Morgunblaðið - 18.04.1985, Page 17

Morgunblaðið - 18.04.1985, Page 17
HORGlTNBLAÐn>, PnMMTUDAGUTt 18. iÁPRfL 19B5 Byggingar- list í 700 ár Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Olive Cook: The Knglish House through Seven Centuries. With photographs by Edwin Smith. Penguin Books 1984. Höfundurinn segir hér sögu enskra ibúðarhúsabygginga i sjö aldir. Þetta er listasaga, sem sýnir þróun byggingarstils og smekks, sem hefur mótast af vissri afstöðu til umhverfis og af lífsháttum á Englandi og i vestrænum rikjum almennt. Undirstaðan er að dómi höfundar „einstaklingshyggja sem grundvöllur afreka og persónu- legrar tjáningar ..." Hún telur að þess sjáist nú merki að þessi hugmynd sé nú á undanhaldi, sem kveikja vestrænnar menningar. Það er erfitt að sjá eigin samtíð hlutdrægnislaust eins og höfund- ur skrifar, en hún telur sig sjá, að erfðavenjur og aldagamlar hefðir séu sniðgengnar og megi skírast sjá það í listum. Stefnur í heim- speki og stjórnmálastefnur virð- ast að hennar dómi einkennast af frávikum frá gildi persónubundins mats að hóphyggju. Þetta kemur greinilega fram í byggingarstíl, menn reistu sér hús fyrrum með gagnsemi fyrir augum auk þess sem smekkur húsbyggjandans mótaði útlit og skreytingar. Nú er það gagnsemin ein sem mótar byggingarnar. Höfundurinn lýsir fjölbreyti- leika bygginganna, sem kemur oft til af því hvaða efni var notað og hvernig með það var farið. Mikið er enn við lýði af fornum bygging- um á Bretlandseyjum, en hún tel- ur það mikið helgast af þvi að það hefur aldrei verið gerð innrás óvinahers á Bretlandseyjar síðan á dögum Vilhjálms bastarðs. Hefðbundinn stíll var ráðandi, reyndar með smávegis breyting- um og stílhvörfum, en það urðu ekki nein slit við byggingarhefðir fortíðarinnar fyrr en eftir 1945. Þá varð gjörbylting í bygg- ingarsmekk. Ný hugmyndafræði orsakaði nýja framleiðsluhætti og nytjahyggju, sem mat allt til verðs. Höf. skrifar „það nýja vex ekki upp við hlið þess eldra, heldur virðist þessi nýi byggingaróskapn- aður vera á góðri leið með að út- rýma því eldra. Það var löngu séð að dagar hinna glæsilegu landsetra fortíð- arinnar voru allir, en það eru ekki aðeins landsetrin sem hverfa held- ur einnig hefðbundinn stílsmáti húsa minni gerðar. Ástæðan er fyrst og fremst nútíma iðnvæðing, bifreiðin, barnaleg afstaða til þess sem nefnt er þægindi og nytsemi og vanþróaður smekkur. Hús for- feðra okkar hentar ekki lengur nútíma lifnaðarháttum, og vúlgær nytjahyggja á ekki næmi til þess að meta hin fornu hús.“ Olive Cook kemur skoðunum sínum umbúðalaust til skila og iðkar enga tæpitungu. Skoðanir hennar samræmast augljósum staðreyndum. T.d. má nefna, hvort glæstustu listasverk mannsand- ans hafi nokkru sinni verið sköpuð með hópefli eða í starfshóp? Hóphyggja nútímans er fjand- samleg allri list í eðli sínu, vegna þess að viðmiðunin og stefnan er meðaltalið, grámóskan. Nútíma byggingarlist er sönn- ust opinberun hóphyggjunnar og nytsemishyggjunnar, samfélags- Fostertrafikk — fosteretik Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Claude Jacquinot og Jacques Delaye: Fostertrafik-fosteretik. Dönsk þýðing: Lene Christensen og Bodil Quistgaard. Útg. Klimforlag 1985. Þetta er einhver sérkenni- legasta og óhugnariegasta frásaga sem ég hef lengi lesið: hér segir frá umfangsmikilli sölu á frystum fátrum annars vegar og hins vegar er fjallað um ýmsar aðferðir til að koma barnlausu fólki til hjálpar, meðal annars með leigumeðgöngu, en einnig skammtímalánum á legi frjórra kvenna sem taka þá að sér nokkurra daga fóstrun á fóstur- vísi. Vikið er að hinum lagalegu og siðfræðilegu hliðum þessara mála og margt annað er tekið fyrir. Bókin er nýlega komin út i Frakklandi og vakti þar mikla at- hygli og var þýdd snarlega yfir á dönsku og þá útgáfu hef ég sem sagt i höndunum. Höfundar hafa bersýnilega rannsakað þessi mál ítarlega og styðjast hvarvetna við öruggar heimildir, oft og einatt nafngreindar, svo að varla er hægt að draga frásögnina í efa þótt óhugnarleg sé á stundum. Að vísu hafa birzt fréttir af leigumæðrum, svo og aðferðum til að koma sæði fyrir í legi kvenna ef viðkomandi kona getur ekki orðið þunguð af maka síns völdum. Segja má að um allt það megi deila út frá hin- um ólíkustu sjónarhornum. En það vakti þó ekki tiltakanlega óhug, alténd ekkert í samanburði við langar og vandlega unnar frá- sagnir af sölu á fóstrum. Oft í vísindalegum tilgangi — eða að minnsta kosti er skotið sér á bak við þá ástæðu. Við lesturinn um hvernig þau mál ganga fyrir er ekki langt í að manni finnist „vis- indatilraunir" nazistalækna í sfð- ari heimsstyrjöldinni hafi verið nánast grín í samanburði við það sem hér er sagt. Þessar tilraunir eru eftir bók- inni að dæma með hinum mesta blóma í Frakklandi og ýmsum öð- rum Evrópulöndum, þar sem menn stæra sig af hvað mestri sið- menningu. leg nauðsyn er leiðarljósið og þar með er vilji og smekkur hins ein- staka útilokaður frá áhrifum og mótun. Hvergi kemur þetta skírar fram en í þeim byggingaróskapn- aði sem kallast blokkir eða háhýsi, þar sem þessu er hrúgað upp á mjög takmörkuðum svæðum og þéttleiki byggðarinnar minnir á búrsamsteypur verksmiðjubú- anna, umhverfið steindautt, þótt sé verið að bjástra við að planta trjám á milli steinsteypu-eyði- markanna, sem gera i rauninni illt verra, gerir óskapnaðinn enn álappalegri, gróöurinn á þessum svæðum minnir á dýr í dýragörð- um. Einbýlishúsabyggingar eru markaðar smekkleysi og ofhleðslu, bera merki þeirra manntegunda, sem álíta að hægt sé að kaupa menningu fyrir peninga, einhæfni þessara bygginga er átakanleg, frávikin verða öll til þess að auka enn á smekkleysið. Hugmynda- fræði hóphyggjunnar kemur e.t.v. hvergi ein's skírt fram og í einbýl- ishúsabyggingum og raðhúsa- byggingum. Olive Cook rekur hér dæmi um byggingar á Englandi allt frá dög- um Rómverja og til loka 19. aldar, aðalefnið er þó bundið við síðustu sjö aldir. Frumstæðustu bygg- ingarnar minna nokkuð á bygg- ingar eins og þær tíðkuðust hér á landi fyrrum. Það eru til dæmi um slíkar byggingar á Englandi og byggingartækni þeirra tíma lifði lengi. Hér á landi var fjöldi merkra bygginga rifinn, eftir að steinsteyputímabilið hófst út um sveitir. Með þeim breytingum sem urðu hér í atvinnuháttum og tækni jókst niðurrifs-æðið. Fjöl- margar byggingar úr torfi og grjóti, stórar og smáar, voru rifn- ar, oft að nauðsynjalausu. Sumar þessara bygginga voru stórmerki- legar byggingafræðilega séð og margar þeirra báru vott um gró- inn smekk og verklagni, og voru fagrar á að líta. Með vúlgaríser- ingu alls smekks hlutu þessar byggingarleyfar að hverfa og í staðinn voru reistar byggingar sem einkenndust af vankunnáttu og smekkleysi, lágmenningarmat- ið tók völdin. Höfundurinn birtir lýsingu og myndir fjölda bygginga, íbúðar- húsa og landsetra og lýsir hverju þeirra. Það sem einkum vekur at- hygli er fjölbreytileikinn á hverjú tímabili og jafnframt fjallar hún um merkustu arkitektana. í bók- arlok ræðir hún nokkuð um nú- tíma byggingarlist og þar með niðurkoðnun byggingarlistarinn- ar. Þetta er skemmtilega skrifuð bók, af miklum fróðleik og næm- um og grónum smekk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.