Morgunblaðið - 18.04.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR18. APRÍL1985
Skipting loðnustofnsins:
Stefnt að samkomulagi
fyrir upphaf vertíðar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning fri utanrík-
isráðnneytinu um viðræður íslendinga, Grænlendinga og Norðmanna um
skiptingu loðnustofnsins:
Dagana 15,—17. april 1985 fóru
fram i skrifstofu grænlensku
heimastjórnarinnar i Kaup-
mannahöfn viðræður milli full-
trúa Islands, Grænlands og Nor-
egs um málefni er varða loðnu-
stofninn á hafsvæðinu við ísland,
Jan Mayen og Grænland.
Voru þetta fyrstu viðræður að-
ila um málið eftir útgöngu Græn-
lands úr Efnahagsbandalagi Evr-
ópu fyrr á þessu ári.
I viðræðunum var einkum fjall-
að mjög ítarlega um skiptingu
Söngfélag Skaftfellinga:
Söngferð til Austurlands
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga í
Reykjavík fer í söngferð til Austur-
lands um þessa helgi og verða fyrstu
tónleikarnir i Seyðisfirði annað
kvöld, föstudagskvöld, kl. 21.
Næstu tónleikar verða í Egils-
staðakirkju á laugardag kl. 15 og á
Eskifirði á laugardagskvöld kl. 21.
Söngstjóri kórsins er Violeta
Smidova og undirleikari Pavel
Smid, en þau munu einnig leika
saman fjórhent á píanó. Violeta og
Pavel hafa bæði starfað á Eski-
firði og Reyðarfirði í nokkur ár
sem tónlistarkennarar og kór-
stjórar.
Með í för Söngfélags Skaftfell-
inga verður söngvarinn Friðrik S.
Kristinsson frá Eskifirði, sem
syngur nokkur einsöngslög.
(Krétuiilkynning)
„ROKKHJARTAÐ slær“ hefur nú
verið sýnt níu sinnum í Bæjarbíói í
Hafnarfirði. Tíunda sýning i söng-
leiknum verður í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, 18. aprfl, 11. sýning i
föstudag og 12. sýning i laugardag.
Sýningar hefjast klukkan 20.30.
Samtök áhugaleikfélaga halda
leiklistarhátið i Monaco um mán-
aðamótin ágúst-september. Full-
trúi íslenzkra leikfélaga á þessari
hátíð verður Leikfélag Hafnar-
fiarðar með „Rokkhjartað slær“.
A hátiðinni leikur hver hópur á
sinu móðurmáli.
heildarveiði úr loðnustofninum
milli aðilanna. Munu hugmyndir
þær sem fram komu á fundinum
verða athugaðar nánar af stjórn-
völdum landanna og leitast við að
ná samkomulagi fyrir upphaf
loðnuvertíðar í sumar.
í íslensku viðræðunefndinni
voru: Ólafur Egilsson sendiherra,
formaður, Jón B. Jónasson,
skrifstofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins, Þorsteinn Gíslason
fiskimálastjóri, Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur, Krist-
ján Ragnarsson, formaður Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna,
og óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands fslands.
Formaður grænlensku viðræðu-
nefndarinnar var Einar Lemche
og formaður norsku nefndarinnar
Trond S. Paulsen.
Næturklúbburinn í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefnr tekið til sýningar kvikmyndina Næturklúbbinn
(The Cotton Club), sem er ein dýrasti kvikmynd er gerð hefur verið.
Kostnaðurinn nam um 50 milljónura dollara, eða 2 milljörðum króna,
segir í kynningu frá kvikmyndahúsinu.
Leikstjóri er Francis Ford tima.
Coppola, en framleiðandi er
Robert Evans. Þeir gerðu í sam-
einingu kvikmyndina „The God-
father". Sagan gerist á bannár-
unum í Bandaríkjunum og teng-
ist ýmsum þekktustu bófum þess
Aðalhlutverk eru í höndum
þeirra Richard Gere, Gregory
Hines, Diane Lane og Bob Hosk-
ins. Handrit er eftir Mario Puzo,
William Kennedy og Francis
Ford Coppola.
Leikfélag Akureyrar:
Rokkhjartað slær í Hafnarfirði
Flytja söngleikinn í Monaco í haust
Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir
LEIKFÉLAG Akureyrar æfír nú nýtt
barna- og unglingaleikrit eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Leikritið heitir
„Kötturinn sem fer sínar eigin leið-
ir“ og er byggt i samnefndri smi-
sögu Rudyard Kipiing.
Olafur Haukur samdi bæði
handrit, söngtexta og lög við
verkið, sem fjallar um kött, hund,
hest og kú og mann, konu og barn.
Fjallað er um það hvernig þessi
dýr þróast frá því að vera villidýr
yfir í húsdýr, en konan mun vera
kænust í að lokka dýrin til þjón-
ustu við manninn. Kötturinn fer
þó jafnan sinar eigin leiðir.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs,
hönnuður leikmyndar og búninga
er Messíana Tómasdóttir, Gunnar
Þórðarson hefur leikið útsetn-
ingar sínar á tónlistinni inn á
snældu og Alfreð Alfreðsson sér
um lýsinguna. Leikarar eru Þrá-
inn Karlsson, Þórey Aðalsteins-
dóttir, Theodór Júliusson, Sunna
Borg, Pétur Eggerz, Marinó Þor-
steinsson og Rósberg Snædal.
Frumsýning á leiknum verður síð-
ustu helgina í apríl.
(FrétUUIkjnawg)
Margeiri nægir jafntefli
til að komast áfram
Skák
Jóhann Hjartarsson
Bragi Kristjánsson
Nn fer fram í ísrael einvígi á
milli Margeirs Péturssonar og
ísraelsmannsins Shvidler. Keppa
þeir um réttinn til þátttöku á milli-
svæðamóti sem fram fer síðar á
árinu. Tefla kapparnir í Beersheva,
sem er 120 þúsund manna bær og
liggur rúmlega 100 kflómetra frá
Tel Aviv. Skákfélag Beersheva sér
um framkvæmd einvígisins.
Klúbburinn er álitinn sterkastur í
ísrael og hefur innan sinna vé-
banda marga af sterkustu skák-
mönnum landsins, þar á meðal ís-
raelsmeistarann Greenfeld og al-
þjóðlega meistarann Gutmann,
sem íslendingum er að góðu kunn-
ur, síðan hann vann alþjóðlega
skákmótið í Grindavfk í fyrra.
Að sögn Braga Kristjánsson-
ar, aðstoðarmanns Margeirs, eru
áhorfendur öllu færri en menn
eiga að venjast á skákmótum á
íslandi. Framkvæmd einvígisins
er engu að síður meö miklum
sóma og aðstæður eru hinar
bestu. Heimamaðurinn nýtur j>ó
góðs af því að hitinn er mikill, 35
stig.
Þeir Margeir og Shvidler eru
jafnaldrar, báðir 25 ára gamlir.
Shvidler er sovéskur að uppruna
og bjó í Úkraínu þar til hann
fluttist til Israels fyrir 5 árum
síðan. Frami Shvidlers i skák-
heiminum hefur verið ótrúlega
skjótur, en nafn hans var nær
óþekkt fyrir svo sem einu ári.
Nú er lokið fyrstu þremur
skákunum af fjórum i einvíginu.
Tapaði Margeir hinni fyrstu,
vann aðra, en þriðju skákinni
lauk með jafntefli. Er staðan því
jöfn fyrir síðustu skákina, sem
tefld verður í dag. Stendur
Margeir með pálmann í höndun-
um, en hann getur leyft sér að
gera jafntefli, þar sem hann
vinnur á jöfnu vegna hagstæð-
ara vinningshlutfalls úr svæða-
mótunum í vetur. Er óskandi að
allt fari vel, en langt er um liðið
síðan tslendingar áttu síðast
fulltrúa á millisvæðamóti, en
það var Friðrik Ólafsson sem
tefldi í Stokkhólmi 1962.
Hér á eftir fara skákirnar sem
lokið er.
1. skákin:
Hvítt: Shvidler
Svart' Margeir Pétursson
Tarrasch-vörn
1. c4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. g3 —
Rf6, 4. Bg2 — Be7, 5. (H) — 0-0, 6.
d4 — d5, 7. cxd5 — exd5, 8. Be3
— Rg4, 9. Bf4 6 Rc6, 10. Rc3 —
Be6, 11. dxc5 - Bxc5,12. Rg5
12. — Rxf2?
(Þessi fórn stenst ekki. Betra
var e.t.v. 12. — Db6.)
13. Hxf2 — Bxf2, 14. Kxf2 — Db6,
15. Kfl — h6, 16. Ra4 - Dd4, 17.
Dxd4 — Rxd4,18. Rf3 — Rxf3,19.
Bxf3 — Hac8, 20. Rc3 — Hfd8, 21.
Rb5 — Hc2, 22. b3 — a6, 23. Rd4
— Hc5, 24. Bd2 — Hdc8, 25. Kf2
— H5c7, 26. a4 - Kf8, 27. a5 —
Ke7, 28. Ha4 — g5, 29. Hb4 -
Kf6, 30. Hb6 — Ke5, 31. Ke3 —
Bd7, 32. g4 — 16, 33. Bel — Hc3,
34. Bxc3 — Hxc3, 35. Kd2 — Hc5,
36. Hxb7 — Kxd4, 37. Hxd7 —
Hxa5, 38. e3 - Ke5, 39, Kd3 6
H»2, 40. Bxd5 — Hxh2, 41. Bc4 og
svartur gafst upp.
2. skákin:
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart' Shvidler
Drottningar-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6,4. Rc3 — Bb4, 5. Bf4 — Bb7,6.
Db3
(Þessum leikmáta beitti
Korchnoi til sigurs í einvíginu
við Htibner 1978, en honum hef-
ur litið brugðið fyrir í seinni tíð.)
6. — a5, 7. e3 — Bxf3?
(Svartur lætur af hendi góðan
biskup möglunarlaust. Auk þess
opnast hvítum línur á kóngs-
væng. Betra var 7. — Re4, eða 7.
- 0-0.)
8. gxf3 — Rh5, 9. Bg3 — Rc6, 10.
a3
(Hvítur hefur fengið mun
rýmra tafl og ætti að öllu jöfnu
að geta lokið liðskipan sinni á
undan andstæðingnum. Þvi kom
vel til greina að leika 10.0-0-0 og
síðan eftir atvikum 11. d5 með
gegnumbroti á miðborðinu. Nú
tekst Israelsmanninum að rétta
nokkuð úr kútnum með því að
njörva niður peðin á drottn-
ingarvængnum.)
10. — a4I, 11. Dc2 — Bxc3, 12.
Dxc3 — Ra5, 13. Bd3 — Rxg3?
(Opnar linur að nauðsynja-
lausu. Betra var 13. — f5, eða 13.
— 0-0 og síðan f5.)
14. hxg3 - Df6, 15. Be4 - c6, 16.
r4
(Hér missti Margeir af enn
betri leið en hann valdi: 16. Db4!
— d5,17. cxd5 — exd5,18. Bd3 —
Dxf3, 19. Hh4 og héitur hefur
nægar bætur fyrir peðið, þar
sem menn svarts standa afar illa
og vinna lítt saman.)
Margeir Pétursson
16. — d5, 17. cxd5 — exd5, 18.
Bd3 — h5, 19. Hcl — b5, 20. Dc5
— De7, 21. Db6 — Dd8
(Shvidler eltir drottningu
Margeirs og er greinilega
ánægður með jafntefli. Okkar
maður var ekki á þeim buxunum
og teflir ótrauður til vinnings,
þótt staðan gefi ekki tilefni til
jæss að öðru leyti.)
22. Dc5 — De7,23. g4 — h4,24. g5
— Dxc5, 25. Hxc5 — Kd7, 26. Hc2
(Nauðsynlegur leikur. Svartur
hótaði að skerða athafnafrelsi
hvíta hróksins með 26. — Rc4.)
26. — Hab8, 27. (H) — f6?
(Eftir skákina fordæmdi
Margeir þennan leik. Betra var
að leita hófanna á drottningar-
vængnum með 27. — b4, 28. axb4
— Rb3 og næst Hxb4.)
28. Kh2 - fxg5, 29. fxg5 - Rc4,
30. Kh3 — Hbf8
(Israelsmaðurinn skilur ekki
að sókn er besta vörnin. Á
kóngsvængnum biður hans ekk-
ert nema þröng vörn.)
31. Kg4 — h3, 32. Hhl — Ke6,33.
He2!
(Hvítur undirbýr peðafram-
sókn á kóngsvængnum. Shvidler
var hér kominn i mikið tímahrak
og bera næstu leikir hans þess
merki.)
33. — Hb8, 34. f4 — b4, 35. f5 —
Kd6, 36. Bxc4
(Svartur bregður nú á það ráð
að fórna manni til að fá mótspil.
Eftir 36. — dxc4, 37. axb4 —
Hxb4, 38. e4 myndu hvítu peðin
ryðjast áfram, án jæss að svart-
ur fengi við nokkuð ráðið.)
36. — bxa3,37. Ba2 — axb2,38. e4
— Hb4, 39. e5 — Kd7, 40. f6 —
Ke6
41. — Hd2
(Þetta var biðleikur Margeirs.
Hvíta staðan er léttunnin.)
41. — c5, 42. Bbl — cxd4, 43. Hd3
— gxl6
(Eftir 43. — Kxe5 hefði hvítur
einnig unnið, eins og Bragi
Kristjánsson aðstoðarmaður
Margeirs sýndi fram á eftir
skákina: 44. Hlxh3 — Hxh3, 45.
fxg7 - Hxd3, 46. g8=D - Hdl,
47. De8 - Kd6, 48. Dg6 - Kd7,
49. Bf5.)
44. exf6 — h2, 45. Hel — Kd6, 46.
f7 — Hc4,47. g6 — Hcl, 48. Hddl
og svartur gafst upp.
3. skákin:
Hvítt: Shvidler
Svart: Margeir Pétursson
Catalan-byrjun
1. c4 — e6, 2. Rf3 — Rf6, 3. g3 -
d5, 4. Bg2 — Be7, 5. 0-0 — 04), 6.
d4 — dxc4, 7. Dc2 — a6, 8. a4 —
Bd7, 9. Dxc4 — Bc6, 10. Bg5 —
Kbd7, 11. Rc3 — Hc8, 12. Hfdl —
Rd5, 13. Bxe7 — Dxe7, 14. a5 —
Hfd8, 15. Hacl — Rxc3, 16. bxc3
— Be4,17. Rd2 — Bxg2,18. Kxg2
— c5,19. Db3 — cxd4,20. cxd4 —
Hxcl, 21. Hxcl — Rb8, 22. e3 —
Rc6, 23. Rc4 — Hd5, 24. Hbl —
Rxa5, 25. Rxa5 — Hxa5, 26. Dxb7
— Dxb7, 27. Hxb7. Jafntefli.