsson gerðir, leiðbeiningar um hugrækt og þýðingar. Síðasta bók hans, ljóðabókin „Víðáttur", kom út fyrir síðustu jól. Eftirlifandi kona hans er Bjarn- ey H. Alexandersdóttir. Neðri mörk eru nú engin en voru áður 110.000 lestir. Viðmiðunar- mörk fyrir aðrar vörur eru óbreytt. Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneyt- isstjóri og formaður viðskipta- nefndar íslands, sagði i samtali við Morgunblaðið, að árangur við- ræðnanna hlyti að teljast nokkuð góður, þar sem um aukningu á mikilvægustu vöruflokkunum væri að ræða. Þetta ætti að tryggja áframhaldandi sölu freð- fisks og saltsíldar til Sovétríkj- anna allt til ársins 1990. Þá gætu viðskipti samkvæmt þessum við- miðunum farið langt i það að brúa bilið, sem verið hefði á greiðslu- jöfnuðinum milli landanna. Við- miðunarmörkin á útflutningsvör- um okkar hækkuðu að jafnaði meðan mörkin fyrir innflutning- inn lækkuði heldur. Það færi þó allt eftir því hvernig viðskipta- samningar innan markanna tækj- ust hver greiðslujöfnuðurinn yrði. Ólafur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri hjá SH, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hér væri aöeins um rammasamning að ræða. Þessi samningur væri þó engu að síður mjög mikilvægur og jákvæður, en það ætti eftir að koma i ljós hvernig gengi að semja innan þessa ramma. Þá kæmi inn verð og samanburður við aðra markaði. Meðan við keyptum oliu af Sovétmönnum á samkeppnis- færu verði og seldum þeim meðal annars fisk í staðinn, liti hann svo á að viðskiptin væru mjög góð. Sigvaldi Hjálmarsson látinn SIGVALDI Hjálmarsson, rithöfund- ur og blaðamaður, lést í sjúkrahúsi í London sl. mánudag á 64. aldursárí. Hann fæddist á Skeggsstöðum i Bólstaðarhliðarhreppi í A-Húna- vatnssýslu 6. október 1921, sonur hjónanna Hjálmars Jónssonar og ólafar Sigvaldadóttur. Sigvaldi lauk prófi frá Héraðsskólanum i Reykholti 1940 og kennaraprófi þremur árum siðar. Hann var kennari í Hveragerði 1943—’46, settur skólastjóri barna- og ungl- ingaskólans þar eitt ár og kenndi siðan í Reykjavik 1946—’47. Sigvaldi var blaðamaður við Al- þýðublaðið (með hléum) 1947—'72, fréttastjóri var hann þar 1952—’58 og ’62—'63, fulltrúi rit- stjórnar 1958—61 og ritstjóri Úr- vals 1961—’62. Hann var ritstjóri vikublaðsins Fálkans 1966, yfir- maður þýðingardeildar sjónvarps- ins um tíma 1973—’74 og i hluta- starfi hjá dagblaðinu Visi 1975—’77. Hann átti sæti i stjórn Blaðamannafélags íslands 1954 og ’55 og var formaður félagsins sið- ara árið. Hann var fréttaritari sænsku fréttastofunnar TT á ís- landi um nokkurra ára skeið. Sigvaldi Hjálmarsson dvaldist þrjá vetur við nám á Indlandi, vet- urna 1963—’64, ’68—’69 og *74—’75. Hann var forseti Guð- spekifélags íslands 1956—'67 og aftur 1972—’75. Hann átti lengi sæti i allsherjarráði félagsins, var um tima í stjórn Evrópusambands guðspekifélaga, var ritstjóri fé- lagsritsins Ganglera i mörg ár og átti sæti i stjórn félagssamtak- anna Verndar og Réttarverndar. Hann var félagi í Rithöfunda- sambandi íslands frá 1975 og skrifaði margar bækur, ljóð, rit- Hjálpartækja- sýningunni lokað; Aðsókn framar öllum vonum — segir Sigurður Magnús- son, framkvæmdastjóri SÝNINGU á hjálpartækjum fyrir fatlaða, sem haldin var á Hótel Loft- leiðum, lauk á mánudagskvöld. Að sögn Sigurðar Magnússonar fram- kvæmdastjóra sýningarinnar var að- sókn mjög góð. Ekki er vitað um nákvæmar tölur yfir fjölda gesta, þar sem aðgangur var ókeypis, en Ijóst er að þeir skiptu nokkrum þús- undum. „Á mánudagskvöld sprengdum við utan af okkur húsnæðið og þurftum að sýna sænsku myndina, Smártegrðnsen, tvisvar sinnum. Siðan voru pallborðsumræður og stóð dagskráin alveg til miðnætt- is,“ sagði Sigurður. „Aðsóknin var framar öllum vonum og var áberandi í viðhorf- um og umræðu fólks, að það telur þetta mjög gott viðfangsefni og gagnlegt að setja upp sýningu sem þessa. Fram hafa komið raddir um að svona sýningu ætti að halda á þriggja til fjögurra ára fresti og minni sýningar, fyrir fagfólk sem vinnur með hjálpartæki, inn á milli.“ Sigurður sagði að lokum að sýn- ingin hafi verið mjög viðtæk með fræðsluerindum og skemmtunum og hafi þess vegna náð vel til al- mennings. MorgunblaðiA/Július Borinn Narfi við Korpu í Mos- fellssveit Borað yið Korpu BORINN Narfi er nú við ósa Korpu í Mosfellssveit þar sem borað hefur verid í mánaðartíma eftir heitu vatni fyrir Reykvíkinga. Að sögn Karls Ragnars for- stjóra Jarðborana ríkisins er bor- inn nú á 900 metra dýpi og bendir allt til þess að þarna sé að finna um 100° heitt vatn. Engar upplýs- ingar er enn að fá um hve mikið vatn er í holunni. Borað verður niður í 1200—1400 metra og verður þá dælt úr hol- unni og gerðar ýmsar mælingar. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr þeim mælingum verði að fá eftir 2—3 mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.