Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1085 Afar fágætir seðlar á upp- boði Myntsafnarafélagsins Mynt Ragnar Borg Hér áður fyrr voru konungar allt of oft blankir þótt þeir reyndu að sýnast, með því að berast á. Þegnarnir höfðu vanist því að hafa milli handanna kop- ar-, silfur- og gullmynt, sem konungurinn lét slá. Að vísu var reyndar hægt að svíkja svolítið á silfrinu, innkalla gamla mynt úr góðu silfri, bræða hana upp, bæta kopar í og slá svo nýja mynt úr blöndunni, en halda gamla verðgildinu. Þetta var oft leikið og var konungum drjúg tekjulind. Ágóðinn var notaður á herferðir, nýjar hallir eða eitthvað jafn gagnlegt. Þar kom þó, að þessi leikur varð ekki endurtekinn oftar. Silfurinni- hald „gömlu“ myntarinnar var orðið svo rýrt. Þurfti þá eitthvað nýtt að koma til. Danakonungar voru lengi snjallir. Fréttu þeir af seðlaút- gáfu kollega sinna á Frakklandi á öndverðri 18. öld. Fóru þeir því út í seðlaútgáfuna, því pappír var allavega ódýrari en málmar. Voru dönsku seðlarnir, í fyrstu, nokkurs konar skuldabréf, sem gáfu af sér vexti. Þegar að því kom að greiða þurfti vextina, voru gefnir út nýir seðlar, í nýrri seríu. Allt lék í lyndi og kerfið gekk ágætlega. En svo kom stríðið uppúr 1800, Napól- eonsstríðið, og þá þurfti mikið fé í mála, vopn og skot. Fleiri og fleiri seðlar voru prentaðir, og nú gleymdist þetta með vextina. Með tilskipan frá 22.4. 1778 skyldu kúrantseðlar gilda á Is- landi, en þó með íslenskum texta á bakhlið seðilsins. 1 annarri til- skipan frá 13.6. 1787, var árétt- að, að skylt væri að taka við seðlum þessum sem greiðslu hér á landi. íslendingar höfðu séð lítið af mynt undanfarnar aldir, og fannst hábölvað að þurfa að við- urkenna þessa pappírssnepla sem fullgilda á við silfur. Dansk- ir notfærðu sér aftur á móti þessar nýju reglur. Silfrið hvarf smám saman úr landi til Dan- merkur, en við sátum uppi með seðlana. Kúrantseðlarnir giltu hér á fslandi lengur en annars staðar. Voru innkallaðir með auglýsingu hinn 30.10. 1814 í Danaveldi, nema á íslandi. Hér, með tilskipan hinn 20.3.1815. Þá voru þeir fyrir löngu orðnir vita verðlausir, því danska ríkið fór á hausinn árið 1913. Aðeins einn íslenskur embætt- ismaður fékk þá laun sín greidd í peningum, Geir Vídalín biskup. Vesalings biskupinn sat nú uppi með verðlausa seðla, varð gjald- þrota, fékk fjárhaldsmann til að greiða úr skuldasúpunni, og var staurblankur alla tíð síðan. Því segi ég þessa sögu, að á uppboði Myntsafnarafélagsins í Templ-. arahöllinni í dag kl. 2.30 verða boðnir upp 2 kúrantseðlar með íslenskum texta. Er þetta i fyrsta sinn, sem svona seðlar koma fram á uppboði hérlendis. Er ekki að efa, að hátt verður í þá boðið, því þeir eru fágætir. Þetta er fyrsti gjaldmiðillinn, sem beinlínis var ætlaður til brúks á íslandi, þótt seðlarnir giltu um allt Danaveldi, svo sem kemur fram í textanum. Þessi alltof stutta frásögn mín sýnir, að sagan endurtekur sig. Við höfum fundið fyrir, fslend- ingar, undanfarin 15 ár, er pen- ingarnir okkar urðu verðlausir í óðaverðbólgu, taumlausri seðla- útgáfu og stjórnleysi. Athyglisvert er einnig, að árið 1815 fékk aðeins einn opinber starfsmaður laun sin greidd { Geir Vídalín, biskup. verðlausum seðlum, en árið 1985 eru þeir þó 27.000 þ.e. 18.000 í BSRB, 6.000 í BHM og 3.000 í Bandalagi bankamanna. Ekki skil ég hvers vegna opinberir starfsmenn fara í verkfall til að fá meiri verðbólgu og fleiri verð- lausa seðla. * * fikw C\\\y.vúu oc^ \-^a^krv (boumn\ \ ^ovcojv oc^ cS\j[c- úus oc^ a 'hWý t, - *»»*«* ÚUAM w •atfw*/ * »**♦*«»* «4 Hakhliö kúrantseðilsins frá 1791 (Ijósm.) Lágmarksboð 8000 krónur. Skúlagata: „Hugsanlegur kostnaður af hugsanlegum tillögum ... “ Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, gerði kostnað af skipulagsbreytingum við Skúla- götu að umræðuefni á fundi borgar- stjórnar á fimmtudag. Sagði hann að kostnaður vegna þessarar breyt- ingar mundi nema alls um 50 millj- ónum króna vegna landfyllingar, gatnagerðar og fleiri þátta. Enn- fremur væri kostnaður skipulags- vinnu áætlaður um 3,5 milljónir króna. Þessi útgjöld væru skatt- borgurunum dýr. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður skipulagsnefndar, sagði tölu Sigurjóns órökstudda með öllu. Drög að skipulagshugmyndum hefðu nýlega verið kynnt á fundi skipulagsnefndar og aðeins einn valkostur þar verið til kynningar. Fleiri valkostir að skipulagi gætu komið frá skipulagshöfundum, auk þess sem slík drög sem þau sem þeg- ar hefðu verið kynnt ættu eftir að taka breytingum við meðferð máls- ins, sem ekki yrði frábrugðin því sem venja væri fyrir. Sigurjón væri því að fjalla um hugsanlegan kostn- að af hugsanlegum tilögum, sem hugsanlega kæmust aldrei i fram- kvæmd. Ef slá ætti á mögulegan kostnað af þeim drögum, sem þegar hefðu verið kynnt væri hann mögu- lega um 25 til 30 milljónir króna. Álfheiður Ingadóttir, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, gerði tillögu um það að samkeppni færi fram um deiliskipulag nýrrar byggðar við Skúlagötu. Um þá tillögu sagði Dav- íö Oddsson, borgarstjóri, að sam- svarandi tillaga hefði áður fengið efnislega meðferð í borgarstjórn og ekki fengið stuðning og þvi væri út i bláinn að flytja slika nú. Eðlilegast væri að borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins drægju tillöguna til baka og þeir flyttu hana e.t.v. þegar skipulagstillögur að svæðinu yrðu fullbúnar og þeir teldu þær tillögur ófullnægjandi. Tillagan var borin undir atkvæði og fékk hún 6 atkvæði borgar- fulltrúa Alþýðubandalagsins og Kvennaframboðsins og ekki stuðn- ing. DÓMKIRKJAN: Laugardag: Barnasamkoma kl. 10.30. Sr. Agnes M. Siguröardóttir. Sunnu- dag: Messa kl. 11.00. Sr. Hjalti Guömundsson. Messa kl. 14.00. Eftir messu veröa sýndar og út- skýröar teikningar af nýja dóm- kirkjuorgelinu. Jafnframt verður boöiö í kaffisopa á kirkjuloftinu. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friöriksson. Sr. Þórir Stephensen. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 11.00. Organleikari Birgir Ás Guömundsson. ÁRBÆ JARPREST AK ALL: Barnasamkoma í safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guö- sþjónusta kl. 14.00. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guómundur Þor- steinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Guösþjónusta kl. 14.00. Aöalfundur safnaöarins eftir messu. Sr. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRK JA: Barnaguös- þjónusta kl. 11.00. Sr. Solveig Lára Guömundsdóttir. Guös- þjónusta kl. 14.00. Organleikari Guöni Þ. Guömundsson. Bræörafélagsfundur mánu- dagskvöld kl. 20.30 í safnaöar- heimilinu. Félagsstarf aldraöra miövikudag kl. 14—17. Sr. Ólaf- ur Skúlason. DIGRANESPREST AK ALL: Barnasamkoma kl. 11.00 í safn- aðarheimilinu viö Bjarnhólastíg. kirkju kl. 10.30 og kl. 14.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 14.00. Sr. Hjalti Guömunds- son prédikar. Félag fyrrverandi sóknarpresta. FLLLA- OG HÓLAKIRKJA: Fermingarmessur kl. 11.00 og kl. 14.00. Sr. Hreinn Hjartarson. FRÍKIRK JAN í REYKJAVÍK: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðspjalliö í myndum. Barna- sálmar og smábarnasöngvar. Af- mælisbörn boöin sérstaklega velkomin. Sunnudagspóstur handa börnunum. Framhalds- saga. Viö hljóöfærið Jakob Hall- grímsson. Bænastund í kirkjunni alla virka daga nema mánudaga kl. 18.00 og stendur i um stund- Guðspjall dagsins: Jóh. 10.: Ég er góði hirðirinn. arfjóröung. Sr. Gunnar Björns- son. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11.00. Messa meö alt- arisgöngu kl. 14.00. Organleikari Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSPREST AK ALL: Barnasamkoma og messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus- son. Þriöjudag, bænaguösþjón- usta kl. 10.30, beöiö fyrir sjúkum. L ANDSPÍT ALINN: Messa kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.00. Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón- usta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. LANGHOLTSKIRKJA: Óska- stund barnanna kl. 11.00. Söng- ur — sögur — leikir. Guösþjón- usta kl. 14.00. Ben canto kórinn úr Garöabæ syngur undir stjórn Guöfinnu Dóru Ólafsdóttur. Prestur sr. Pjetur Maack, organ- leikari Jón Stefánsson. Sóknar- nefndin. Tónleikar Bel canto kórsins kl. 16.00. Stjórnandi Guöfinna Dóra Ólafsdóttir. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 14.00. Þriöjudagur, bænaguös- þjónusta kl. 18.00. Föstudagur, 26. apríl, síödegiskaffi kl. 14.30. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. NESKIRKJA: Laugardagur: Samverustund aldraöra. Fariö veröur aö Höföa viö Borgartún frá kirkjunni kl. 15.00. Þátttaka tilkynnist kirkjuveröi í dag milli kl. 11 og 12 í síma 16783. Sunnu- dagur: Barnasamkoma kl. 11.00. Barnaleikrit flutt. Guösþjónusta kl. 14.00. Frú Jóhanna Möller syngur einsöng. Orgel- og kór- stjórn: Reynir Jónasson. Miö- vikudagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson. Ath. Opiö hús fyrir aldraöa þriöjudag og fimmtudag kl. 13—17. Húsiö opnaö kl. 12.00. SELJASÓKN: Barnaguösþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Barnaguösþjónusta í íþróttahúsi Seljaskólans kl. 10.30. Guös- þjónusta i Ölduselsskóla kl. 14.00. Æskulýösfundur þriöjudag kl. 20.00 í Tindaseli 3. Fyrir- bænasamvera fimmtudagskvöld 25. apríl kl. 20.30 í Tindaseli 3. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma í sal Tónskólans kl. 11.00. Sóknarnefndin. FÍLADELFÍUKIRKJAN: Sunnu- dagaskóli kl. 10.30. Safnaöar- messa kl. 14.00. Ræöumaöur Jó- hann Pálsson. Almenn guösþjón- usta kl. 20.00. Ræðumaöur Einar J. Gíslason. Organisti Árni Ar- inbjarnarson. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg 2B: Almenn samkoma á vegum Kristniboössambandsins kl. 20.30. Páll Friðriksson húsa- smíðameistarí talar. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl. 14.00. Rúmhelga daga er lág- messa kl. 18.00 nema á laugar- dögum, þá kl. 14.00. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há- messa kl. 11.00. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 14. Almenn sam- koma kl. 20.30. KIRKJA óháöa safnaöarins: Messa kl. 14. Aöalfundur safnaö- arins eftir messu. Sr. Baldur Kristjánsson. GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma í Kirkjuhvoli kl. 11. Sóknarprest- ur. KAPELLA St. Jósefssystra Garöabæ: Hámessa kl. 14. HAFNARFJARDARKIRKJA: Fermingarguösþjónustur kl. 10.30 og kl. 14.Sr. Gunnþór Ingason. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guös- þjónusta kl. 14.00. Aöalsafnaö- arfundur hefst strax aö lokinni guösþjónustu. Sr. Einar Eyjólfs- son. KAPELLAN St. Jósefsspítala: Messa kl. 10. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARKIRKJA: Ferm- ingarguösþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Sr. Bragi Friöriksson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Ferming- arguösþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Altarisganga sunnudags- kvöld kl. 20.30. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA: Fermingar- guösþjónusta kl. 14. Sóknar- prestur. STRANDAKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Tómas Guömundsson. HVERAGERÐISKIRKJA: Barna- guösþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Guömundsson. AKRANESKIRKJA: Fermingar- guösþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Sr. Björn Jónsson. BORGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Barna- messa kl. 14. Sóknarprestur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.