Morgunblaðið - 20.04.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
7
Dagana 21. til 28. aprfl nestkomandi heimsækir okkur flnnsk-sænski háskólakvennakórinn Lyran frá Helsinki.
Finnskur kvennakór í heimsókn
DAGANA 21.—28. aprfl heimsækir
ísland flnnsk-sænski háskóla-
kvennakórinn Lyran frá Helsinki og
mun hann halda tónleika í Reykja-
vík og í Borgarflrði.
Fyrstu tónleikarnir verða í Fé-
lagsstofnun stúdenta við Hring-
braut mánudaginn 22. apríl og
hefjast þeir klukkan 20.30. A
efnisskránni verða m.a. gömul og
ný finnsk sönglög, þar af tvö ný
stærri verk; Dunk, eftir Herman
Rechberger og Landet som ikke
ár, eftir Mikko Heiniö, en síðar-
nefnda verkið hefur Lyran nýlega
sungið inn á hljómplötu. Einnig er
að finna á efnisskránni íslensk
þjóðlög í útsetningu Jóns Ás-
geirssonar. Auk þessara verka
flytur kórinn verk eftir Schuberg,
Brahms, Holst og Nystedt.
Lyran var stofnaður árið 1946,
en stjórnandi hans síðan 1972 hef-
ur verið Lena von Bonsdorff. Kór-
inn hefur unnið til margvíslegrar
viðurkenningar bæði í Finnlandi
og erlendis og hefur m.a. verið
sæmdur nafnbótinni „besti
kvennakór Finnlands". Þá syngur
kórinn reglulega með Útvarps-
hljómsveitinni í Helsinki og
Sinfóníuhljómsveit Helsinkiborg-
ar í uppfærslu stærri verka. Lyran
hefur farið í fjölda tónleikaferða í
Evrópu, en þetta er i fyrsta skipti,
sem hann sækir íslendinga heim.
Með í ferðinni er píanóleikarinn
Gustav Djupsjöbacka, einn
fremsti undirleikari Finna, en
hann leikur annars með Út-
varpshljómsveitinni í Helsinki.
Auk tónleikanna í Félagsstofn-
un verður kórinn gestur á Borg-
firðingavöku og syngur i Lyng-
brekku þriðjudaginn 23. apríl
klukkan 21.00. Að lokum syngur
kórinn á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskólabíói
laugardaginn 27. apríl.
Gunnar Hjaltason
sýnir í Háholti
GUNNAR Ásgeir Hjaltason opnar málverkasýningu í Háholti í Hafnar-
flrði í dag, laugardag, og stendur hún yflr til 5. maí.
Gunnar stundaði nám i teikn- hefur tekið þátt í samsýningum
ingu, módelteikningu og olíumál-
un hjá Birni Björnssyni og Mart-
eini Guðmundssyni. Hélt hann
fyrst málverkasýningu í Hafnar-
firði 1964 og hefur sýnt nær árlega
síðan, oftast i Hafnarfirði, en
einnig í Norræna húsinu, Bogasal
Þjóðminjasafns, Akureyri, Vest-
mannaeyjum og viðar. Gunnar
Hafnfirðinga og einnig átt myndir
á sýningu hafnfirskra málara i
Uppsölum og á íslandssýningu i
Vínarborg á siðasta ári.
Á sýningu Gunnars í Háholti
eru alls 152 myndir og verður sýn-
ingin opin alla daga frá kl. 14 til
22.
Gunnar Ásgeir Hjaltason vid tvö verka sinna.
Nýja Dóm-
kirkjuorgelið
kynnt
EFTIR messuna í Dómkirkjunni á
morgun kl. 2 e.h. verða sýndar teikn-
ingar af nýja Dómkirkjuorgelinu, en
það verður sett upp siðari hluta
þessa árs. Dómorganistinn, Mar-
teinn H. Friðriksson, mun útskýra
teikningarnar og segja frá orgelinu
og eiginleikum þess.
Jafnframt verður kirkjugestum
boðið í kaffisopa á kirkjuloftinu.
Er þetta gert til að kynna fyrir
söfnuðinum þetta höfuðverkefni
hans í ytri málum um þessar
mundir og efla um leið gagnkvæm
kynni.
(Frá Dómkirkjunni.)
Norskir skipta
um sendiherra
NIELS Lauritz Dahl var síðastliðinn
fóstudag skipaður sendiherra Nor-
egs á Islandi. Hann mun taka við
embætti af Annemarie Lorentzen
innan tíðar.
Annemarie Lorentzen er 63 ára
og hefur verið sendiherra Noregs á
íslandi síðan 1978. Þegar hún lætur
af embætti mun hún taka að sér
sérstök erindi á vegum norsku
utanríkisþjónustunnar.
Niels Lauritz Dahl er 59 ára.
Hann hóf störf t norsku utanríkis-
þjónustunni árið 1952. Hann starf-
aði um árabil í utanríkisþjónustu
Norðmanna í Hamborg, Moskvu,
París, Genf, Chicago og Stokkhólmi
áður en hann var skipaður sendi-
herra í Tanzaníu auk þriggja ann-
arra Afríkulanda.
Nýtt og vandað
myndbandstæki frá Thomson
á aðeins 37.539 kr. stgr.
Nú er tækifærið til að eignast nýtt og vandað
myndbandstæki frá Thomson. Þar með ert þú
orðinn þinn eiginn dagskrárstjóri og getur
stjórnað því hvernig þú ráðstafar kvöldinu.
Þetta tæki er framhlaðið og hefur að geyma
aliar helstu tækninýjungarnar eins og til
Gæðatæki á góðu verði
Góð greiðslukjör
THOMSOINI fj,
dæmis þráðlausa fjarstýringu, sjö daga
upptökuminni, tölvustýringu með snerti-
tökkum, myndspólun fram og aftur á tíföldum
hraða, góða kyrrmynd, sjálfvirka bakspólun,
os tólf rásir svo að nokkuð sé nefnt.
I
n m
iUHlUÚéM
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 68 7910-812 66