Morgunblaðið - 20.04.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
19
75 ára:
Jónas Pétursson
fyrrv. alþingismaður
Þótt við stöldrum af og til við og
lítum í kringum okkur er ekki
sama að segja um tímann, því
hann heldur sínum hraða og
markaðri braut og þýðir lítið að
biðja hann um að stöðva eða
hægja á hraðanum. Og nú er ég
minntur á að vinur minn, Jónas
Pétursson, fyrrum þingmaður
Austfirðinga, á Lagarfelli er 75
ára í dag.
Þykir mér því hlýða í fáum orð-
um að færa honum þakir fyrir al-
veg sérstaka samfylgd seinustu
ára og eins fyrir öll skrif hans til
mannbóta og veglegra lífs. Þar
hefir hann verið ötull forystumað-
ur. Gæfa hans hefir verið mikii.
Hann hefir fengið tækifæri til
margra góðra verka og nýtt sér
þau. Hann hefir aldrei misst áttir
í þeim málum sem hann vissi
landi og þjóð til gagns. Og þótt
stundum hafi honum fundist hann
vera hrópandans rödd í eyðimörk-
inni, hefir það alltaf skeð að þau
fræ er hann hefir sáð hafa náð
þroska og stundum með óskiljan-
legum hætti.
Og enn heldur hann áfram. Nú
er það ný vernd. Stórt og mikið
verkefni þjóðfélagsþegna í upp-
byggingu landsins. Sýn, ef til vill
ekki í augsýn, en leið hans í þess-
um efnum þannig vörðuð að
ósjálfrátt fá menn trú á þessu og
slást í hópinn.
Og veglegri afmælisgjöf er ekki
hægt að færa Jónasi á þessum
merku tímamótum í lífi hans, en
að ljá þessu kalli hans til fegurra
mannlífs eyra og koma með og
verða hlekkur i keðju þessara
mannbóta.
Hringvegurinn um landið var
fyrst hugarburður Jónasar, fjar-
lægur þá eins og aidamótasýn
Hannesar Hafstein. Þessi hugsýn
og framsýn hans er nú veruleiki.
Og ný vernd verður að veruleika.
Undirstöður allar af hálfu Jónasar
lofa þar góðu.
Hamingjan hefir gefið Jónasi að
sjá marga drauma rætast. Hann
hefir ætíð orðið að berjast fyrir
hugsjónunum. Vit hans og áræði
hafa oft fært honum drjúg úrslit.
Jónas er félagsmálamaður.
Snemma hafði ungmennafélags-
hreyfingin áhrif á hann og hann
gat fljótt tileinkað sér tslandsvís-
ur Jóns Trausta: Ég vil elska mitt
land. Þetta er hans lán.
Ég vil fagna með Jónasi á þess-
um degi, fagna unnum sigrum og
óska nýrra. Þakka honum sér-
staka vinsemd í minn garð sem
hefir orðið mér til aukinnar trúar
á gróandi þjóðlíf lands og lýðs,
hvatningarorð hans og hlýju radd-
ar.
Kæri vinur. Innilegar þakkir
fyrir allt. Guð gefi þér enn þrek til
átaka góðum málum!
Árni Helgason
Ert þú
umsjónarmaður sparibauksins á vinnustaðnum,
fjárhaldsmaður, fjármálastjóri, sparifjáreigandi,
eða þarft þú að varðveita fé á góðan og öruggan hátt?
Vttgerum þérsérstakt tflboO
Reynist meðalinnstæða á Bónusreikningi, á árinu 1985, 500.000 kr. eða hærri
verður 2% Vaxtabónus lagður við þann Bónusreikning.
Vaxtabónus reiknast af samanlögðum áunnum verðbótum og vöxtum á árinu 1985
og verður lagður við þá Bónusreikninga, sem uppfylla ofangreind skilyrði,
þann 20. jan. 1986.
Tilboðið gildir fyrir alla þá sem eiga nú fé á Bónusreikningi eða stofna Bónusreikning
fyrir 15. maí nk.
Ársávöxtun á Bónusreikningi
jan. - mars 1985 var =
Með Vaxtabónus
hefði hún orðið =
50,11%
1,01%
51,71%
Iðnaðarbankinn