Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985 ÚTVARP / S JÓN VARP Músík- þáttur w Eg hef lítið fjallað í þessum fjölmiðlapistlum um músík- þætti rásar 2, enda kannski ekki ástæða til, því meginstofn slikra þátta er gjarnan flutningur tón- listar af léttara taginu, slíkrar sem léttir mönnum amstur og eril hversdagsins, en með nokkrum rétti má segja að rás 2 hafi hér leyst Kanann af hólmi, að minnsta kosti á suðvesturhorninu. Man ég raunar eftir því hér á árum áður er ég stundaði sölu- mennsku í sumarleyfi, að Kaninn mætti manni nánast á hverjum vinnustað en nú hljómar þar rás 2. Hljóta allir þeir er unna íslenskri tungu og þjóðlegri menningu að fagna slíkum umskiptum, því þrátt fyrir að meginefni hinna léttu músíkþátta á rás 2 sé engil- saxneskt þá eru þó a.m.k. innskot þáttarstjóra flutt á voru ástkæra ylhýra máli. Við skulum vona að það máli hljómi um ókomna fram- tíð í slíkum þáttum hérlendis, þótt vissulega vaxi með hverjum degin- um líkurnar á því að enskan verði það mál, sem menn tala og skilja á upplýsingaöld. Meira um rás 2 Þótt ég hyggist ekki taka hér upp þann sið, að elta uppi létt- melta músíkþætti rásar 2, þá vil ég svona til gamans minnast á einn slíkan er ég rannsakaði á fimmtudaginn. Sá nefndist Einu sinni áður var. Vinsæl Iög frá 1955 til 1962 — Rokktímabilið. Stjórn- andi: Bertram Möller. Ég hafði lúmskt gaman af þessum þætti Berta, enda rifjaði tónlistin upp óljósar minningar frá þeim árum er stelpurnar voru ósnertanlegar gyðjur. Berti hefur þægilega rödd og er hinn ljúfasti „snúður", en samt finnst mér að hann hefði mátt setja lögin í svolítið gleggra sögulegt samhengi. Þá vil ég beina þeirri áskorun til (Jtvarpsráðs og Þorgeirs Ástvaldssonar, rásar- stjóra, að sá háttur verði hafður á með ýmsa músíkþætti rásar 2, að þar verði ekki bara spilað af plöt- um og snældum, heldur við og við fengnar hljómsveitir í útvarpssal til að leika þá tónlist er þættirnir spanna. Ég veit ekki betur en að á rás 1 sé stöðugt verið að dragnast með klassíska hljóðfæraleikara og söngvara I upptökusölum og hví skyldu flytjendur svokaliaðrar léttrar tónlistar ekki sitja við sama borð í þessum efnum. Slíkt fyrirkomulag gæti líka leyst úr viðjum sköpunarkraft er annars nær ekki að blómstra og gleymum því ekki að Mozart og Hándel sömdu skemmtimúsík síns tíma. Fjármögnunin Og svo er ekkert mál að fjár- magna ævintýrið, auðvitað gefur rás 2 út á plötum og snældum þá músík sem þar er tekin upp og- selur á almennum markaði. En þannig held ég, kæru lesendur, að sé best að aðlaga rikisbáknið hin- um frjálsa markaði. Við eigum auðvitað að gefa ríkisstofnunun- um færi á að keppa á jafnréttis- grundvelli við hliðstæð fyrirtæki á hinum almenna markaði, þar sem slíkt heimtar. Hitt er siðleysi að ætla sér að svelta hæfustu starfs- krafta ríkisstofnana út á hinn al- menna vinnumarkað. Myndi ekki margt af því dýrmætasta er vort litla samfélag býr yfir glatast við slíkar sviptingar og stendur ekki skrifað í Orðskviðunum: Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar,/en réttlæti frelsar frá dauða. ólafur M. Jóhannesson Tveir leikir í bikarkeppninni ■■■■ Enska knatt- 1 C30 spyrnan hefst A O — klukkan 15.30 í dag. Umsjónarmaður er Bjarni Felixson. Sýndir verða tveir leikir í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Fyrst leikur Éverton gegn Lut- on og síðan leikur Man- chester United gegn Liv- erpool. Bræðurnir sjö og húsmóðurin unga. „Bræður sjö í brúðarleitu — bandarísk dans- og söngvamynd ■I Laugardags- 35 mynd sjón- — varpsins er bandarísk dans- og söngvamynd frá 1954 og nefnist „Bræður sjö í brúðarleit" (Seven Brides for Seven Brothers). Kvikmyndahandbókin okkar gefur mynd þessari afbragðsgóða dóma, líkt og föstudagsmyndinni, eða fjórar stjörnur sem er hæst. Því ætti ekki að væsa um sjónvarsáhorf- endur í kvöld. Söguþráður myndar- innar er á þessa leið: Þeg- ar Adam, sem er elstur sjö bræðra, kemur heim með konu I eftirdragi, verður uppi fótur og fit í bænum. Eiginkonan er staðráðin í að kenna öll- um bræðrunum góða siði þó að leiðbeiningar henn- ar fari oft á tíðum fyrir ofan garð og neðan. Með tímanum verður yngri bræðrunum ljóst að þeir una ekki Iengur við að vera kvenmannslausir og halda því til næsta þorps í bónorðsför. Leikstjóri er Stanley Donen, en með aðalhlut- verk fara Howard Keel, Jane Powell, Jeff Rich- ards og Russ Tamblyn. hlutverki Murphys er leikarinn Peter OToole. „Styrjöld Murphys" — bresk bíómynd frá 1971 ■ Breska bíó- 15 myndin „Styrj- “" öld Murphys" (Murphy’s War) er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 23.15 á laugar- dagskvöldið og er því önn- ur bíómynd sjónvarpsins það kvöld. Leikstjóri myndarinnar er Peter Yates og í aðalhlutverkum eru Peter O’Toole, Sian Phillips, Philippe Noiret og Horst Jansen. Kvikmyndahandbókin okkar gefur myndinni tvær og hálfa stjörnu, en hæst er gefið fjórar stjörnur. Myndin gerist á tímum síðari heimsstyrj- aldarinnar. írskur sjóliði kemst af er þýskur kaf- bátur sekkur kaupskipi. Sjóliðinn, sem heitir Murphy, sver þess eið að koma fram hefndum. Ekki skiptir máli fyrir Murphy að stríðinu er lokið, hann heldur ótrauður áfram hefndum sínum. Að lokum má þess geta að atriði i myndinni eru sum ekki við hæfi barna. „A hvað trúir hamingju- samasta þjóð í heimi?“ ■MM Þáttur Valdísar 1 Q 35 Óskarsdóttur lo— og Kolbrúnar Halldórsdóttur „Á hvað trúir hamingjusamasta þjóð í heimi“ er á dagskrá rásar 1 í kvöld klukkan 19.35. Valdís Óskarsdóttir, sagði í samtali við Mbl. að þátturinn væri sá áttundi sem sendur væri út og er hann jafnframt næstsíð- asti. „Við ákváðum að skipta liði, ég og Kolbrún, fyrir þennan þátt, og taka fólk tali svona hvor í sínu lagi. Kolla lenti ( manni ( sturtu og ílentist þar en ég talaði við þrjá aðra: hamingjusaman mynd- bandaglápara, önnum kafna búkonu uppi ( sveit fyrir vestan og pirraðan hundaeiganda." Valdís sagði að fólkið sem rætt væri við væru dæmigerðir fulltrúar ým- issa hópa í þjóðfélaginu. Þeir væru spurðir um trú I og hamingju, en lítill botn fæst í allt það hamingju- tal sem verið hefur í þjóð- félaginu upp á síðkastið. „Við erum enn að velta þessu fyrir okkur hvort Islendingar séu virkilega svona hamingjusamir eins og fram kom ( könn- uninni, því flestir af við- mælendum okkar virðast alls ekki bera það með sér. Maður fer að hallast að þvi að íslendingar séu hamingjusamlega óham- I ingjusamir. ÚTVARP N LAUGARDAGUR 20. apríl 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar Þulur velur og kynnir. 7.20 Leikfimi. Tón- leikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg- unorð — Benedikt Bene- diktsson talar. 8.15 Veðurfregnir 8.30 Forustugr. dagbl.(útdr.) Tónleikar. 8.55 Daglegt mél. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvðldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar 9.30 Oskalög sjuklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Oskalög sjúklinga, frh. 11JO Eitthvað fyrir alla. Sig- urður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 13.40 jþróttaþáttur Umsjón: Ragnar Orn Pét- ursson 14.00 Hér og nú. Fréttaþáttur I vikulokin 15.15 Listapopp. Gunnar Salvarsson 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 islenskt mál. Jón Aðalsteinn Jónsson flyt- ur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður P. Njarðvlk. 17.10 A óperusviðinu. Umsjón: Leifur Þórarinsson 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 15.30 Enska knattspyrnan. Umsjónarmaður Bjarni Fel- ixson. 17.30 íþróttir Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 19.00 Húsið á sléttunni 20. Allt upþ á nýtt. Banda- rlskur framhaldsmyndaflokk- ur. Þýðandi Oskar Ingi- marsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Hótel Tindastóll Nýr flokkur — fyrsti þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur I sex þáttum um sein- heppinn gestgjafa, starfslið hans og hótelgesti. Aðalhlut- verk: John Cleese. Sjón- varpiö hefur áður sýnt eina syrpu úr þessum flokki árið 19.35 A hvað trúir hamingju- samasta þjóð I heimi? Umsjón: Valdls Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. 20.00 Útvarpssaga barnanna: .Grant skipstjóri og börn hans" eftir Jules Verne. Ragnheiður Arnardóttir lýkur lestri þýöingar Inga Sigurðs- sonar(20) LAUGARDAGUR 20. april 1977. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. 21.05 Kollgátan Úrslit I spurningakeppni sjónvarpsins. Umsjónarmaö- ur lllugi Jökulsson. Stjórn upptöku: Viðar Vlkingsson. 21.35 Bræður sjö I brúðarleit (Seven Brides for Seven Brothers). Bandarlsk dans- og söngvamynd frá 1954. Leikstjóri Stanley Donen. Aðalhlutverk: Howard Keel, Jane Powell, Jeff Richards og Russ Tamblyn. Þegar Adam, sem er elstur sjö bræðra, kemur heim með konu veröur uppi fótur og fit á bænum. Nýja húsmóöirin á I mesta basli með að kenna mágum slnum mannaslði. Með tlmanum verður yngri bræðrunum Ijóst að þeir uni 20.20 Harmonikuþáttur. Umsjón: Sigurður Alfonsson. 20.50 Parlsarkommúnan. Umsjón: Þorleifur Friðriks- son. Annar þáttur. 21.30 Kvöldtónleikar. Þættir úr slgildum tónverk- um. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. ekki lengur að vera kven- mannslausir og halda til næsta þorps I biðilsför. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 23.15 Styrjöld Murphys (Murphys War). Bresk bló- mynd frá 1971. Leikstjóri Peter Yates. Aðalhlutverk: Peter O'Toole, Sian Phillips, Philippe Noiret og Horst Jansen. Liðið er að lokum sföari heimsstyrjaldar þegar þýskur kafbátur sekkur kaupskipi I Suðurhöfum og stráfellir áhðfnina. Einn kemst af, Irskur flugvirki aö nafni Murphy. Hann heitir Þjóðverjunum hefndum og lætur ekki sitja við oröin tóm. Atriði I myndinni eru ekki við barna hæfi. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 00.50 Dagskrárlok. Orð kvöldsins. 22.35 .Rustikus", smásaga eft- ir Jón frá Pálmholti. Höfund- ur les. 23.15 Hljómskálamúslk. Umsjón: Guömundur Gilsson 24.00 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón örn Marinós- son. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00 LAUGARDAGUR 20. aprll 14.00—16.00 Léttur laugar- dagur Stjórnandi: Asgeir Tómas- son. 16.00—18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Baröa- son. Hlé 24.00—00.45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 00.45—03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Margrét Blöndal. Rásirnar samtengdar aö lok- inni dagskrá rásar 1. SJÓNVARP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.