Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 39
MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUB18. APRÍL1966
39
Ár vatnslitl-
ar vestanlands
Kleppjárnsreykjum, 15. aprfl.
ÞESSI vetur hefur verið óvenju
snjóléttur, þar af leiðandi er
mjög lítið vatn í ánum hér vest-
anlands. Vaknar þá sú spurning,
hvort nægjanlegt vatn verði í
ánum í sumar fyrir laxinn. Fróð-
ir menn segja, að hann muni
ganga mjög snemma því að vatn-
ið verði hlýrra en venjulega.
í Reykjadalsá eru eyrar, sem
ekki hafa sést fyrr á þessum
tíma. Á myndinni sést Magni
Már, 10 ára, í miðri Reykjadalsá
og er hún væð á gúmískóm.
Bernhard
Huldumaöurinn
í Regnboganum
HULDUMAÐUBINN nefnist
sænsk-ensk kvikmynd, sem Regn-
boginn hefur nýlega hafið sýningar^
á. Myndin fjallar um scnskan vís-
indamann, sem hefur fundið upp
tæki sem gerir leit að kafbátum auð-
velda. Uppfinning hans vekur mikla
athygli í Svíþjóð og ekki síður í
Bandaríkjunum. Tckinu er stolið
frá vísindamanninum og hefst þá
mikill eltingarleikur.
Með aðalhlutverk í Huidumann-
inum fara Dennis Hopper. Hardy
Kruger, Cory Molder og Gösta
Ekman, en leikstjóri er Tom
Clegg.
Nýtt tölublað Tísku-
blaðsins Nýtt líf
NÝLEGA kom út annað tölublaðið í
ár af tískublaðinu Nýtt líf, en frá og
með síðustu áramótum var ákveðið
að blaðið kcmi út átta sinnum á árí.
Blaðið er 116 síður að stcrð.
Meðal efnis í því er viðtal við
Þórhildi Þorleifsdóttur leikstjóra,
grein um starfsemi rásar 2 og við-
töl við starfsmenn þar. Smásaga
er í blaðinu eftir Hafliða Vil-
helmsson rithöfund, grein er um
tónlist eftir Gunnar Salvarsson
auk fleiri greina og viðtala af
margvíslegum toga.
Ritstjóri Tískublaðsins Nýtt líf
er Gullveig Sæmundsdóttir.
TooKst. - •• rlas>s
Tölvur ’85 — rit
tölvunarfræðinema
FÉLAG tölvunarfræðinema við
Háskóla íslands hefur gefið út rit-
ið Tölvur ’85 og er það annar ár-
gangur blaðsins. Meðal greina má
nefna „Kynslóðir í nýju ljósi" eftir
Sigurð Haraldsson, „Þvaðrið um
upplýsingaþjóðfélagið og islenzkt
hugvit” eftir dr. Benedikt Jóhann-
esson, „Tölvubyltingin og áhrif
hennar á þjóðfélagið" eftir Svein
Baldursson, „Vinnsla máls í tölv-
um“ eftir Friðrik Skúlason og
„Tölvubyltingin — hvað stendur
eftir þegar tískan líður hjá“ eftir
Jón Erlendsson.
„Fæði sykursjúkra
— fæði fyrir alla“
MANNELDISFÉLAG íslands og Samtök sykursjúkra halda opinn fund á
laugardaginn, undir kjörorðinu „fcði sykursjúkra — kjörið fcði fyrir alla“.
Verður fundurinn haldinn í Holtagörðum við Holtaveg og hefst kl. 14.30.
Inngangserindi fundarins flytur
Gunnar Valtýsson, læknir, sem er
sérfræðingur í innkirtla- og efna-
skiptasjúkdómum. Erindi hans
fjallar um sykursýki og einkenni
hennar. Síðan flytur dr. Hugh
Simpson læknir erindi er nefnist
„The role of nutrition in the tre-
atment of diabetes mellitus with
special reference to high carbohy-
drate high fibre diet“. Lokaerindi
fundarins flytja þær Kolbrún Ein-
arsdóttir, Guðrún Þ. Hjaltadóttir
og Anna Edda Ásgeirsdóttir, nær-
ingarfræðingar, en þær fjalla um
fæði sykursjúkra.
Áætluð fundarlok eru kl.
17.30—18. Fundarstjóri verður
Gunnar Valtýsson, læknir, sem er
varaformaður Manneldisfélagsins
og i stjórn Samtaka sykursjúkra.
(0r fréttatilkynningu)
c'ggjgilSII
Fréttirfmfvrstu liendi!
GULLNI HANINN
LAUCAVECI 178, SÍMI 54780
i HUSI TRVCCINCAR HF
——Lúxus matseðlar=
föstudaga, laugardaga og sunnudaga í aprílmánudi
Hér eru tvær tUlögur að lúxuskvöldverði í Gullna hanan-
um sem standa gestum staðarins tU boða auk hins venju-
bundna matseðils.
Fordrykkur Gullni haninn
Kjötseyði Colbert
m/ostakexi
Fiskifantasía Gullna hanans
Sex gómsœiir sjávarréttir m/kryddgrjónum
Gljáð kiwi „Grand Marnier"
m/súkkuladi og rjóma
Kaffi og koniak
Verð kr 1250
Fordrykkur Gullni haninn
Sjávarkæfutríó
m/fpyskri eggjasósu
Te-frauð m/rommbragði.
Hvítlaukskrydduð
nautabuffsteik gratín
m/kúmenosti og bakaðri kartoflu
Kaffi og koniak
Verð kr. 1350