Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra:
ÞAÐ óhapp varð í gærkvöldi að bfll lenti í Kópavogs-
læknum. Einn maður var í bflnum en sakaði hann lítt.
Bfllinn er stórskemmdur. Tildrög óhappsins voru þau,
að bflnum var ekið á mjög miklum hraða í norðurátt
að sögn sjónarvotta. Er hann kom að beygjunni rétt
sunnan við lækinn missti ökumaðurinn stjórn á bfln-
um með fyrrgreindum afleiðingum. Grunur leikur á
að ökumaðurinn hafi verið ölvaður.
fyrir mitt þetta ár?
Af slysstað í Kópavogi. Morgunblaðii/Friðþjófur
Lenti úti í Kópavogslæk
SVERRIR Hermannsson iðnaðarráðherra sagði á fundi Félags íslenskra
rekstrarráðgjafa á miðvikudagskvöld, að nú væru yfirgnæfandi líkur á því að
samningar næðust um stækkun álversins í Straumsvík. Ennfremur sagði
Sverrir, að samningaviðræður Alusuisse við japanskt fjölskyldufyrirtæki,
sem framleiðir rennilása, væru langt komnar um að það gerist þriðji aðili að
stækkuninni.
Sverrir sagði í viðtali við blaða-
mann Mbl., að japanska
fjölskyldufyrirtækið flytti inn
sem svaraði 180 þús. tonn af áli á
ári til framleiðslu sinnar.
Ársframleiðsla ÍSAL er í dag um
85 þúsund tonn. Alusuisse hefur
átt viðræður við þrjú japönsk
fyrirtæki og er umrætt fjölskyldu-
fyrirtæki nú líklegast til að gerast
hluthafi. Sverrir sagðist gera sér
vonir um að samningar um stækk-
unina næðust fyrir mitt ár.
Iðnaðarráðherra var í fram-
haldi af þessu spurður, hvaða
áhrif þessir samningar gætu haft
Aösópsmiklir
þjófar teknir
á virkjanaframkvæmdir okkar.
Hann sagði, að ef samningar næð-
ust um stækkunina þyrftum við að
herða á framkvæmdum við
Blöndu, en ef samningarnir næð-
ust ekki fljótlega gætum við frest-
að Blönduvirkjun um eitt ár og
sparað 82 millj. kr. „En við höfum
heimildir inni á lánsfjárlögum, ef
svo skyldi fara sem mestar líkur
eru á, að samningar gangi hratt
fyrir sig,“ sagði hann. Fram-
kvæmd málsins verður sú, að fyrst
setjast Alusuisse og japanska
fyrirtækið að samningaborði. Ef
þeir samningar nást setjast þeir
að samningaborði með íslending-
um um rafmagnsverð o.fl.
Vandi skreiðarframleiðenda:
Samningar um
stækkun álversins
Seðlabankinn endurgreiðir
100 milljóna kr. gengismun
Forsætisráðherra telur nauösynlegt að 250 milij.kr.
til viðbótar komi úr Verðjöfnunarsjóði
FORSÆTISRÁÐHERRA, Steingrímur Hermannsson, sagði meðal annars í
ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins I gær, að Seðlabankinn
hefði nú fallizt á að endurgreiða skreiðarframleiðendum tæpar 100 milljónir
af gengismun. Hann áliti það þó ekki nóg. Líklega þyrfti að gera Skreiðar-
deild Verðjöfnunarsjóðs kleift að greiða framleiðendum 250 milljónir króna
úr deildinni, svo þeir geti endurgreitt afurðalán sín að fullu.
UPPLÝÍfT hefur verið um innbrot og
þjófnað í verslunina Gelli í Skipholti
þar sem stolið var miklum verðmæt-
um um páskana. Hefur þýflð allt kom-
ið til skila, skv. upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Innbrotið var framið aðfaranótt
7. apríl sl. Var stolið þaðan þremur
myndbandstækjum, þar af einu af-
ar dýru og fullkomnu, fimm stórum
ferðaútvarps— og segulbandstækj-
um, nokkrum myndavélum, leift-
urljósum og fleiru. Verðmæti þýfis-
ins var hundruð þúsunda króna.
I fyrrinótt hafði rannsóknarlögr-
eglan hendur í hári tveggja ungra
manna, 27 og 30 ára, sem játuðu á
sig innbrotið og gátu vísað á þýfið.
Hluta þess höfðu þeir selt fyrir brot
af raunverulegu andvirði. Menn
þessir hafa oft komið við sögu lögr-
eglu vegna ýmissa mála og eru nú
báðir í vörslu lögreglunnar.
PILTURINN, sem aðfaranótt síð-
asta laugardags rak 17 ára dreng á
hol skammt frá Hlemmi við Lauga-
veg, var í Hæstarétti í gær úrskurð-
aður í gæsluvarðhald allt til 1. maí
næstkomandi. Sakadómur Reykja-
víkur synjaði kröfu Rannsóknar-
lögreglu ríkisins um gæsluvarðhald
yfir piltinum um síðustu helgi og
áfrýjaði ríkissaksóknari málinu til
Hæstaréttar í framhaldi af því.
1 forsendum Hæstaréttar-
dómsins frá í gær segir m.a. að
pilturinn, sem er 19 ára gamall,
sé sakaður um tilraun til mann-
dráps (brot á 211. grein al-
mennra hegningarlaga samanber
20. grein), en refsing við því sé að
minnsta kosti fimm ára fangelsi.
Því beri að taka til greina kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkisins um
að pilturinn sæti gæsluvarðhaldi
allt til 1. maí næstkomandi. Talið
er sannað í málinu, að læknisað-
gerð hafi bjargað lífi drengsins,
sem varð fyrir hnífsstungunni.
Viðbótarkrafa ríkissaksóknara
um að hann yrði jafnframt lát-
inn sæta geðrannsókn var ekki
höfð uppi af hálfu RLR fyrir
sakadómi og kom hún því ekki til
álita fyrir Hæstarétti.
Árásarmaðurinn var fluttur í
gæsluvarðhald strax eftir upp-
Nú er talið að áhvílandi afurða-
lán og viðbótarlán á skreið séu
kvaðningu dóms Hæstaréttar
síðdegis í gær.
rúmlega einn milljarður króna.
Áætlað verðmæti birgða er 1,7
milljarðar og ógreiddur útflutn-
ingur er talinn nema 600 milljón-
um króna. Skreiðin rýrnar um 5%
á ári við geymslu og vextir auka
stöðugt áhvílandi skuldir.
Björgvin Jónsson er formaður
samstarfshóps skreiðarframleið-
enda um lausn vandans og leiðir
til úrbóta. Morgunblaðið innti
hann álits á því hve mikið endur-
greiðsla Seðlabankans lagaði stöð-
una og ennfremur á orðum
Steimgríms Hermannssonar um
greiðslu úr Verðjöfnunarsjóði.
Björgvin sagði framleiðendur vera
mjög þakkláta Seðlabankanum
fyrir að sýna vanda þeirra þennan
skilning. Seðlabankinn væri eina
stofnunin í stjórnkerfinu sem sýnt
hefði meira en í orði, að hún skildi
þann mikla vanda, sem framleiö-
endur stríddu við.
Ríkisstjórnin hefði fögur orð
um aðstoð við skreiðarverkendur,
en ennþá væru það ekkert nema
orð. Framleiðendur hefðu
rökstuddan grun um að fyrst og
fremst stæði fjármálaráðherra í
RAFMAGNSLAUST varð í stórum
hluta Reykjavíkur, Kópavogi,
Garðabæ, Hafnarfirði og á Suður-
nesjum upp úr miðnætti aðfara-
vegi þess að dreifa þessum mikla
vanda með aðstoð Verðjöfnunar-
sjóðs í bili. Það væru framleiðend-
um afskaplega sár vonbrigði, þar
sem hér væri um eitt mesta áfall,
sem nokkur atvinnugrein hefði
orðið fyrir í áratugi. „Það er jafn-
framt vert að undirstrika, að það
er ekki farið fram á eina krónu í
styrk vegna þess arna," sagði
Björgvin Jónsson.
nætur föstudagsins. Rafmagns-
leysið varði í um fjórðung stundar
er álag var flutt milii rafmagnslína
inn í borgina.
Aðalsteinn Guðjónsen, raf-
magnsveitustjóri Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að þetta hefði verið eins kon-
ar stillingaratriði í svonefndum
liðabúnaði. Þurft hefði að færa
álag á milli lína, Korpúlfsstaða-
linu og Elliðaárlínu, en liða-
búnaður, sem væri til að vernda
línurnar og stýra rofum, hefði
ekki unnið sem skyldi. Því hefði
línunni frá Elliðaárvirkinu sleg-
ið út, en um hana færi rafmagn í
Árbæjarhverfi, Breiðholt, Voga-,
Háleitis- og Bústaðahverfi,
Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð
og Suðurnes.
Á þessum tíma var verið að
gera að fótbroti í Borgarspítal-
anum, en að sögn Sigurðar Ang-
antýssonar, forstöðumanns
tæknideildar spitalans, kom
rafmagnsleysið ekki að sök, þó
að vararafall spítalans hefði
ekki farið í gang, þegar á átti að
reyna. Skurðstofuljós hefðu
strax kviknað og þar sem raf-
magnsleysið hefði ekki varað
nema stutta stund hefði það ekki
komið að sök. Auk þess hefði
verið hægt að koma raflinum í
gang ef nauðsynlegt hefði verið.
Greiðslukortavanskil:
Tveir menn fá skilorðs-
bundinn fangelsisdóm
Vanskil korthafa við Búnaðarbankann 5—10 millj.
kr. í dag, segir Stefán Hilmarsson bankastjóri
TVEIR dómar hafa nýverið verið kveðnir upp vegna vanskila Visa-
korthafa við Búnaðarbanka íslands. Annar dómurinn, sem kveðinn var
upp í sakadómi Kópavogs 4. marz sl., hljóðaði upp á fangelsisvist í einn
mánuð, skilorðsbundið til eins árs. Hinn, kveðinn upp í sakadómi Reykja-
vikur 28. nóv. sl„ fangelsisvist í tvo mánuði, skilorðsbundið í tvö ár.
Stefán Hilmarsson bankastjóri I Búnaðarbankanum sagði í viðtali við
Mbl., er rætt var við hann um dóma þessa, að vanskil Visa-korthafa við
bankann næmu í dag á milli 5 til 10 milljónum króna.
Stefán sagði vanskil á greiðslu- hefði kært. Dómarnir væru mjög
kortum óneitanlega mjög mikil
og mikið væri um að farið væri
yfir umsamdar hámarksupphæð-
ir, bæði í erlendum og innlendum
gjaldmiðlum. Aðspurður um
dómana sagði hann, að þarna
væri um að ræða fyrstu dómana í
málum sem Búnaðarbankinn
harðir, byggðir á 249. gr. hegn-
ingarlaga um skilasvik, þannig að
dómstólar litu á þetta sem auðg-
unarbrot. Hann sagði að í málum
þessum væri ekki um að ræða há-
ar vanskilaupphæðir og að bank-
inn tæki ekki til þess ráðs að
kæra fyrr en tveimur til þremur
mánuðum eftir fyrsta gjalddaga.
Þá sagði Stefán, að hann reikn-
aði með að fólk gerði sér ekki
grein fyrir, hversu dómstólar litu
alvarlega á brot sem þessi. Yfir-
dráttur á greiðslukortum væri I
raun sama brotið og yfirdráttur á
ávísanareikningum, en hafa bæri
í huga, að bankarnir gætu gengið
að þeim sem færu yfir á ávísana-
reikningum og þeim sem ábektu
ávísanir á einfaldari hátt. „Hér
er því um býsna alvarlegt mál að
ræða,“ sagði Stefán, „sem ég held
að korthafar geri sér kannski
ekki grein fyrir.“
Hnlfsstungumálið við Hlemm:
Árásarmaðurinn
í gæsluvarðhald
Hæstiréttur féllst á kröfu ríkissaksóknara
Víðtækt rafmagns-
leysi í fyrrinótt
Elliðaárlínu sló út er álag var flutt milli lína