Morgunblaðið - 20.04.1985, Qupperneq 20
20
MORGUNBLADH), LAUGARDAGUR 20. APRÍL1985
Tveir íslendingar í fangelsi á Spáni:
Teknir með 360 gr af hass-
olíu við komuna frá Marokkó
TVEIR ungir íslendingar voru handteknir meö 360 grömm af hassolíu í
hafnarbænum Algeciras á Gíbraltarströnd Spánar á föstudegi fyrir viku.
Sitja þeir nú í fangelsi þar í benum. Er taliö aö þeir hafi kevpt hassolíuna
handan sundsins, í borginni Ceuta í Marokkó. Ræöismaður Islands í Mal-
aga, Marín Guðrún Brian de Crevecoer, sagði í samtali við blaðamann Mbl.,
að 3—4 vikur myndu líða áður en piltarnir yrðu leiddir fyrir rétt í borginni
Cadiz.
Hún sagði að þeir hefðu komið
utan með íslenskri ferðaskrifstofu
á miðvikudaginn í fyrri viku.
Hefðu þeir tekið sér bíl á leigu og
haldið yfir til Marokkó en toll-
verðir hefðu fundið hassolíuna í
fórum þeirra við komuna til Al-
geciras. Þeir voru umsvifalaust
fluttir í tugthús þar í bænum og
verða geymdir þar unz þeir hafa
verið fluttir í fangelsið í Cadiz.
Ekki mun vera mögulegt að fá
piltana Iátna lausa gegn trygg-
ingu.
Annar þeirra hefur áður setið f
spánsku fangelsi í fjórtán mánuði
grunaður um smygl á kannabis-
efnum. Hann hlaut þó ekki dóm þá
og var sleppt úr fangelsinu fyrir-
varalaust eftir liðlega árs setu.
Hassolía er unnin úr kannabis
eins og hass en er talin vera 3—5
sinnum sterkari miðað við magn.
Gangverð á hassolíu hér heima
er talið vera um 2.500 krónur
grammið, þannig að áætlað sölu-
andvirði efnisins, sem piltarnir
voru teknir með á Spáni, er um
900 þúsund krónur. Ekkert liggur
þó fyrir um að ætlunin hafi verið
að flytja efnið til Islands.
Vitað er um annan íslending f
fangelsi á Spáni. Sá situr f fang-
elsi í Malaga og hefur verið þar í
rúma níu mánuði eða eftir að
hann var handtekinn ásamt öðr-
um í ágúst í fyrra og þeir sakaðir
um að hafa stolið úr hótelherbergi
íslenskrar konu í Torremolinos.
Annar þeirra var látinn laus gegn
500 þúsund peseta (um 120 þúsund
króna) tryggingu, sem spánsk
vinkona hans gat reitt fram. Mál
hins hefur ekki komið fyrir dóm
en síðan í desember hefur verið
beðið eftir að það yrði tekið fyrir á
hærra dómsstigi.
Engin vitni voru að meintum
þjófnaði piltanna og hefur það
m.a. tafið fyrir framgangi máls-
ins, skv. upplýsingum ræðis-
mannsins í Malaga. Meðal þess,
sem fullyrt var að hann hefði stol-
ið úr herbergi konunnar í fyrra-
sumar, var leikfangabyssa. Hann
var upphaflega handtekinn fyrir
að skjóta af samskonar leikfanga-
byssu upp í loftið á götu úti — en
kveðst engu hafa stolið, byssuna
hafi hann keypt af manni á förn-
um vegi.
„Ósatt að til okkar hafi
verið leitað um vinnuafl"
— segir Guðríður Elíasdóttir, formaður verkakvennafélagsins í Hafnarfirði
í framhaidi af aðalfundi VSÍ:
,ÞAÐ SEM maðurinn segir eru belber ósannindi. Hann hefur aldrei Ulað
ið mig eða okkur bér hjá verkakvennafélaginu Framtíðinni. Við erum mjög
eiðar út af svona framkomu og vinnubrögðum,“ sagði Guðríður Elíasdóttir,
ormaður Framtíðarinnar og annar varaforseti Alþýðusambands Islands, er
4bl. bar undir hana ummæli Jakobs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Sjé-
angs í Örfírisey, á aðalfundi Vinnuveitendasambands íslands sl. þriðjudag.
í frétt blaðsins af aðalfundinum
sl. miðvikudag var haft eftir
Jakobi að hann hefði óskað eftir
að minnsta kosti tíu atvinnulaus-
um fiskvinnslustúlkum til vinnu í
Örfirisey og boðist til að borga
fyrir þær ferðir, mat og kaffi „en
ég fékk neitun", sagöi hann á aðal-
fundinum. Kvaðst hann telja að
þetta sýndi einfaldlega, að fólkinu
þætti jafngott að vera heima og
gera ekki neitt.
Guðríður Elíasdóttir sagði að
hún hefði fyrir nokkru fengið upp-
hringingu frá fiskverkanda í
Hafnarfirði, sem hún taldi að væri
í einhvers konar samstarfi við
Jakob Sigurösson i Sjófangi. „Ég
fékk ekki skýr svör um þaö hvort
ferðir yrðu borgaðar. Það hefur
enginn boðið upp á ferðir og fritt
fæði,“ sagði hún. „ísbjörninn
hringdi til mín og bauðst til að
borga ferðir fram og til baka.
Það getur auðvitað enginn
skikkað fólk til að fara að vinna i
öðru bæjarfélagi — margar þess-
ara kvenna halda heimili og þurfa
að komast heim i hádeginu til að
sinna börnum sinum. Það geta
þær vitaskuld ekki ef þær eru að
vinna í Reykjavik. Orðsendingar
af þessu tagi eru hreinasta ósvífni,
ekkert annað,“ sagði Guðriður Eli-
asdóttir.
Ómar skemmtir
aftur á Broadway
ÓMAR Ragnarsson mun á næstu vikum halda nokkrar skemmtanir (
veitingahúsinu Broadway og verður sú fyrsta nk. miðvikudagskvöld,
síðasta vetrardag.
Skemmtanirnar verða með
sama sniði og ómar var með i
Broadway í fyrra, en þar gefur
að heyra og sjá þverskurð af þvi
efni, sem Ömar hefur gert vin-
sælt á 25 ára ferli sem skemmti-
kraftur.
I fyrra voru haldnar 25
skemmtanir, ávallt fyrir fullu
húsi. Þeim varð að hætta i miðj-
um kliðum vegna þess að Sumar-
gleðin var að hefja starfsemi
sína, en þar er ömar meðal
skemmtikrafta.
Ákeðið var að taka upp þráð-
inn í vetur en það hefur dregist
vegna mikilla vinsælda Ríó
tríósins, sem skemmt hefur í
Broadway í vetur. Ríó tríó hefur
komið fram i 45 skipti, oftast
fyrir fullu húsi. Ljóst er að Ríó
tríóið mun skemmta áfram
a.m.k. fram í miðjan mai, að þvi
er ólafur Laufdal veitingamaður
tjáði blaðinu í gær.
í næstu viku byrjar Reviu-
leikhúsið sýningar á reviunni
Grænu lyftunni i Broadway.
Fyrsta sýningin verður nk.
þr iðj udagskvöld.
Frá borgarstjórn
Börnin í borginni
fá ný leiktæki
í afmælisgjöf
í Reykjavík eru um 200 leiksvæði sem æthið eru börnum til útivistar,
leikja og sUrfa. Á fundi borgarstjórnar á fimmtudag var tillaga borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að unnið verði að áætlun um að endurnýja
og endurbæta leiktækjakost á útivistar- og leiksvæðum barna ( borginni
samþykkt samhljóða. Samkvæmt henni verður framkvæmdaáætlun unnin til
3—5 ára og haflst handa um framkvæmdir ekki síðar en í byrjun næsta árs
og verður þetta gjöf borgarinnar til barna á 200 ára afmæli borgarinnar.
Ingibjörg Rafnar, formaður fé-
lagsmálaráðs, sagði m.a. að fela
ætti starfsmönnum borgarinnar,
sem kunnugastir eru þessum mál-
um og þörfum barna og unglinga á
þessu sviði, að vinna úr þeim
hugmyndum sem fyrir hendi eru
og gera um þær tillögur. Þá væru
borgarbúar eldri sem yngri hvatt-
ir til að koma sinum hugmyndum
á framfæri um gerð leiktækja.
Raddir hefðu heyrst um, að
borgarbörn séu orðin leið á hinum
hefðbundnu leiktækjum og leggja
þyrfti áherslu á nýjar útfærslur
og hugmyndir og í framhaldi af
því mætti auka enn fjölbreytnina
með því aö flytja mismunandi
tæki og tól á milli hverfa í borg-
inni með litlum tilkostnaði.
Hugmyndin væri að verja um 5
milljónum króna til þessa verk-
efnis á næsta ári, en með þessari
afmælisgjöf til barna ( borginni
vildu borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins minna á börnin og að
leikir barna væru mikilvægur
þáttur á þroskabrautinni og að
það væri skylda borgaryfirvalda
að sinna þessari þörf.
Hulda Valtýsdóttir, formaður
umhverfisráðs sagði m.a. að þessi
fjárhæð til leiktækjagerðar væri
ætluð umfram þær fjárhæðir sem
varið verður til leiksvæða. Hafði
hún orð á því að borgarfulltrúar
minnihlutans hefðu fagnað þess-
ari tillögu með snúð og reynt að
eigna sér hana. Orðum um hvort
meirihlutinn ætlaði með þessari
gjöf til barnanna að afgreiða
börnin á afmælisárinu kvað hún
ekki vert að svara.
Stuttar
fréttir
Stjórn SPRON
Á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag voru Ágúst Bjarnason
og Sigurjón Pétursson kjörnir í
stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis til eins árs. Auk þeirra
var gerð tillaga um Guðríði Þor-
steinsdóttur, en hún náði ekki
kjöri.
Félag einstæðra foreldra
Nýlega samþykkti borgarráð
tveggja milljóna króna lánveit-
ingu til Félags einstæðra foreldra
vegna kaupa félagsins á húseign.
Samþykkti borgarráð að færa
lánveitinguna á fjárveitingu borg-
arinnar vegna leiguíbúða. Á fundi
borgarstjórnar á fimmtudag lét
Guðrún Jónsdóttir, borgarráðs-
maður og borgarfulltrúi Kvenna-
framboðsins, bóka að Kvenna-
framboðið fagnaði þessari veit-
ingu, en mótmælti hins vegar að
taka ætti hana af fjárveitingu til
leiguíbúða. Þar sem hún hefði
þurft að víkja af fundi borgarráðs
áður en lánveitingin var samþykkt
hefði hún ekki getað gert þessa
athugasemd við afgreiðslu máls-
ing.
Varsla skóla, barnaheitnila
og félagsmiðstöðva
Borgaryfirvöld hafa gert samn-
ing við Securitas um sameiginlega