Morgunblaðið - 18.04.1985, Page 47
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL1985
Nýtt húsnæðislána-
kerfi er nauðsynlegt
— eftirSkúla
Sigurðsson
Umræður undanfarnar vikur og
mánuði um húsnæðismál hafa um
of takmarkast við þann þátt sem
lýtur að fyrri tíð, hagsmunum
þeirra, sem þegar hafa fengið ián
úr Byggingarsjóði rikisins og öðr-
um lánastofnunum. Ekkert hefur
hins vegar verið fjallað um hags-
muni allra þeirra, sem á næstu ár-
um þurfa að komast í húsnæði,
annað hvort eigið, eða leiguhús-
næði.
Sá mikli vandi, sem fjöldi íbúð-
areigenda stendur nú frammi
fyrir vegna misgengis lánskjara-
visitölu og launa, er vandi, sem
stjórnvöld hafa búið til með að-
gerðum sínum til þess að vinna
bug á verðbólgunni. Ekki skal hér
lagður dómur á þær aðgerðir, en
að því er húsbyggjendur og íbúða-
kaupendur snertir leiddu þessar
aðgerðir til þess að greiðslubyrði
af almennum lánum til húsbygg-
inga og kaupa hækkaði miklu
meira en laun. Af þessu stafa gíf-
urlegir greiðsluerfiðleikar þessa
fólks. Sem betur fer hafa margir
getað klórað sig fram úr þessum
vanda, en eftir sem áður er mikill
fjöldi fólks kominn í mikil vanskil
og sér ekki fram á neina lausn
sinna mála. Það er rétt að leggja
áherslu á það atriði, að vandi
þessa fólks er að verulegu leyti til
orðinn án tilverknaðar þess sjálfs,
að öðru leyti en því, að það tók
venjuleg lán til íbúðarkaupa eða
húsbyggingar. Þetta fólk gerði ráð
fyrir þvi, að geta greitt af þessum
lánum, enda var það yfirlýst
stefna stjórnvalda að hækkun af-
borgana af húsnæðislánum yrðu i
samræmi við launahækkanir.
Vaxtastefnan og rýrnandi kjör
annars vegar og hækkun láns-
kjaravísitölu hins vegar hafa leitt
til þessa vanda. Stjórnvðldum bar
skylda til þess að sjá til þess að
þær afleiðingar aðgerða gegn
verðbólgunni, sem gripið var til,
leiddu ekki til gjaldþrota hús-
byggjenda í stórum stíl. Þess er
a.m.k. gætt þegar málið snýr að
atvinnuvegum landsmanna. Þess
er gætt, að aðgerðir stjórnvalda
Slvkkishólmi, 12. iprfl.
NÝLEGA barst Dvalarheimili aldr-
aðra vegleg gjöf, en það voru 100
þúsund kr. sem systkinin á Hálsi á
Skógarströnd, Kristján Sigurðsson,
Guðfínna og Sigurbjörg Sigurðar-
dætur, færðu stofnuninni til minn-
ingar um móðursystur sína, Ingi-
björgu Kristjánsdóttur, sem sein-
ustu ár sín dvaldi á heimilinu.
Vilja þau systkinin með þessu
sýna þakklæti sitt til Dvalarheim-
ilisins fyrir sérstaka umönnun
leiði ekki til rekstrarstöðvunar og
gjaldþrots fyrirtækja. Það er
sjálfsagt. En hvað er sjálfsagt við
það að láta fjölda húsbyggjenda
og íbúðarkaupenda verða gjald-
þrota? Stjórnvöld hafa komið
þeim í þennan vanda og verða því
að finna viðunandi lausn á honum.
Til hverra ráða verður gripið.
Tvennt hefur verið ákveðið. í
fyrsta lagi hefur verið komið á fót
ráðgjafarþjónustu hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Slíkt hefði átt að
koma þar fyrir löngu og ætti að
vera sjálfsagður þáttur í allri
starfsemi lánadeildar stofnunar-
innar.
í öðru lagi hafa stjórnvöld
ákveðið að lækka þá fjárhæð sem
ætluð var til nýbyggingarlána á
þessu ári um 150 m.kr. og veita þá
fjárhæð í svonefnd „kreppulán" til
þeirra, sem eru komnir í mestu
vanskilin, og aðstoða þá þannig til
þess að komast í skil að mestu
leyti, a.m.k. Við þessa leið er eink-
um tvennt að athuga.
í fyrsta lagi er vandi þeirra,
sem þegar hafa fengið lán leystur
á kostnað þeirra, sem þurfa að fá
nýbyggingarlán á þessu ári, og á
næstu árum. Þetta getur ekki tal-
ist vera „lausn“ frá sjónarhóli
Byggingarsjóðsins, í besta falli
bráðabirgðalausn. Vandinn að því
er sjóðinn snertir, og væntanlega
lántakendur, er ekki aðeins óleyst-
ur, heldur meiri en hann var fyrir.
í öðru lagi. Þegar til þess er lit-
ið, að þessi vanskil eru til komin
vegna aðgerða stjórnvalda fyrst
og fremst er erfitt að sætta sig við
að málið sé „leyst" með þvi að
veita skuldurum ný lán. Skuldar-
inn situr uppi með gífurlega
hækkun lána á síðustu 4—5 árum,
vegna verðtryggingarákvæða
skuldabréfa. Nýtt lán til þess að
standa undir þessari hækkun og
þeim vanskilum sem þegar eru
orðin, leysa ekki vanda hans.
Hann verður ekki færari um að
greiða af allri skuldasúpunni á
næsta ári eða þarnæsta. Misgeng-
ið milli skuldanna eins og þær eru
i dag annars vegar og launa hins
vegar er þegar orðið svo mikið að
hann er og verður ógjaldfær. Þess-
um forsendum þarf að breyta. Það
þarf að gera skuldaranum kleift
móðursystur sinnar og um leið
leggja sitt lóð á vogarskálina til að
auka við þessa ágætu stofnun.
Ingibjörg vann lengi hér i
Stykkishólmi og mest að sauma-
skap. Var lengi á saumastofu
kaupfélagsins eða þar til hún var
lögð niður. Þá setti hún á fót sína
eigin stofu sem hún annaðist með-
an heilsa og kraftar leyfðu.
Eru gefendum hér með færðar
þakkir stjórnenda fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
Árni
Skúli Sigurðsson
„Þaö þarf aö skapa hús-
byggjundiim og íbúöa-
kaupendum síöustu ára
aöstæöur til þess að þeir
geti verið skilamenn
eins og þeir vilja vera,
en ekki festa þá enn
frekar í vanskilanetinu.
Eina leiöin sem virðist
vera fær í þessari stöðu
er breyting á þeim
skuldum, sem húsbyggj-
endur og íbúðarkaup-
endur hafa á undan-
förnuin árum stofnaö til
vegna öflunar húsnæöis,
í ný lán meö viðráðan-
Iegum greiðslukjörum.“
að greiða af lánum sínum með sín-
um launatekjum, án þess að þurfa
að verja til þess óeðlilega stórum
hluta tekna. Ný lán eru ekki rétta
leiðin. Flutningur vandans frá
einu ári til annars með bráða-
birgðalausnum og segja siðan
„den tid den sorg“ þegar spurt er,
hvernig leysa eigi þessi mál á
næsta ári, gengur auðvitað ekki
lengur. Það þarf að skapa hús-
byggjendum og íbúðarkaupendum
síðustu ára aðstæður til þess að
þeir geti verið skilamenn eins og
þeir vilja vera, en ekki festa þá
enn frekar í vanskilanetinu. Eina
leiðin sem virðist vera fær í þess-
ari stöðu er breyting á þeim skuld-
um, sem húsbyggjendur og íbúða-
kaupendur hafa á undanförnum
árum stofnað til vegna öflunar
húsnæðis, í ný lán með viðráðan-
legum greiðslukjörum. Þetta er
leið sem farin er þegar bændur
hafa stofnað til of mikilla lausa-
skulda. Þá er flutt sérstakt laga-
frumvarp um breytingu á lausa-
Vegleg gjöf til Dvalarheim-
ilis aldraðra Stykkishólmi
skuldum í föst lán og komið þann-
ig í veg fyrir að. þeir flosni upp af
jörðum sínum. Útgerðin nýtur
slíkra lausna einnig þegar að
henni steðja greiðsluerfiðleikar.
Húsbyggjendur eiga að geta notið
þessarar lausnar einnig. Það er
auðvitað ljóst, að þessi leið er flók-
in og dýr, því hún verður að taka
tillit til fleiri skulda en þeirra,
sem stofnað var til hjá Bygg-
ingarsjóði. Taka verður einnig til-
lit til bankalána og lífeyrissjóðs-
lána. Ný lán verða síðan að vera
með kjörum, sem unnt er að búa
við og standa undir greiðslum.
En hvernig snýr málið gagnvart
þeim, sem á næstu árum þurfa á
lánum að halda til þess að komast
í húsnæði, eigið eða til leigu? Það
verður að segja eins og er, að á
undanförnum árum hafa stjórn-
völd gert grátlega lítið af því að
gera áætlanir til lengri tíma um
uppbyggingu húsnæðislánakerfis-
ins. Svo langt hefur verið gengið á
braut bráðabirgðalausna, að lána-
kerfið er nú i rjúkandi rúst. Fjár-
hagslega er það gersamlega van-
megnugt að veita lán með þeim
hætti, sem ráð er fyrir gert í lög-
um og reglugerðum. Eins og upp-
byggingu lánakerfisins er háttað
getur það ekki gengið nema með
sífelldum og endurteknum bráða-
birgðalausnum. Það gildir um
Byggingarsjóð ríkisins jafnt sem
húsbyggjendur, bráðabirgðalausn-
ir til „lausnar" á brýnasta vandan-
um, gera aðeins vandann ennþá
erfiðari úrlausnar. Ekkert bendir
til þess að stjórnvöld hyggist taka
á þessum vanda. tillögur um
hækkanir lána, flutning fjár milli
lánaflokka o.s.frv. en sem ekki
taka á enduruppbyggingu lána-
kerfisins, jafnt fjárhagslegri sem
stjórnunarlegri, þjóna litlum til-
gangi. Þær sýna eingöngu fram á
skilningsleysi á þeim vandamál-
um, sem lánakerfið á við að etja í
dag. Patentlausnir í húsnæðismál-
um hafa aldrei gefist vel.
Að mínu mati ber stjórnvöldum
skylda til þess, einkum gagnvart
þeim sem á næstu árum þurfa á
húsnæði að halda, að byggja hér
upp nýtt og heilbrigt húsnæðis-
lánakerfi. Slíkt kerfi verður að
gera húsbyggjendum og íbúðar-
kaupendum kleift að standa undir
kostnaði við öflun húsnæðis án
þess að taka á sig greiðslur af-
borgana iangt umfram greiðslu-
getu. En fyrst verða þau að viður-
kenna þá staðreynd, sem við blasir
og öllum er ljós, að núverandi
lánakerfi er hrunið. Því verður
ekki bjargað og e.t.v. ekki ástæða
til. Leita verður eftir víðtækri
samstöðu jafnt stjórnmálaflokka
sem hagsmunasamtaka um upp-
byggingu slíks lánakerfis. Það
verður að byggjast á þekkingu á
þðrf fyrir nýtt húsnæði hér á landi
á næstu árum og viðhaldi þess
húsakosts, sem þegar er fyrir í
landinu. Húsnæðismálin á að
hefja upp fyrir dægurþras stjórn-
málanna. Enda þótt einhver blæ-
brigðamunur sé á stefnu
stjórnmálaflokkanna f húsnæð-
ismálum, að svo miklu leyti sem
þeir hafa slíka stefnu, þá er slíkt
smáræði miðað við mikilvægi þess
að nýtt lánakerfi verði hér byggt
upp, sem taki mið af vilja hús-
byggjenda. Hvort þeir vilja kaupa,
byggja eða leigja á ekki að skipta
meginmáli. Þeir eiga að hafa
frjálst val.
Skúli Sigurðsson er fýrrv. skrifstof-
ustjóri Húsnædisstofnunar ríkis-
ins.
____________________47_
Kéttw
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Kartöfíur eru með næringarrík-
ustu fæðutegundum, enda notuð
sem meðal til lækninga hér á öldum
áður. Réttur þessi ætti að hressa
menn við í Þykkvabænum, — í hann
fer heilt kíló af kartöfíum. Þetta er
að sjálfsögðu:
Kartöflu-
bakstur
300 gr Medisterpylsa
250 gr skinka
'h. tsk. karrý
'/* tsk. paprika
1 stór laukur
60 gr smjörlíki
4 matsk. hveiti
'/* ltr. kaffirjómi
2 dl kjötsoð
1 kg kartöflur
'h bolli rifinn ostur
Rétt er að benda á að oft má fá
skinkuenda- og afskorninga hér í
verslunum á viðunandi verði. Þeir
eru ágætir í bakaðan rétt eins og
þennan.
1. Hýðið er tekið af kartöflunum
ósoðnum og þær sneiddar í þunnar
sneiðar.
2. Laukurinn er saxaður niður
fremur fínt. Smjörlikið er hitað á
pönnu og laukurinn látinn krauma
í feitinni þar til hann er orðinn
glær. Því næst er hveiti bætt sam-
an við og síðan kjötsoðinu og
rjómanum og hrært á meðan sós-
an er að þykkna. Þá er karrý og
papriku bætt út í og salti eftir
smekk.
3. Medisterpylsur og skinka eru
skornar í teninga eða bita. Síðan
er u.þ.b. % af kartöflunum ásamt
niðurskornu kjötmetinu blandað
saman við sósuna. (Ath. hvort
þörf er á að bragðbæta.)
4. Látið síðan i smurt eldfast fat
og eru kartöflurnar sem eftir eru
settar ofan á. Rifnum osti stráð
yfir kartöflurnar, lok sett yfir eða
álpappír og rétturinn bakaður i
225 gráðu heitum ofni í u.þ.b. 1
klukkustund og 15 mín.
Þessum rétti má breyta á ýmsa
vegu. í stað Medisterpylsu má
nota reykta pylsu eins og kinda-
bjúgu og þá með eða án skinku. Ef
notuð er reykt bjúga þá er krydd-
inu karrý og papriku sleppt.
Einnig má nota aðra pylsuteg-
und og hvað krydd snertir, þá
verður að fara þar eftir smekk.
Þetta er réttur sem býður upp á
ótal valkosti — hann er fyrir 4—6.
Verð á hráefni:
Medisterpylsa (300 gr) kr. 68.00
Skinka (endar, 250 gr) kr. 130.00
Kaffirjómi kr. 29.00
Kartöflur (1 kg) kr. 23.00
Taflfélag Víkursveitunga:
Trausti Björnsson sigraði alla keppinautana
ÁrDP*i, 10. aprfl.
PÁSKAMÓT Tafífélags Víkur-
sveitunga fór fram dagana 4.—6.
aprfl í Finnbogastaðaskóla. Gestir
mótsins voru Trausti Björnsson og
Harvey Georgsson úr Reykjavík.
Keppendur voru alls tólf og um-
hugsunartími 2 klst. á skák. Sigur-
vegari varð Trausti Björnsson,
hann vann alla andstæðinga sína
fremur auðveldlega og hlaut 11
vinninga. í öðru sæti varð Harvey
Georgsson með 10 vinninga, en
næstir komu þeir Jakob Thorar-
ensen, Gjögri, og Gunnar Finns-
son, Finnbogastaðaskóla, með 8'/i
v. Elsti keppandi mótsins, Axei á
Gjögri, 78 ára hafnaði í 6. sæti með
5. vinninga.
Á páskadag tefldi svo Trausti
Bjömsson fjöltefli við Árnes-
hreppsbúa á aldrinum fimm ára
til áttrætts. Hann vann allar
skákir, fyrir utan jafntefli við
Jakob Thorarensen.
Annan páskadag var síðan
klykkt út með 10 manna hrað-
skákmóti. Trausti Björnsson
lagði sem fyrr alla keppinauta
sína, enda maðurinn vart ein-
hamur. Þeir Harvey, Jakob og
Gunnar komu næstir meistaran-
um með 7 vinninga.
Taflmenn í Árneshreppi gerðu
góðan róm að komu gestanna,
enda ekki á hverjum degi sem
þeim gefst kostur á að etja kappi
við skáksnillinga sunnan úr
menningunni.
Þess má geta að Taflfélag Vik-
ursveitunga hefur haft vikulegar
skákæfingar i barnaskólanum i
vetur og hafa jafnan um 8—10
mætt á æfingarnar.
Elnar