Morgunblaðið - 18.04.1985, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1985
fclk f 3p
fréttum
Sissy
vakti
athygli
Leikkonan Sissy Spacek kom til veislu nýlega
ásamt einginmanninum, Jack Fisk, og lyft-
ust flestar augabrúnir. Ef myndin er skoðuð
sést hvers vegna það gerðist. Voru flestir sam-
mála um að vissulega væri Sissy snyrtileg til
fara og skraddarasaumuð jakkafötin væru
hnökralaus. Hins vegar færu þau henni heldur
illa. Ekki voru allir sammála, einstaka þótti
Sissy vera „algert æði“ í búningi sínum. Til voru
svo þeir sem létu í ljós grun um að Sissy hefði
klætt sig á þennan hátt vegna þess að hún hefði
talið að sér yrði ekki hleypt inn ef hún hefði
ekki bindi. Best að hver dæmi fyrir sig...
Wham!-bræður ekki spenntir
fyrir annarri Kínaför
eir félagar í Wham, George
Michael og Andrew Ridgely,
voru nokkuð ánægðir með viðtök-
urnar sem þeir fengu er þeir héldu
tvenna hljómleika í Canton og
Peking í Kína fyrir skömmu.
Kínversk æska fagnaði þeim
ákaft, en þó töldu þeir að mikil og
djúp menningarleg gjá væri á
milli austurs og vesturs. Þannig
var talsverður fjöldi áheyrenda
þeirra einkennisklæddir lögreglu-
menn sem óðu um allan sal eins og
stormsveipir og ýmist hrintu
krökkunum ofan i sætin á ný ef
þeir leyfðu sér að risa úr sætum til
að klappa eða dansa, eða þá að
þeir hreinlega báru slíka frum-
hlaupsgikki út úr húsinu og vörp-
uðu þeim út á götu með þeim orð-
um að andlega mengunin væri bú-
in að ná allt of miklum tökum á
þeim.
Þetta líkaði þeim Wham-bræðr-
um eigi alls kostar, Andrew sagði
að sig langaði ekki aftur til Kína í
bráð, „fólkið er svo sem alúðlegt,
það vantaði ekki, en vandræðin
voru oft mikil og stundum hélt ég
að þetta myndi aldrei ganga upp,
báðir hljómleikarnir héngu á blá-
þræði," sagði Andrew. George
hafði minni áhyggjur af öllu sam-
an og sagðist hafa skemmt sér
konunglega. Ferðin fór hins vegar
illa með taugakerfi portúgalska
trompettleikarans þeirra, hann
tapaði glórunni í flugvélinni á
leiðinni heim, gekk berserksgang
og stakk sjálfan sig í kviðinn með
litlum hnífi áður en hann geystist
inn í flugstjórnarklefa og glímdi
um hríð við flugmennina. Hrapaði
flugvélin nokkur hundruð fet með-
an flugmenn og fleiri sneru
trompetleikarann niður. Hann ró-
aðist um síðir og í ljós kom að
hann hafði ekki slasað sig eða
aðra alvarlega.
INGER ANNA AIKMAN
„Aldrei verið komin
eins nálægt því að
flytja til Færeyja"
w
Eg er svo feimin, að ef að
fleiri en fimm manns eru
með mér einhvers staðar, þá
kem ég ekki upp einu hljóði.
Það trúa því líklega fáir að
hér tali Inger Anna Aikman,
sem sér um þáttinn „Út um
hvippinn og hvappinn" á rás 2,
svo frjálsleg og óþvinguð sem
hún virkar í útvarpinu.
Undirrituð og Inger sötruðu
saman kaffi eitt síðdegið á
Lækjarbrekku til að spjalla um
starf Inger á rásinni.
— Hvernig datt þér í hug að
fara að vinna á rásinni?
— Ekki hlæja ..., en ég við-
urkenni þó að það sé svolítið
hlægilegt. Ég skrifaði nefnilega
Þorgeiri Ástvaldssyni bréf. I
dag skil ég ekki hvernig mér
gat dottið það í hug en það er
nú önnur saga. Ég gleymdi síð-
an bréfinu, en einn daginn
löngu seinna talaði Þorgeir við
mig og við ákváðum að ég
skyldi koma í raddprufu, og
upp úr því gerði ég varaþátt
sem var í einu orði sagt hræði-
legur og ég hef aldrei verið eins
nálægt því að flytjast til Fær-
eyja fyrir fullt og allt.
— Er þetta skemmtilegt
starf?
— Já, mjög, þó svo að það
hafi verið gífurlega stressandi í
byrjun þá venst svoleiðis smám
saman, þó ekki kannski alveg.
Þetta starf á lika einstaklega
vel við mig, þ.e.a.s. ég hef svo
mikið sjálfræði. Þátturinn gef-
ur mér þann möguleika að hafa
frjálsar hendur, vera sjálfrar
mín herra, get sagt það sem ég
vil þegar mér hentar og leikið
þá tónlist sem rher finnst vel
við eiga hverju sinni. Ég reyni
að hafa þættina blandaða, en
auðvitað er manni stundum
hætt við að leika meira þá tón-
list sem manni fellur vel í geð.
— Nú leikur þú nokkuð ró-
lega tónlist!
— Já, það hef ég heyrt útund-
an mér og sumir vilja bæta því
við að ég sé nú frekar væmin.
En þetta er hlutur sem ég tek
ekki nærri mér því það er til
margt verra en það að vera
væmin. Ég veit líka að það er
aldrei hægt að gera öllum til
hæfis.
— Er ekkert óþægilegt að
vinna svona í beinni útsend-
ingu.
— Ég hugsa að ég verði Þor-
geiri ætíð þakklát fyrir að láta
mig fara út í það í raun án þess
að vita hvaða merkingu það
hafði. Það er ekki svo erfitt nú-
orðið. Ég hef aðallega áhyggjur
af þvi hvað tæknimanninum
finnst um það sem ég segi, en
útiloka hugsunina um að það
séu svona og svona margir að
hlusta á mig.
Ég hef yndislegan tækni-
mann mér til aðstoðar og það
skiptir gifurlegu máli í þessu.
Það veltur svo mikið á því hve
vandvirkir þeir eru og í hvernig
skapi þeir eru hverju sinni. Þeir
geta alveg stjórnað því hvernig
liggur á manni. Georg Magn-
ússon, sem er eini fastráðni
tæknimaðurinn á rásinni, er
alltaf mjög uppörvandi og gott
að vinna með honum.
— Kemur það aldrei fyrir að
þér verði á í „messunni" og þú
mismælir þig eða eitthvað
álíka?
— Jú, mikil ósköp, en þá
kemur aftur að því sama og ég
minntist á áðan, þ.e. að hafa
góðan tæknimann. Það hefur
stundum komið fyrir að eitt-
hvað hefur verið að fara úr-
skeiðÍ3, en þá hefur tæknimað-
urinn bent mér góðfúslega á
mistökin og við leiðréttum vit-
leysuna í tæka tíð.
Það gerðist þó á annan í
páskum að ég var Ijúka þætti
og hafði ekki skrifað niður
lokaorðin. Ég segi þá eitthvað á
þá leið að ég ætli að kveðja
hlustendur með lagi Dolly
Parton ... og þá mundi ég ekki
hvað lagið hét. Því var hrein-
lega stolið úr mér. Ég baðaði út
MorgunblaðiS/Bjarni
„Það fer allt eftir því hversu vel ég er fyrirkölluð," sagði Inger
þegar blm. spurði hve lengi hún væri að undirbúa hvern þátt.
öllum öngum og tæknimennirn-
ir lokuðu á mig á meðan ég
spurði hvað lagið hét. Það var
síðan opnað aftur á mig og við
björguðum þessu þannig eins
og hægt var. Þetta er það allra
versta sem fyrir mig hefur
komið.
— Áttu þér sérstaka uppá-
haldstónlist?
— Mér hefur verið vinsam-
lega bent á að líklega sé ég
hrifnust af „Soul“-tónlist og ég
hef einnig mjög gaman af því
að hlusta á jazz þegar ég er
upplögð til þess.
Yfirleitt fell ég frekar fyrir
textum en „melódíum" og ef
textarnir geta fengið mig til að
staldra við og hugsa þá ræður
það venjulega úrslitum. í sam-
bandi við góða texta þá hefur
Billy Joel löngum átt upp á
pallborðið hjá mér.
— Ertu lengi að undirbúa
hvern þátt?