Morgunblaðið - 18.04.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Le Pen
Einar Sigurðsson var snöfur-
legur að vanda er hann brá
kastljósinu yfir heimsbyggðina nú
á þriðjudaginn. Ég hef raunar
ætíð mikla ánægju af Kastljósi,
enda áhugamaður um heimspóli-
tík ekki síður en innlend stjórn-
mál, en ég held að án slíks áhuga
sé vonlaust að rita um dagskrá
ríkisfjölmiðlanna, svo mjög sem
pólitíkin spinnst þar inní alla um-
ræðu og fréttaflutning. Ég er
raunar þeirrar skoðunar, að póli-
tíkin hafi miklu meiri áhrif á sál-
arlíf okkar og daglega líðan en al-
mennt er viðurkennt. Þetta er nú
bara svona tilgáta hjá mér eða
nánast hugboð, þannig fannst mér
í fyrrgreindum Kastljóssþætti
Einars Sigurðssonar mega greina
svipað „hugarástand" á fjölda-
fundunum hjá franska stjórn-
málamanninum Le Pen og sjá má
á hinum klassísku heimildar-
myndum Leni Riefenstahl af
fjöldafundum nasista frá fjórða
áratugnum. Að vísu er hér um
stigsmun að ræða því fjöldafundir
Le Pen eru ekki nærri eins fjöl-
mennir og vel skipulagðir og fund-
ir þeir er Josef Goebbels stýrði, en
er eðlismunur á slíkum fjölda-
samkomum, þar sem foringinn er í
hásæti og æsir lýðinn með handa-
pati og siagorðaglamri er höfðar
til hjartans fremur en heilans?
Hringferill
sögunnar
Við skulum gá að því að í mál-
flutningi Le Pen er höfuðáherslan
lögð á þjóðernisrembing, innflytj-
endahatur og einfaldar kennisetn-
ingar er hæfa hinum lítilþægu í
samfélaginu. Þar er með öðrum
orðum reynt að skapa ákveðið
„hugarástand" i krafti pólitískra
slagorða. En málið er ekki svona
einfalt, það skyldi þó aldrei vera
að það „andrúmsloft" er á sínum
tíma veitti Hitler og félögum
stjórnmálalegt svigrúm sé að
skapast í Evrópu í krafti póli-
tískra ákvarðana og stefnumótun-
ar lýðræðislega kjörinna stjórn-
málamanna? Eða hvert eiga allar
þær milljónir atvinnuleysingja er
nú eigra um götur og torg evr-
ópskra borga að snúa sér?
Verður þetta lánlausa fólk, sem
margt hvert er fórnarlamb
menntunarkrafna hátækniiðnað-
arins, ekki næsta auðveld bráð
manna á borð við Le Pen, sem tal-
ar auðskilið og einfalt mál götunn-
ar?
Hér heima
En hvað um okkur hér heima á
gamla Fróni, hafa ákvarðanir
hinna lýðræðislega kjörnu full-
trúa einhver afgerandi áhrif á vík-
ingseðlið og hetjulundina? í Helg-
arpóstinum var nýlega viðtal við
Högna óskarsson geðlækni um
hina óeðlilegu miklu uppsveiflu
sjálfsvíga á árinu ’83. Högni skýr-
ir þessa uppsveiflu meðal annars
þannig: Allt það ástand, sem
stuðlar að auknu vonleysi og
hjálparleysi fólks, ýtir undir ör-
væntingu og uppgjöf. Þannig
mætti ætla, að kreppuástandið í
efnahagslífinu á síðustu árum hafi
áhrif í þessa átt, sérstaklega þegar
fólk er fast í þeirri skrúfu, sem
aukinn munur á kaupgjalds- og
lánskjaravísitölu hefur skapað. Og
ekki hjálpa upp á sakirnar
ábyrgðarlitlar yfirlýsingar stjórn-
málamanna, sem eru fyrst og
fremst hugsaðar sem veiðarfæri á
atkvæðamiðum ... Þegar einstakl-
ingurinn er orðinn áhrifalaus og
þegar flokks- og kerfishagsmunir
sitja í fyrirrúmi þá er voðinn vís.
Ólafur M.
Jóhannesson
Þáttur um
Jónas Jónsson
frá Hriflu
■1 Þáttur Emils
20 Björnssonar
“ „Minnisstætt
fólk“ er á dagskrá útvarps
í kvöld kl. 21.20. í þessum
þætti segir Emil frá kynn-
um sínum af Jónasi Jóns-
syni frá Hriflu og nefnist
þessi þáttur, sem er sá
fyrri af tveimur, „Áhrifa-
valdur aldarinnar'.
Jónas Jónsson fæddist í
Hriflu í Bárðardal árið
1885. Hann varð gagn-
fræðingur frá Akureyri
1905 en stundaði síðan
Jónas Jónsson frá Hriflu
framhaldsnám i ýmsum
Evrópulöndum. Þegar
heim kom, 1909, gerðist
hann kennari við Kenn-
araskólann í Reykjavík til
ársins 1918. Jónas var
skólastjóri Samvinnuskól-
ans frá stofnun hans
haustið 1919—1927 og aft-
ur 1932—1955. Hann beiti
sér fyrir stofnun Fram-
sóknarflokksins 1916 og
var formaður hans
1934-1944.
Jónas var skipaður
dóms- og kirkjumálaráð-
herra 1927 og að ráð-
herradómi loknum, 1932,
tók hann aftur við skóla-
stjórn Samvinnuskólans
sem fyrr segir til 1955.
Jónas varð landskjörinn
þingmaður árið 1923 og
sat á þingi til ársins 1949.
Hann tók sæti í bankaráði
Landsbankans 1927 og
1936 og var forseti Þjóð-
vinafélagsins 1940—1941.
Þá var Jónas afkastamik-
ill rithöfundur og eftir
hann liggja fjölda mörg
rit og greinar. Hann and-
aðist í Reykjavík 1968.
Iðnaðarráðherra
„þriðji maðurinn“
■■ Þátturinn
00 „Þriðji maður-
inn“ er á
dagskrá rásar 2 í kvöld kl.
21. Gestur þáttarins að
þessu sinni er Sverrir
Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra. Stjórnendur
þáttarins eru Ingólfur
Margeirsson og Árni Þór-
arinsson.
Tónlistarkrossgáta rásar 2
Hér birtist Tónlistar-
krossgáta rásar 2 númer
24. Þáttur Jóns Gröndal
er á sunnudaginn kemur
kl. 15. Hlustendum er þá
gefinn kostur á að svara
einföldum spurningum
um tónlist og tónlistar-
menn og ráða krossgátu
um leið.
Lausnir sendist til: Ríkis-
útvarpsins rás 2,
Hvassaleiti 60,
108 Reykjavík,
merkt Tónlistarkrossgátan.
I gegnum tíðina
■■ Þátturinn „f
00 gegnum tíðina"
er á dagskrá
rásar 2 í dag kl. 15.
Stjórnandi er Ragnheiður
Davíðsdóttir.
Að þessu sinni kemur
enginn gestur í heimsókn,
en í nokkrum þátta sinna
hefur Ragnheiður spjallað
við fólk úr ýmsum áttum,
m.a. fólk þekkt úr ís-
lensku tónlistar- og leik-
listarlífi.
í þættinum í dag hyggst
Ragnheiður eingöngu
leika íslensk lög af plötum
sem komið hafa út á síð-
ustu 10 árum. f stuttu
spjalli við blm. kvaðst
Ragnheiður ætla að kynna
þau lög á plötunum, sem
einhverra hluta vegna
hefðu ekki náð vinsældum
þrátt fyrir að þau væru
ekki síðri en hin lögin á
plötunni.
Ragnheiður Davíðsdóttir er
stjórnandi þáttarins.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
18. aprll
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Málræktarþáttur. Endurt.
þáttur Baldurs Jónssonar frá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Höröur As-
kelsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Hollenski Jónas" eftir
Gabriel ÍScott
Gyða Ragnarsdóttir les pýð-
ingu Sigrúnar Guðjónsdóttur
(4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréftir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraöra
Þáttur f umsjá Þóris S. Guð-
bergssonar.
11.00 „Ég man þá tlö“
Lög frá liðnum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman
Umsjón: Sólveig Pálsdóttir.
13.30 Tónleikar
14.00 „Eldraunin" eftir Jón
Björnsson
Helgi Þorláksson les (18).
14.30 A frlvaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar
a. Serenaða I D-dúr op. 41
eftir Ludwig van Beethoven.
Aurél Nicolet og Karl Engel
leika á tlautu og planó.
b. Trló 11 Es-dúr K.498 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Walter Triebkorn, Gönter
Ludwig og Gunter Lemmen
leika á klarinettu, planó og
viólu.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19^5 Knapaskólinn
Breskur myndaflokkur I sex
páttum um unglingsstúlku
sem langar til að verða
knapi. Þýöandi Guðni Kol-
beinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Ólafur Sig-
urösson.
19A0 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur páttinn.
20.00 Hvlskur
Umsjón: Höröur Sigurðar-
son.
20.30 Tónleikar Sinfónluhljóm-
sveitar Islands I Háskólablói.
(Beint útvarp frá fyrri hluta
tónleikanna.)
Stjórnandi: Carolos Trikoli-
des. Einleikari: Viktoria Mull-
ova.
a. Fingalshellir. Forleikur op.
26 eftir Felix Mendelssohn.
b. Rðlukonsert nr. 1 I d-dúr
op. 6 eftir Niccolo Paganini.
Kynnir: Jón Múli Arnason.
21J20 Minnisstætt fólk —
21.15 Sóknin aö sunnan
Bresk heimildarmynd um
nýtt blómaskeið I kvik-
myndagerö I Astrailu sföustu
árin. Ýmsir þekktir kvik-
myndaleikarar koma fram I
myndinni, bæði ástralskir og
bandarlskir, sýndar eru
svipmyndir úr áströlskum
blómyndum og fjallað um
sérkenni pessarar fjarlægu
heimsálfu. Þýðandi Bjarni
Gunnarsson.
22.15 Þá goösögn deyr
(When the Legends Die).
Bandarlsk blómynd frá
Ahrifavaldur aldarinnar
Emil Björnsson segir frá
kynnum slnum af Jónasi
Jónssyni frá Hriflu. Fyrri
þáttur.
21.45 Gestur I útvarpssal
Kjell Bækkelund leikur á pl-
anó.
a. Fjögur planólög eftir Far-
tein Valen.
b. „Kubiniana" eftir Hans Er-
ik Apostel.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Milli stafs og huröar
Umsjón: Hilda Torfadóttir og
Ólafur Torfason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
1972. Leikstjóri Stuart Millar.
Aöalhlutverk: Richard Wid-
mark, Frederic Forrest, Lu-
ana Anders og Vito Scotti.
Sðguhetjan er indlánapiltur
sem yfirgefur nauöugur
heimkynni sln og kynnist sið-
um hvltra manna. Drykk-
felldur kúreki uppgötvar að
piltinum er hestamennska I
blóð borin. Hann tekur pilt-
inn að sér og gerir hann full-
numa I keppnislþróttum kú-
reka. Þýðandi Reynir Harð-
arson.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
18. aprll
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
154)0—16.00 I gegnum tíðina
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
íðsdóttir.
16.00—174» Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áöur
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktfmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
214)0—22.00 Þriðji maöurinn
Stjórnendur: Ingólfur Mar-
geirsson og Arni Þórarins-
son.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandl: Svavar Gests.
23.00—24.00 Óákveóiö.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
19. aprfl