Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRIL 1985
53
landinu en peningarnir eru mér
ekki allt. Persónulegur metnaður
skiptir meira máli. Hér hef ég þaö
ágætt hvaö ég hefi í laun er mitt
einkamál og tel aö geti ég fótaö
mig í hinni höröu baráttu ensku 1.
deildarinnar eigi ég meiri mögu-
ieika á aö standa mig annars staö-
ar ef til þess kynni aö koma. Þaö
er sama hvaö hver segir, það fyrir-
finnst ekki erfiöari deild en enska
fyrsta deildin."
Þrátt fyrir aö mörg af þekktustu
liðum Evrópu væru á höttunum á
eftir Sigga, þ. á m. Liverpool, Bay-
ern Munchen, Feyenoord og fleiri,
aö ógleymdu Glasgow Rangers,
sem taldi sig nánast „eiga“ hann,
var hann ákveöinn í aö fara til
Sheffield Wednesday eftir aö hafa
rætt viö Howard Wilkinson.
Vendipunktur
„Þaö hefur vafalítiö veriö vendi-
punkturinn í þessu öllu hjá mér
þegar ég ákvaö aö leika fremur
með 16—18 ára landsliðinu í Eng-
landi en aö leika meö 21 árs lands-
liöinu í Skotlandi á sínum tíma,“
sagöi Siggi. „Tony Knapp vildi aö
ég léki meö eldri strákunum, en ég
vildi heldur leika meö jafnöldrun-
um. Taldi vist aö ef ég næöi aö
standa mig almennilega í þeim leik
ætti ég meiri möguleika á aö kom-
ast á samning i Englandi, þar sem
ég vissi aö fylgst var meö mér.
Howard Wilkinson var á meöal
þeirra, sem sáu þann leik.“
Eftir aö hafa séö leikinn varö
Wilkinson staöráöinn í aö krækja í
þennan stórgóöa tengiliö Skaga-
manna og framhaldiö er flestum
kunnugt. Siggi skrifaöu undir
samning til 3'/2 árs i janúar þannig
aö hann rennur ekki út fyrr en í júní
1988. Þaö var skammt liðiö á nýja
áriö þegar Siggi hélt út til Eng-
lands og viö spuröum hann hvern-
ig fyrstu viöbrögöin heföu veriö.
„Ég var ansi stressaöur fyrst
enda vakti koma mín talsveröa at-
hygli hérna úti, sérstaklega þó hjá
blööunum hér í Sheffield. Þaö tók
mig nokkurn tíma aö komast inn í
gang mála en hjálpaði mikiö
hversu vel mér var tekiö bæöi af
fjölskyldunni, sem ég bý hjá, og
eins af öllum í liðinu. Ég var fyrst
mest meö unglingaliðinu en síöan
fór ég aö æfa á fullu meö aöalliö-
inu og þróunin þar hefur veriö
jákvæö. Kannski átti ég innst inni
von á aö fá tækifæri fyrr en seinna,
sérstaklega eftir fund sem Wilkins-
on hélt meö þeim leikmönnum sem
næst stóöu liöinu, en mér hefur
óneitanlega vegnaö þokkalega. Ég
fékk ágæta dóma fyrir þessa tvo
leiki sem ég spilaöi um daginn,
gegn Leicester og Luton, en sjálf-
um fannst mér ég standa mig mun
betur gegn Leicester. Ég fann ekki
fyrir neinu stressi þá en óstyrkari í
leiknum gegn Luton enda á heima-
velli. Þar var ég heldur ekki eins
mikiö í boltanum og gegn Leicest-
er, og þaö haföi sitt aö segja.“
— Varöstu ekki fyrir vonbrigö-
um þegar þú varst settur út úr liö-
inu eftir þessa tvo leiki?
„Nei, alls ekki. Wilkinson sagöi
mér strax aö hann ætlaöi sér ekk-
ert aö vera aö þrýsta á mig, heldur
vildi hann gefa mér aölögunartíma.
Tækifæriö kom bara vegna þess
aö Andy Blair meiddist. Hann kom
svo aftur inn í liöiö. Ég hef nógan
tima og ætla ekkert aö æsa mig
yfir því hvaö gerist á þessu keppn-
istímabili. Nú er um aö gera aö
standa sig þegar maöur fær tæki-
færi og sjá svo bara hvaö haustiö
ber í skauti sér þegar nýtt keppn-
istímabil hefst."
Saknarýsunnar
Eins og fram kemur hér á undan
hefur Siggi notaö tímann vel til aö
laga sig aö breyttu umhverfi og aö-
stæöum. Hann sagöist sáttur viö
mataræöiö aö mestu en saknaöi
þó ýsunnar. Hann heföi tvívegis
fariö til Grimsby til aö ná sór í fisk
og þá heföi verið hátíö. Bílinn
sagði hann hafa breytt miklu. Bíll-
aus heföi hann veriö eins og væng-
brotinn fulg. Senn kemur aö þvi aö
hann flytur í eigin íbúö eöa öllu
heldur íbúö, sem félagiö á en hann
fær til umráöa. „Þaö er fínt aö vera
hjá þessu fólki, en ég held ég heföi
gott af því aö flytja í eigiö hús-
næði."
Ég spuröi hann aö því í hverju
hann teldi meginmuninn liggja hjá
Wednesday og Akranesi, þ.e. hvaö
æfingar snerti.
„Æfingarnar hérna eru miklu
erfiöari og álagiö margfalt meira.
Ein æfing um daginn var í tæpa 5
tíma meö fundi. Eg átti í talsverö-
um erfiöleikum fyrst á hlaupaæf-
ingunum enda þær ekkert venju-
legar. Aöalmunurinn er þó kannski
aöstaöan.
Áður haföi Siggi ekiö meö okkur
leiöina sem hann og félagar hans
hlaupa á erfiöustu æfingunum.
Þaö eitt aö fara þessa leiö í bíl er
nóg til þess aö fá okkur aulana til
aö svitna. Fyrstu 4 kílómetrarnir
eru ein allsherjar brekka og þaö
brött. Þegar uppi á topp er komiö
er hæöarmunurin frá jafnsléttu ör-
ugglega oröinn hátt á þriöja
hundraö metra. Þar er ekki látiö
staöar numiö heldur hlaupnir einir
8 kílómetrar til viöbótar. „Ég var
algerlega búinn eftir aö hafa
hlaupiö þetta í fyrsta sinn, enda er
brekkan þessi kölluö „persónuleik-
aprófiö". Þótt þetta hafi lagast hjá
manni líöur manni alveg einsog á
leiöinni í gasklefann þegar viö för-
um þarna uppeftir í rútunni."
Nógur tími
Þótt atvinnumennskan sé eng-
inn dans á rósum eiga atvinnu-
menn sínar frístundir eins og ann-
aö fólk þótt ekki geti þeir e.t.v.
gert allt þaö sem hinn almenni
borgari getur leyft sér. Siggi sagö-
ist reyndar hafa veriö mikiö heima
til þessa. Ef hann færi út væri þaö
helst meö strákunum í unglingaliö-
inu. Þá heföi hann fariö nokkrum
sinnum á popptónleika, m.a. séö
Paul Young, og Phil Collins nýver-
iö, og einnig á veöreiöar. „Þaö er
fint aö fara á veðreiðarnar. Maöur
kemst þá út í sveit og getur alveg
gleymt öllu álaginu, sem vill fylgja
þessu. Svo er líka gaman aö leggja
eitthvaö undir.“
Þaö eitt aö vera leikmaöur hjá
Sheffield Wednesday færir leik-
mönnunum ýmiss konar fríöindi.
Þeim eru mörgum hverjum lagöir
til bílar, þeir fá ókeypis aögang á
t.d. tónleika og á diskótek, afslátt í
flestum tískuvöruverslunum og svo
mætti lengi telja. „Ég gæti eflaust
nýtt mér þaö miklu meira en ég
geri aö vera leikmaöur hjá liöinu
en þaö tekur tíma aö læra á þetta
allt saman," sagöi Siggi. „Ég hef
nægan tima og mér liggur ekkert
á.“
SSv.
•Siguröur Jónsson ásamt hinni brssku „móöur“ sinni, Margareth Hawley, það er slegiö á létta strengi.
Hann fellur vel inn
í fjölskyldulífid
— segir hin breska „móöir“ Sigurðar
„RÓLEGUR — hann Siggil
Nei, ég held nú síöur,“ sagöi
hin breska „mamrna" hans,
Margareth Hawley, þegar viö
röbbuðum stuttlega viö hana
á heimili hennar þegar viö
brugðum okkur um stundars-
akir heim meö Sigga, er hann
haföi fataskipti eftir æfinguna.
„Þú mátt samt ekki skilja þaö
svo, aö hann só til vandræöa
hér — síöur en svo. Sannleik-
urinn er sá, aö hann hefur fall-
iö ákaflega vel inn í fjöl-
skyldulífið. Það vill bara svo
til að ég á þrjá ólátabelgi sjálf
þannig aö hér er alltaf allt á
öörum endanum,“ sagöi hún
þar sem hún stóö viö strau-
boröiö önnum kafin viö þvott-
inn eftir aö hafa snúiö heim úr
stuttu sumarfríi á Mallorca.
Þau hjón Margareth og
Martin Hawley eiga eins og hún
sagði þrjá syni, Simon 16 ára,
Marcus 14 ára og Christopher
11 ára. Sá elsti er trylltur
Leeds-ari en allir aðrir í fjöl-
skyldunni eru einlægir Wedn-
esday-aödáendur. Marcus er
meira aö segja kominn á þaö
sem þeir kalla „school-
boy“-samning hjá „Uglunum".
Heimili þeirra er stórt og rík-
mannlega búiö og greinilegt á
öllu að þar fer fólk sem er vel
efnum búiö. Það hefur þó ekki
breytt framkomu þess, a.m.k.
ekki húsmóöurinnar, sem er
sérlega elskuleg kona —
reyndar ekki nema 33 ára göm-
ul.
„Fyrst haföi óg miklar
áhyggjur af því aö honum
myndi e.t.v. ekki líka maturinn
hjá okkur en þær hurfu eins og
dögg fyrir sólu því hann virðist
kunna vel aö meta hiö dæmi-
geröa breska fæöi. Ég sagöi
áöan aö hann væri ekkert
rólegur — hann var þaö fyrst,
fyrstu dagana, sérstaklega á
meöan hann var aö koma sér
fyrir. Síöan hefur hann veriö
eins og heima hjá sér og þann-
ig á þaö líka aö vera,“ sagöi
hún. „Hlustiöi bara á hann,“
bætti hún svo viö þar sem
Siggi var frammi i eldhúsi aö
hita kaffi handa okkur og söng
eitt nýjasta topplagiö í Bret-
landi fullum hálsi.
SSv
VOLKSWAGEN
JETTA
PÝSKUR KOSTAGRIPUR
X Heíöbundinn heimilisbíll.
X Meö þœgindi og eigin-
leika lystivagnsins.
X 5 geröir hreyíla eítir vali.
M.a. Turbo diesel.
6 áia rydvarnarábyrgd
[h|heklahf
Laugavegi 170-172 Simi 21240
50 óra reynsla
í bílainnílutningi og þjónustu
Verö frá kr. 425.000'