Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUB 20. APRlL 1985
Fiðlusnillingurinn Viktoria Mullova og hljómsveitarstjórinn Karolos Trikolidis.
Sín fóníu tónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Kfn isskrá:
Mendelssohn, Fingals-forleikurinn
Paganini, Fiðlukonsert nr. 1
Beethoven, Sinfónía nr. 5
Einleikari:
Viktoria Mullova
Stjórnandi:
Karolos Trikolidis
Tónleikarnir hófust á
Fingals-forleiknum eftir Mend-
elssohn, sem hljómsveitin lék
mjög vel og var auðheyrt að
stjórnandinn hafði gefið sér
tíma til að huga að ýmsum stefj-
um og blæbrigðum og var lotu-
skipting þeirra ekki keyrð áfram
í föstum takti, heldur var hún
afmörkuð með hæfilegri slökun í
hraða bæði við upphaf og niður-
lag tónhugmyndanna, svo dæmi
séu nefnd, í klarinetteinleikslínu
er Kjartan Óskarsson lék mjög
fallega. Aðalviðburður kvöldsins
var einleikur Mullovu í Pagan-
ini-konsertinum. Mullova er
óumdeilanlega snillingur á fiðlu
og var leikur hennar nær sam-
felld snilld, með þeim glæsibrag
að öllu venjulegu fólki verður
orða vant. Konsertinn er í gerð
nokkuð hnökróttur, bæði eru
lotuskipti illa unnin og t.d. mið-
þátturinn (Adagio) einkennilega
óunninn og sömuleiðis hljóm-
sveitarþátturinn í öllu verkinu.
Inn á milli geislar verkið af
glæsilegum tónhugmyndum sem
í senn eru falleg tónlist og
galdrasmíð fyrir fiðluleikara.
Það verður stund fyrir aðdáend-
ur fagurrar tónlistar að heyra
Mullovu leika á tónleikum Tón-
listarfélagsins nk. laugardag en
á þeim tónleikum mun hún leika
verk eftir Mozart, Bártók,
Brahms og Paganini. Tónleikun-
um lauk með þeirri fimmtu eftir
Beethoven. Þar mátti heyra
sömu vinnubrögð hjá Trikolidis
og í Fingals-forleiknum, sér-
staklega í öðrum og þriðja þætti.
Síðasti þátturinn er erfiður hvað
snertir hljómrænt jafnvægi og
áttu fiðlurnar erfitt með að
halda í við hljómsterka blásar-
ana. Þrátt fyrir ágæta spila-
mennsku hljómsveitarinnar
heyrðust nokkur smáslys, sem
trúlega skemma upptökuna, eins
og t.d. smástef í annarri fiðlu í
miðkafla Allegro-kaflans, við
endurtekningarskilin og undar-
legt ýl í viðkvæmum crecendo-
kafla síðasta þáttar. Þarna koma
til mannleg mistök, sem standa
eins og andstæður fullkomnun-
arinnar sem Mullova er um það
bil að nálgast. Allt um það, Trik-
olidis er frábær hljómsveitar-
stjóri og vinnur upp fallega
spilamennsku hjá hljómsveit-
inni.
Þrautseigjan fleytti
Margeiri langt í 4. skákinni
Skák
Jóhann Hjartarson
Fjórðu og síðustu skákinni í ein-
yígi þeirra Margeirs Péturssonar og
ísraelsmannsins Shvidler frá fsrael
lauk með jafntefli eftir 63 leiki. Fóru
því leikar, 2:2, en Margeiri dæmdist
sigurinn vegna hagstæðara vinn-
ingshlutfalls úr svæðamótunum,
sem voru undanfarar einvígisins.
Tryggði hann sér þar með þátttöku-
rétt í millisvæöamóti, sem haldið
verður í Biel í Sviss innan skamms.
Margeir fékk slæma stöðu eftir
byrjunina í þessari mikilvægu skák
og stóð lengst af höllum fæti. Engu
að síður ber skákin vott um þá
miklu þrautseigju sem einkennir
skákstíl Margeirs og hefur fleytt
honum langt á örlagaríkum augna-
blikum. Varð ísraelsmaðurinn að
sætta sig við skiptan hlut að lokum.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Shvidler
Benóní-vörn
1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — g6, 3. c4 —
Bg7, 4. Rc3 — d6, 5. e4 — c5, 6. Be2
— 0-0, 7. 0-0 — Ra6 (Óvenjulegur
leikmáti. Eftir 7. — cxd4, 8. Rxd4
— Rc6 væri komið upp Maroczy-
afbrigðið í Sikileyjarvörn, en það
teflir Margeir mikið með svörtu.
E.t.v. hefur Shvidler vitað þetta og
því reynir hann að slá ryki í augu
andstæðing síns. Það tekst honum
bærilega, enda teflir hvítur fram-
haldið ekki sem nákvæmast.) 8.
Hel (Betra var strax 8. d5) — Bg4,
9. Bc3 — Rfd7, 10. d5 — Rc7, 11.
Rd2 (Hvítur hefði átt að reyna að
halda biskupaparinu með 11. h3 —
Bxf3,12. Bxf3 - a6,13. a4 - Hb8,
14. Be2! og framsókn svarts á
drottningarvæng stöðvast.) —
Bxe2, 12. Dxe2 — a6, 13. a4 — Hb8,
14. RÍ3? (Hvítur teflir án nokkurr-
ar haldgóðrar áætlunar. Betra
hefði verið 14. Ha3 með hugmynd-
inni Hbl og b4.) — Re51, 15. Bf4 —
Rxf3+, 16. Dxf3 — b5 (Svartur hef-
ur nú náð öruggu frumkvæði.
Hann beinir skeytum sínum að
hinu veika peði hvíts á b2. Ráð-
leysisleg taflmennska Margeirs í
byrjuninni er skiljanleg í ljósi
þess að jafntefli dugði til sigurs í
einvíginu. Undir slíkum kringum-
stæðum vilja gæði taflmennsk-
unnar stundum víkja fyrir örygg-
inu. Nú sér hann hinsvegar,
að við svo búið má ekki standa og
bregður því á það ráð að fórna
peði fyrir mótspil). 17. axb5 —
axb5, 18. e5! — bxc4, 19. Habl -
Rb5 (Einnig kom til greina 19. —
dxe5, 20. Bxe5 — Bxe5, 21. Hxe5 —
Dd6, 22. De2 — Hfe8 og svartur
stendur betur.) 20. Rxb5 — Hxb5,
21. De2 — dxe5, 22. Bxe5 (Alls ekki
22. Dxc4 — Hb4, 23. Dxc5 — Hxf4
og svartur vinnur). — Dxd5, 23.
Bxg7 — Kxg7, 24. Hbdl — De6, 25.
Dc2 — Df6, 26. Dxc4 — Hxb2, 27.
Dxc5 — Hc8, 28. Dd4 (Hvítur
mátti að sjálfsögðu ekki hirða
hrókinn, en nú þvingar hann fram
drottningarkaup. Þar með er það
versta afstaðið fyrir hann. Þótt
staða ísraelsmannsins hafi verið
vænleg var líklega aldrei hægt að
þvinga fram rakinn vinning.)
— Dxd4, 29. Hxd4 — Hcc2, 30. Hfl
— h5, 31. h4 — e5, 32. He4 — Kf6,
33. Ha4 — Kf5, 34. Ha5 — f6, 35. g3
— Hc3, 36. Kg2 — He2, 37. Hfal —
Hcc2, 38. Hfl — Kg4, 39. Ha6 —
Kf5, 40. Ha5 — Hed2, 41. Hb5 (Bið-
leikurinn.) — Ha2, 42. Hc5 —
Hdb2, 43. Kf3 — Hb4, 44. Hfcl —
Hb3+, 45. Kg2 — Hbb2, 46. Hfl —
He2, 47. Hb5 — Hec2, 48. Kf3 (Nú
hefur svartur teygt lopann all-
lengi án nokkurs sýnilegs árang-
urs. Hann lætur því til skarar
skríða á kóngsvængum.) — g5, 49.
hxg5 - Kxg5, 50. Hb8! - He2, 51.
He8 — Kf5, 52. Hb8 (Margeir kær-
ir sig kollóttan um framrás svarta
e-peðsins, því hann hefur komið
auga á örugga jafnteflisleið.) —
e4+, 53. Kg2 — e3
54. Kf3! - exf2, 55. Hh8 - Kg6,56.
Hg8+ — Kh7, 57. Ha8! — Hxa8, 58.
Kxe2 — Ha5, 59. Hxf2 — Ha2+, 60.
Kf3 - Hxf2, 61. Kxf2 (Yfirleitt
vinnur sá sem hefur peði meira í
peðsendatöflum. Undantekn-
ingarnar eru hinsvegar margar og
hér höfum við eina jjeirra). — Kg6,
62. Kf3 — Kg5, 63. Kf2 Hér átti
skákin að fara í bið, en Shvidler
ákvað að bjóða jafntefli, enda yrði
sú niðurstaðan eftir 63. — Kg4, 64.
Kg2 — h4, 65. gxh4 — Kxh4, 66.
Kf3 — Kg5, 67. Kg3 Jafntefli.
Veitingasalur Hótel
Borgar fær „nýjan svip“
Veitingasalurinn á Hótel Borg
hefur nú fengið nýjan svip eftir
, breytingar og var salurinn opnaður
að nýju í gær. Segja má að allt sé
nýtt í salnum, húsgögn, teppi,
gluggatjöld o.fl. og jafnvel starfs-
fólkið er komið í nýja einkennisbún-
inga.
Björg Gísladóttir, starfsstúlka í
gestamóttökunni á Hótel Borg,
sagði í samtali við blm. að hafist
hefði verið handa við breytingarn-
ar sl. sunnudag og því mætti segja
að menn hefðu lagt nótt við dag til
að flýta framkvæmdum sem mest.
„Hólmfríður Gísladóttir, aðstoð-
arhótelstjóri, hefur haft veg og
vanda af breytingunum og erum
við öll mjög ánægð með hinn „nýja
svip“ veitingasalarins“, sagði
Björg. „Með breytingunni munum
við hætta að halda dansleiki í
salnum og verður Gyllti salurinn
því einn hafður opinn um helgar. í
haust verða svo einnig gerðar
breytingar á honum í samræmi
við breytingarnar á veitingasaln-
um.
„Meiningin er svo að hætta al-
gerlega öllu dansleikjahaldi hér og
hafa aðeins opið fyrir einka-
samkvæmi, s.s. árhátíðir. Við
munum einbeita okkur algerlega
að hótelrekstrinum og stækka við
okkur þegar fram líða stundir",
sagði Björg Gísladóttir að lokum.
COMBtCAMP
tjaldvagnasýning
laugardag og sunnudag
frá 14—17 e.h.
Getum nú boðið allar 3 stæröirnar aftur. Hagstætt verö.
Úrval fylgihluta. Góöir greiösluskilmálar. Til afgreiöslu
strax.
BENCO,
Bolholti 4, Reykjavík,
sími 91-21945.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær: Úthverfi:
Sóleyjargata Skeiöarvogur