Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985
17
MorgunbliðiA/Arnir Ragnarason
Jón Baldursson og Hðröur Blöndal fagna sigri í íslandsmótinu í tvímenningi
í fyrravor. Björn Theódórsson forseti BSÍ, stendur hjá.
um alla burði til þess að ná upp
mjög góðu liði í framtíðinni. Við
eigum orðið nokkuð álitlegan hóp
spilara sem eru tilbúnir tl þess að
leggja á sig þá vinnu sem þarf.
— í lokin, Jón, hvaða ráð gefur
þú ungum spilurum sem ætla sér
að taka íþróttina alvarlega?
— Það er nauðsynlegt að spila
töluvert mikið til að byrja með að
minnsta kosti, en það er hins veg-
ar alls ekki nóg. Það verður að
leggja vinnu í spilið líka — stúd-
era, lesa bækur, ráðfæra sig við
sér eldri og reyndari menn. Eg er
til dæmis sannfærður um að það
hjálpaði okkur mikið þegar við
vorum að byrja að spila, að kom-
ast í kynni við spilara með langa
reynslu að baki, eins og Guðmund
Pétursson, Ásmund Pálsson og
Jakob R. Möller, svo nokkrir séu
nefndir. Við græddum mikið á því
að ræða við þessa menn.
En hvað sem öllu þessu líður
verða menn að gera sér grein fyrir
því að það verður enginn útlærður
í bridge — það er endalaust hægt
að bæta sig.
- O -
Við skiljum ekki svo við Jón að
fá ekki hjá honum eitt eða tvö
minnisstæð spil. Lítum fyrst á spil
sem réð úrslitum í Reykjavíkur-
mótinu í sveitakeppni 1976, en það
mót vann sveit Jóns Baldurssonar
og var það fyrsti meiriháttar titill
Jóns. Spilið kom fyrir undir lok
úrslitaleiks mótsins, sem var við
sveit Jóns Hjaltasonar.
Vestur
♦ K10832
V72
♦ Á8
♦ K732
Norður
♦ Á
♦ ÁKD9865
♦ 96543
♦ -
Austur
♦ DG54
V-
♦ 1072
♦ Á109854
Suður
♦ 976
VG10432
♦ KDG
♦ DG6
Jón hélt á suðurspilunum, en í
norður var Guðm. Páll Arnarson.
í A-V voru tveir aðrir Jónar, Ás-
björnsson og Hjaltason. Með eng-
an á hættu gengu sagnir þannig:
Vestur Norður Austur SuAur
íá. G.P.A. J.H. J.B.
— 1 hjarU Pass 2 hjörtu
2 spaðar 4 lauf Dobl 4 tígUr
4 hjörtu 4 spaðar Dobl 6 hjortu
Pa«H Pass Pass
Undarlegar sagnir. Stökk norð-
urs í fjögur lauf sýndi einspil eða
eyðu og slemmuáhuga. Einhver
hefði nú sleppt því að segja frá
tígulfyrirstöðunni að svo komnu
máli, en Jón lét sig hafa það að
segja fjóra tígla. Jón Ásbjörnsson
kom laufstuðningnum að undir
fjórum spöðum með þvi að melda í
lit andstæðinganna, segja fjögur
hjörtu. Þá fékk norður svigrúm til
að segja frá spaðafyrirstöðunni og
það var allt sem Jón Baldursson
þurfti, að hans mati, til að segja
sex hjörtu! Hann sá að veikleikinn
í tígli olli makker vandræðum og
ákvað að taka sjálfur af skarið.
Sem er honum mjög líkt.
Á hinu borðinu varð niðurstað-
an sú að norður spilaði fjögur
hjörtu, og þessi sveifla dugði til að
vinna úrslitaleikinn með nákvæm-
lega einum IMPa!
Skoðum loks spil frá íslands-
mótinu í tvímenningi 1983, sem
Jón vann með Sævari Þorbjörns-
syni. Jón og Sævar voru með spil
N-S, en A-V voru þeir Þorgeir
Eyjólfsson og Guðmundur
Sveinsson.
Vestur
♦ D5
▼ G109
♦ DG964
♦ KG4
Norður
♦ Á7
V72
♦ Á832
♦ ÁD862
Austur
♦ G109632
VD8543
♦ -
♦ 95
Suður
♦ K84
▼ ÁK6
♦ K1075
♦ 1073
Vestur Nortur Austur Sudur
GJ9. aÞ. Þ.E. J.B.
— — — 1 tigull
Pass 2 lauf 2 spaðar 3 Uuf
Pass 3 tfgtar 3 hjörtu 3 grond
Pass Paos Pmm
Guðmundur Sveinsson spilaði
út hjartagosa, sem Jón drap strax
á ásinn og lét út lauftíuna. Guð-
mundur setti lítið, sem er í sjálfu
sér eðlilegt, því ef Jón á fjórlit í
laufi, sem er ekki ólíklegt eftir
hækkun hans i þrjú lauf, getur
hann þurft að hitta á hvort hann
svínar drottningunni eða lætur tí-
una rúlla.
Jón lét tíuna rúlla og þar með
hafi hann fengið einn slag auka-
lega. Hann hélt áfram með laufið
og þegar i ljós kom að austur átti
tvö slfk, var ljóst að hann ætti
6—5 í hálitunum og þvi engan tig-
ul. Guðmundur henti spaða og
tígli i fjórða og fimmta laufið. Þá
tók Jón ás og kóng í spaða og
þvingaði Guðmund til að kasta
hjarta. Hjartakóngurinn hreins-
aði síðan síðasta hjartað af Guð-
mundi og nú var sviðið sett fyrir
endaspilun i tigli. Jón spilaði litl-
um tígli á borðið og þegar Guð-
mundur setti upp níuna fékk hann
að eiga slaginn. Hann þurfti svo
að hreyfa tígulinn aftur og 12
slagir voru í húsi.
— GPA.
Bridge_____________
Arnór Ragnarsson
íslandsmót í
tvímenningi
íslandsmótið i tvímenningi.
Undanrásir verða spilaðar nú
um helgina í Tónabæ í Reykja-
vík.
Til leiks eru skráð 110 pör (220
manns). Er þetta því stærsta
bridgekeppni sem hér hefur far-
ið fram til þessa, hér á landi. Að
likindum er þetta einnig meðal
stærstu tvímenningsmóta sem
hafa verið haldin á Norðurlönd-
um til þessa.
Spilað verður í sjö sextán para
riðlum, með tveimur spilum
milli para, 30 spil í hverri um-
ferð, alls 90 spil í þremur um-
ferðum. Slönguraðað verður eft-
ir árangri í 2. umferð og 3. um-
ferð mótsins. 24 efstu pörin
ávinna sér síðan rétt til þátttöku
í úrslitakeppninni, sem spiluð
verður helgina 4.-5. maí á Hótel
Loftleiðum.
Fjölmargir utanbæjarspilarar
eru skráðir til leiks að þessu
sinni og verður fróðlegt að fylgj-
ast með baráttu þeirra við
reykvísku spilarana, sem einok-
að hafa öll Islandsmót til þessa.
Góð aðstaða er fyrir hendi
fyrir áhorfendur í Tónabæ á
meðan á undankeppninni stend-
ur. Mótið hefst kl. 13 á laugar-
dag, 2. umferð verður spiluð á
laugardagskvöldi og 3. umferð
hefst kl. 13 á sunnudag.
Keppnisstjóri er Agnar Jörg-
ensson.
Framhaldsskóla-
mótið í bridge
Um síðustu helgi var háð í
Flensborgarskóla hið árlega
Framhaldsskólamót í bridge. Að
þessu sinni mættu aðeins 9 sveit-
ir til leiks. Eflaust hefur afleit
tímasetning þessa móts sett
strik í reikninginn hjá mörgum
skólum.
ótvíræðir sigurvegarar (eins
og oftast siðustu árin) varð sveit
Menntaskólans að Laugarvatni.
Hana skipuðu að þessu sinni:
Hermann Þ. Erlingsson, Júlíus
Sigurjónsson, Agnar Örn Ara-
son, Sigurjón Helgi Björnsson,
Ingólfur Haraldsson og Gunn-
laugur Karlsson. Efnilegir piltar
þar á ferð. Raunar hafa þeir
Hermann og Júlíus þegar getið
sér gott orð við græna borðið.
Röð sveitanna varð þessi:
Menntaskólinn á Laugarv. 198
Flensborg A-sveit 177
Menntaskólinn í Reykjavík 162
Flensborg B-sveit 153
Menntaskólinn við Sund 136
Fjölbraut, Suðurn. A-sveit 106
Fjölbraut, Suðurl. (Selfoss) 104
Fjölbraut, Ármúla 98
Fjölbraut, Suðurn. B-sveit 84
Ákveðið var að Ármúlaskóli í
Reykjavík héldi næsta Fram-
haldsskólamót sem verður i
byrjun febrúar 1986.
Bridgesamband Islands stóð
að skipulagningu mótsins.
Keppnisstjóri var Hermann Lár-
usson.
Bridgedeild
Rangæingafélagsins
Síðasta keppni vetrarins var
22 para barometertvímenningur
sem stóð yfir í 4 kvöld. Sigurveg-
arar urðu Björn Kristjánsson og
Hjörtur Elíasson með 188 stig en
þeir háðu harða keppni við
Kristin Sölvason og Stefán
Gunnarsson, sem hlutu 184 stig,
og Braga Björnsson og Þórð Sig-
fússon, sem hlutu 169 stig.
Jón Viðar Jónmundsson og
Óskar Guðjónsson urðu í fjórða
sæti með 136 stig og Gunnar Al-
exandersson og Katrín Óskars-
dóttir fimmtu með 112 stig.
Þá er keppni iokið á þessum
vetri. Blaðafulltrúi þakkar sam-
starfið á liðnum vetri. Umsjón-
armaður þáttarins sendir gagn-
kvæmar þakkir.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Hafinn er þriggja kvölda
vortvímenningur með þátttöku
16 para. Spilað er í einum riðli
og er staða efstu para þessi:
Ólafur Ingimundarson —
Sverrir Jónsson 234
Björn Eysteinsson —
Kristófer Magnússon 233
Dröfn Guðmundsdóttir —
Erla Sigurjónsdóttir 230
Jón Sigurðsson —
Sigurður Aðalsteinsson 226
Sigurbjörn — Helgi 223
Kristján Hauksson —
Ingvar Ingvarsson 220
Meðalskor 210.
Næsta spilakvöld verður á
mánudaginn kemur kl. 19.30 í
íþróttahúsinu við Strandgötu.
Bridgefélag
Breiðholts
Að 6 umferðum loknum i
Board a match sveitakeppni er
röð efstu sveita þessi:
Sveit:
Helga Skúlasonar 74
Baldurs Bjartmarssonar 73
Ragnars Ragnarssonar 68
Bergs Ingimundarsonar 66
Eiðs Guðjohnsen 61
Næsta þriðjudag lýkur þessari
keppni en þriðjudaginn 30. april
verður spilað eins kvölds tví-
menningur. Spilað er i Gerðu-
bergi kl. 19.30 stundvislega.
lauka-
útsala
20-50%
afsláttur af öllum
vorlaukum og rósastilkum.
Ungplöntumarkaöur
Hedera í keramikpotti 150 kr.
Heimilisfriöur í keramikpotti 150 kr.
Blómaúrvaliö er hjá okkur
Allar skreytingar unnar af fagmönnum
VIÐ MIKLATORG
*BU)M©AVEmR
Hafnarstræti 3.