Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
89. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Grískir kommúnistar:
Tilbúnir í stjórn
með sósíalistum
Aþenu, 19. aprfl. AP.
HARILAOS Florakis, formaður Kommúnistaflokks Grikklands, sagði á
blaðamannafundi í dag, að flokkurinn væri reiðubúinn til að taka þátt í
stjórnarsamstarfi við Sósíalistaflokk Andreasar Papandreou, núverandi
forsætisráðherra. Flokkarnir yrðu hins vegar að komast að samkoraulagi um
málefnasamning, sem tryggði að gerðar yrðu nauðsynlegar breytingar í
landinu.
Florakis sagði að kommúnistar
hefðu ekki í hyggju að mynda
kosningabandalag með sósíalist-
um fyrir þingkosningarnar, sem
verða í júní. Kommúnistaflokkur
Grikklands, sem fylgir Sovét-
stjórninni að málum, er fámenn-
ur, en áhrifamikill. Hafa verið
uppi getsakir um það að sósíalist-
ar muni snúa sér til flokksins og
óska eftir samstarfi ef þeir ná
ekki þingmeirihluta i kosningun-
Aftur til jarðar
Starfsmaður bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar aðstoðar
Jake Garn, öldungadeildar-
þingmann, sem var í áhöfn
geimferjunnar Discovery, sem
lenti á Kanaveralhöfða síðdegis
í gær. Sjá frétt um geimferð-
ina: „Mennirnir eiga erindi út í
geiminn", á bls. 24.
I fyrri mánuði tókst samvinna
með sósíalistum og kommúnistum
á þingi um að tryggja kjör Christ-
osar Sartzetakis, sem forseta
Grikklands. Kommúnistar hafa
aðeins 13 af 300 fulltrúum á griska
þinginu, en stuðningur þeirra réð
úrslitum.
Florakis gagnrýndi Papandreou
í dag fyrir að hafa ekki efnt fyrir-
heit sín um úrsögn Grikklands úr
Atlantshafsbandalaginu og Evr-
ópubandalaginu og lokun her-
stöðva Bandaríkjamanna á
Grikklandi, sem eru fjórar.
Dýrasta málverk í heimi
Fyrír verk eftir ítalska endurreisnarmálarann Andreas Mantegna var í gær greidd upphæö sem samsvarar
421 milljón ísl. króna. Er þaó hæsta verð sem nokkru sinni hefur verió greitt fyrir málverk. Kaupandinn
var Getty-safníö í Malibu í Kaliforníu og kaupin annaóist Tim Bathurst frá Artemis-safninu í London. Sjá
„421 milljón fyrir málverk", á bls. 25.
P.W. Botha í þingræðu í Höfðaborg:
Andrúmsloft byltingar
ríkir í Suöur-Afríku
Jóhannesarborg, 19. aprfl. AP.
P.W. BOTHA, forsætisráðherra Suður-Afríku, sagði í þingræðu í Höfðaborg
í dag, að andrúmsloft byltingar ríkti í landinu. Öfgamenn ætluðu að reyna að
brjóta þjóðfélagskerfí Suður-Afríku niður, en hann kvaðst þess fullviss að
meirihluta íbúa landsins stæði á bak við sig.
Aukalið lögreglunnar var í dag
kvatt út til að vernda íbúðarhverfi
hvítra manna í bænum Uitenhage
í Suður-Afríku, þar sem hópur
herskárra svertingja dró 19 ára
gamlan hvítan mann út úr bifreið
í gær, hellti yfir hann steinolíu og
bar eld að. Maðurinn er með
hættuleg brunasár.
Til átaka kom í dag milli lög-
reglu og svertingja í Soweto-
hverfinu í Jóhannesarborg, en þau
eru ekki talin alvarlegs eðlis. Að
öðru leyti var allt með kyrrum
kjörum í borginni.
Atvik, eins og það sem varð í
Uitenhage, hefur ekki áður gerst í
hverfi hvítra. Enn hefur lögreglan
engan handtekið vegna málsins,
en leit hefur farið fram í bænum
Langa, sem er skammt frá Uiten-
hage. Á þeim slóðum felldu hvítir
lögreglumenn hinn 21. mars sl.
a.m.k. 20 svertingja, sem voru á
leið til útfarar.
Opinber rannsóknarnefnd, sem
kannar árásina á svertingjana í
Langa, hlýddi í dag á vitnisburð,
sem gefur til kynna að allt að 43
hafi verið skotnir þar til bana. Er
því haldið fram að lögreglumenn-
irnir hafi grafið lík nokkurra
fórnarlamba sinna til að leyna
ódæðisverkinu.
í þingræðunni í dag viðurkenndi
Botha að ókyrrðin að undanförnu
stafaði af raunverulegu misrétti,
en sagði að umbætur yrði að fram-
kvæma með friðsamlegum hætti
og á grundvelli stjórnarskrárinn-
ar.
Átökin í Líbanon:
Yves Montand í franska sjónvarpinu:
„Vil hvorki vera rauður
né dauður, heldur frials“
París, 19. aprfl. AP.
YVES Montand, einn af þekktustu leikurum og söngvurum Frakklands
og fyrrum friðarhreyfingarmaður, fjallaði um stríð í 90 mínútna löngum
sjónvarpsþætti í gærkvöldi, sem vakið hefur mikla athygli og deilur.
Markmið Montand var vekja umræður meðal þjóðarinnar um öryggis- og
varnarmál.
Þættinum, sem nefndist
„Horfst í augu við stríð“, var
ákaft mótmælt af sovéska sendi-
ráðinu í París, og franski komm-
únistaflokkurinn og ýmsir úr röð-
um friðarhreyfingarfólks for-
dæmdu hann. En með þættinum
tókst Montand það sem hann ætl-
aði sér: að vekja rækilega athygli
á þessu efni.
„Land eða álfa, sem ekki er
lengur fær um aö tryggja eigin
varnir, verður fljótt og sjálfkrafa
öðrum háð, sagði Montand i iok
þáttarins. „1 stað slagorðanna
„Betra er að vera rauður en dauð-
ur“, sem vestur-þýska friðar-
hreyfingin hefur tileinkað sér,
kýs ég fremur að hafa: „Hvorki
rauður né dauður — heldur
frjáls“.“
Meginboðskapur þáttarins var
eftirfarandi: Evrópa hefur búið
við hagsæld, frelsi og frið undan-
farin 40 ár, á sama tima og yfir
150 styrjaldir hafa verið háðar á
jarðarkringiunni. Friður Evr-
ópu, já. „En niúr- hann vara öllu
lengur? Það er spurningin," sagði
Montand.
Ástandið er að breytast. Það
sem eitt sinn var Evrópu til varn
ar, verður það e.t.v. ekki í fram-
tíðinni. „Leikreglurnar voru
hvort tveggja í senn einfaldar og
kaldhæðnislegar: Hvor aðili um
sig gat heitið hinum gereyðingu.“
Nú er ný tækni komin til sögunn-
ar. Hefðbundið stríð er aftur
hugsanlegt.
Getur Evrópa varið sig? „Það
er sama hvor af áðurnefndum
möguleikum yrði ofan á, eitt yrði
eftir sem áður víst’ Hætta mun
steðja að Evrópu í framtíðínní
Þátturinn var i bianri viðtöl,
gamlar myndir, skýrsiur og
skálriskapur.
Stutt mynd sýndi afleiðingar
kjarnorkuárásar. „Hræðilegar
sýnir,“ sagði Montand, „en það er
eflaust þeim að þakka, að okkur
hefur tekist að lifa í friði.“
Áætlun Ronalds Reagans for-
seta um að verja 26 milljörðum
dollara á næstu fimm árum i
rannsóknir á geimvarnakerfi,
gæti breytt leikreglunum um
tryggingu fyrir gagnkvæmri tor-
tímingu, hinu svonefnda Jafn-
vægi óttans", í tryggingu fyrir
gagnkvæmum vörnum,“ sagði
Montand.
„Ef mögulegt væri að gera slíkt,
kerfi að veruleika. væri vissulega
engin vitgióra i að vera á móti
því,' sagði Montanri.
Lausn
yirðist í
sjónmáli
BeirúL 19. aprfl. AP.
RASHID Karami, forsætisráðherra
Líbanons, sneri í dag heim eftir við-
ræður við Hafez Assad, forseta Sýr-
lands. í yfirlýsingu, sem hann sendi
frá sér, er gefið til kynna að í sjón-
máli sé lausn á hinni blóðugu valda-
baráttu meðal herskárra múham-
eðstrúarmanna í vesturhluta Beirút.
Lögreglan í Beirút segir að í
götubardögum þar að undanförnu
hafi samtals 38 manns látið lífið
og 167 særst.
Karami skýrði ekki nánar frá
efnisatriðum þess samkomulags,
sem hann virðist hafa náð við
Assad, og greindi heldur ekki frá
því hvort hann mundi draga til
baka afsögn ríkisstjórnar sinnai
Karami. sem er reyndastí
stjórnmálaieiðtogi Líbana. tii-
heyrir þeim flokk múhameðstrú-
armanna er nefnast sunnítar, en
Sýrlendíngar hafa stutt sbíta og
drúsa.