Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985 27 Bretar standa með prinsess- unni af Kent London, 19. aprfl. AP. MEIRIHLUTI Breta lætur í Ijós samstöðu med prinsessunni af Kent, eftir að uppvíst varð að faðir hennar var majór í SS-sveitum nasista á stríðsárunum. Það var blaðið Sun sem gekkst fyrir skoðanakönnun um afstöðu almennings til prinsessunnar og til málsins alls. Áttatíu og fimm prósent þeirra sem voru spurðir sögðu að Michael prins hefði átt að kvænast prinsessunni jafnvel þótt hann hefði vitað að faðir hennar — sem var viðstaddur hjónavígsluna — hefði verið í SS. En 49 prósent sögðust halda að prinsessan hefði vitað að faðir hennar hefði verið i stormsveitum Hitlers á stríðs- árunum, þótt hún hafi fullyrt eftir að Daily Mail birti frétt um málið, að henni hafi verið ókunnugt um það. Fjörutíu og fimm prósent sögðust trúa orð- um prinsessunnar. Prinsessan af Kent, sem er fædd og uppal- in í Þýskalandi, giftist Michael prins fyrir sjö árum. Hún hefur notið mikilla vinsælda meðal Breta. Níutíu og fimm prósent spurðra sögðu, að afstaða þeirra til prinsessunnar hefði ekki breyst eftir að sagt var frá fortíð föður hennar. Ýmsir létu í ljós efasemdir um, að konungsfjölskyldunni hefði verið ókunnugt um málið. Sömuleiðis efuðust margir um að faðirinn hefði verið réttur og sléttur SS-foringi, en prinsess- an hefur sagt að hún sé að afla Prinsessan af Kent gagna frá Þýskalandi sem leiði það í ljós og ennfremur að hann hafi ekki verið viðriðinn grimmdarverk. Stúdentaóeirða minnst í stúdenta- óeirðum í Seoul Seoul, 19. aprfl. AP. FJÖLMENNAR mótmælaaógerðir gegn stjórnvöidum Suður-Kóreu urðu við að minnsta kosti átján há- skóla og menntastofnanir í Seoul í dag til þess að minnast þess að tuttugu og fimm ár eru liðin síðan stúdentauppreisnin varð í landinu er leiddi til falls Syngmans Rhee. Sjónarvottar sögðu að náms- menn hefðu grýtt steinum, kyndlum og flöskusprengjum að lögregluliði sem umkringdi snarlega alla staðina. Mestu mótmælin voru við stúdenta- minnismerkið í Seoul. Þar söfn- uðust sex þúsund manns saman, hrópuðu slagorð gegn stjórninni og reyndu að fara í mótmæla- göngu um nágrennið, en lögregla stöðvaði fólkið. Margir dreifðu ERLENT blöðum, þar sem heimsókn Chu forseta til Bandarikjanna var mótmælt. Engar fréttir hafa verið sagðar um hvort einhverjir voru hand- teknir né þess getið hvort til beinna átaka við lögreglu hafi komið. Rekinn frá Bretlandi London, 18. mprfl. AP. STARFSMAÐUR líbýsks flugfé- lags hefur verið gerður brottræk- ur frá Bretlandi, eftir að blað eitt hafði skýrt frá því, að hann hefði í hyggju að skipuleggja nýja morð- öldu á líbýskum andófsmönnum, sem eru í útlegð í Bretlandi. Mað- urinn, sem heitir Ali E1 Ati, starf- aði fyrir líbýskt flugfélag við Heathrow-flugvöll. Hann fór frá Bretlandi á miðvikudagskvöld heimleiðis til Líbýu. Víetnamar guldu tals- vert afhroð Aranvaprathet. ThaiUndi. 19. apnX AP. HERNAÐARYFIRVÖLD í Thai- landi greindu frá því í dag, að um 100 víetnamskir hermenn hefðu fall- ið í árás á kambódískar skæruliða- og flóttamannabúðir við landamæri Thailands og Kzmbódíu. 7 skærulið- ar féllu og nokkrir tugir særðust. Víetnamar eru sagðir vera með um 1500 manna lið á þessum slóð- um og sex stóra skriðdreka. Þeir hafa setið um búðir þessar síðan á þriðjudag, en khmerarnir sem þar eru hafa varist hetjulega. Víet- namar hafa einnig flutt mikið lið að Rithysen-búðunum, skammt fyrir norðan búðirnar sem hér um ræðir og kallast Prey Chan. Er talið að árás sé yfirvofandi í Rithysen-búðirnar. Víetnamar náðu þeim búðum á sitt vald með mikilli sókn fyrir nokkru, en khmerarnir náðu þeim svo aftur á sitt vald. Sri Lanka: Stjórnar- flokkurinn vann í auka- kosningum (olombo, 19. aprfl. AP. SAMEINAÐÍ þjóðarflokkurinn á Sri Lanka sem er flokkur Jaywawarden- as forseta fór með sigur af hólmi í aukakosningum í Mahiyanggana, landbúnaðarkjördæmi á suðaust- urhluta Sri Lanka. Frambjóðandi stjórnarflokksins sigraði með meira en tuttugu þúsund atkvæða meiri- hluta og er munurinn helmingi meiri en árið 1977 þegar stjórnarflokkur- inn vann kjördæmið. í fréttum segir að um 86 prósent hafi greitt atkvæði. Frelsisflokkur Sri Lanka sem er helzti andstöðu- flokkur Sameinaða þjóðarflokks- ins hunzaði kosningarnar og sagði að aukakosningar hér og hvar þjónuðu engum tilgangi, heldur þyrfti að efna til almennra kosn- inga í landinu. næmi unq áður 98.- nu áður290.-nu áður350.-nu áður 435.- ni áður 740.-ni 50% afsláttur Unaplonxur Burnnar Burknar Yuccaplöntur Yuccaplöntur Kaktusar 20- •• fbttaplönUi Okkar árlega vorútealaerhafin. interflora Nú um helgina seljum við allar pottaplontur íS*s snsssswr á góðu veröi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.